Morgunblaðið - 29.12.2007, Side 11

Morgunblaðið - 29.12.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 11 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ANDRI Már Ingólfsson, forstjóri og eigandi Heimsferða og Primera Travel Group, fékk í gær afhent verðlaun tímaritsins Frjálsrar versl- unar sem maður ársins 2007 í ís- lensku viðskiptalífi. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir utanríkisráðherra afhenti verðlaunin en þetta var í 20. sinn sem Frjáls verslun útnefnir mann ársins. Af því tilefni var at- höfnin í Súlnasal Hótels Sögu veg- legri en oft áður og margir af fyrr- verandi mönnum ársins viðstaddir. Andri Már maður ársins Morgunblaðið/Frikki VERKEFNI Enex Kína í Xianyang borg í Shaanxi-héraði gengur bæði betur og hraðar en áætlað hafði ver- ið, samkvæmt tilkynningu frá Enex sem er í eigu Geysir Green Energy og Reykjavík Energy Invest, REI. Reiknað er með að innan fimm ára verði hitaveitan stærri en Orkuveita Reykjavíkur, sem í dag er sögð stærsta jarðvarmaveita í heimi. Hitaveitan í Kína hefur stækkað nær fjórfalt á einu ári og farið úr 160 þúsund upphituðum húsnæðisfer- metrum í 560 þúsund. Á næsta ári bætast við 1,5 milljónir hitaðir fer- metrar og jafnast veitan þá á við það sem þekkist fyrir Hafnarfjörð. Markmiðið er að fara í 15 milljónir fermetra á næstu fimm árum. Enex Kína á hraðferð              !!"                               !"#      $ %        &  ' ()*  +#,   -         ./0   #"   " 1,  "2## 23      4, !"# "    5#  67 #*   &2896 +,  ( (   :   (        ;# ,         (*    !                                                              : (   + (< = $ & >>?@.A> @?A@BB?C> @A>/D.C@D BD>A/>@/A .D.CBA0?.D @@@.0/A. @>@D>0@A? ??@>/?DAAC @/AB.A/B?A @BBABDC.B @.@?A@C? B>?0?@0A C.?>BB/ @DB?D@CB 0B?A/. @?/?AC// @A?BBAC0 ' @@C@??.. 0AA ?A0.D>>D ' C0CA>@.BA ' ' A@B>0DDD ' ' AEB> 0>EBD @AE/D @?E?0 C@EAD .?E0D C>E0D BBDED .0E?D @0E@D 0EAC ABEDD CE@@ /EBA C.CED @A>@ ?A0ED DEB? @>BE0D 0E@C @DCED C.ECD AED0 ' ' ..A0 ' ' AEBA 0BE0D @AEBD @?E0B C@EA0 .?EBD C>E>0 BBCED .0E0D @0E@0 0EA0 ABE0D CE@C /EA. C.?E0 @A>C 0C@ED DEB0 @B.E0 0E@A @D.ED C.E>D AE@. ' ' .?.0 @@E?D ' *   ( ? CA ?A ?> /B @A CC @@/ B0 /C > @B 0 / C CD @> ' CB @ @C ' 0? ' ' A ' ' F#   (#( CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> CB@CCDD> C>@CCDD> CB@CCDD> C@@CCDD> CB@CCDD> C>@CCDD> CB@CCDD> /@CCDD> CCBCDD> CB@CCDD> >@CCDD> C@@CDD> Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is Í DAG eru aðeins þrír dagar eftir til að ljúka síðustu verkefnum ársins 2008. Í Noregi snýst eitt þessara verkefna um hlutfall kynja í stjórn- um hlutafélaga, en frá og með 1. janúar 2008 skulu minnst 40% stjórnarmeðlima vera konur. Í nýlegri grein í Guardian er bent á að fjórðungi tæplega fimm hundr- uð fyrirtækja hafi ekki tekist að uppfylla kvótann. Náist viðmiðið ekki verður heimilt að „loka“ þeim. Innt eftir því hvort þeim hörðu við- urlögum yrði fylgt eftir svaraði ráðherra jafnréttismála að lögin hefðu verið nógu lengi til staðar. Innanbúðarmenn í norsku við- skiptalífi vænta þess þó að í byrjun janúar muni stjórnvöld kanna stöðu mála og senda viðvörun og jafnvel sektarboð áður en gripið verði til svo afdrifaríkra aðgerða. Tölurnar tala sínu máli Áhrif laganna eru ótvíræð því frá árinu 2001 hefur hlutur kvenna aukist úr 6% í 37%, og er þar með sá mesti í heiminum. Næsthæst er hlutfallið í Svíþjóð, eða 19%. Á Ís- landi eru hins vegar aðeins 8% stjórnarmeðlima konur. Glitnir er eitt þeirra fyrirtækja sem þarf að uppfylla nýju lögin. „Öll hlutafélög í eigu Glitnis í Noregi hafa minnst 40% kvenna í stjórn,“ segir Björn Richard Johan- sen, upplýsingafulltrúi Glitnis í Noregi. „Hið sama mun einnig gilda þegar Glitnir sameinast BNbank í febrúar.“ Johansen segir löggjöfina hafa verið umdeilda er hún var sett fram og vissulega rísi enn upp mótbárur. „Hjá Glitni finnst okkur hins veg- ar sjálfsagt mál að fylgja þessu.“ Kynja- kvóti tek- ur gildi 95G 95G     H H 95G %G    H H F1I# 6     H H +& F      H H 95G&@0 95G?D     H H fyrsta sinn síðan 2001 sem ekki verður hækkun á Úrvalsvísitölunni milli ára, en í fyrra hækkaði hún um 15,8% og árið þar áður um 64,7%. Óhætt er þó að segja að ár- ið hafi einkennst af sveiflum á markaði, en vísitalan náði sínu hæsta marki um miðjan júlímánuð og hafði þá hækkað um ein 40% frá ársbyrjun. Í Hálffimm fréttum Kaupþings er jafnframt bent á að velta á hlutabréfamarkaði sló fyrri met og nam hún 3.200 milljörðum króna á árinu, samanborið við 2.192 millj- arða árið á undan. Fjármálafyrirtæki vega þungt í íslensku vísitölunni og drifu þau hækkanir á fyrri hluta ársins, en þegar vart var við áðurnefndan óróa á erlendum fjármálamörkuð- um fóru íslensku fjármálafyrirtæk- in, og þar með Úrvalsvísitalan, ekki varhluta af þeim hræringum. Versta afkoma á markaði síðan 2001 Forstjóri Kauphallar telur ekki hættu á alvarlegri kreppu ADDD B0DD BDDD >0DD >DDD /0DD /DDD  @B*K<=   %'(&)*+,        -../ #* #   < < *K< *K< ) #   L 0)12H Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 1,4% á árinu og er þetta í fyrsta skipti síðan 2001 sem vísitalan lækkar milli ára. Þórður Friðjónsson, for- stjóri Kauphallarinnar, segir mun meiri fylgni hafa verið milli hreyf- inga á íslenska markaðnum og er- lendum mörkuðum í ár en oft áður og lækkunin nú sé ekkert eins- dæmi þegar litið sé til annarra landa. Nefnir hann sem dæmi að Nikkei-vísitalan japanska lækkaði um ein 11% á árinu og margir er- lendir markaðir hafi lækkað sömu- leiðis. „Þessi fylgni er rökrétt afleiðing af alþjóðavæðingu íslenskra fyr- irtækja og þess að sífellt stærri hluti tekna þeirra kemur að utan.“ Árið einkenndist af sveiflum Þórður segist ekki vilja spá fyrir um þróun hlutabréfaverðs á næsta ári, en hann telji að markaðurinn muni halda áfram að stjórnast mjög af því sem gerist erlendis. „Útlit er fyrir að þeir erfiðleikar sem erlendir markaðir hafa verið að kljást við verði viðvarandi tölu- vert inn í næsta ár, eða þar til fólki tekst að ná utan um vanda- málin sem stafa af undirmálslán- um í Bandaríkjunum og vanmati á áhættu í lánum til einstaklinga og fyrirtækja. Það skiptir máli að fólk nái að skilgreina þann skaða sem orðinn er og mun sú vinna setja sitt mark á markaðina á næstu misserum og meðan á því stendur má ætla að markaðir verði áfram harðskafalegir.“ Þórður telur ekki hættu á kreppu á borð við þá sem var á þriðja og fjórða áratug síðustu ald- ar eins og sumir hafa viljað spá fyrir um. „Markaðir og seðlabank- ar búa fyrir meiri þekkingu á hag- fræði og peningastjórnun en þá og betri aðferðir við að bregðast við vandamálum eru til staðar.“ Eins og áður segir er þetta í Í HNOTSKURN » Úrvalsvísitalan náði sínulágmarki hinn 19. desem- ber síðastliðinn, en þá stóð vísitalan í 6.214 stigum. » Vísitalan lækkaði um 9,9%í desember og er það mesta lækkun í lokamánuði ársins á þessari öld. » Lækkun vísitölunnar síð-ustu tvo mánuði ársins nam 22,2%. ÞETTA HELST ... ● BAUGUR Group seldi í gær 22% hlut sinn í danska fasteignafélaginu Nordicom til FL Group. Tengjast þessi viðskipti nýlegri endur- skipulagningu á FL Group þegar Baugur seldi félaginu hlut sinn í fast- eignafélaginu Landic Properties og fékk í staðinn hlut í FL Group. Baugur hafði sem hluthafi í Nordi- com kauprétt á frekari hlutabréfum í félaginu af Ole Vagner, stofnanda fasteignafélagsins Keops. Sá réttur fellur nú niður. Nordicom til FL Group ● SALT Invest- ments, félag í eigu Róberts Wessman, hefur keypt rúmlega 2% hlut í Glitni banka og nam kaup- verðið um 7,5 milljörðum króna. Róbert segir í samtali við Morgunblaðið að félagið hafi séð kauptækifæri í bankanum, enda hafi hann staðið sig vel að undanförnu, en vegna aðstæðna á markaði hafi hlutabréfaverðið lækk- að töluvert. „Við lítum ekki á þetta sem skammtímafjárfestingu, heldur munum sitja á hlutnum í einhvern tíma,“ segir Róbert. Róbert Wessman kaupir í Glitni banka ● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR áætlar að umsvif sjóðsins á árinu 2008 verði nokkru minni en á árinu sem er að líða. Samkvæmt nýbirtri áætlun sjóðsins fyrir árið 2008 áætlar sjóð- urinn að lána 57-65 milljarða króna til húsnæðiskaupa. Í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis kemur fram að í lok nóvember hafði sjóðurinn lánað tæplega 63 milljarða króna og samkvæmt áætlun megi reikna með allt að 6 milljarða útlánum í desem- ber. Í heild megi því búast við að út- lán sjóðsins á yfirstandandi ári verði hátt í 69 milljarða króna. Dregur úr umsvifum Íbúðalánasjóðs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.