Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 25
geta aukið álagið enn frekar eins og veikinda barna eða foreldra,“ segir Eva-Lena. Hún leggur áherslu á að vinnutengd streita heilbrigð- isstarfsmanna eigi ekki síst rætur að rekja til skipulagsbreytinga sem hafa verið daglegt brauð á mörgum sjúkrahúsum í anda hagræðingar síðustu hátt í tveggja áratuga. Kenningarnar um samband nátt- úru og streituþols ganga m.a. út á að útiveru fylgir alltaf hreyfing, að sögn Evu-Lenu. „Það eru meiri lík- ur á að hreyfing verði reglubundin ef áhugamálið krefst útivistar. Áhugamálið getur til dæmis verið hundur, garðyrkja eða veiði. Úti- veran og þar með hreyfingin leggur grunninn að heilbrigðara lífi. Þreyta, verkir, erfiðleikar við ein- beitingu, þunglyndi og fleiri streitueinkenni minnka þegar við hreyfum okkur reglubundið. Á þessu byggir verkefnið Græn endurhæfing. Á dagskránni eru gönguferðir og garðyrkja, auk þess samtöl, afslöppun, æfingar og myndmál. Venjulegur dagur hjá hópnum sem er í veikindaleyfi vegna kulnunar í starfi hefst kl. 9 með mjúkri lendingu í kaffi. „Margir eiga fullt í fangi með að koma sér á staðinn. Þeir hafa kannski verið veikir heima lengi og eru komnir út úr allri rútínu. Þá er mikilvægt að lendingin sé mjúk. Við sitjum og spjöllum smástund áður en eitthvað skipulagt hefst í garð- inum sem tengist hverri árstíð,“ segir Eva-Lena. Sálgreining í gróðurhúsi Er viðtalið fór fram var búið að vera að vinna í haustverkunum; taka upp matjurtir, raka lauf og búa garðinn undir veturinn. Síðan tekur við að höggva í eldiviðinn eða flétta lítil grindverk svo dæmi séu tekin. Aðrar árstíðir eiga önnur verk s.s. að reyta arfa eða sá fræj- um. En þurfa þátttakendurnir ekki að hafa brennandi áhuga á garð- rækt? „Ekki endilega. Margir fá áhuga í leiðinni en flestir hafa hann að ein- hverju marki. En það er nauðsyn- legt að þátttakendurnir vilji vera úti til að verkefnið virki.“ Hver og einn getur stjórnað því hvað hann eða hún vill gera. Sumir vilja taka ærlega til hendinni með því að endurskipuleggja beð eða höggva í vænan viðarstafla. Aðrir vilja flétta lág grindverk eða reyta arfa á afmörkuðu svæði. Allir geta fengið verkefni við hæfi og garð- urinn er skipulagður þannig að vinnustöður séu þægilegar. Maður þarf t.d. ekki að bogra yfir öllum beðum heldur er hægt að sitja á steinkanti eða standa á næstu flöt fyrir neðan. Eftir góða stund í garðinum kennir sjúkraþjálfarinn afslöpp- unartækni eða fræðir og ræðir um svefn í hópnum. Þátttakendurnir fá einnig einstaklingsviðtöl við sál- greini og þar kemur gróðurhúsið í garðinum sterkt inn. Lítið borð með tveimur stólum innan um gúrkur og paprikur í litlu sætu gróðurhúsi getur verið ágætis vett- vangur til að létta á hjarta sínu. „Svo notum við líka myndmál þannig að þátttakendur mála eða teikna með því markmiði að skilja sjálfa sig betur en þurfa ekki endi- lega að útskýra fyrir öðrum,“ segir Eva-Lena. Grasagarðurinn sjálfur er svo notaður til gönguferða. „Þá reynum við að opna augu þátttakendanna fyrir því að náttúran er ekki bara grænt teppi eða einhver tré. Við skoðum náttúruna nánar og lærum eitthvað nýtt. Hér getur fólk upp- lifað samhengi manns og náttúru með nýjum hætti og það hefur góð áhrif.“ Að létta á hjarta sínu Gróðurhúsið er notað fyrir einstaklingsviðtöl sem þátttakendur eiga við sálgreini. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 25 Kaupauki fylgir vöru frá Oroblu Kynning á n‡ju vetrarvörunum frá Oroblu í Lyfjavali Mi›vikudag, kl. 13-17 í Mjódd Fimmtudag, kl. 14-18 í Álftam‡ri Fyrirsæta: Katrín Dögg Frábært tilboð Smeg gaseldavél *Tilboðið gildir meðan birgðir endast. AFSLÁTTUR 30% GLÆSILEG GASVÉL -hágæðaheimilistæki Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 www.eirvik.is Kr. 138.950*stgr B70MSX5 70 sm Smeg gaseldavél Fjórar gashellur með pottjárnsgrindum 65 ltr ofn með 8 kerfum. Kæling í hurð, heitur blástur, grillteinn. Verð áður kr. 198.500 stgr. vi lb or ga @ ce nt ru m .is Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina til Kanaríeyja 4. desember í 15 nætur á frábæru verði. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Kanarí 4. des. frá kr. 49.990 15 nætur - síðustu sætin Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi / stúdíó / íbúð í 15 nætur. Stök ktu til Reykjavíkurvegur Flatah rau n Fjarðarhraun Bæjarhraun Helluhraun H ja lla h ra u nGjó tuhraun Sléttahraun Haukahraun Reykjanesb rau t ® www.straumur.is Gjótuhraun 1 • Sími 544 5330 • Fax 544 5355 straumur@straumur.is Við höfum flutt alla starfsemi okkar að Gjótuhrauni 1 í Hafnarfirði í nýtt sérhannað og rúmgott húsnæði. Heildarlausn fyrir VÖRUHÚSIÐ 28 21 / TA K TÍ K 1 1. 20 07

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.