Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 20

Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ GUÐMUNDUR Geir Jónsson, bóndi á Stærra-Árskógi í Dalvíkurbyggð, er ákveðinn í að halda áfram búskap þrátt fyrir áfallið um helgina, þegar öll útihús hans brunnu og bróð- urpartur bústofnsins drapst. Rann- sókn á orsök brunans stendur enn yf- ir en líklegt er talið að kviknað hafi í vegna bilunar í rafmagnstöflu. Hreinsunarstarf hófst í fyrradag, eftir að fulltrúar tryggingafélags bóndans, rannsóknarlögregla og menn frá Brunamálastofnun höfðu skoðað vettvang. Hópur manna var við vinnu í útihúsunum um hádegisbil í gær, þegar Morgunblaðið bar að garði, og Óli Jón Hermannsson, mág- ur Guðmundur bónda, sagðist reikna með að lokið yrði við að rífa útihúsin í dag. Allir boðnir og búnir Guðmundur treysti sér ekki til þess strax í kjölfar brunans, í samtali sem birtist í Morgunblaðinu á mánu- daginn, að segja til um það hvort hann réðist í að byggja búið upp að nýju. En Óli Jón tók af allan vafa í gær: „Það er búið að setja allt í gang til að panta nýtt hús,“ sagði hann. Þeir Guðmundur byggðu nýtt fjós í fyrra, það er ónýtt eins og önnur, en nýtt rís sem sagt í staðinn. Guðmundur bóndi var ekki heima þegar blaðamaður kom við en Óli Jón sagði að allir væru boðnir og búnir til þess að aðstoða Guðmund. „Það er til dæmis búið að bjóða honum aðstöðu fyrir 40 kýr á bænum Garði í Eyja- fjarðarsveit. Þar eru hús fyrir 150- 160 kýr en bóndinn er ekki með kvóta nema fyrir um það bil 100.“ Á bænum Garði eru tveir mjólkurþjónar, svo- kallaðir róbótar, og aðstaða öll góð, að sögn Óla Jóns, og sagði hann að þeim Guðmundi þætti afar vænt um tilboð bóndans í Garði. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á mánudaginn hefur mikil uppbygg- ing átt sér stað á Stærra-Árskógi undanfarin ár og fjárfestingin mikil. Óli Jón segir að húsin hafi verið um það bil 160 milljóna króna virði, en við það megi bæta virði tækja og grip- anna. Hann segir bæði hús og gripi hafa verið vel tryggð en búið hafi ekki verið með rekstrarstöðvunartrygg- ingu. Guðmundur bóndi hafi raunar verið búinn að fara fram á það við tryggingafélag sitt að fá slíka trygg- ingu á síðustu mánuðum, síðast 1. nóvember, en hún hafi ekki verið komin í gildi. Tryggingafélagið hafi þrátt fyrir það tekið vel á málinu og fljótlega fallist á að greiða fyrir förg- un gripa, niðurrif bygginga og aðra hreinsun. Óli Jón sagði þá hugmynd hafa komið upp að hluti mjólkurkvótans frá Stærra-Árskógi yrði seldur öðr- um bændum því marga vantaði kvóta. „Hann yrði þá seldur með kauprétti þannig að Guðmundur gæti keypt hann aftur. Búnaðarsambandið og fleiri þurfa reyndar að samþykkja slíka sölu en það gengur vonandi.“ Guðmundur ákveðinn í að byggja búið upp á nýjan leik Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hreinsað til Hópur manna vann í gær við að hreinsa til á Stærra-Árskógi. Útihúsin verða líklega horfin í kvöld. Eldurinn kviknaði líklega vegna bilunar í rafmagnstöflu DRÆM þátttaka var í kosningum um sameiningu verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði við fimm önnur stéttarfélög, en afstaða þeirra sem tóku afstöðu var afgerandi, hvar í félagi sem þeir stóðu. Einstakar deildir Vöku sameinast um áramót Einingu-Iðju, Félagi byggingamanna Eyjafirði, Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri, Fé- lagi verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Sjómanna- félagi Eyjafjarðar. Félagsmenn allra félaga urðu að samþykkja sam- einingu og mikill meirihluti var henni fylgjandi; mest 100%, í Félagi byggingamanna, minnst 88,9% í Fé- lagi málmiðnaðarmanna. Birgir Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, var ánægður með niðurstöðuna í gær: „Þessi samein- ing er einungis til bóta fyrir fé- lagsmenn, stærri og öflugri félög eru til dæmis betur í stakk búin til að þjónusta sína félagsmenn. Hver veit, kannski verður þetta fyrsta skrefið í enn stærri sameiningu á Eyjafjarðarsvæðinu síðar meir,“ sagði Björn. Vaka sam- einast fimm félögum BERGÞÓR Pálsson óperusöngvari les upp úr nýrri bók sinni, Vinamót: Um veislur og borðsiði, á Amts- bókasafninu í dag kl. 17.15. Í tilkynningu segir: Hvað er kok- teilklæðnaður?“ … „Á ég að lyfta glasi ef skálað er fyrir mér?“ Þess- um og fleiri spurningum er Berg- þór sagður munu svara. Bergþór kynnir bók um borðsiði ♦♦♦ AKUREYRI Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞAÐ er auðvitað kunnara en frá þurfi að segja að við tókum við fyrir nokkrum vikum og þá var fjárhagsáætlunarvinnan hafin. En með dyggri aðstoð öflugra emb- ættismanna og sameinuðu átaki í eigin hópi hefur okkur tekist að gera þetta að okkar eigin áætlun, sem við erum ákaflega stolt af, “ segir Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri, sem í gær mælti fyrir frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2008 í borgarstjórn. Á blaðamannafundi þar sem borgarstjóri kynnti meginniður- stöður og -áherslur fjárhagsáætl- unarinnar kom fram að rekstr- arniðurstaða Aðalsjóðs Reykjavík- urborgar gerir ráð fyrir tæplega tveggja milljarða króna hagnaði á árinu 2008 eftir fjármagnsliði. Áætlað er að útsvarstekjur borg- arinnar á næsta ári nemi rúmum 42 milljörðum króna, en til sam- anburðar er reiknað með að út- svarstekjur á þessu ári verði 39,3 milljarðar króna. Milljarði varið til upp- byggingar opinna svæða Tekjur af fasteignaskatti og lóðarleigu eru áætlaðar um 11,2 milljarðar króna. Samantekið eru skatttekjur borgarinnar áætlaðar 50,7 milljarðar króna að frádreg- inni greiðslu í Jöfnunarsjóð. Sam- anlagðar skatttekjur og þjónustu- tekjur eru áætlaðar rétt tæpir 58 milljarðar á árinu 2008, sem er um 9% hækkun frá útkomuspá fyrir yfirstandandi ár. Þá koma að auki inn í Aðalsjóð tekjur vegna fjármagnsliða upp á tæpa 5,9 milljarða. Fram kom á fundinum að ein- um milljarði yrði varið í uppbygg- ingu opinna svæða og útivistarað- stöðu í öllum hverfum borgarinnar í samvinnu við íbúa hverfanna og hverfaráð, sem nýr meirihluti hyggst stórefla. Að auki verður 250 milljónum króna varið til að byggja upp skólalóðir. Að sögn borgarstjóra er í fjár- hagsáætluninni gert ráð fyrir end- urgerð Lækjartorgs og Ingólfs- torgs og flutningi gamalla húsa á staði í miðborginni þar sem þau munu sóma sér betur. 270 milljónir til að mæta brýnustu húsnæðisþörf Að sögn Dags hyggst nýr meirihluti ráðast í sérstakar að- gerðir í húsnæðismálum og er sökum þessa gert ráð fyrir óbreyttu álagningarhlutfalli fast- eignaskatts. Með þeirri aðgerð fást 270 milljónir sem nýtast til að mæta brýnustu húsnæðisþörf þeirra sem höllum fæti standa. Nefnir Dagur í því sambandi m.a. ungt fólk, stúdenta og eldri borg- ara. „Við erum í raun ekki búin að útfæra þessar aðgerðir í húsnæð- ismálum endanlega. Við eigum að- ild að starfshópi félagsmálaráð- herra sem er að fara yfir þennan málaflokk í heild sinni. Hann á að skila af sér fljótlega og við bind- um miklar vonir við að þessir pen- ingar muni nýtast vel inni í þeirri heildarmynd.“ Að mati Dags ber frumvarpið þess merki að gripið verði til að- gerða til að mæta manneklu. „Um 700 milljónir bætast við miðað við árið í ár, í aðgerðir því tengdar fyrir næsta ár,“ segir Dagur og bendir á að næsta ár sé kjara- samningsár og því ljóst að þessi mál verði mjög í forgrunni á kom- andi ári. Aðspurður hvenær gjald- frjáls leikskóli verði að veruleika segir Dagur það vissulega stefnu núverandi meirihluta að koma á gjaldfrjálsum leikskóla, en hins vegar sé ósennilegt að það náist á þessu kjörtímabili þótt hugsan- lega verði tekin einhver skref í þá áttina. „Við horfumst í augu við það að við þurfum á öllu okkar að halda á kjarasamningsári til þess að halda rekstrinum innan marka.“ Spurður um breytingar á gjald- skrá borgarinnar segir Dagur að reiknað sé með 4% verðbólgu, en gjaldskrár borgarinnar hækki um 2,5% sem þýði í reynd raunlækk- un á öllum gjaldskrám nema á sorphirðugjaldinu, sem hækkar um 32%. Fjárhagsáætlun nýs borgarstjórnarmeirihluta kynnt í borgarstjórn í gær 2 milljarða króna hagnaður Morgunblaðið/Kristinn Fjárhagsáætlun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar á blaðamannafundi í gær. Í HNOTSKURN »Gert er ráð fyrir að heild-artekjur Eignasjóðs verði 21,2 milljarðar, en það er 16,5% hækkun frá yfirstand- andi ári. Rekstrargjöld eru áætluð 8,6 milljarðar. Því er gert ráð fyrir ríflega 10 millj- arða króna hagnaði af rekstri Eignasjóðs eftir fjármagnsliði. »Samanlagður hagnaðurAðalsjóðs og Eignasjóðs, eða A-hluta í heild, er áætlaður um 12 milljarðar. Gert er ráð fyrir að handbært fé í A-hluta í árslok næsta árs verði um 21 milljarður og hafi þá vaxið um tæp 60% frá lokum þessa árs. VILHJÁLMUR Þ. Vil- hjálmsson borg- arfulltrúi segist mjög ósáttur við ýmsa þætti fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar, þótt á hinn bóginn sé hann ánægður með ým- islegt sem byggist á undirbúningsvinnu frá- farandi meirihluta. „Ég er mjög ósáttur við að fasteignaskattur verður ekki lækk- aður eins og til stóð að gera,“ segir Vil- hjálmur. „Það var stefna okkar að lækka skattinn um 25% en nú er horfið af þeirri braut. Samtímis því að fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði verða ekki lækkuð á næsta ári hækkar fasteignamatið um 10%. Einnig ber þetta frumvarp með sér að ekki verða byggð mislæg gatnamót á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar. Í þriðja lagi er stefna meirihlutans í skipulags- og lóðamálum óljós. Ekkert er gefið upp um það hvort fylgt verði áfram þeirri stefnu að fjölga lóðum undir sér- býli. Í fjórða lagi er gert ráð fyrir at- vinnu- og íbúðabyggð í Vatnsmýrinni, þótt ekki sé búið að finna aðra lausn sem lýtur að flugvelli í Reykjavík eða í næsta nágrenni, en sjónum er einkum beint að Hólmsheiði. Þetta er gert þrátt fyrir að helsta kosningaloforð Frjálslyndra og óháðra hafi fjallað um að flugvöllurinn yrði kyrr. Í fimmta lagi er aðalsjóði skilað með 4 milljarða króna halla. Hallinn var ríflega 7 milljarðar á árinu 2006 og við sjálfstæð- ismenn ákváðum að ná niður hallanum á kjörtímabilinu. Í nýjustu útkomuspá fyrir 2007 segir að hallinn verði einungis 1,5 milljarðar sem sýnir að átak okkar um breytta fjármálastjórn hefur skilað sér.“ Ósáttur við fasteigna- skattsmál Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.