Morgunblaðið - 04.12.2007, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
LÖGREGLAN á Suðurnesjum handtók fjóra
einstaklinga á sunnudagskvöld og færði þá til
yfirheyrslu í tengslum við banaslysið sem varð
við Vesturgötu á föstudag. Fólkið, þrír karl-
menn og ein kona, hefur stöðu vitna en það var
talið búa yfir upplýsingum í málinu. Því var
öllu sleppt í gærkvöldi en karlmaður sem hand-
tekinn var á laugardag og er grunaður um að
hafa ekið á Kristin Veigar Sigurðsson, fjögurra
ára pilt, situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann neit-
ar sök.
Rannsókn lögreglu stendur sem hæst og m.a.
hefur tæknideild rannsakað ítarlega bifreið
sem maðurinn hafði aðgang að. Ekki er hægt
að útiloka að einhver annar hafi setið undir
stýri en maðurinn mun sitja áfram í gæslu-
varðhaldi, eða til fimmtudags, á grundvelli
rannsóknarhagsmuna.
Íbúar við Vesturgötu lokuðu götunni í um
tvær klukkustundir á laugardag til að mótmæla
miklum ökuhraða. Í gær fengu íbúar áheyrn
hjá bæjarstjóranum, Árna Sigfússyni, og sagð-
ist Guðmundur Símonarson í samtali við Morg-
unblaðið afar sáttur við fundinn. „Það verður
sett upp bráðabirgðahraðahindrun á næstu
dögum. [Árni] lofaði mér því að hann myndi
reyna að koma henni upp fyrir helgi, og ég verð
sáttur ef það gengur eftir.“
Nýtt skipulag fyrir næsta vor
Guðmundur segist ekki útiloka frekari að-
gerðir íbúa, sér í lagi ef ekkert verður að gert
fyrir helgina. „En svo verða einnig allir, bæði
ungir og aldnir ökumenn, að keyra hægar
þarna um. Síðan slysið varð hefur umferð verið
hæg og það sýnir að menn taka þetta nærri
sér. En hins vegar eru menn fljótir að gleyma
og því verður fleira að koma til.“ Í því sam-
bandi nefnir Guðmundur að Árni hafi einnig
farið yfir skipulag fyrir svæðið, sem á að verða
komið í gegn næsta vor. Meðal úrbóta í skipu-
laginu eru hraðahindranir og einnig ljósastýrð
gatnamót.
Ekki útilokað að einhver
annar hafi setið undir stýri
Lögregla handtók
fjögur vitni á sunnudag
Í HNOTSKURN
»Slysið átti sér stað á mótum Vesturgötuog Birkiteigs á föstudag.
»Drengurinn sem fyrir bílnum varð lést ágjörgæsludeild Landspítalans á laug-
ardag.
»Hinn handtekni neitar sök en mun sitja ígæsluvarðhaldi þar til á fimmtudag.
»Fjórir einstaklingar sem handteknirvoru á sunnudag og færðir til yfir-
heyrslu hafa stöðu vitna.
»Ekki var krafist gæsluvarðhalds ogþeim sleppt í gærkvöldi sögn RUV.
FIMM vopnaðir menn réðust að ís-
lenskri stúlku, Kristínu Manúels-
dóttur, í Mapútó, höfuðborg Mósam-
bík, um helgina. Þeir miðuðu
skammbyssum á hana er hún steig út
úr bíl sínum í rólegu úthverfi Mapútó
á laugardaginn. Mennirnir tóku af
Kristínu þau verðmæti sem hún var
með á sér, ógnuðu öryggisvörðum
sem gættu heimilisins sem hún var
að heimsækja og stálu síðan bílnum
hennar, en þetta kom fram í sjón-
varpsfréttum mbl.is í gær.
Kristín sagði að mennirnir hefðu
verið snyrtilega til fara en litið út
fyrir að vera í annarlegu ástandi.
Hún sagði jafnframt að glæpir sem
þessi væru ekki mjög algengir í Map-
útó, helst þyrfti maður að vara sig á
vasa- og veskjaþjófum sem sækjast
sérstaklega eftir
farsímum. „Ég lét
einn mannanna fá
bíllykilinn en þá
hafði ég áttað mig
á því að hann var
með byssu.
Mennirnir báðu
um peninga, en
ég var með svo
litla peninga og
þeir tóku því bara
töskuna mína,“ sagði Kristín og
bætti við að hana hefði ekki sakað.
Líkt og áður segir stálu mennirnir
bíl Kristínar, en hann er skráður á
Þróunarsamvinnustofnunina og því á
diplómatanúmerum. Þetta kunnu
mennirnir greinilega ekki að meta
því daginn eftir var bílnum skilað.
Kristín telur að þeim hafi án efa
brugðið þegar þeir sáu númerin og
hafi viljað losa sig við bifreiðina sem
fyrst.
Kristín er átján ára og búsett í
Mapútó þar sem stjúpfaðir hennar er
verkefnastjóri fiskimála fyrir Þróun-
arsamvinnustofnun Íslands. Fjórir
íslenskir starfsmenn eru í Mósambík
á vegum stofnunarinnar ásamt fjöl-
skyldum sínum.
Í Mósambík er fólksfjöldinn um 20
milljónir, þar af býr ein milljón í höf-
uðborginni Mapútó. Landið er fá-
tækt og hefur verið reiknað út að lífs-
líkur fólks séu ekki nema 40 ár. Það
má að miklu leyti rekja til aukinnar
útbreiðslu alnæmis en áætlað er að
um 12,2% þjóðarinnar séu smituð.
Ráðist að íslenskri
stúlku í Mapútó
Kristín
Manúelsdóttir
Ógnuðu stúlkunni með skammbyssu og stálu bíl hennar
ÁRNI M. Mathie-
sen fjármálaráð-
herra segir það
hafa verið mikið
álitamál hvort af-
nema ætti verð-
tryggingu lána.
Enginn vafi leiki á
að verðtryggingin
hafi gegnt mikil-
vægu hlutverki á
undanförnum ár-
um. Um þessar mundir hafi hins veg-
ar komið upp ýmsar spurningar um
hvort verðtryggingin hafi einhver
neikvæð áhrif varðandi aðra þætti í
hagstjórninni. ,,Ég held að menn hafi
almennt ekki komist að neinni nið-
urstöðu um það og ég tel ekki rétt að
vera með neinar vangaveltur um
breytingar fyrr en menn hafa komast
að einhverri fræðilegri niðurstöðu
um þetta,“ segir hann.
Í Morgunblaðinu í gær tók Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
undir þau sjónarmið Hreiðars Más
Sigurðssonar, forstjóra Kaupþings, í
Morgunblaðsviðtali um helgina, að
rétt væri að stefna að afnámi verð-
tryggingar í framtíðinni.
Afnám verðtryggingar
hefur áhrif á lífeyrissjóðina
Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Gildis-lífeyrissjóðs, segir að ef
verðtrygging verði afnumin muni það
hafa áhrif á lífeyrissjóðina, sem eru
með stóran hluta eigna sinna í verð-
tryggðum skuldabréfum og menn
þyrftu þá að hugsa málin upp á nýtt.
„Auðvitað hefði þetta áhrif á lífeyr-
issjóðina,“ segir Árni. „Okkar eignir
eru að miklum hluta bundnar í verð-
tryggðum lánum. Sú verðtrygging
sem þegar er komin á heldur sér að
sjálfsögðu en menn þyrftu að horfast
í augu við framtíðina ef engir papp-
írar eru lengur til á markaði sem eru
verðtryggðir. Það breytir aðeins
stöðunni.
Þetta er það sem við höfum búið
við alla tíð og okkar forsendur byggj-
ast á að þessar eignir séu verð-
tryggðar. Við þurfum að ná ákveðinni
ávöxtun umfram verðtryggingu
þannig að þetta hefði vissulega
áhrif.“
Breyting
er mikið
álitamál
Árni M.
Mathiesen
Verðtryggingin gegnt
mikilvægu hlutverki
MINNINGARATHÖFN um Kristin Veigar Sigurðsson,
sem lést í umferðarslysi á mótum Vesturgötu og Birki-
teigs í Reykjanesbæ á föstudag, var haldin í Keflavík-
urkirkju í gærkvöldi. Athöfnin var vel sótt og hlýddu
gestir á séra Sigfús B. Ingvason ræða um sorgina og
sorgarviðbrögð. Mikill samhugur var að sögn í gestum
sem komu víða að til að kveikja á kertum fyrir dreng-
inn, sem aðeins var fjögurra ára.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Kveikt á kertum fyrir Kristin
LÖGREGLUNNI á höfuðborgar-
svæðinu bárust tvær tilkynningar um
nauðganir eftir helgina. Að sögn lög-
reglu hefur önnur nauðgunin verið
kærð og er málið í rannsókn. Ekki
hefur borist formleg kæra í hinu mál-
inu.
Bæði nauðgunarmálin komu upp
aðfaranótt sunnudags. Önnur nauðg-
unin átti sér stað í heimahúsi en hin á
salerni á skemmtistað.
Ekki fékkst staðfest hvort einhver
hefði verið handtekinn vegna málsins
sem kært var, en að sögn lögreglu
liggur einn karlmaður undir grun.
Tvær nauðganir
um helgina
HEIMILT verður að veiða allt að
1.333 hreindýr á veiðitímabili næsta
árs, sem stendur frá 1. ágúst til 15.
september. Þetta hefur umhverfis-
ráðuneytið ákveðið að tillögu Um-
hverfisstofnunar. Veiðikvóti þessa árs
var 1.137 dýr og reyndist veiðin þegar
upp var staðið 1.129 dýr.
Að mati Náttúrustofu Austurlands
mun veiði á þessum fjölda hreindýra
ekki hafa áhrif á stærð hreindýra-
stofnsins, að því er segir í tilkynningu.
1.333 hreindýr