Morgunblaðið - 21.11.2007, Qupperneq 24
heilsa
24 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grasagarðurinn í Gauta-borg er augnayndi fyrirgesti og gangandi.Göngutúr í fallegri nátt-
úru nærir sál og líkama, það finna
þeir sem reyna. Skærir haustlit-
irnir eru nú á undanhaldi og laufin
sem hrunin eru af háum trjánum
óteljandi. Það kemur ekki á óvart
að Grasagarðurinn skuli notaður til
að efla heilsu og auka ró í sinni
fólks sem hefur upplifað mikla
streitu og jafnvel kulnun í starfi.
Mikilvægi náttúrunnar fyrir
heilsu og lífsgæði hefur verið vís-
indalega sannað af sænskum fræði-
manni, Ingemar Norling, sem rann-
sakaði sambandið á milli náttúru,
heilsu og lífsstíls á löngum ferli. Á
grundvelli rannsókna hans hefur nú
verið opnuð endurhæfing í Grasa-
garðinum fyrir starfsmenn hins op-
inbera í Gautaborg og nágrenni,
fyrst og fremst starfsmenn Sahl-
grenska sjúkrahússins. Auk þeirra
sem hafa greinst með kulnunar-
einkenni, koma hópar starfsmanna
í fyrirbyggjandi skyni, sem og
stjórnendur, til að fá fræðslu um
einkenni streitu og heilsueflandi að-
gerðir.
Upphaf Grænu endurhæfing-
arinnar, eins og verkefnið kallast,
má rekja til ársins 2000 þegar líf-
fræðidoktorinn Eva-Lena Larsson
var ráðin af Grasagarðinum í fræði-
legt verkefni um tengsl náttúru og
heilsu. Fjórum árum síðar bauðst
henni að flytja kenningarnar yfir í
raunveruleikann og setja af stað til-
raunaverkefni. Hún lét ekki segja
sér það tvisvar og setti saman
teymi sem enn vinnur við verkefnið.
„Rannsóknir Ingemars voru góð-
ur grunnur og verkefnið lofar mjög
góðu,“ segir hún.
Sálgreinir, garðyrkjumeistari,
sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og líffræð-
ingur mynda teymið sem annast
endurhæfinguna. „Við vinnum mjög
vel saman og það er ekki svo að
hver og einn sjái bara um sinn
geira. Líffræðingurinn og garð-
yrkjumeistarinn hafa mikinn áhuga
á fólki og sjúkraþjálfarinn, sál-
greinirinn og iðjuþjálfinn hafa mik-
inn áhuga á náttúru og útivist. Það
er forsenda þess að samvinna af
þessu tagi gangi upp,“ segir líf-
fræðingurinn Eva-Lena.
Flestir aftur út á
vinnumarkaðinn
Skógur umlykur lítið hús í útjaðri
Grasagarðsins þar sem starfsemin
fer fram og í næsta nágrenni eru
frístundagarðar fyrir almenning.
Hóparnir mæta á hverjum degi.
Fyrir hádegi er dagskrá fyrir þá
sem eru í veikindaleyfi vegna
streitu og kulnunar í starfi og eftir
hádegi mætir hópur starfsmanna
Sahlgrenska sjúkrahússins sem
skilgreindur hefur verið í áhættu og
fær fyrirbyggjandi fræðslu.
Aðeins fáir geta tekið þátt í verk-
efninu í einu því hver hópur fólks
með einkenni streitu og kulnunar
er að hámarki átta manns. End-
urhæfingartíminn er þrír mánuðir
með mögulegri framlengingu í sex
mánuði en seinni þrír mánuðirnir
fara í að finna þátttakendunum stað
á vinnumarkaðnum að nýju eða í
námi, að sögn Evu-Lenu. Verkefnið
hefur skilað góðum árangri því af
25 manns sem hafa farið í gegnum
það, hafa allir nema einn farið aftur
út á vinnumarkaðinn eða í nám. Og
þá er vert að hafa í huga að þetta
fólk átti að meðaltali að baki fjög-
urra ára fjarveru frá vinnu sökum
streitu og kulnunar í starfi, áður en
það byrjaði í Grænni endurhæf-
ingu.
Alls starfa um 50 þúsund manns
hjá hinu opinbera í Gautaborg og
nágrenni og þar af eru starfsmenn
Sahlgrenska sjúkrahússins um 17
þúsund.
„Vinnutengd streita er algeng
meðal sjúkrahússtarfsmanna, með-
al annars vegna vaktavinnu, mikils
vinnuálags, undirmönnunar og þar
að auki utanaðkomandi þátta sem
Morgunblaðið/Golli
Heilsubót Mikilvægi náttúrunnar fyrir heilsu og lífsgæði hefur verið vísindalega sannað af sænska vísindamann-
inum Ingemar Norling. Það fer líka vissulega vel um þessa gesti í Laugardalsgarðinum.
Eldiviður Að höggva eldivið er eitt af haustverkunum í endurhæfingunni
sem unnið er að í grasagarðinum í Gautaborg.
Græn endur-
hæfing í
grasagarði
Í Grasagarðinum í Gautaborg er nú unnið að end-
urhæfingu þeirra sem greinst hafa með kulnun í
starfi. Mikilvægi náttúrunnar fyrir heilsu og lífs-
gæði hefur verið vísindalega sannað. Steingerður
Ólafsdóttir kynnti sér málið.
Vinnutengd streita er al-
geng meðal sjúkra-
hússtarfsmanna, meðal
annars vegna vaktavinnu,
mikils vinnuálags, und-
irmönnunar
hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð
Hollt mataræði, reglubundin hreyfingog næg hvíld stuðla að hreysti og vel-líðan. Til að fá næga orku þurfa börn
og ungmenni þrjár aðalmáltíðir og 2-3 milli-
bita yfir daginn. Mikilvægt er að byrja alla
daga með góðum morgunverði sem leggur
grunninn fyrir daginn. Að „æfa“ reglulega t.d.
eina til tvær klukkustundir þrisvar sinnum í
viku að viðbættum keppnishelgum kallar ekki
á sérfæði heldur venjulegan hollan mat.
Borðum hollan mat
í tengslum við sundæfingar
Þá daga sem farið er t.d. á sundæfingar er
góð venja að fá sér hollan bita 1-2 klukku-
stundum fyrir æfingu s.s. gróft brauð með
áleggi, ferskan ávöxt og mjólkurglas. Jafn
mikilvægt er að borða eitthvað fljótlega eftir
æfinguna því það minnkar líkurnar á að sæl-
gæti, snakk og gosdrykkir verði fyrir valinu.
Því er góð venja að vera með ávöxt í íþrótta-
töskunni til að fá orku í skrokkinn fljótlega
eftir æfingu og borða síðan staðgóða máltíð
þegar heim er komið.
Drekkum vatn fyrir sundæfingar, með-
an á æfingum stendur og eftir æfingar
Kalt vatn er málið fyrir sundæfingar, með-
an á æfingum stendur og eftir æfingar. Sund-
fólk missir oft mikinn vökva án þess að verða
þess vart og því er mikilvægt að drekka meira
en þorsti segir til um þar sem vökvatap dregur
úr afkastagetu líkamans. Vatn slekkur þorst-
ann og óhætt er að drekka vel af því. Forðast
ætti að drekka sykraða svaladrykki, íþrótta-
drykki, orkudrykki og gosdrykki í tengslum
við sundæfingar því sykurinn eykur orku ein-
ungis stutta stund en síðan fellur blóðsykurinn
hratt og líkaminn verður orkulaus og þreyttur.
Næringargildi sykurs er nánast ekkert og
hitaeiningainnihaldið hátt auk þess sem syk-
urinn skemmir tennurnar. Ef sykur verður of
fyrirferðarmikill í fæðunni er ekki rúm fyrir
hollan mat en samkvæmt næringarráðlegg-
ingum er miðað við að viðbættur sykur sé inn-
an við 10% af hitaeiningaþörfinni. Koffínið í
sumum gosdrykkjum og orkudrykkjum hefur
auk þess vatnslosandi áhrif.
Glerungseyðing
Rannsóknir benda til að glerungseyðing sé
algengari hjá unglingum sem æfa sund en hjá
viðmiðunarhópi. Neysla „súrra drykkja“ þ.e.
sykraðra svaladrykkja, íþróttadrykkja, orku-
drykkja og gosdrykkja í tengslum við sundæf-
ingar er mikil en rotvarnarsýrurnar í sumum
gosdrykkjum og orkudrykkjum leysa upp yf-
irborð tannanna þannig að glerungurinn þynn-
ist og eyðist smám saman. Klórblöndun sund-
laugarvatns hefur auk þess mælanleg áhrif en
hafa má í huga að hlutfall klórs er lítið í sund-
laugarvatni hér á landi þannig að neysluvenjur
vega hér þyngra hvað varðar algengi gler-
ungseyðingar.
Morgunblaðið/Þorkell
Hreyfing Að æfa reglulega, t.d. 2-3 í viku, kallar ekki á sérfæði heldur venjulegan hollan mat.
Sundþjálfun og sérfæði
Hólmfríður Guðmundsdóttir
verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð.