Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 22
|miðvikudagur|21. 11. 2007| mbl.is daglegtlíf Í Grasagarðinum í Gautaborg er nú unnið að end- urhæfingu þeirra sem greinst hafa með kulnun í starfi. » 24 heilsa Að æfa reglulega, t.d. í 1-2 tíma þrisvar sinnum í viku, kallar ekki á sérfæði heldur hollan, venjuleg- an mat. » 24 hollráð Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Þrjár konur, sem allar erutextílkennarar að menntog starfa í grunnskólumKópavogs, hafa nú snúið bökum saman og látið gamlan draum rætast til að finna sköpunar- þörfinni farveg. Þær hafa nefnilega nú nýlega opnað glænýtt hönnunar- verkstæði þar sem þær framleiða kvenfatnað og heimilislega húsbún- aðarlínu undir vörumerkinu „Nostr- um design“. „Okkur finnst svo skemmtilegt að nostra saman og því vísar vörumerk- ið okkar í það,“ segir Sigrún Dóra Jónsdóttir, ein þremenninganna, en þær fengu grafíska hönnuðinn Örn Smára Gíslason til þess að hanna vörumerkið. „Við opnuðum vinnu- stofuna og verslunina hér við Dalveg í Kópavogi fyrir tæpum þremur vik- um síðan og höfum fengið blússandi viðtökur og fljúgandi start,“ segir Sigrún og Arna Vignisdóttir bætir við að þær stöllur hafi þrjú „eff“ að leiðarljósi við framleiðsluna: faglegt, flott og fágað. Kvenfata- og heimilislínur „Í kvenfatalínunni erum við að hanna og sauma peysur, vesti, jakka, slár, boli, kjóla, pils, húfur og trefla. Heimilislínan geymir svo meðal ann- ars gardínur, lampa, pressukönnu- hettur og púða,“ segir Hulda Hall- grímsdóttir. Þær stöllur segjast koma að hönn- uninni sem ein kona því þær vinni alla hönnun í sameiningu, frá upp- hafi til enda, og saumi allar sínar flíkur sjálfar þótt draumurinn sé auðvitað sá að hægt verði að ráða starfsfólk til þess þegar frá líður. „Auk þess að starfa saman hér á nýja verkstæðinu erum við allar í hlutastarfi sem grunnskólakennarar og skiptumst svo á að standa búðar- vaktina,“ segir Hulda, sem er text- ílkennari í Lindaskóla. Eins og Hulda starfar Sigrún Dóra, eða Diddú, eins og hún er oftast kölluð, við Lindaskóla sem almennur bekkj- arkennari. Arna starfar hinsvegar í Kópavogsskóla sem textílkennari. Með eina viðskiptahugmynd „Við höfum allar unnið sem textíl- kennarar í mörg ár og kynntumst í gegnum starfið og enn betur eftir að við fórum saman í nokkrar ferðir til Danmerkur, meðal annars til þess að læra að þæfa ull. Í fyrrahaust ákváðum við svo að skella okkur saman á Brautargengisnámskeið hjá Impru með eina viðskiptahugmynd, sem snerist um að opna saman hönn- unarverkstæði og verslun. Þar lærð- um við margt nytsamlegt og fengum m.a. hvatningarverðlaun að loknu náminu sem hvatti okkur náttúrlega enn frekar til dáða. Og hér erum við staddar, komnar með verkstæði og verslun, og lítum framtíðina bara björtum augum,“ segir Hulda. Teygjanleiki og hreyfanleiki Þær Hulda, Arna og Diddú vinna mikið úr íslenskri ull og öðrum nátt- úrulegum, ullartengdum efnum og kappkosta að hafa flíkurnar sínar fyrst og fremst þægilegar og með ákveðinn teygjanleika og hreyfan- leika fyrir konuna. „Það var með ráðum gert að hafa vinnustofuna og verslunina í einu rými, meðal annars til að skapa ákveðna stemningu, og svo erum við með þæfingaraðstöðuna hér inn af þar sem við sullum með vatn og sápu,“ segir Arna og Diddú bætir við að viðskiptavinirnir geti fylgst með framleiðsluferlinu eða beðið ef upp koma minni háttar séróskir eða sér- þarfir og þurfi ekkert að kippa sér upp við að sjá tvinnakefli og spotta hér og þar. „Og svo gætum við þess sér- staklega að nostra vel við allan frá- gang,“ segir Hulda að lokum. Morgunblaðið/Frikki Textílhönnuðir Þær Hulda Hallgrímsdóttir, Sigrún Dóra Jónsdóttir og Arna Vignisdóttir hafa nú látið sameig- inlegan draum sinn rætast um að opna saman hönnunarverkstæði og verslun. Kvenfatalínan Fötin eru hönnuð fyrir konuna og eru úr náttúrulegum ullarefnum með teygjanleika og hreyfanleika. Stofustáss Púðar í jarðlitunum sóma sér vel sem stofustáss. Lampi Í heimilislínunni eru gardín- ur, pressukönnuhettur og lampar. „Skemmtilegt að nostra saman“ Ullarvesti Brúnt, grátt, svart og hvítt vesti með stimplum og perlusaumi. Við höfum allar unnið sem textílkennarar í mörg ár og kynntumst í gegnum starfið og enn betur eftir að við fórum saman í nokkrar ferðir til Danmerkur, meðal annars til þess að læra að þæfa ull. Nostrum design er til húsa á Dal- vegi 16A í Kópavogi. Opið er virka daga kl. 12.00-18.00 og á laug- ardögum kl. 11.00-16.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.