Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 9
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„ÉG er að hætta og loka um hádegið
á gamlársdag,“ sagði Frímann Frí-
mannsson, umboðsmaður Happ-
drættis Háskóla Íslands til 52 ára.
Afgreiðsla hans í horni Hafnarhúss-
ins við Tryggvagötu í Reykjavík
bætist því fljótlega í hóp gamal-
gróinna kennileita miðbæjarins sem
heyra sögunni til.
„Ég er búinn að vera hér í 60 ár og
í 52 ár með happdrættið,“ sagði Frí-
mann sem sjálfur verður 78 ára á
þrettándanum. „Það er komið nóg
eftir 60 ár hér á horninu.“ Starfs-
maður Frímanns til fjörutíu ára,
Elías F. Elíasson, lætur einnig af
störfum um áramótin en hann verð-
ur 71 árs í byrjun næsta árs.
Frímann byrjaði átján ára gamall
að vinna hjá föður sínum, Frímanni
Frímannssyni, sem rak m.a. bíla-
afgreiðslu og annaðist vöruflutninga
víða um landið. Einnig afgreiddu
þeir rútur sem fóru á Akranes, í
Ólafsvík, Stykkishólm og víðar. Frí-
mann eldri starfaði við fyrirtækið til
92 ára aldurs.
Flest breytt frá fyrri árum
Frímann yngri segir flest breytt
frá því á árum áður. Miðbærinn vart
þekkjanlegur frá fyrri árum, margar
verslanir horfnar og barir komnir í
staðinn. Þá hefur afgreiðsla happ-
drættismiða gjörbreyst og þar
breytti tölvutæknin mestu.
„Þetta er orðin allt öðru vísi vinna
en var. Þegar búið er að draga
klukkan sex er allt komið inn í tölv-
una og því lokað. Áður var viku til tíu
daga stanslaus vinna að ganga frá
miðunum til að geta byrjað aftur,“
sagði Frímann.
Viðskiptavinir umboðsins eru
orðnir margir í áranna rás. Frímann
sagði að nú væru þeir um 2.500 tals-
ins og meira en 80% þeirra borgi af
miðunum með sjálfvirkum korta-
greiðslum. Dyggur hópur kemur þó
enn í eigin persónu og endurnýjar
miðann sinn í hverjum mánuði.
Sjálfur kvaðst Frímann hafa átt
miða í Happdrætti Háskóla Íslands
frá því hann var barn. Hann hefur
oft fengið vinninga, en aldrei mjög
stóra.
En hafa einhverjir verið með miða
alveg frá upphafi umboðsins?
„Já, já, þeir eru töluvert margir.
Þeir sem byrjuðu ungir hafa verið í
mörg ár. Það endurnýjaði einn núna
sem verður 100 ára í mars ef hann
lifir. Svo ganga miðar í erfðir. Maður
er búinn að sjá foreldra koma hingað
með börn og nú eru þau orðin full-
orðin og sjálf komin með börn og
eiga miða líka,“ sagði Frímann.
Hann kvaðst mundi sakna við-
skiptavina sinna, en allt taki ein-
hvern tíma enda. Margir við-
skiptavina Frímanns hafa dottið í
lukkupottinn, en misdjúpt eins og
gengur.
„Það er alltaf gaman að afgreiða
stóra vinninga, en sérstaklega þegar
þeir koma vel niður – sem þeir hafa
oft gert,“ sagði Frímann. Hann
nefndi minnisstætt dæmi um það.
„Það eru orðin nokkuð mörg ár
síðan að maður fékk stærsta vinn-
inginn. Þessi maður var lamaður og
kom hér í hjólastól. Hann gat notað
vinningsféð til að byrja að byggja
sér hús sem honum hentaði inni í
Fossvogi. Mikil lifandis ósköp. Það
hefur oft verið gaman að þessu.“
„Alltaf gaman að af-
greiða stóra vinninga“
Frímann í Hafnarhúsinu lokar eftir 60 ára starf
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Happdrætti Feðgarnir Frímann eldri og Frímann yngri ásamt Ínu Giss-
urardóttur og Halldóri Skaftasyni sem fengu stóran vinning árið 1973.
UMBOÐ Happdrættis Háskóla Íslands á Espiflöt í Biskupstungum hættir
um áramótin líkt og umboðið í Hafnarhúsinu. Sama fjölskylda hefur annast
umboðið á Espiflöt í meira en hálfa öld.
Sveinn Auðunn Sæland garðyrkjubóndi sagði föður sinn, Eirík Sæland,
hafa líklega fengið umboðið árið 1955. Sveinn tók síðan við fyrir um aldar-
fjórðungi og hefur kona hans, Áslaug Sveinbjarnardóttir, sinnt umboðinu
hin síðari ár. Sveinn taldi lítil umboð vera börn síns tíma. Nú er yfirleitt
greitt fyrir miðana með rafrænum hætti en áður komu miðaeigendur og
endurnýjuðu. Sveinn taldi að hann muni helst sakna þess að hitta viðskipta-
vinina en margir þeirra hefðu orðið góðir vinir hans og kunningjar.
Saknar viðskiptavinanna
GUNNAR Karlsson sagnfræðingur
hlýtur heiðursverðlaun Verðlauna-
sjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright í
ár, en verðlaunin voru í gær veitt í
þrítugasta og níunda skipti. Verð-
launin eru veitt íslenskum vísinda-
manni sem náð hefur framúrskar-
andi árangri á sérsviði sínu í
vísindum og fræðum og miðlað þekk-
ingu sinni til framfara í íslensku
þjóðfélagi. Í rökstuðningi stjórnar
verðlaunasjóðsins segir m.a. að
Gunnar eigi að baki glæstan feril
sem sagnfræðingur og hafi jafn-
framt sýnt frábæra færni í miðlun
þekkingar sinnar til annarra og fyrir
það hljóti hann Ásuverðlaun Vís-
indafélagsins 2007.
Gunnar hefur verið prófessor í
sagnfræði við Háskóla Íslands frá
1980. Hann hefur stundað kennslu
og verið afkastamikill fræðimaður.
Hann hefur ritað fjölda bóka, greina,
ritdóma, fræðileg viðtöl og flutt
mörg erindi um sagnfræðileg við-
fangsefni bæði hér og erlendis.
Viðurkenning Gunnar Karlsson sagnfræðingur (t.h.) tekur við verðlaun-
unum úr hendi Sturlu Friðrikssonar, stjórnarformanns Ásusjóðsins.
Ásuverðlaunin
Veitt Gunnari Karlssyni sagnfræðingi
„ÞETTA er góð viðurkenning og
hvatning til dáða,“ segir Eyja Þóra
Einarsdóttir, sem á og rekur
Country Hótel Önnu á Moldnúpi
undir Eyjafjöllum, ásamt eigin-
manni sínum Jóhanni Frímanns-
syni, en hótelið fékk í gær
umhverfisverðlaun Ferðamálastofu
2007.
Hótelið var opnað í byrjun júlí
2002 og er talið minnsta þriggja
stjörnu hótel á landinu með fimm
tveggja manna herbergjum. Í rök-
stuðningi dómnefndar með vali
Country Hótel Önnu segir m.a. að
frá árinu 2003 hafi fyrirtækið unnið
að því að aðlaga starfsemi sína um-
hverfisstjórnun og árið 2004 hafi
skrefið verið stigið og farið að vinna
eftir viðmiðum Green Globe 21.
Árið 2006 fékk hótelið vottun Green
Globe 21 á umhverfisstefnu sinni.
Umhverfisverðlaun
Ferðamálastofu 2007
DRAUGAGANGUR UM ÁRAMÓTIN
Mögnuðustu draugar landsins verða í
ljósum logum um áramótin.
Glámur, Þorgeirsboli, Móri, Skotta og Djákninn á Myrká
skapa réttu áramótastemminguna.
Þú færð draugakökurnar hjá
flugeldasölum íþróttafélaganna
og víða annars staðar
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef-
ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 8
mánaða fangelsi fyrir ýmis brot.
Maðurinn stal m.a. bíl í Reykjavík í
nóvember sl. og fór á honum í inn-
brotaleiðangur til Árnes- og Rang-
árvallasýslna.
Maðurinn braust í ferðinni inn í
gróðurhús í Hveragerði og stal þar
m.a. gróðurhúsalömpum, 20 blóma-
pottum og eiturefnum. Þá stal hann
sæþotu sem stóð fyrir utan bílaverk-
stæði í bænum og lyklum að nokkr-
um bílum. Á Selfossi braust hann inn
í bíl og einbýlishús. Þá braust hann
inn í hús í Flóahreppi og stal m.a.
tölvum og bláum kraftgalla.
Ferðinni lauk við inntaksmann-
virki Búrfellsvirkjunar við Ísakot í
Árnessýslu. Þar braut hann upp
hurð og hafðist við um nóttina og
notaði síma Landsvirkjunar. Við
meðferð málsins sagði verjandi
mannsins, að skjólstæðingur sinn
hefði farið inn í húsnæði Búrfells-
virkjunar þar sem hann hefði verið
kaldur og illa á sig kominn. Hann
hefði gengið einhverja kílómetra í
skafrenningi og kulda og komið
blautur og hrakinn að virkjuninni.
Þar hefði hann séð ljós og bankað
upp á en enginn svarað. Því hefði
hann ekki séð sér annað fært en að
brjótast þar inn.
Dómarinn segir hins vegar, að
ekki verði annað séð en að maðurinn
hafi með ásetningi komið sér í þá að-
stöðu sem hann var í við Búrfells-
virkjun með því að yfirgefa bílinn,
sem hann virðist ekki hafa verið í
neinum lífsháska í, og ganga að
virkjuninni.
Í innbrotaleiðang-
ur á stolnum bíl