Morgunblaðið - 29.12.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.12.2007, Qupperneq 19
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 19 á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Selfossi og í Keflavík um jól og áramót 2007 * Skv. áfengislögum er óheimilt að hafa opið á sunnudögum. E N N E M M / S ÍA / N M 3 0 9 3 8 Afgreiðslutíma vínbúða um allt land má sjá á www.vinbud.is Menningin blómstrar á Djúpavogi sem fyrr og er desember engin undantekning frá því. Fyrir utan hinar hefðbundnu kirkjulegu at- hafnir, aðventudagskrá o.fl. hafa verið söngskemmtanir, upplestur úr nýjum bókum og ýmislegt ann- að á dagskrá í kringum hátíðina. Bærinn er vel skreyttur að venju og leggja langflestir íbúanna mikla vinnu í að lýsa upp skammdegið með ýmiskonar ljósaskrauti.    Um hádegisbil á aðfangadag mæta jólasveinarnir að venju í bæinn með gjafir handa börnunum, en sveinarnir eiga auðvitað heimkynni sín í Búlandstindi eins og öll börn- in í bænum vita. Mikill fyrirgangur var í jólasveinunum að þessu sinni þar sem þeir hlupu um göturnar með hrópum og köllum í blíðskap- arveðri, sól og froststillu.    Í Djúpavogshreppi eru víða góðar lendur til rjúpnaveiða, lítið var þó að sjá af rjúpu í ár eins og mörg undanfarin ár. Veiðimenn og bændur hafa flestir þá skýringu á lægð stofnsins að tófu hafi fjölgað mikið. Þá eru menn sammála um að seinka eigi veiðitímabilinu og hafa það frá 20. nóv. – 20. des. Það séu þá m.a. minni líkur á utanvega- akstri t.d. á viðkvæmu landi á heiðum uppi vegna meiri snjóa svo og gefi það rjúpunum færi á að dreifa sér meira, þannig að erf- iðara sé að ná til hennar.    Unnið er nú að hönnun á nýju Rík- arðssafni á Djúpavogi og hefur því verið valinn staður sunnan við vog- inn fagra, með útsýn yfir höfnina og Búlandstindinn. Það eru dætur Ríkarðs Jóns- sonar myndskera frá Strýtu við Hamarsfjörð, þær Ólöf og Ásdís, sem hafa fyrst og fremst veg og vanda af áformum um nýja og glæsilega byggingu sem geyma á allt safn föður þeirra, sem er gríð- arlega umfangsmikið og athygli- vert. Í dag er Ríkarðssafn til húsa í menningarhúsinu Löngubúð en það húsnæði getur eðli málsins samkvæmt vegna smæðar sinnar ekki rúmað nema lítinn hluta af hinum mörgu stórkostlegu munum eftir Ríkarð Jónsson sem talinn er án nokkurs vafa einn af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar fyrr og síðar. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Sveinar tveir Jólasveinarnir með heimkynni sín, Búlandstindinn í baksýn. DJÚPIVOGUR Andrés Skúlason fréttaritari Fyrir margt löngu las SverrirNorland vísu eftir Davíð Hjálmar Haraldsson í Vísnahorninu sem var svohljóðandi: Halla gaf Hans undir fót, í húminu áttu sér mót tvö ástfangin hjörtu en aldrei í björtu því hún var svo helvíti ljót. „Þessi limra festist gjörsamlega í hausnum á mér, og loks vildi ekki betur til en svo að ég samdi lag við vísuna,“ skrifar Sverrir og bætir við að þau Halla og Hans hafi meira að segja verið sér svo hugleikin að hann hafi sett saman eigin texta við lagið, sem nefnist „Tilhuga- og hjónalíf Höllu og Hans“: Halla sá Hans spila djass eitt huggulegt vorkvöld í mars, hún heyktist í hnjánum hljóp heim á tánum og roðnaði allt niðrí rass. Halla fól Hans ýmis verk, Hafðu nú samband við klerk! Þau giftust og grétu af gleði og létu svo hrísgrjónin hrynja úr serk. Halla ól Hans fjögur börn í heiftugri fæðingartörn: þrjár sællegar dætur með samtals sex fætur og tvíhendan tvífættan Örn. Halla þá sagði við Hans, Ja, heyrðu nú væni minn, stans! ég fæði’ ekki fleiri fyrr en ég heyri aftur djasslagið góða, þú manst … Sverrir tók svo á Þorláksmessu upp disk með nokkrum lögum „og færði nærstöddum“. Hin frekari ævintýri þeirra Höllu og Hans eru því orðin ýmsum kunn. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Enn af Höllu og Hans Hárgreiðslustofan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.