Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 44
Heimspekingar og
aðrir hugsuðir hafa
skrifað, letinni til dýrðar …
46
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ ER verið að mála loft og
veggi og gera við gólf. Þetta eru
svona smáfegrunaraðgerðir,“ segir
Ívar Agnarsson, veitingastjóri á
Kaffi Sóloni í Bankastrætinu, en
staðnum hefur nú verið lokað
vegna framkvæmda frá því á
mánudaginn.
„Þetta er töluverð vinna, að
sprauta þessi loft og svona,“ segir
Ívar og bætir því við að stefnt sé
að því að opna strax í fyrramálið.
Engar stórvægilegar breytingar
eru fyrirhugaðar á staðnum enda
segir Ívar hann ganga mjög vel.
„Við stefnum samt að því að vera
með nýjan matseðil eftir helgi.“
Eins og gestir miðbæjarins hafa
eflaust tekið eftir var glæsilegu
skilti komið fyrir utan á húsinu og
breytir það svip þess mikið.
Lok lok og læs á Sóloni
Morgunblaðið/Sverrir
Málarar Sólon hét til skamms tíma Hús málarans enda una þeir sér þar vel.
Hljómsveitin Sign þeysist nú um
Evrópu og hitar upp fyrir Skid
Row. Ragnar Zolberg, söngvari og
gítarleikari Sign, bloggar eins og
vindurinn á sign.blog.is og þar má
lesa allt um hið villta rokklíferni
sem fylgir tónleikaferðalögum: „Í
gær og fyrradag drógu Skidararnir
okkur upp á svið og við sungum
með í laginu „Get the fuck out“
… það var ekki raunverulegt […]
Eftir nokkra daga er kominn
ógeðsleg lykt í bílinn (að sjálfsögðu)
og sokkar orðnir meira en skítugir
og ég ekki búinn að fara í sturtu
síðan við komum út. Sjáum hvað
strákarnir þola það lengi áður en
þeir henda mér inn í klefa í föt-
unum. En vond lykt er samt partur
af þessu blessaða rock ’n’roll-líferni
sem við völdum okkur … þýðir
bara að allt er eins og það á að
vera.“
Sign, Skid-arar
og skítugir sokkar
Á vefsíðu D3 má nú sjá mynd-
band þar sem farið er yfir jólaút-
gáfu Senu og aðra starfsemi fyr-
irtækisins, en það er Ólafur
Ragnar, starfs-
maður á plani,
sem kynnir. Sér-
staka athygli
vekur kafli í
myndbandinu
þar sem farið er
yfir starfsemi
tónleikahaldarans Concert en þar
segir meðal annars: „Á næstu
tveimur árum höldum við enn fleiri
og stærri tónleika en sést hafa áður
hérlendis.“ Í kjölfarið eru svo sýnd-
ar myndir af eftirtöldum flytj-
endum, og þar með gefið í skyn að
þeir séu að koma til landsins: Red
Hot Chili Peppers, Gwen Stefani,
James Blunt, Beastie Boys, Bob
Dylan, Neil Young, Lenny Kravitz,
Nine Inch Nails, Smashing Pumpk-
ins, Arcade Fire, Paul McCartney,
Paul Simon og Pearl Jam.
Áhugasamir geta séð mynd-
bandið á www.d3.is/SMS/sena.
Dylan og McCartney
með tónleika hér?
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„OKKUR fannst bara fínt að nefna
plötuna eftir sveitinni, hvort sem
fólk á eftir að kalla hana Benny
Crespo’s Gang eða Nashyrn-
ingaplötuna í framtíðinni,“ segir
Helgi Rúnar Gunnarsson, söngvari
hljómsveitarinnar Benny Crespo’s
Gang, sem sendi nýverið frá sér
sína fyrstu plötu. Eins og sjá má hér
á síðunni prýðir gylltur nashyrn-
ingur plötuna, sem verður að teljast
fremur óhefðbundin skreyting.
„Atli Fannar, vinur okkar sem
hannaði með okkur umslagið, kom
með þessa hugmynd. Við vorum bú-
in að taka einhverjar myndir sem
okkur fannst ekki passa við plöt-
una. Atli fór þá að velta því fyrir
sér hvaða dýr myndi lýsa tónlistinni
okkar best, og komst að þeirri nið-
urstöðu að það væri nashyrningur.
Ég veit hins vegar ekkert hvað ég á
að segja um það, en þetta kemur
samt ótrúlega vel út með þessu
gulli og svona.“
Aðspurður segir Helgi Rúnar
fremur erfitt að lýsa tónlistinni á
plötunni. „Við komum nefnilega
mjög víða við á þessari plötu. Þarna
má bæði heyra metal-riff, poppaðar
melódíur, rokk, elektróník og
margt fleira. En ég held reyndar að
ég sé ekki sá besti til að lýsa þessu,“
segir hann, en í fréttatilkynningu
frá Senu, sem gefur plötuna út, seg-
ir að um sé að ræða gítarkennda og
hljóðgervlaða poppmetal-kássu.
„Ætli það sé ekki bara ágætt, það
lýsir þessari plötu kannski bara
mjög vel.“
Jólagjöfin í ár
Auk Helga Rúnars skipa sveitina
þau Björn Sigmundur Ólafsson
(Bassi) trommuleikari, Magnús
Árni Öder Kristinsson bassaleikari
og Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir
(Lay Low), sem syngur og spilar á
gítar og hljómborð. Benny Crespo’s
Gang var stofnuð árið 2004, og því
hefur verið nokkuð löng bið eftir
fyrstu plötu sveitarinnar. „Já, við
erum búin að vera svolítið lengi að
drulla þessu frá okkur,“ segir Helgi
Rúnar. „Við erum eiginlega búin að
taka þessa plötu upp þrisvar eða
fjórum sinnum. Við byrjuðum til
dæmis á að taka hana upp í hljóð-
veri hjá pabba hans Bassa tromm-
ara, Labba í Mánum á Selfossi. Það
var í litlu herbergi sem var alveg
dautt þannig að okkur fannst það
ekki nógu lifandi,“ segir Helgi Rún-
ar en bætir því við að hljómsveit-
armeðlimir séu mjög sáttir við hina
endanlegu útkomu.
Ekki hefur verið ákveðið hvar og
hvenær útgáfutónleikar nýju plöt-
unnar verða, en Helgi Rúnar býst
við því að þeir verði haldnir í byrj-
un desember.
Aðspurður segir hann að lokum
að Benny Crespo’s Gang sé klár-
lega jólagjöfin í ár. „Allavega í
minni fjölskyldu,“ segir hann og
hlær.
Nashyrningatónlist
Rokkhljómsveitin Benny Crespo’s Gang hefur sent frá sér sína fyrstu plötu
Morgunblaðið/G. Rúnar
Gengið „Já, við erum búin að vera svolítið lengi að drulla þessu frá okkur,“
segir Helgi Rúnar um fyrstu plötu Benny Crespo’s Gang.
www.myspace.com/benny-
cresposgang.
Platan Gyllti nashyrningurinn.
■ Á morgun kl. 19.30
Pétur Gautur Tónlist Griegs við stórvirki Ibsens. Nótt á
Nornastóli eftir Mussorgsky og Ævintýri Ugluspegils eftir Richard
Strauss. Stjórnandi: Petri Sakari
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Sögumaður: Gunnar Eyjólfsson
■ Fim. 29. nóvember kl. 19.30
Adés og Stravinskíj. Dáðasta tónskáld Breta af yngri kynslóðinni,
Thomas Adés, sækir okkur heim og stýrir hljómsveitinni og
Hamrahlíðarkórunum í verkum Stravinskíjs og sínum eigin.
■ Fös. 7. desember kl. 19.30
Lífið kallar. Styrktartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og FL
Group. Uppselt.
■ Lau. 15. desember kl. 14 nokkur sæti laus og kl. 17
Jólatónleikar. Hnotubrjóturinn eftir Tsjajkovskíj. Nemendur úr
Listdansskóla Íslands dansa og trúðurinn Barbara segir söguna.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is