Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 17
MENNING
GRÍSKA bókaforlagið Polis hefur
gert samning um gríska útgáfu af
spennusögu Árna Þórarinssonar,
Tíma nornarinnar, og þar með verður
Grikkland tíunda
landið þar sem
bókin kemur út í
þýðingu, en áður
hefur hún komið
út í Þýskalandi,
Frakklandi, Ítal-
íu, Tékklandi,
Danmörku, Nor-
egi, Svíþjóð, Finn-
landi og Hollandi.
Í Frakklandi
var bókin þátttak-
andi í tveimur bókmenntahátíðum,
fyrst í Impressions d’Europe í borg-
inni Nantes, en þar voru norrænar
bókmenntir í brennidepli og auk
Árna var þeim Einari Má Guðmunds-
syni og Kristínu Ómarsdóttur boðið á
hátíðina auk Guðrúnar Vilmund-
ardóttur hjá Bjarti. Seinni hátíðin var
Salon de la Littérature Européenne í
Cognac, en á báðum hátíðunum voru
íslensku myndirnar Hafið og Nói alb-
ínói sýndar til viðbótar við bókmennt-
irnar.
Franskir bókagagnrýnendur hafa
lofað bókina og lýsti Julien Védrenne
í Le Littéraire.com sögunni svona:
„Eins og rýtingur sé dreginn út úr
hjarta þjóðar.“
Tími
þýðinga
Tími nornarinnar
þýdd á tíu mál
Árni Þórarinsson
VEFVERSLUNIN Amazon hóf í
fyrradag sölu á eigin rafbók sem ber
nafnið Kindle. Tækið er á stærð við
pappírskilju og komast um 200 bæk-
ur eða dagblöð fyrir í því, þ.e. hægt að
hala niður í það
um 200 titlum af
netinu. Slík raf-
bók er alls ekki ný
uppfinning en
þessi er ólík þeim
sem áður hafa
verið á markaði að
því leyti að hún er
með svokölluðu
„rafrænu bleki“.
Það gerir lestur af
skjá auðveldari og
líkari lestri af pappír, skjárinn er ekki
með baklýsingu og hægt er að hala
niður þráðlaust án þess að vera með
nettengda tölvu.
Notendur geta því náð sér í blöð
eða bækur nokkurn veginn hvar og
hvenær sem er. Kindle kostar 399
dollara, eða um 24.000 kr. Bókaormar
hafa ekki reynst ginnkeyptir fyrir
rafbókum til þessa og heldur kosið
pappírsútgáfu en hver veit nema
breyting verði þar á.
Þráðlaus
rafbók
Amazon Kindle.
TÓMAS R. Einarsson verður
með sjö manna hljómsveit sér
til fulltingis á Múlanum kl. 21 í
kvöld þar sem spiluð verða lög
af latínplötum Tómasar, Kúb-
anska, Havana og Romm
Tomm Tomm. Aðrir hljómsveit-
armeðlimir eru Kjartan Há-
konarson á trompet, Óskar
Guðjónsson á tenórsaxófón,
Samúel J. Samúelsson á bás-
únu, Ómar Guðjónsson á gítar,
Sigtryggur Baldursson á slagverk og Matthías MD
Hemstock á trommur og slagverk, en sjálfur spilar
Tómas á kontrabassa. Eftir tónleikana munu
hljóma lög af nýju plötunni, Rommtommtechno.
Tónlist
Latíndans Tómasar
á Múlanum
Tómas R.
Einarsson
LETTNESKI píanóleikarinn
Liene Circene heldur tónleika í
Salnum í Kópavogi kl. 20 í
kvöld. Circene spilaði áður í
Salnum í október árið 2003 og
september 2004 en auk þess
spilaði hún með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands árið 2005.
Tónleikarnir nú eru loka-
tónleikar hennar í tónleikaför
sem hófst í Bandaríkjunum og
Kanada. Á efnisskránni er
glæný sónata eftir ungt lettneskt tónskáld, Edg-
ars Raginskis (fæddur 1984), vögguvísur eftir
ýmsa samlanda hennar, Noveletta eftir Schu-
mann og þrír argentínskir dansar eftir Ginastera.
Tónlist
Píanóleikarinn
Circene í Salnum
Liene Circene
YRSA Sigurðardóttir les upp
úr bók sinni Ösku á Súfistanum
í kvöld, en bókin kemur út á
morgun. Einnig verður lesið
upp úr tveimur þýddum
spennusögum. Önnur þeirra er
Drápin eftir Andreu Mariu
Schenkel og það er þýðandinn
Ingunn Ásdísardóttir sem les,
en í bókinni er fjallað um óupp-
lýst morðmál á bóndabænum
Tannöd í Suður-Þýskalandi.
Svo verður lesið upp úr breska krimmanum Horf-
inn eftir Robert Goddard sem Uggi Jónsson
þýddi. Upplesturinn hefst klukkan hálfníu og
stendur í um klukkustund.
Bókmenntir
Krimmakvöld
á Súfistanum
Yrsa
Sigurðardóttir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
SKIPULEG leit og skráning ný-
yrða og nýrra orða er undir tungu-
tækni komin og því að mannskapur
og fjármagn fáist til slíkrar vinnu.
Tungutækni vísar til samvinnu
tungumáls og tölvutækni í hagnýtum
tilgangi, í þessu tilfelli að skrá skipu-
lega þróun íslensks máls. Sem dæmi
um hugbúnað sem heyrir undir
tungutækni má nefna talgervla, leið-
réttingarforrit sem lagfæra stafsetn-
ingu, beygingar og orðanotkun. Sér-
stakt Tungutæknisetur var stofnað í
júní 2005 með undirritun samstarfs-
samnings Málvísindastofnunar Há-
skóla Íslands, tækni- og verk-
fræðideildar Háskólans í Reykjavík
og Orðabókar Háskólans. Setrinu er
ætlað að vera vettvangur fyrir sam-
starf þessara aðila um rannsóknir,
þróun og kennslu í tungutækni.
Eiríkur Rögnvaldsson, formaður
setursins, segir söfnun nýrra orða
fara fram með ýmsu móti á Norð-
urlöndum, líkt og kom fram í fyrri
fréttaskýringu Morgunblaðsins um
leit og skráningu nýyrða. Í Svíþjóð
hafi sænska málnefndin á sínum
snærum fólk sem fer yfir dagblöð og
skrifi niður ný orð en í Noregi og
Danmörku séu í gangi tilraunir með
að safna nýjum orðum vélrænt.
Tilviljanakennd leit
Eiríkur tekur undir að leit að ný-
yrðum og skráning þeirra hafi verið
tilviljanakennd hér á landi. Í þessu
sambandi sé rétt að hafa í huga að ný
orð séu ekki endilega nýyrði, geti
verið tökuorð og slettur. Á orð-
fræðisviði Stofnunar Árna Magn-
ússonar hafa verið gerðar tilraunir
með vélræna söfnun nýrra orða. Það
er þá gert á þann hátt að sérstakur
hugbúnaður, Beygingarlýsing ís-
lensks nútímamáls, sem Hjálmar
Gíslason hefur skrifað, les texta og
greinir orð eftir öllum mögulegum
beygingarmyndum. Ef orðið finnst
ekki er það skrifað út í sérstaka skrá
sem síðan þarf að fara yfir.
„Þangað fara t.d. öll erlend
manna- og staðanöfn, því að þau eru
auðvitað ekki í Beygingarlýsingunni.
Þangað fara líka ýmsar rit- og prent-
villur, erlend orð og ýmislegt fleira.
En hluti af því sem lendir í þessari
skrá eru raunveruleg ný orð í málinu.
Það á að vera hægt að þróa aðferðir
til að henda ýmsu út úr skránni sem
ekki á þar heima, s.s. erlendum
manna- og staðanöfnum, og þá á
þessi aðferð að gagnast við vélræna
orðtöku,“ segir Eiríkur.
Morgunblaðið keyrt í gegn
„Við höfum látið okkur detta í hug
að það gæti verið mjög áhugavert að
athuga hvort t.d. Morgunblaðið væri
fáanlegt til að keyra allan sinn texta
daglega í gegnum þennan orðtöku-
búnað. Með því móti mætti safna
miklu af nýjum orðum sem koma inn
í málið.“ Það sé þó ekki raunhæft
nema hægt sé að þróa vélrænar að-
ferðir til að grisja skrána. Annars
yrði handvirka yfirferðin of tímafrek.
Það sem þarf til skipulegrar leitar og
skráningar nýrra orða er vinna við að
þróa þessar aðferðir og vinna við að
keyra búnaðinn á texta og vinna úr
útkomunni. Eiríkur telur það ekki
þurfa að vera svo dýrt.
Tungutækniáætlun menntamála-
ráðuneytisins var í gangi frá 2001-
2004 og voru á þeim tíma settar rúm-
ar 130 milljónir í íslenska tungu-
tækni, að sögn Eiríks. Tungu-
tæknisetur, stofnað ári eftir að
áætluninni lauk, hefur hins vegar
aldrei fengið sérstaka fjárveitingu
frá íslenska ríkinu. „Ég veit ekki til
þess að ríkisstjórnin hafi nein áform
um að halda áfram að setja fé í
tungutækni, þótt þess sé sannarlega
þörf,“ segir Eiríkur.
Hjá Menntamálaráðuneytinu
fengust þau svör að reiknað væri
með að eftir að Tungutæknisáætl-
uninni lauk myndi setrið vera fjár-
magnað með styrkjum frá stofn-
unum og fyrirtækjum. Ekki virðist
til ákveðin stefna í nýyrðum en lík-
legt er að íslensk málstefna, sem nú
er í mótun, muni taka til þessa mála-
flokks.
Fjárskortur hamlar leit
Fjármagn og mannskap vantar ef leita á skipulega að nýjum orðum og
nýyrðum og skrá þau Þörf á að verja meira fé til þróunar tungutækni
Morgunblaðið/Ómar
Framtíðin Með nýjum kynslóðum koma ný orð sem mikilvægt er að skrá.
Ungir bókhneigðir Íslendingar á Degi bókarinnar í apríl í fyrra.
Í HNOTSKURN
» Málræktarsvið StofnunarÁrna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum styður við íð-
orðasöfnun í landinu og held-
ur utan um nýyrðasköpun.
Nýyrði sem ekki heyra undir
íðorðasöfn eru skráð niður ef
starfsmenn heyra af þeim.
» Ritstjórnir íslenskra orða-bóka reyna að koma sem
flestum nýjum orðum og ný-
yrðum í bækurnar en það starf
er ekki vélrænt unnið heldur
treyst á mannvitið.
góðan róm að hljómburðinum að
tónleikunum loknum og Jónas Ingi-
mundarson píanisti, sem bæði lék á
tónleikunum og hlýddi á hina,
kvaddi sér hljóðs að þeim loknum og
lýsti yfir ánægju með hljómburðinn.
„Það var allavega óskaplega þægi-
legt að syngja þarna inni, ég get
vitnað um það, og mér skilst að það
hljómi afskaplega vel,“ sagði Gunnar
Guðbjörnsson tenórsöngvari í gær,
inntur eftir áliti sínu á salnum. Hon-
um hafi fundist um leið og hann hóf
upp raust sína að hann þyrfti ekki
mikið að hafa fyrir söngnum í saln-
um. Aðspurður hvort hann hafi
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
TÓNBERG, fyrsti fjölnotasalurinn
á landinu með rafrænt stýrðum
hljómburði, var prófaður síðastliðinn
laugardag á boðstónleikum verk-
fræðistofunnar VGK-Hönnunar. Þar
komu fram Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari ásamt óperusöngv-
urunum Auði Gunnarsdóttur og
Gunnari Guðbjörnssyni, Karlakór
Reykjavíkur, Guitar Islancio, Þjóð-
lagasveit tónlistarskólans á Akra-
nesi og kammersveitinni Camer-
arctica. Tónlistarmennirnir gerðu
fundið mikinn mun á þessum sal og
öðrum af svipaðri stærð segir Gunn-
ar það enga spurningu, það sé gríð-
arlegur munur.
Salurinn er í nýrri byggingu tón-
listarskólans á Akranesi og var þar
sett upp hljóð- og hljómbótarkerfi
frá fyrirtækinu LARES, því fremsta
í heiminum á þessu sviði. Í Tónbergi
eru 177 hallandi sæti og svið. Hægt
er að stilla kerfið með því einu að ýta
á hnapp, eftir því hvort halda á ráð-
stefnu, kammertónleika, karlakór-
stónleika eða annað, og hægt er að
breyta hljómburðinum á þann veg
að fólki finnist það vera í stórum sal.
„Óskaplega þægilegt“
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Karlarómur Karlakór Reykjavíkur þandi raddböndin á tónleikunum í Tón-
bergi á laugardaginn var undir stjórn Friðriks Kristinssonar.
Fjölnotasalur í Tónlistarskóla Akraness prófaður
♦♦♦