Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 16
16 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
NEFND innan Háskólans á Akureyri hefur skilað
tillögum að málstefnu fyrir skólann. Þær eru
byggðar á ýtarlegum undirbúningi, m.a. spurn-
ingakönnun sem öllum kennurum og nemendum
bauðst að taka þátt í. En hún leiddi í ljós afger-
andi stuðning við þá hugmynd að íslenska yrði op-
inbert mál skólans og að sama skapi andstöðu við
einhvers konar tvítyngi, að sögn Brynhildar Þór-
arinsdóttur, aðjúnkts, sem er í nefndinni.
Alls 59% nemenda töldu að opinbert mál skól-
ans ætti að vera íslenska, 3% völdu ensku og 32%
vildu gera báðum þessum tungumálum jafnt undir
höfði. Kennararnir tóku mun afdráttarlausari af-
stöðu með íslenskunni en 75% þeirra völdu ís-
lensku sem opinbert mál, 2% ensku og 18% bæði
tungumálin.
Að sögn Brynhildar er Háskóli Íslands eini há-
skólinn hérlendis sem þegar hefur mótað sér mál-
stefnu. Ekki eru ákvæði um tungumál í íslenskum
lögum um háskóla en í nýju lagafrumvarpi verður
gert ráð fyrir því að ríkisháskólarnir þurfi að
móta sér málstefnu. Brynhildur segir að athyglin
beinist í vaxandi mæli að helsta samskiptatæki
háskólafólks, tungumálinu og hún segir burðarás í
málstefnu Háskólans á Akureyri verða, skv. til-
lögunum, hvatningu og stuðning við bætt málfar,
jafnt á íslensku sem öðrum málum. Starfsmenn
skólans kalli mjög eftir slíkum stuðningi „enda má
öllum vera ljóst að vönduð málnotkun er lykillinn
að því að háskólinn komi hugverkum sínum til
skila með sómasamlegum hætti,“ segir hún. Bryn-
hildur bendir á að nemendur þurfi að kunna skil á
íslenskum fræðiheitum og leggja sérstaka áherslu
á að tileinka sér þau þar sem námskeið eru kennd
á ensku eða öðru erlendu tungumáli. Íðorðasmíð
og íslenskun fræðiheita skipti því miklu máli.
Íslenska verði opinbert mál HA
Alls vildu 32% nemenda að íslensku og ensku yrði gert jafnhátt undir höfði
KNATTSPYRNUFÉLAG Akur-
eyrar (KA) verður 80 ára hinn 8.
janúar næstkomandi og verður
tímamótunum fagnað með ýmsum
hætti.
Blaði, sem gefið er út í tilefni af-
mælisins, verður dreift í hús á Ak-
ureyri fyrstu helgina í janúar. Á
sjálfan afmælisdaginn, 8. janúar,
verður opið hús í KA-heimilinu kl.
17-19 þar sem boðið verður upp á
veitingar og tónlistaratriði, skrifað
verður undir styrktarsamninga og
kjöri Íþróttamanns KA árið 2007
lýst. Dagskránni lýkur með flug-
eldasýningu.
Föstudaginn 11. janúar kl. 16-19
verður Páll Óskar Hjálmtýsson með
fjölskylduskemmtun í KA-heimilinu
þar sem aðgangur er ókeypis og um
kvöldið verður hann með dansleik
fyrir 16 ára og eldri frá kl. 23. Að-
gangseyrir er 1.000 kr.
Afmælishátíðin
Laugardaginn 12. janúar verður
afmælishátíð í KA-heimilinu frá kl.
19.30. Veislustjóri verður Friðfinnur
Hermannsson. Ræðumaður kvölds-
ins verður Ragnar Gunnarsson, KA-
maður og Skriðjökull. Flutt verða
ávörp og KA-menn heiðraðir fyrir
störf sín fyrir félagið.
KA-bandið spilar fyrir hátíðar-
gesti og Óskar Pétursson tekur lag-
ið. Þá mun Páll Óskar Hjálmtýsson
spila fyrir dansi.
Til viðbótar við afmælishaldið í
janúar er stefnt að fjölskylduhátíð á
KA-svæðinu í júní í sumar og einnig
er gert ráð fyrir að útbúnir verði
sérstakir minjagripir vegna afmæl-
isársins.
Haldið upp
á 80 ára
afmæli KA
ÆFINGAR standa nú yfir hjá Leikfélagi Akureyrar á Fló á skinni en verk-
ið verður frumsýnt 8. febrúar. Farsinn var fyrst sýndur fyrir 100 árum en
nú verður boðið á nýja leikgerð sem Gísli Rúnar Jónsson gerði fyrir LA.
Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikarar Guðjón Davíð Karlsson, Jó-
hannes Haukur Jóhannesson, Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra Haralds-
dóttir, Viktor Már Bjarnason, Atli Þór Albertsson, Linda Ásgeirsdóttir,
Þráinn Karlsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir,
Randver Þorláksson, Valdimar Örn Flygering og Aðalsteinn Bergdal.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
LA æfir Fló á skinni
ÆTLA má að allt að 700 manns komi
árlega til beinþéttnimælingar á
Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar til
gerður mælir, sem notaður hefur
verið í áratug, er óstarfhæfur vegna
bilunar og því hefur þurft að senda
fjölmarga til Reykjavíkur til rann-
sóknar. Nú styttist í að nýr mælir
verði keyptur; FSA hratt í haust af
stað söfnun og Saga Capital Fjár-
festingarbanki hefur ákveðið að
styrkja stofnunina um tvær milljónir
króna til kaupa á fullkomnum bein-
þéttnimæli en tækið kostar 10 millj-
ónir.
Dr. Björn Guðbjörnsson, dósent í
gigtarrannsóknum og formaður
Beinverndar, fagnar framtakinu og
segir að beinþynning sé bæði dulinn,
hættulegur og kostnaðarsamur sjúk-
dómur og ef ekkert sé að gert megi
segja að beinþynning sé faraldur út
frá lýðheilsu séð.
Björn nefnir sem dæmi að allt að
250 konur mjaðmabrotni vegna bein-
þynningar á hverju ári hér á landi og
þá séu ótalin önnur brot, þar á meðal
að minnsta kosti 400 samfallsbrot á
hrygg, sem hafa umtalsverð áhrif á
lífsgæði kvenna. ,,Með tímanlegri
greiningu á beinþynningu má hins
vegar helminga brotaáhættuna og
beinþéttnimælar, eins og sá sem nú
er fyrirhugað að setja upp á FSA,
skipta þar sköpum,“ segir Björn í
frétt frá sjúkrahúsinu.
Halldór Jónsson forstjóri FSA
segir að styrkurinn frá Saga Capital
geri það að verkum að sjúkrahúsið
geti nú pantað nýjan beinþéttnimæli.
,,Í ljósi þess að önnur hver fimmtug
kona og þriðji hver fimmtugur karl
geti átt von á því að verða fyrir bein-
broti vegna beinþynningar er mælir
sem þessi mikilvægur fyrir FSA og
Norðlendinga.“
Á myndinni afhendir Þorvaldur
Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga
Capital, Halldóri Jónssyni styrkinn á
dögunum. Með þeim á myndinni eru,
frá vinstri, Þóra Ákadóttir, starfandi
framkvæmdastjóri hjúkrunar; Örn
Orri Einarsson, forstöðulæknir
myndgreiningardeildar; Elvar Örn
Birgisson, forstöðugeislafræðingur;
Þorvaldur Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga og Vignir
Sveinsson, framkvæmdastjóri fjár-
mála og reksturs FSA.
Beinþynning er
dulinn og hættu-
legur sjúkdómur
Í HNOTSKURN
»Halldór Jónsson, forstjóriSjúkrahússins á Akureyri,
telur að ætla megi að allt að 700
manns komi árlega í beinþéttni-
mælingu á FSA.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur |
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps hefur samþykkt að lækka
leikskólagjöld í sveitarfélaginu um
20% um áramót. Miðað við níu tíma
vistun í dag lækkar mánaðargjaldið
á nýju ári úr 23.490 kr. í 19.152 kr.,
sem þýðir 4.338 kr. sparnað á mán-
uði fyrir heimilin.
Að sögn Sigurðar Jónssonar sveit-
arstjóra þýðir þessi ákvörðun að
tekjur leikskólans lækka um 1,5
milljónir kr. á árinu 2008. Þá segir
hann að sérlega vel sé gert við fólk
sem er með fleiri en eitt barn í þess-
um aðgerðum því systkinaafsláttur
er 50% strax með öðru barni.
Styrkur allt að 20 þúsund
Þá má geta þess að sveitarstjórn
hefur samþykkt að taka upp frí-
stundakort. Allir nemendur í grunn-
skóla og nemendur í framhaldsskóla
til 18 ára aldurs geta sótt um styrk,
sem nemur allt að 20 þúsund krónum
á næsta ári.
Leikskóla-
gjöld lækk-
uð um 20%
LANDIÐ
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Nemendur 10. bekkjar
Húnavallaskóla sýndu söngleikinn
„Footloose“ í Félagsheimilinu á
Blönduósi á fimmtudagskvöldið að
viðstöddu fjölmenni.
Þetta er fjórða árið í röð sem
söngleikur sem settur hefur verið
upp á árshátíð Húnavallaskóla er
sýndur á Blönduósi á milli jóla og
nýárs. Á undan sýningu tíundu
bekkinga lék hljómsveitin Bagga-
bandið frá Húnavallaskóla nokkur
lög og í hennar kjölfar lék stórsveit
Húnvetninga tónlist úr ýmsum átt-
um undir stjórn Skarphéðins H.
Einarssonar.
Leikkona við undirbúning
María Heba Þorkelsdóttir leik-
kona var ráðin til skólans og sá hún
um að undirbúa 10. bekkinga fyrir
hátíðina en þessi háttur hefur verið
hafður á undangengin ár eins og
fyrr greinir. Allir nemendur 10.
bekkjar tóku þátt í sýningunni en
þau eru sjö sem ljúka grunnskóla-
námi frá Húnavallaskóla á þessu
námsári.
Þessi kvöldstund í félagsheimil-
inu á Blönduósi var ánægjuleg í alla
staði og þeim til sóma er að henni
stóðu og fram komu og aðdáunar-
vert hversu töm tónlistin er hún-
vetnskri æsku.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Sýning Nemendur Húnavallaskóla lifðu sig inn í flutninginn.
Allir nemendur taka þátt
Fljót | Kvenfélagið Framtíðin í
Fljótum hefur undanfarið verið að
afhenda íbúum sveitarinnar ullar-
teppi. Tilgangurinn er að teppin
verði höfð í bílum og verði til taks
ef fólk kemur að slösuðu fólki t.d.
eftir umferðarslys.
Eins og mörgum mun kunnugt er
mikilvægt að hlúa að fólki við slíkar
aðstæður og þá getur góð voð skipt
sköpum við að verja viðkomandi
fyrir kulda. Kvenfélagskonur gefa
alls um 30 teppi og fer nánast eitt á
hvert heimili í sveitinni.
Gefa ullar-
teppi í bíla
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Hlý gjöf María Guðfinnsdóttir gjald-
keri kvenfélagsins afhenti Arnþrúði
og Þorláki í Langhúsum teppi.
OPIÐ hús verður í Hamri, félags-
heimili Þórs, í dag frá kl. 14. Þar
verða m.a. afhent gull- og silfur-
merki félagsins, afreksskóli knatt-
spyrnudeildar kynntur og landsliðs-
fólk Þórs 2007 heiðrað. Ræðumaður
dagsins er Axel Stefánsson hand-
knattleiksþjálfari Elverum í Nor-
egi.
Hápunkturinn er síðan þegar lýst
verður yfir því hver kjörinn hefur
verið Íþróttamaður Þórs 2007. Veit-
ingar eru í boði og allir velkomnir.
Íþróttamaður
Þórs krýndur
♦♦♦