Morgunblaðið - 29.12.2007, Side 17

Morgunblaðið - 29.12.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 17 SUÐURNES Selfoss | Unnið er að því að koma á fót skólasögusafni eða setri á Eyrarbakka þar sem elsti barnaskóli landsins er. Þá eru uppi hugmyndir um að opna minjastofu og vinnu- stofu fyrir tónlistarmenn og aðra listamenn sem vildu starfa undir áhrifum Páls á hans heimaslóðum á Stokkseyri. Andrés Sigurvinsson tók við stöðu verk- efnisstjóra íþrótta-, forvarna- og menningar- mála hjá Sveitarfélaginu í Árborg í lok síð- asta sumars. Hann er bróðir fótbolta- peyjanna Ásgeirs og Ólafs í Eyjum, hefur þó sjálfur verið lítið í boltanum en segist vera flugsyndur og kunni vel við sig í vatni. Hann var ákveðinn í því að skipta um starfsvett- vang þegar hann kæmist á miðjan aldur og segir ekki sjá eftir því að hafa ráðið sig til Árborgar, þar sé gott að starfa og allt að gerast Þjónusta íbúana „Undir mitt starfssvið heyra íþrótta-, tóm- stunda-, æskulýðs-, forvarna- og menningar- mál. Í stuttu máli felst starfið mitt fyrst og fremst í að þjónusta íbúa sveitarfélagsins sem best og mest, framfylgja ákvarðatökum yfirmanna minna og aðstoða við innkomin erindi og framkvæmd þeirra. Nú og koma með tillögur að aðgerðum til úrbóta í fram- antöldum málaflokkum í samræmi við þá stefnu sem bæjarstjórn hefur markað,“ sagði Andrés þegar hann var spurður út í starf sitt hjá Sveitarfélaginu Árborg. Ég er starfsmaður tveggja nefnda, sit í ýmsum vinnu- og stýrihópum og mér ber að vinna þau verk sem mér eru falin í anda þeirra ákvarðana sem að baki þeim liggja. Það er gott að vinna hérna, ég fæ góðan stuðning frá samstarfsmönnum mínum sem hafa verið óþreytandi við að setja mig inn í málin.“ Öflugt menningarlíf Andrés segir að öflugt menningarstarf fari fram í Árborg, ekki síst núna í desember. Nú hefði verið í fyrsta skipti gefið út sérstakt viðburðadagatal sem Ólafur Th. Ólafsson myndskreytti og sveitarfélagið styrkti og var sent inn á hvert heimili hér. Hugmyndin kemur frá Öldu í Alvörubúðinni. Dagatalið hefur slegið í gegn og er vonandi byrjunin á enn stærra dæmi þegar fram í sækir. Aðventan kemst fyrst almennilega í gang hérna þegar jólasveinarnir og hyski þeirra koma akandi yfir brúna hangandi utan á rútu. Þeir kveiktu á jólatrénu, bæjarstjórnin bauð upp á kakó og tilheyrandi. Jólasveina- fjölskyldan á 30 ára starfsafmæli í ár. „Síðan rekur hver viðburðurinn annan, tónleikar, kórsöngur, skemmtanir í hverjum byggðar- kjarna fyrir sig með sínum séreinkennum. Götuleikhúsið fer á stjá, krakkarnir í Zelzius og skólunum taka virkan þátt, uppákomur í sundlaugunum og í öðrum stofnunum. Og grasrótin á fullu út um allan bæ með hátíð- artónleika og fleira. Sveitarfélagið Árborg heldur upp á 10 ára afmæli á næsta ári . Þá er ætlunin að hátíðin „Vor í Árborg 2008“ verði með stærra móti. Selfossþorrablótið víðfræga verður á sínum stað í janúar og Leikfélag Selfoss fagnar 50 ára afmæli sínu með frumsýningu, síðan er fyrirhuguð vetr- arhátíð og svona gæti ég haldið áfram lengi,“ sagði Andrés. Markmiðið að gera betur „Mikil gróska er hjá okkur á sviði íþrótta- og tómstundamála, og margt í farvatninu. Þannig er hafinn undirbúningur að Lands- móti UMFÍ árið 2012, sem haldið verður á Selfossi. Stór breyting verður á næsta ári þegar við förum að greiða forráðamönnum ákveðna upphæð fyrir hvert barn til íþrótta- og tóm- stundaiðkunar. Markmiðið er að bæta okkur enn frekar, verða með þeirra fremstu og bestu í fram- boði á aðstöðu, kennslu og þjónustu í þessum málaflokki. Við erum með akademíur í hand- bolta-, fótbolta-, og körfubolta og það stend- ur til að koma upp fleirum í framtíðinni, einni varðandi hestaíþróttina og enn annarri í tónlist. Styttist vonandi í yfirbyggða reið- höll og ýmislegt er í bígerð varðandi golf- íþróttina. Íþróttahúsin okkar öll eru iðandi af lífi frá morgni til kvölds í skipulögðu íþrótta- og æfingarstarfi,“ kom fram hjá Andrési þegar hann var spurðu hvort íþrótta- og tómstundamálin væru öflug í Ár- borg. Einnig kom fram hjá honum að búið er að ráða Braga Bjarnason, framkvæmdastjóra og íþróttakennara, sem nýjan íþrótta- og tómstundafulltrúa í Árborg og tekur hann við eftir áramótin. Pakkhúsið verður gert klárt 2008 fyrir starfsemi fyrir ungt fólk, 16 ára og eldra. Gott ár í vændum Andrés segist vera fullviss um að árið 2008 verði gott hjá Árborg, byggingarfram- kvæmdir hefjist og markvissar verði unnið í uppbyggingu menningarmála með tilkomu nýs starfsmanns. „Ég stefni að því að styrkja þessa þætti sem mest og best, koma okkur enn frekar á kortið og draga fram sér- kenni okkar og halda áfram að byggja upp í samvinnu við grasrótina. Í því sambandi bind ég og miklar vonir við starf nýráðins menn- ingarfulltrúa Suðurlands og menningarráðs og fagna samningi ríkisins við okkur. Enn er eftir að ráðstafa einhverju fjármagni af styrk þessa árs. 70 milljónum verður úthlutað á næstu tveimur. Ég vil gera skýran greinarmun á menn- ingu og ferðatengdri menningarstarfsemi þó svo að þessir hlutir skarist vissulega. Von- andi fáum við hérna í Árborg einhverjar krónur í næstu úthlutun til að hrinda í fram- kvæmd hugmyndum okkar um stofnun Set- urs Páls Ísólfssonar tónskálds á Stokkseyri. Í samvinnu við aðstandendur og aðra hlut- aðeigandi viljum við gjarnan koma á fót minjastofu og vinnustofu fyrir tónlistarmenn og aðra listamenn sem vildu starfa undir áhrifum Páls á hans heimaslóðum. Erum þegar með eitt hús í huga. Það er frábær við- bót við það sem fyrir er. Svo höfum við verið að þreifa á og sett fram ákveðnar hugmyndir í samvinnu við rektor Kennaraháskóla Íslands og fleiri inn- an þeirrar stofnunar að koma á fót skóla- sögusafni eða setri á Eyrarbakka en þar er elsti starfandi Barnaskólinn á landinu. Við erum á kafi í undirbúningi og hugmynda- vinnu og er ætlunin að fá formann og stjórn Kennarasambands Íslands til skrafs og ráða- gerða og aðra meðlimi til að koma að málinu með okkur,“ sagði Andrés. Vilja skólasögusafn á Eyrarbakka Verkefnisstjóri Eyjapeyinn Andrés Sigurvinsson tekur til hendinni í íþrótta-, forvarna-, og menningarmálum hjá Sveitarfélaginu Árborg. Hann telur gott ár í vændum í bæjarfélaginu. Í HNOTSKURN »Andrés Sigurvinsson starfaði semframkvæmdastjóri fræðslu- og menn- ingarsviðs Vestmannaeyjabæjar í nokkur ár áður en hann réð sig til starfa hjá Sveit- arfélaginu Árborg sem verkefnisstjóri íþrótta-, forvarna- og menningarmála. »Hann er úr Eyjum og hefur víða komiðvið í störfum sínum í gegnum árin, er meðal annars menntaður kennari og leik- ari og hefur starfað mikið í kringum leik- list. Andrés Sigurvinsson vinnur að íþrótta-, tómstunda- og menn- ingarmálum í Árborg Grindavík | Sölusýning á ljósmynd- um Ellerts Grétarssonar, ljósmynd- ara Víkurfrétta, verður opnuð í Salt- fisksetrinu í Grindavík 5. janúar. Þar verður sýnt það helsta sem hann hef- ur verið að ljósmynda síðustu árin í íslenskri náttúru og landslagi. Ellert hefur undanfarin ár sýnt myndir sínar víða. Haustið 2006 hélt hann stóra einkasýningu í Narrows Center for The Arts í Fall River í Massachuttes. Ellert hlaut í haust þrjár svokallaðar „Honorable Men- tion“-viðurkenningar við veitingu International Photography Awards- verðlaunanna 2007. Viðurkenning- arnar hlaut hann fyrir náttúruljós- myndun í flokki atvinnumanna. Myndirnar verða á sýningunni auk fjölda annarra ljósmynda sem hann hefur tekið á göngu- og fjallaferðum um Ísland, m.a. myndir af náttúru- perlum á Reykjanesskaga. Ellert Grét- arsson sýnir í Saltfisksetri Litadýrð Mynd Ellerts af fyrirhug- uðu virkjunarsvæði í Krýsuvík. Grindavík | Útsvar og helstu fast- eignagjöld verða óbreytt á næsta ári og engin hækkun verður á þjón- ustugjaldskrá bæjarins. Útsvar verður 13,03%. Meirihluti bæjarstjórnar vakti at- hygli á því við umræðu um fjár- hagsáætlun að frí vistun fyrir þriðja systkini á leikskóla auk fjög- urra tíma gjaldfrjálsrar vistunar fyrir elsta árganginn í leikskóla sem og afnám æfingagjalda vegna íþróttaiðkunar barna á grunnskóla- aldri lækkaði verulega kostnað barnafjölskyldna. Sama gilti um lækkun matarkostnaðar barna í grunnskólum og endurgjaldslausa mjólk í hádeginu. Áætlað er að þetta geti sparað barnafjölskyldum í bæjarfélaginu á annað hundrað þúsund kr. á ári. Minni kostnaður hjá barnafólki Reykjanesbær | Íþróttamaður Reykjanesbæjar 2007 og íþrótta- menn í hverri íþróttagrein verða útnefndir í hófi sem fram fer í Íþróttahúsinu í Njarðvík á gaml- ársdag, kl. 13. Í hófinu sem er opið öllum bæjar- búum verða að venju heiðraðir allir íþróttamenn úr bæjarfélaginu sem orðið hafa Íslandsmeistarar á árinu sem er að ljúka. Uppskeruhátíð í Reykjanesbæ Grindavík | Þrettán ungir sundmenn úr Ungmennafélagi Grindavíkur syntu samtals vel yfir eitt hundrað kílómetra á einum og hálfum sólar- hring í maraþonsundi til stuðnings fjölskyldu veiks drengs í bænum. Söfnunin gekk vel. Útlit er fyrir að eitthvað á aðra milljón muni skila sér þegar upp verður staðið. „Krakkarnir voru að ræða um það í heita pottinum, eftir æfingu, hvern- ig þau gætu látið gott af sér leiða. Þá var nýkomið upp að Andri hafði greinst með æxli og ákváðu þau að safna peningum til að styðja fjöl- skyldu hans á þessum erfiða tíma,“ segir Magnús Már Jakobsson, þjálf- ari hjá sunddeild UMFG. Keðjan slitnaði ekki Maraþonsundið er til stuðnings fjölskyldu Andra Meyvantssonar sem nýlega greindist með æxli í heilastofni. Hann er núna í erfiðri meðferð. Krakkarnir hafa fylgst með veikindum Andra, meðal annars í gegnum bróður hans, Sindra, sem æfir sund með þeim. Ungmennin hafa gengið í hús og safnað áheitum og svo hafa margir komið í sundlaugina til að fylgjast með og styðja framtakið. Þrettán krakkar á aldrinum tólf til sautján ára tóku þátt í maraþon- sundinu. Sundið gekk vel, að sögn Bjarna Más Svavarssonar sem að- stoðað hefur hópinn eins og margir foreldrar táninga í sundliðinu. Hundrað kílómetra markinu var náð um miðjan dag í gær en haldið áfram til klukkan átta í gærkvöldi þegar lokatakmarkinu, að synda samfellt í 36 klukkustundir, var náð. Um miðj- an dag var tæp hálf milljón komin á söfnunarreikninginn. Eftir var að innheimta fjölda áheita. Söfnunar- reikningurinn verður opinn fram yfir áramót. Upplýsingar um hann er að finna á www.umfg.is. Sunddeild UMFG er tiltölulega ung grein í íþróttabænum sem þekktari er fyrir körfubolta og knattspyrnu. Magnús þjálfari segir að framtak krakkanna hafi vakið at- hygli á sundinu sem hingað til hafi verið í skugga stærri greinanna. Syntu í 36 klukkutíma til stuðnings veikum dreng Ljósmynd/Bjarni Már Svavarsson Stuðningur Ungmennin studdu vel við bakið á þeim sem syntu hverju sinni. Um hádegið í gær voru tveir í lauginni og ellefu á bakkanum. ÁRBORGARSVÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.