Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 51
HÁSPENNA
HANDHAFI ÞÝSKU
GLÆPASAGNAVERÐLAUNANNA
FRAMÚRSKARANDI GLÆPASAGA. BYGGIR Á
ÓHUGNANLEGU OG DULARFULLU MORÐMÁLI
SEM ENN ER ÓUPPLÝST.
„Drápin er stórfengleg glæpasaga.“
– Die Zeit
„Spennandi glæpasaga af bestu gerð.“
– Hamburger Abendblatt
„Þessi fyrsta bók Andreu Mariu Schenkel er ekki bara bráð-
spennandi og vel skrifuð glæpasaga. Hún dregur upp ógnvæn-
lega og eftirminnilega mynd af hrollvekjandi sveitasamfélagi ... “
–Die Berliner Literaturkritik
MEISTARI HINNAR
ÓVÆNTU FLÉTTU
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
ALÞJÓÐLEGMETSÖLUBÓK
HEFUR SETIÐÁ ÞÝSKUMMETSÖLULISTUMALLT ÁRIÐ!
ALÞJÓÐLEG METSÖLUBÓK EFTIR KONUNG
BRESKRA SPENNUSAGNA
„Snilldarlega góð glæpasaga.“
– Aftenposten
„Úthugsuð og þéttofin spennusaga
eftir sjálfan meistara formsins.“
–Dagbladet
TÖLVULEIKIR
Lair
PS3
Factor 5
ÓHÆTT er að segja að margir hafi
beðið spenntir eftir leiknum Lair en
vísast hefur sú eftirvænting snúist
upp í andhverfu sína núna. Þar að
auki held ég að tíminn sem leið milli
þess sem leikurinn kom út í Banda-
ríkjunum og síðan í Evrópu hafi ekki
hjálpað honum mikið, því neikvæðir
dómar vestanhafs hafa nánast jarðað
þennan leik. Leikurinn lítur fallega út
og hugmyndin er skemmtileg. Maður
spilar sem drekariddari sem svífur
um loftin blá á baki stærðarinnar
dreka og berst við óvini sem vilja
manni illt eitt.
Það sem leikurinn stólaði mikið á
og varð honum að falli á endanum var
Sixaxis-tæknin í stýripinnanum, þar
sem þú getur hallað honum fram og
til baka og drekinn hegðar sér eftir
því. Málið er að þetta er alveg skelfi-
leg aðferð til þess að stjórna dýrinu
og það er stór galli að manni er ekki
boðið upp á þann möguleika að nota
stýripinnann sem myndi bjarga þess-
um leik algerlega. Ég hreinlega skil
ekki þá ákvörðun að stóla á þessa
tækni sem er ekki nógu nákvæm til
þess að virka sem aðalstjórnun í heil-
um leik á meðan eldri flugleikir hafa
gert svipaða hluti á mun betri hátt
með hjálp stýripinnanna. Fyrir utan
stjórnunina þá er leikurinn ekkert
sérstaklega skemmtilegur heldur
endurtekur sig aftur og aftur í borð-
unum. Hann er lítið spennandi og
þegar stjórnunin er svona gölluð þá
verður maður fljótur að gefast upp á
honum.
Útlit leiksins er gott, grafíkin fín og
hljóðið allt í lagi en langt frá því sem
maður átti von á. Einnig vonaðist
maður eftir því að framleiðendur
hefðu notað tímann á milli þess að
leikurinn kom út í Bandaríkjunum og
Evrópu til að bjóða upp á stýripinna-
notkun en svo er ekki. Á hinn bóginn
skal það tekið fram að hægt er að
spila leikinn í gegnum PSP-vélina og
þá notast maður náttúrlega við stýri-
pinnana og því virkar leikurinn mun
betur. Vonandi sjá framleiðendur að
sér og bjóða upp á þennan möguleika
sem jafnvel væri hægt að hlaða niður
í gegnum netið.
En eins og er þá eru þetta mikil
vonbrigði og vatn á myllu þeirra sem
tala mest gegn leikjagæðum PS3-
vélarinnar.
Ómar Örn Hauksson
Hann er nú eitt-
hvað gaslaus þessi
Drekar Jafnvel grimmum ófreskjum tekst ekki að bjarga leiknum.
TÖLVULEIKIR
PS2
Buzz: The Hollywood Quiz Relentless
BUZZ er að verða eins og Singstar-
serían, góð afsökun til að halda partí
í hvert sinn sem nýjasta viðbótin er
gefin út. Ég hef beðið lengi eftir því
að Buzz-serían kæmi í kvikmyndaút-
gáfu og nú er biðin á enda. Leik-
urinn er byggður upp eins og fyrri
leikir, maður svarar spurningum í
ýmsum flokkum og reynir auðvitað
að sigra andstæðinginn. Frekar ein-
falt allt saman en þrusu skemmtilegt
samt sem áður. Spurningarnar snú-
ast oftar en ekki um að vera fljótari
en andstæðingurinn að svara en síð-
an eru einnig spurningaliðir sem
snúast um að stela stigum af and-
stæðingum þínum, auk vísbend-
ingaspurninga.
Þetta er leikur sem þrælvirkar í
mannfagnaði og í tilviki okkar kvik-
myndanördanna er Buzz hin besta
leið til að fá útrás fyrir nördismann.
Ómar Örn Hauksson
Kvik-
mynda-
áhugamenn
sameinist
Spurningaleikur Fyrir hvaða
mynd fékk Angelina Jolie óskarinn
- og hvað heitir pabbi hennar?
TÖLVULEIKIR»