Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 18

Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 18
Eftir Sigurbjörgu Arnarsdóttur sibba@mbl.is NÚ þegar áramótin eru rétt hand- an við hornið er ekki úr vegi að kíkja aðeins á hvernig förðun fyrir áramóta- eða nýársveisluna gæti litið út. Daglegt líf fékk Björgu Al- freðsdóttur, verslunarstjóra hjá Mac í Smáralind, til að gera klass- íska áramótaförðun sem hentar konum á öllum aldri. Einnig gerði förðunarfræðingurinn Haffi Haff áramótaförðun sem hæfir frekar ungum stelpum þar sem glimmer fær að njóta sín til fullnustu. Þegar Björg er spurð að því hvernig best sé að farða konur sem aðeins eru farnar að eldast og húð- in er ekki eins stinn og áður, segir hún að best sé eins og alltaf að und- irbúa húðina vel. Setja á hana gott rakakrem sem grunn og velja farða á húðina sem innihaldi ekki mikið af púðri því það setjist frekar í fínar línur. Það geti verið erfitt að fá augnskugga til að haldast á augn- lokum þegar augnlokin eru aðeins farin að síga. Þá gildir það sama með augnlok- in og húðina, að undirbúa það vel. Björg mælir með að setja blautan kremaugnskugga sem þornar á allt augnlokið. Þetta gerir það að verk- um að góður grunnur myndast und- ir hinn venjulega augnskugga sem binst saman við þann blauta og þeir haldast lengur á. Með litaval segir Björg að allt sé leyfilegt, en þó sé gott að fara varlega með mjög sanseraða liti því þeir dragi frekar fram línur og misfellur í húðinni. Að lokum segir hún mikilvægt að nota alltaf blýant á varirnar til að koma í veg fyrir að varalitur og gloss flæði út fyrir varasvæðið. Morgunblaðið/Ómar Fjórtán skref til fegurðar |laugardagur|29. 12. 2007| mbl.is daglegtlíf Þau geta orðið skelfingu lostin í sprengjuregninu á gamlárs- kvöld. Huga þarf að kisu, hvutta og hestum um áramót. »22 gæludýr Glamúrgreinar, álfagull, kerta- ljós, könglar og hreinlegt yf- irbragð einkennir þrjár ólíkar áramótaborðskreytingar. »20 lifun 1. Gott rakakrem sett á húðina til að undirbúa hana vel. 2. Kökufarði borinn á með pensli sem gefur létta, náttúrulega og jafna áferð. 3. Hyljari er settur á allt augnsvæðið sem partur af því að byggja upp góðan grunn undir augnförð- unina. 4.Hyljari einnig settur á alla þá staði sem þurfa þykir eins og í kringum nef og á höku. 5. Fínmalað púður sett yfir augnsvæðið. Andlitið léttpúðrað, alls ekki of mikið heldur einungis nóg til að festa farðann. 6. Vatnsheldur kremaugnskuggi er settur í þunnu lagi yfir allt augnlokið sem grunnur undir augn- skuggann. Best að nota hlutlausan lit. 7. Ljós augnskuggi með léttri sanseringu er settur yfir allt augnlokið og meðfram augabrúnum. Brúnn mattur augnskuggi er settur meðfram augntóftinni sem skygging og við ytra augnlok, sem og undir augu meðfram neðri augnhárum. 8. Svört lína er dregin þétt meðfram neðri augnháralínu. Þetta gefur skarpa línu sem dregur augun fram og skerpir þau. 9. Fín lína af blautri glimmerlínu sett ofan á hina svörtu til fá smá ármótaglamúr í förðunina. 10. Stök gerviaugnhár sett út við endana til að stækka og opna augun upp. 11. Mikið af svörtum maskara. 12. Andlitið skyggt með möttu sólarpúðri. 13. Hlýr brúnbleikur kinnalitur settur á kinnbein. 14. Varalitablýantur og fallega bjartur varalitur sett- ur á í lokin. Módel: Ásta Hulda Markúsdóttir Förðun: Björg Alfreðsdóttir Klassískt og glæsilegt 1. Húðinni gefin raki með góðu rakakremi. 2. Hyljari settur á allt augnsvæðið og aðrar misfellur í húðinni. 3. Ekki var notaður farði. Húðin látin skína í gegn. 4. Mattur brúnn augnskuggi settur yfir augnlokið sem grunnur. 5. Sanseraður koparlitaður augnskuggi settur yfir augnlokið. Alls ekki fara út fyrir augnsvæðið og er haft meira af sanserandi lit yfir miðju augnlokinu. 6. Þessir tveir litir eru einnig notaðir undir augun. Fyrst sá matti og svo sanseraður þar á eftir. 7. Sæblátt glimmer er svo sett á mitt augnlokið og að- eins undir augun líka. 8. Þá eru stök gerviaugnhár límd á mitt augað uppi og niðri. Allt þetta er gert til að ýkja hringlaga form aug- ans. 9. Sanserað krem er sett á kinnbein til að ná fram endurkasti í andlitið. 10. Varalitablýantur og húðlitur varalitur notaður ásamat ljósu glossi. Módel: Marisa Förðun Haffi Haff. Glitrandi glamúr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.