Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
RÚSSLAND er stórveldi í skák.
Lið þess varð nýlega Evrópumeist-
ari landsliða með miklum yfirburð-
um. Með auknum efnahagslegum
styrk í rússnesku samfélagi verður
æ algengara að í vöggu skákmenn-
ingarlandsins séu haldin öflug skák-
mót. Nú fyrir skömmu lauk öðru
minningarmóti Mikhails Tals í
Moskvu í Rússlandi. Heimsmeistar-
inn fyrrverandi, Vladimir Kramnik
(2.785) sýndi klærnar og vann
yfirburðasigur. Enginn gat fundið
höggstað á honum en hann bar sigur
úr býtum í fjórum skákum af níu.
Einum og hálfum vinningi munaði á
honum og næsta manni.
Lokastaða mótsins varð þessi:
1. Vladimir Kramnik 6½ vinning
af 9 mögulegum.
2. Alexei Shirov (2.739) 5 v.
3.–6. Boris Gelfand (2.736),
Magnus Carlsen (2.714),
Dmitry Jakovenko (2.710) og
Peter Lékó (2.755) 4½ v.
7.–9. Vassily Ivansjúk (2.787),
Gata Kamsky (2.714) og
Shakhriyar Mamedyarov (2.752) 4 v.
10. Evgeny Alekseev (2.716) 3½ v.
Sem fyrr var taflmennska Kram-
niks örugg og lagði hann t.d. Lekó og
Shirov að velli með miklum enda-
taflskúnstum. Hinn ungi landi
Kramniks, Alekseev, reyndi að þyrla
upp moldviðri gegn honum í upphafi
tafls en það truflaði ekki yfirsýn
heimsmeistarann fyrrverandi heldur
knésetti andstæðinginn örugglega. Í
áttundu og í næstsíðustu umferð
mætti Kramnik Azeranum sterka
Mamedyarov sem líkt og Alekseev
reyndi einnig að tefla óvenjulega
með svörtu.
Hvítt: Vladimir Kramnik (2.785)
Svart: Shakhriyar Mamedyarov
(2.752)
1. d4 g6 2. c4 Bg7 3. Rc3 d6 4. e4
e5 5. Rge2 exd4 6. Rxd4 Rc6 7. Be3
Rge7 8. h4!? f5 9. h5 fxe4 10. hxg6
hxg6 11. Hxh8+ Bxh8 12. Rxe4 d5!?
Þetta virðist vera nýjung sem
Kramnik svarar með því að fórna
peði. Áður hefur verið leikið
12. … Bf5 og 12. … Rf5.
13. Rxc6 bxc6 14. Bd4!? Bg4 15.
Dxg4 Bxd4 16. cxd5!? Bxb2 17. Hd1
cxd5 18. Bb5+ Kf8 19. De6 Kg7
Sjá Stöðumynd 1.
Þessi staða er athyglisverð og
óvenjuleg. Hvítur hefur peði minna
en hvítu reitirnir í herbúðum svarts
eru veikir og hvítur er á undan í liðs-
skipan. Segja má að staðan sé í dýna-
mísku jafnvægi en að þægilegra sé
að vera með hvítu stöðuna. Í næstu
leikjum skorðar hvítur svörtu peðin
á d- og c-línunni og hringsólar svo
með menn sína í þeirri von að svart-
ur leiki af sér.
20. Bc6!? Rxc6 21. Dxc6 d4 22.
Kf1 Hb8 23. Rg5 Dd6 24. Dc4 Dd7
25. Kg1 c6 26. Re6+ Kf6 27. Rc5
De7 28. Hb1 Hb6 29. Rd3 De4?!
Eðlilegra var að leika 29. … Bc3.
Nú fær hvítur peðið til baka.
30. He1 Dd5 31. Da4 Bc3 32. Dxa7
Bxe1 33. Dxb6 Bc3 34. a4 De4 35.
Dd8+ Kf7 36. Dc7+ Kf6 37. Dd6+
De6 38. Df8+ Df7 39. Dh8+
Hvítur hefur bætt stöðu sína um-
talsvert og svartur þarf að verjast af
nákvæmni til að eygja von á jafntefli.
Í næstu leikjum hins vegar hrynur
svarta staðan.
39. … Ke7? 40. a5! Da2 41. Dg7+
Kd8? 42. Re5! og svartur gafst upp
enda hótar hvítur máti og ýta a-peði
sínu áfram.
Það er vel til fundið hjá skipu-
leggjendum í Moskvu að í framhaldi
þessa öfluga móts verður haldin
heimsmeistarakeppnin í hraðskák
þar sem margir af bestu skákmönn-
um heims taka þátt. Mikhail Tal,
heimsmeistari í skák 1960-1961, varð
einmitt heimsmeistari í hraðskák ár-
ið 1988 í Saint-John í Kanada.
Yfirburðir Kramniks
Rússneski björninn Kramnik, t.v. vann yfirburðarsigur í Moskvu.
daggi@internet.is
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
Moskva, Rússlandi
2. MINNINGARMÓT TALS
9.–19. nóvember 2007
Stöðumynd 1.
Súgfirðingaskálin
Keppni um Súgfirðingaskálina,
tvímenningsmót Súgfirðingafélags-
ins, hófst á mánudagskvöldið með
þátttöku 14 para. Þetta er í sjöunda
skiptið sem mótið er haldið. Áhugi á
keppninni fer vaxandi.
Úrslit úr 1. lotu urðu þessi en með-
alskor er 156 stig.
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 198
Arnar Barðason – Hlynur Antonsson 181
Eðvarð Sturlus. – Þorleifur Hallbertss. 169
Friðgerður Friðg.d. – Kristín Guðbj.d. 169
Ólafur Ólafsson – Ragnar Jónasson 162
Gróa og Guðrún náðu góðu 63%
skori en meistarar síðasta árs, Arnar
og Hlynur veittu þeim stöllum harða
keppni.
Spilaðar verða fimm lotur og telja
fjögur beztu skorin. Spilastjóri var
Sigurpáll Ingibergsson
Næsta lota verður spiluð 21. jan-
úar næstkomandi í húsnæði Brids-
sambandsins. Spilamennska hefst kl.
18.10.
Kvöld Bakkakotsbóndans
Mánudaginn 19. nóvember spiluðu
Borgfirðingar þriðja kvöldið í aðal-
tvímenningnum. Efsta parið, þeir
Guðni og Gísli úr Grundarfirði, lék
við hvern sinn fingur og jók forystu
sína svo um munaði. Heyrðist hvísl-
að úr hornum hvort ekki mætti byrja
mótið upp á nýtt eða í það minnsta
lækka þá félaga um 100 stig til að
halda einhverri spennu í mótinu.
Hvanneyringarnir Sveinbjörn og
Lárus kíktu loks úr kafinu en nú er
það bara orðið alltof seint til að verja
titilinn.
Bestu skor kvöldsins fengu:
Guðni Hallgrímsson – Gísli Ólafsson 93
Sveinbjörn Eyjólfsson – Lárus Pétursson 70
Jón Pétursson – Eyjólfur Örnólfsson 42
Staðan eftir þrjú kvöld:
Guðni Hallgrímss. – Gísli Ólafsson 270
Anna Einarsdóttir – Kristján Axelss. 129
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 105
Rúnar Ragnarss. – Dóra Axelsdóttir 98
Bridsdeild Sjálfsbjargar
í Reykjavík
Mánudaginn 19. nóvember var
spilaður eins kvölds tvímenningur á
7 borðum.
Úrslit urðu þessi:
Guðný Lúðvígsd.– Birgir Lúðvígsson 188
Kristján Albertss. – Guðjón Garðarss. 184
Lilja Kristjánsd.– Sigríður Gunnarsd. 166
Meðalskor 156.
Bridsdeild Sjálfsbjargar spilar
alla mánudaga og hefst spila-
mennska kl. 19. Stjórnandi í vetur
verður Ólafur Lárusson.
Skorað er á alla gömlu félagana að
mæta nú til leiks og gera starfið í
vetur ánægjulegt. Stefnt er að hrað-
sveitakeppni fljótlega þegar tilefni
gefst.
Gullsmárinn
Það var spilað á ellefu borðum 19.
nóvember. Úrslitin urðu þessi í N/S:
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 202
Sigurður Björnsson – Viðar Jónsson 195
Guðlaugur Árnason – Leó Guðbrandss. 175
Hrafnhildur Skúlad.– Þórður Jörundss. 168
A/V
Haukur Guðbjartss. – Jón Jóhannsson 195
Þorgerður Sigurgeirsd.–Stefán Friðbjss.184
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 183
Gunnar Sigurbjörnss.– Karl Gunnarss. 181
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 19.11.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Sigurður Pálsson – Guðni Sörensen 261
Magnús Oddss. – Björn E. Pétursson 254
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánsson 248
Árangur A-V
Bragi Björnss. – Albert Þorsteinsson 275
Sigurður Jóhannss. – Siguróli Jóhannss. 260
Þröstur Sveinss. – Bjarni Ásmundss. 235
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
FRÉTTIR
NJARÐARSKJÖLDURINN, hvatn-
ingarverðlaun Reykjavíkurborgar
og Íslenskrar verslunar, kom í hlut
Iðuhússins þetta árið. Verðlaunin
voru afhent í gær. Að mati dóm-
nefndar er Iðuhúsið skemmtilegur
verslunarkjarni í miðborginni, þar
sem ferðamenn geta keypt fjöl-
breytta vöru á einum og sama staðn-
um.
Iða var opnuð 1. júlí 2003 í hús-
næði sem hafði staðið autt um árabil.
Var því tilkoma þessarar verslunar
mikið fagnaðarefni fyrir miðborgar-
unnendur og að sjálfsögðu fyrir
ferðamenn, segir í tilkynningu. Eig-
andi bóka- og gjafaverslunarinnar
og framkvæmdastjóri hússins frá
upphafi er Arndís Björg Sigurgeirs-
dóttir. Þegar húsið var opnað voru
auk bóka- og gjafaverslunarinnar
verslun Handprjónasambandsins,
Kaffihúsið, Sushi veitingastaðurinn
Sowieso og Yndisauki, fljótlega
bættist svo við verslun Marimekko.
Á þessum rúmu 4 árum hafa orðið
smávægilegar breytingar á rekstr-
araðilum og í dag eru auk bóka- og
gjafaverslunarinnar Iðu, Cintamani-
verslun, Eureka gullsmiður- og
hönnuður sem er með reglulegar
listaverkasýningar, Kaffihús Iðu og
Ósushi veitingastaðurinn og á næstu
dögum verður opnuð á fyrstu hæð-
inni A4 sem er verslun og þjónusta
með ritföng, ferðatöskur ýmsar
hobbívörur auk þjónustu við ljós-
ritun o.fl.
Það sem einkum stóð upp úr við
valið á ferðamannaverslun ársins að
þessu sinni er fjölbreytt og skemmti-
leg verslun, skemmtilegt vöruúrval,
langur afgreiðslutími og góð þjón-
usta við ferðamenn, segir í tilkynn-
ingu „Má segja að Iðuhúsið sé það
eina sem kemst næst því að teljast
„magasín“ í miðborginni sem getur
hentað ferðamönnum afar vel, að
geta farið inn og eytt dágóðum tíma
í að versla, skoða, lesa, eða fá sér
kaffibolla.“
Í nefnd um val á verslun voru að-
ilar frá Höfuðborgarstofu, Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna, Kaup-
mannasamtökum Íslands, SAF og
Miðborg Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Frikki
Verðlaun Margrét Sverrisdóttir, formaður menningar- og ferðamálaráðs,
afhenti Arndísi Björgu Sigurgeirsdóttur Njarðarskjöldinn.
Iðuhúsið fékk
Njarðarskjöldinn
HELGA
Bjarnadóttir
sameindalíffræð-
ingur varði dokt-
orsritgerð sína í
lífvísindum frá
læknadeild Há-
skóla Íslands 12.
október sl.
Ritgerðin ber
heitið „Mapping of the Maedi-Visna
virus (MVV) encapsidation determ-
inants and construction of an MVV
gene transfer system“ eða „Kort-
lagning á pökkunarröðum mæði-
visnu veirunnar (MVV) og smíði á
MVV genaferju“. Andmælendur
voru þeir dr. Ben Berkhout, prófess-
or við Department of Human Ret-
rovirology, Academic Medical Cent-
er of the University of Amsterdam
og dr. Ólafur S. Andrésson, prófess-
or við líffræðiskor Háskóla Íslands.
Leiðbeinandi í verkefninu var dr.
Jón Jóhannes Jónsson dósent við líf-
efna- og sameindalíffræðistofu
læknadeildar Háskóla Íslands og
yfirlæknir við erfða- og sameinda-
læknisfræðideild LSH.
Mæði-visnu veiran (MVV) er
lentiveira sem sýkir kindur. Lenti-
veirur innlima erfðaefni sitt í litning
hýsilfrumna og geta sýkt frumur
sem ekki eru í skiptingu. Þar af leið-
andi eru þær ákjósanlegar genaferj-
ur í tilvikum þar sem langtíma gena-
tjáningar er krafist. MVV gefur kost
á að hanna genaferjukerfi byggt á
lentiveiru sem hægt væri að prófa í
hentugu dýralíkani.
Ritgerð Helgu lýsir tilraunakerfi
sem sett var upp til að rannsaka
tjáningu gena, framleiðslu veira og
pökkun erfðaefnis í MVV. Með kerf-
inu var hægt að kortleggja pökk-
unarraðir í erfðaefni MVV, þ.e. þá
röð í erfðaefni veirunnar sem þarf til
þess að pakka erfðaefninu í veiru-
agnir. Þar að auki var smíðað
þriggja plasmíða kerfi sem innleitt
var í frumur til þess að framleiða
MVV genaferju.
Þróuð voru kerfi til að magnmæla
öll umrit MVV. Magnmælingarnar
voru byggðar á víxlritun og kjarn-
sýrumögnun á rauntíma (e. real-
time qRT-PCR). Til að kortleggja
pökkunarraðir MVV voru mismun-
andi úrfellingar gerðar í 5’ enda
MVV umritsins. Við hönnun þeirra
var stuðst við tölvugreiningu á ann-
ars stigs byggingu raðarinnar og
niðurstöðum úr þróunarfræðilegum
samanburði. Pökkunarskilvirkni
umritanna með úrfellingunum var
mæld með magnmælingakerfinu.
Einnig voru smíðuð plasmíð sem
innhéldu annars vegar trans-gen
MVV með stýriröðum af óskyldum
uppruna og hinsvegar cis-verkandi
MVV-raðir með tilfærslugeninu
lacZ. Plasmíðin voru innleidd saman
í frumur til að framleiða veiruagnir.
Pökkun umrita í veiruagnir var
magnmæld ásamt getu veiruagn-
anna til að flytja lacZ-genið inn í
frumur. Framleiðsla veirupróteina
var metin með Western-þrykki og
mælingu á víxlritavirkni.
Niðurstöðurnar veita innsýn á
pökkunarferli lentiveira og auka
skilning á sameindalíffræði MVV og
MVV genaferja. Þar að auki er til-
raunakerfið öflugt tæki sem nýtist
við að rannsaka hin ýmsu skref í
tímgunarhring MVV.
Niðurstöður rannsókna Helgu
hafa verið birtar á ráðstefnum hér-
lendis og erlendis sem og í alþjóð-
legum ritrýndum tímaritum þ.m.t.
hinu virta tímariti Journal of Viro-
logy. Hægt er að nálgast greinarnar
á þessari slóð:
www.ncbi.nlm.nih.gov/sites/entrez. Í
doktorsnefnd sátu dr. Eiríkur Stein-
grímsson, dr. Guðmundur Eggerts-
son, dr. Guðmundur Pétursson og
dr. Valgerður Andrésdóttir.
Helga er fædd árið 1971. Hún lauk
BSc-prófi árið 1994 í sameinda-
líffræði frá líffræðiskor Háskóla Ís-
lands. Eftir það starfaði hún við
ýmis rannsóknarstörf, þar á meðal í
Bandaríkjunum og við Krabba-
meinsfélag Íslands. Helga hóf síðan
doktorsnám í lífvísindum við lífefna-
fræði- og sameindalíffræðistofu
læknadeildar Háskóla Íslands árið
1999. Helga starfar nú sem verk-
efnastjóri hjá erfða- og sameinda-
læknisfræðideild LSH. Helga á einn
son fæddan árið 2005.
Doktor í
lífvísindum
Fréttir
í tölvupósti