Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 354. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SKOTHELD FEGURÐ
LÉTTSTÍG SKREF TIL KLASSÍSKRAR ÁRAMÓTA-
FÖRÐUNAR FYRIR KONUR Á ÖLLUM ALDRI >> 18
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
VELTA á fasteignamarkaði hefur aldrei ver-
ið meiri hérlendis en á árinu sem senn líður í
aldanna skaut. Um 14.500 kaupsamningum
var þinglýst og námu heildarviðskipti með
fasteignir um 360 milljörðum króna, skv.
upplýsingum Fasteignamats ríkisins. Ásgeir
Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar
Kaupþings banka, telur að framboð af nýju
húsnæði hafi náð hámarki á árinu og gott sé
fyrir markaðinn að nú dragi úr framboðinu.
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækk-
aði um 14% á árinu, töluvert umfram al-
mennt verðlag.
Hver kaupsamningur á yfirstandandi ári
var að meðaltali upp á 25 milljónir kr. en 23
milljónir í fyrra. Ársveltan var 269 milljarðar
kr. og fjöldi kaupsamninga rúmlega 11.700
skv. heimasíðu FMR. Heildarvelta fasteigna-
viðskipta hefur því aukist um 30% á milli ára
og fjöldi kaupsamninga um ríflega 20%.
Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu stefnir í um 280 millj-
arða en var rúmlega 200 milljarðar 2006.
Í takt við kaupmáttinn
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 14,1% á
tímabilinu frá nóvember 2006 til nóvember á
þessu ári. Vísitalan sveiflast nokkuð á milli
mánaða, en ekki er líklegt að hækkunin verði
minni en þetta þegar endanlegar tölur liggja
fyrir um árið. Hækkunin nú er meiri en árið á
undan en minni en árið þar á undan. Almennt
verðlag hækkaði á nefndu 12 mánaða tímabili
um 5%. Að sögn Þorsteins eru vísbendingar
um að atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu hafi jafnvel hækkað enn meira í verði.
Ásgeir Jónsson segir mestu skipta, þegar
fasteignamarkaðurinn sé skoðaður, hve gríð-
arleg veltan hafi verið. Hann segir að þó að
verð hafi hækkað töluvert hafi jafnvægi verið
á milli framboðs og eftirspurnar, og bendir á
að fasteignamarkaðurinn fylgi efnahagslífinu
almennt og mikla eftirspurn á árinu megi
rekja til þess hve kaupmátturinn hefur vaxið.
Greiningardeild Kaupþings banka telur
framboð á nýju húsnæði hafa náð hámarki á
þessu ári og að það sé jákvætt fyrir mark-
aðinn þegar litið sé til næsta árs. Ásgeir segir
kjör á húsnæðislánum vitanlega skipta miklu
máli. „Það er ljóst að þau hafa versnað tölu-
vert, m.a. vegna vaxtahækkana Seðlabank-
ans, og ég á ekki von á að þau breytist strax,
a.m.k. ekki fram á vorið. Það þrengir því að
markaðnum; erfiðara verður en áður að fjár-
magna húsnæðiskaup.“
Morgunblaðið/Frikki
Viðskipti
upp á 360
milljarða
Verð íbúðarhúsnæðis
hefur hækkað um 14%
HUNDRUÐ þúsunda fylgdu Ben-
azir Bhutto, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Pakistans, til grafhýsis
ættar hennar skammt frá bænum
Naudero í gær. Flokksmenn henn-
ar leggja ekki trúnað á skýringar
yfirvalda á því hvernig dauða henn-
ar bar að í tilræðinu á fimmtudag.
Hún hafi ekki látist af völdum höf-
uðhöggs er bíl hennar var ekið frá
staðnum þar sem árásin var gerð,
eins og stjórnvöld halda fram.
Grunur stjórnarinnar beinist að
hryðjuverkaleiðtoganum Baitullah
Mehsud en hann er sagður tengj-
ast al-Qaeda-hryðjuverkanetinu.
Minnst 33 hafa látið lífið í rysk-
ingum í landinu eftir tilræðið og
hefur stjórnin m.a. lokað bensín-
stöðvum og vegum til að hafa hemil
á ástandinu. Þá óttast Farooq
Naik, náinn samstarfsmaður
Bhutto, að Pakistan „þokist í átt til
borgarastyrjaldar“.| 12 og 13
Óttast hörð átök í Pakistan
AP
Hinsta kveðja Asif Ali Zardari, eiginmaður Bhutto, svartklæddur með hvítt höfuðfat, snertir kistuna í gær.
Leikhúsin í landinu
Má bjóða þér
sæti >> 44
„ÞETTA er tvímælalaust mesta viðurkenning sem ég hef hlotið á mín-
um ferli til þessa. Engin verðlaun hafa komið mér jafnmikið á óvart og
þessi,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona úr Val, sem í
gærkvöldi var kjörin íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafrétta-
manna. Hún er fyrsta knattspyrnukonan sem hreppir hnossið. | Íþróttir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Mesta viðurkenningin
Íþróttamaður ársins 2007
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÞAÐ er ekki búið að spá neitt
formlega um þróunina á næsta ári,
en okkur sýnist að það muni draga
mikið úr innflutningi fólks í al-
mennan byggingaiðnað, ekki bara í
stórframkvæmdir heldur almennt.
Það er nokkuð ljóst að hann mun
minnka,“ segir Karl Sigurðsson,
forstöðumaður vinnumálasviðs
Vinnumálastofnunar.
Sést út frá vottorðum
Að sögn Karls er tekið eftir því
hjá Vinnumálastofnun að fólk sé al-
mennt að fara úr byggingaiðnaðin-
um hér úr landi, bæði úr stærri og
smærri verkefnum hjá verktaka-
fyrirtækjum. Þetta má ráða af
þeim fjölda sem óskar eftir vott-
orði til að flytja atvinnuleysisbóta-
rétt með sér til heimalandsins, að
sögn Karls, en fólk sem hefur
starfað hér í einhvern tíma ávinnur
sér rétt til atvinnuleysisbóta sem
hægt er að leysa út í heimalandinu
ef þörf krefur, samkvæmt sam-
komulagi á milli ríkja. Til þess þarf
vottorð frá Vinnumálastofnun. Að
öðru leyti er ekki mikið vitað um þá
sem eru að fara frá landinu, enda
sér Vinnumálastofnun meira um
skráningu þeirra sem koma hing-
að.
Karl segir útlendinga á vinnu-
markaði hérlendis hafa komist ná-
lægt 18.000 á þessu ári, en til sam-
anburðar voru að jafnaði 13-14.000
útlendingar í vinnu á Íslandi á
árinu 2006. Hins vegar hefur orðið
nokkur fækkun á haustmánuðum.
„Við erum að sjá það núna, fyrst og
fremst út af lokum framkvæmda
hjá stórum verktökum eins og
Bechtel og Impregilo, að margir
útlendingar hafa verið að fara,“
segir Karl. Líklega er heildartala
þeirra sem hafa farið af landi brott
síðan í byrjun september um 4.000
manns.
Dregur úr fólksfjölgun
Samkvæmt tölum sem birtar eru
á vef Hagstofu Íslands hefur fólks-
fjölgun verið óvenjuhröð undanfar-
in ár en nú dregur nokkuð úr
henni. Fólksfjölgun frá 1. desem-
ber á síðasta ári er 1,8% samanbor-
ið við 2,6% á árinu þar á undan og
2,1% frá 2004 til 2005. Þetta er
mun meiri fjölgun en almennt í
Evrópu, þar sem hún er víða undir
einu prósenti.
Dregur mikið
úr innflutningi
fólks á næsta ári
Útlendingar á vinnumarkaði eru u.þ.b.
18.000 en voru 13-14.000 árið 2006
Fólk Margir útlendingar eru á
vinnumarkaði hér á landi.