Morgunblaðið - 21.11.2007, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FORVARNARDAGURINN er í
dag, 21. nóvember. Í aðdraganda
dagsins hefur verið fjallað um hvaða
leiðir bera árangur í
forvörnum á Íslandi. Í
auglýsingum vegna
verkefnisins er vitnað í
orð unglinganna sjálfra,
skoðanir þeirra og við-
horf, jafnt sem nið-
urstöður rannsókna á
sviði forvarna. Unga
fólkið, skoðanir þess og
væntingar til sam-
félagsins er ein af auð-
lindum okkar Íslend-
inga og mikilvægt að
meta þær hugmyndir
sem koma frá ungling-
unum sjálfum um eigin málefni.
Töluvert hefur verið
rætt um hlutverk for-
eldra í forvörnum. Nið-
urstöður rannsókna á
vegum Rannsókna og
greiningar meðal ung-
linga síðustu ár gefa
skýr skilaboð um að
fjöldi samverustunda
foreldra og barna hafi
jákvæð áhrif og vinni
gegn áhættuhegðun. Að
sama skapi gefa nið-
urstöðurnar til kynna
að áhugi foreldra á vin-
um barna sinna, kynni af foreldrum
vinanna og stuðningur við þátttöku í
skipulögðu tómstundastarfi hafi veru-
lega þýðingu. Sá stuðningur veitir
börnum og unglingum aðhald og styð-
ur við virka þátttöku þeirra í heil-
brigðum viðfangsefnum.
Félagsmiðstöðvar í Reykjavík hafa
staðið fyrir skipulögðu tómstunda-
starfi fyrir börn og unglinga frá því
Fellahellir hóf starfsemi sína hinn 9.
nóvember 1974. Í gegnum þau rúmu
30 ár sem félagsmiðstöðvar hafa
starfað í Reykjavík hefur starfsemi
þeirra tekið breytingum í takt við þró-
un íslensks samfélags og kröfur þess
um aðbúnað og starfsemi með börn-
um og unglingum. Starfseminni er
ætlað að mæta félagsþörf unglings-
áranna með góðum aðbúnaði og
stuðningi, hvort sem um er að ræða
krefjandi viðfangsefni í klúbbastarfi,
þátttöku í unglingaráði eða afþrey-
ingu í góðra vina hópi. Hug-
myndafræði félagsmiðstöðvastarfsins
miðar að því að bjóða upp á vettvang
fyrir fjölbreytt viðfangsefni og virkja
unglingana sjálfa til ábyrgðar.
Félagsmiðstöðvarnar hafa fram á
þennan dag verið vettvangur ungling-
anna sjálfra. Foreldrar hafa því ekki
verið tíðir gestir í starfi félagsmið-
stöðvanna og þeir jafnvel upplifað sig
óvelkomna í þennan heim ungling-
anna sem dafnar undir handleiðslu
frístundaráðgjafa. Hinn 7. nóvember
sl. varð þó breyting á þegar rúmlega
360 foreldrar heimsóttu félagsmið-
stöðvarnar auk um 1.200 unglinga.
Tilefnið var Félagsmiðstöðvadagur
ÍTR sem haldinn var í Reykjavík
þriðja árið í röð. Markmið fé-
lagsmiðstöðvadagsins er að vekja at-
hygli á starfsemi félagsmiðstöðvanna
og hvetja foreldra, sem og aðra
áhugasama, til að kynna sér það starf
sem þar fer fram.
Fyrir hönd félagsmiðstöðvanna í
Reykjavík vil ég þakka þeim ungling-
um sem lögðu sig fram um að skapa
félagsmiðstöðvadeginum skemmti-
lega umgjörð og tóku vel á móti jafn-
öldrum sínum og foreldrum, ömmum,
öfum og systkinum. Ég vil jafnframt
þakka þeim foreldrum sem lögðu leið
sína í félagsmiðstöðvarnar þennan
dag fyrir komuna. Stuðningur þeirra
og áhugi á viðfangsefnum þeirra ung-
linga sem taka virkan þátt í fé-
lagsmiðstöðvastarfinu er lóð á vog-
arskálarnar í átt til aukins félagsauðs
í hverfum borgarinnar og viðurkenn-
ing á því tómstundastarfi sem ung-
lingarnir hafa valið sér sem sinn vett-
vang til virkrar þátttöku í frítímanum.
Unglingar og foreldrar
– Takk fyrir komuna
Eygló Rúnarsdóttir skrifar í til-
efni af Forvarnardeginum
Eygló Rúnarsdóttir
» Stuðningur foreldravið þátttöku í tóm-
stundastarfi veitir að-
hald og hvetur...
Höfundur er verkefnistjóri unglinga-
starfs hjá ÍTR og varaformaður Fé-
lags fagfólks í frítímaþjónustu.
Í DAG er haldinn forvarnardagur í
öllum grunnskólum landsins. Í öllum
9. bekkjum verður blásið til sér-
stakrar dagskrár þar
sem ungmenni ræða
m.a. spurningar um
aukna samveru fjöl-
skyldunnar og um mik-
ilvægi íþrótta- og æsku-
lýðsstarfs.
Forvarnardagurinn
er haldinn að frum-
kvæði forseta Íslands í
samvinnu við sveit-
arfélögin í landinu,
Reykjavíkurborg,
Íþróttasamband Ís-
lands, Ungmennafélag
Íslands, Bandalag ís-
lenskra skáta og lyfjafyrirtækið Ac-
tavis, sem styrkir verkefnið mynd-
arlega.
Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjót-
andi að leiða útrásarstarf Reykjavík-
urborgar og okkar færustu vísinda-
manna þar sem við höfum kynnt fyrir
öðrum borgum í Evrópu hvernig við í
Reykjavík höfum staðið okkur í for-
vörnum. Faglegur grunnur þess ár-
angurs sem náðst hefur var lagður
undir forystu dr. Ingu Dóru Sigfús-
dóttur og dr. Þórólfs Þórlindssonar.
Þótt við þekkjum því miður allt of
mörg dæmi þess hvernig fíkniefni
leggja líf fjölskyldna í rúst, þá hefur
einnig verið sýnt með áþreifanlegum
hætti, hvaða aðferðir skila mestum
árangri og hvernig best er að beina
kröftunum í árangursríkum for-
vörnum.
Í Reykjavík höfum
við á undanförnum ára-
tug lagt áherslu á þá
uppbyggilegu þætti
sem vernda ungmenni
frá fíkniefnavánni, s.s.
samvistir við fjölskyldu
og íþrótta- og tóm-
stundastarfsemi ýmiss
konar, á sama tíma og
við reynum að vinna
gegn áhættuþáttunum.
Stefnan er byggð á
rannsóknum sem draga
fram hvað gagnast best
í þessari baráttu. Þessi
grunnur hefur vakið athygli langt út
fyrir landsteinana því alls staðar eru
fjölskyldur og borgir að berjast við
sama vandann.
Gott samband við foreldra
Ég tel það eitt meginmarkmið
Reykjavíkurborgar að vera úrvals-
borg fyrir ungt fólk. Til þess þurfa
heimilin, skólar, íþróttafélög og
æskulýðssamtök að eiga gott og náið
samstarf. Til þess þarf örugg og
blómleg hverfi. Fyrir því vil ég beita
mér sem borgarstjóri.
Forvarnardagurinn er góð leið til
að koma vísindalegum niðurstöðum á
framfæri við almenning og einnig til
að stuðla að uppbyggilegum for-
vörnum sem samfélagið allt tekur
þátt í. Í gegnum umræður á forvarn-
ardaginn öðlumst við öll forsendur til
að skilja betur mikilvægi þess að
verja meiri tíma með okkar nánustu,
og minna okkur á það að það er ekki
endilega eini tilgangur íþróttastarfs á
unglingsárum að skara framúr í
keppni, heldur til að fá æskilega
hreyfingu og útrás, að skemmta sér
og leika. Öll þessi uppbyggilega starf-
semi hefur mikil fyrirbyggjandi áhrif
í baráttunni við fíkniefnavandann.
Fíkniefnasalarnir hætta ekki að
reyna að koma sínum ömurlega varn-
ingi til nýrra neytenda. Við þurfum
vitaskuld að styrkja lögregluna í bar-
áttunni við þá. Hins vegar skulum við
líka einbeita okkur að því að styrkja
ungmennin til að segja nei og að
treysta á eigin styrk og félaga sinna.
Það er þeirra framtíð sem er í húfi.
Styrkjum unga fólkið
Dagur B. Eggertsson skrifar í
tilefni forvarnardagsins sem er
í dag
» Í gegnum forvarnar-daginn skiljum við
öll betur mikilvægi þess
að verja meiri tíma með
okkar nánustu.
Dagur B. Eggertsson
Höfundur er borgarstjóri í Reykjavík.
FINNUR Ingólfs-
son fjáraflamaður var í
viðtali í Mannamáli
Stöðvar 2 síðastliðið
sunnudagskvöld.
Tvennt vakti athygli í
viðtalinu.
Annars vegar hve
Finnur gat rifjað upp
með mikilli nákvæmi
ýmsar ávirðingar á
hendur ,,Sverri gamla
Hermannssyni“, fyrr-
verandi bankastjóra
Landsbanka Íslands.
Var helst á Finni að
skilja að Sverrir Her-
mannsson væri hold-
gervingur spillingar og
því hefði verið þjóð-
þrifamál að losa
Landsbankann úr
greipum hans með
hlutafélagavæðingu
bankans.
Ríkisbankana,
Lands- og Bún-
aðarbanka, einka-
væddi eftirmaður
Finns í viðskiptaráðu-
neytinu, Valgerður
Sverrisdóttir, árið
2002.
Finnur virtist hins
vegar ekki alveg jafn minnugur á
einkavæðingu ríkisbankanna. Taldi
sig hvergi hafa komið þar nærri,
enda seðlabankastjóri þá um stund-
ir á vegum Framsóknarflokksins.
Til upprifjunar fyrir Finn og þá
sem á hann hlustuðu skal bent á að
Morgunblaðið birti frétt þann 17.
nóvember 2002 þess efnis, að S-
hópurinn svokallaði
hefði keypt 45,8%
hlut ríkisins í Bún-
aðarbankanum fyrir
11,9 milljarða. Frétt
þessari fylgdi mynd,
þar sem sjá má Finn
Ingólfsson, forstjóra
VÍS, og Ólaf Ólafsson,
forstjóra Samskipa,
yfirgefa fundarstað
eftir undirskriftina.
Báðir með bros á vör.
Kaup S-hópsins urðu
Sigmund skopteikn-
ara að yrkisefni í
Morgunblaðinu þann
24. nóvember 2002
með eftirfarandi texta
undir mynd af Finni
og Valgerði; ,,Mundu
svo að opna skápinn
þegar þú kemur heim
í SÍS-kotið Finnur
litli og senda mér
fyrstu afborgunina
fyrir draslið.“
Til S-hópsins töld-
ust m.a. Eignarhalds-
félög Samvinnutrygg-
inga og Andvöku, en
svo skemmtilega vill
til að Finnur og Val-
gerður koma bæði að
stjórn þessara félaga
nú ásamt nokkrum
öðrum valinkunnum
framsóknarmönnum,
sem með einum eða
öðrum hætti komu að S-hópnum
og virðast síðan þá hafa auðgast
vel.
Allt er þetta hrein tilviljun og
auðvitað ekki dæmi um spillingu í
huga Finns og annarra fjárafla-
manna Framsóknarflokksins.
Til upprifjunar
fyrir Finn
Sigurður G.
Guðjónsson
skrifar um einka-
væðingu
Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, og Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS,
yfirgefa fundarstað eftir undirskriftina.
»… Finnur ogValgerður
koma bæði að
stjórn þessara
félaga nú ásamt
nokkrum öðrum
valinkunnum
framsókn-
armönnum, sem
með einum eða
öðrum hætti
komu að S-
hópnum og virð-
ast síðan þá
hafa auðgast
vel.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Sigurður G. Guðjónsson
Á DÖGUNUM mátti lesa í Morg-
unblaðinu leiðara um Seðlabankann í
sókn. Var svo að skilja, að blaðinu
þætti mál til komið að bankinn reisti
burstir í peningamálum þjóðarinnar
og gegn lausatökum í
þeim efnum.
Það er skemmst frá
að segja, að brambolti
Seðlabankans í vaxta-
málum er aðallega
stjórnað af þeim, sem
ekkert vit hefir á fjár-
málum eða peninga-
málum, enda mun það
lítil sem engin þau áhrif
hafa, sem látið er í veðri
vaka. Þessi fumkennda
sókn mun hinsvegar
ríða að fullu fjárhag
þúsunda ungra hús-
byggjenda, sem margir hverjir höfðu
að vísu þegar reist sér hurðarás um
öxl, spanaðir áfram af bönkum, sem
ruddust inn á lánamarkað húsnæðis-
mála með gegndarlausum yfirboð-
um, en snúa nú við blaðinu í vaxta-
málum.
Hins vegar mun vaxta-fimbulfamb
bankans færa erlendu bröskurunum
með Jöklabréfin fúlgur fjár í hagnað
af 800 eða 1000 milljörðunum, sem
þeir spila með.
Í miðri stórsókn Seðlabankans á
hendur innlendum skuldurum kemur
svo forsætisráðherrann fram í fjöl-
miðlum og hvetur fólk til þess að
halda að sér höndum í
fjárfestingum eins og
sakir standa!
Spurning: Hver
skyldu vera helztu ráð
stjórnenda í þjóðríki til
að hamla gegn verð-
þenslu?
Svar: Niðurskurður í
fjárlögum og sparn-
aður í opinberum
rekstri.
Og hvernig heldur
landsstjórnin á þeim
málum?
Með því í hálfan ann-
an áratug að hækka útgjöld í fjár-
lögum langt umfram verðlagsþróun.
Fyrir utan það að á hverju einasta
ári hafa verið afgreidd þykjustu-
fjárlög; fjárlög, sem allir vissu að
ekki myndu standast. Sett til þess að
sýna afgang á pappírunum, vitandi
að útgjöld voru stórlega vanáætluð,
s.s. í heilbrigðismálum.
Í ár, á háskatímum, er lagt fram
frumvarp til fjárlaga, sem gerir ráð
fyrir stórmikilli útgjaldaaukningu.
Og óþarft að gera ráð fyrir nið-
urskurði þess í meðhöndlun at-
kvæðakaupendanna.
Það er sem sagt almenningur, sem
á að borga brúsann með vaxtaokrinu,
og sjá um að draga úr verðþenslu
með því að halda að sér höndum í
fjárfestingum.
En ríkið er stikkfrítt!
Það kemur kannski senn að þeim
tímamótum að Íslendingar geri sér
grein fyrir hvaða öfl hafa náð und-
irtökum í þjóðfélagi þeirra; að örfá-
menn peningaöfl hafa allan forgang
að auðsuppsprettu landsins með
stjórnvöld að handbendum.
Tvö dæmi um ráðstöfun stjórn-
valda á sjávarauðlindinni:
Á sínum tíma veitti Halldór Ás-
grímsson meðal annarra tveimur fyr-
irtækjum aukakvóta: Samherja 4.400
tonna þorskkvóta og Ágústi Ein-
arssyni 2.900 tonna.
Í dag kostar hvert kíló af var-
anlegum kvóta kr. 4.200.
Úthlutunin til Samherja nemur því
nú í krónum 18 milljörðum 480 millj-
ónum. Og til Ágústs krónum 12 millj-
örðum 180 milljónum.
Ef ekki verður spyrnt við fótum
kemur senn að úthlutun orkuauð-
lindanna.
Annars hlýtur það að hafa slævt
sókn Seðlabankans að missa úr for-
mannssæti fjármálajöfurinn Helga
S. Guðmundsson, þann sem í stöðu
formanns bankaráðs Landsbankans
seldi sjálfum sér og Finni hlutabréf
bankans í VÍS með milljarða afslætti,
með dyggilegri aðstoð varaformanns
bankaráðsins, Kjartans Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins. Kjartan fékk svo
þóknun hjá feðgunum fyrir þjónustu
sína við sölu Landsbankans með
vænni flís af þeim feita sauð – og
varaformennsku í kaupbæti.
Og áfram er dansinn stiginn í
Hruna við undirleik pólitískra þjóna.
Þeir fóru þó fyrir skemmstu út af
laginu í Orkuveitunni, svo nokkrir
gróðapungar misstu taktinn um hríð.
Stórsókn Seðlabanka
Sverrir Hermannsson skrifar
um Seðlabankann, ríkisstjórn-
ina og peningamál þjóðarinnar
» Þessi fumkenndasókn mun hinsvegar
ríða að fullu fjárhag
þúsunda ungra hús-
byggjenda, sem margir
hverjir höfðu að vísu
þegar reist sér hurðarás
um öxl …
Sverrir Hermannsson
Höfundur er fv. alþingismaður.