Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 23
veitingastaðir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 23
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Öll þurfum við að nærast, þó aðvið séum á faraldsfæti, og þvíekki að njóta þess í leiðinni.
Heimurinn er fullur af spennandi
veitingastöðum og hér eru nokkrir
þeirra sem hafa staðið upp úr hjá mér
á árinu á nokkrum vinsælum áfanga-
stöðum Íslendinga.
Café Gray
Það voru margir sem biðu eftir því
með mikilli eftirvæntingu þegar Gray
Kunz, sem hafði verið einn rómaðasti
matreiðslumaður New York meðan
hann starfaði á Lespinasse, ákvað að
opna veitingastað í eigin nafni. Staðn-
um var valin staðsetning í hinni nýju
Time-Warner byggingu við Colum-
bus Circle. Ekki slæmt því að úr veit-
ingasalnum er stórkostlegt útsýni yf-
ir Central Park sem hægt er að njóta
á milli þess sem fylgst er með því sem
fram fer í opnu eldhúsinu. Kunz er
hugmyndaríkur, djarfur og skapandi
kokkur. Hann hefur sterkar rætur í
hinni klassísku frönsku og ítölsku
matargerð en hikar þó ekki við að fá
að láni hugmyndir, krydd og aðferðir
úr asíska eldhúsinu. Þetta er þó eng-
inn „fusion“-staður, þungamiðjan er
evrópsk en samt tekst Kunz aftur og
aftur að koma gestum á óvart með
nýstárlegum brögðum og blöndum.
Café Gray
10 Columbus Circle
Sími: 001 212.823.6338
www.cafegray.com
Kokkeriet
Á Kronprinsessegade rétt við Kon-
gens Have og gulu húsalengjurnar í
Nyboden, svona 15 mínútna gangfrá
Kongens Nytorv, er að finna eitt-
hvert mest spennandi veitingahús
Norðurlanda. Kokkeriet er ekki stór
staður, væri svona meðalstaður að
stærð í Reykjavík, tekur nokkra tugi
gesta í sæti. Þegar inn er komið er yf-
irbragðið eins og maður hafi óvart
ratað inn á svolítið „trendí“ hverfis-
veitingahús. Maður áttar sig hins
vegar fljótlega á því – í síðasta lagi er
fyrsti diskurinn mætir á borðið – að
þetta er ekkert venjulegt hverfis-
veitingahús heldur veitingastaður á
heimsmælikvarða. Eldhúsið er ein-
faldlega gífurlega gott, sló hvergi feil-
nótu, hráefnin í dönskum anda, skel-
fiskur mikið notaður ásamt sveppum
og öðru góðgæti. Hver réttur bragð-
upplifun og meira að segja skyr í ein-
um eftirréttinum! Danska eldhúsið
eins og það gerist best. Ef þið eruð í
Kaupmannahöfn er þetta staðurinn
ásamt Era Ora.
Kokkeriet
Kronprinsessegade 64
Sími: 0045 33152777
www.kokkeriet.dk
Bagatelle
Á einhverri fegurstu götu Óslóar,
Bygdoy Alle, er að finna Bagatelle,
veitingastað kokksins Eyvind Hell-
strøm, eini staður Norðurlanda sem
skartar tveimur Michelin stjörnum
sem stendur. Staðurinn er óform-
legur og nútímalegur með þægilegum
svörtum leðurstólum og fallegri sam-
tímalist á veggjum. Matseðillinn virt-
ist engan endi ætla að taka, alltaf
komu nýir og nýir réttir, hver öðrum
betri. Matargerðin frönsk, frumleg,
fumlaus og fersk. Hráefnin eru í flest-
um tilvikum norsk og sjávarfangið
var þungamiðjan í matseðlinum.
Réttirnir einfaldir en líka marg-
slungnir. Kastaníuhnetu- og trufflu-
súpa var svo góð að maður nánast
táraðist. Raviolíkoddar með sveppa-
fyllingu, grænum ertum og hálfu
tonni (að minnsta kosti) af ferskum
Alba-trufflum ekkert slor. Þjónustan
örugg, þægilega óformleg og þannig
að maður tekur vart eftir því er glös
hverfa af borði og ný hnífapör bætast
við. Það ætti enginn að láta Bagatelle
fram hjá sér fara. Þetta er veitinga-
staður sem getur keppt í gæðum við
nánast hvaða stað sem er.
Bagatelle
Bygdoy Alle3
Sími: 0047 22121440
www.bagatelle.no
La Cuisine du Joel Robuchon
Joel Robuchon er einn dáðasti
kokkur Frakklands og var talinn
besti matreiðslumaður landsins á síð-
ari hluta síðustu aldar. Í Frakklandi
gerir það menn að þjóðhetjum á svip-
uðum stalli og bestu íþróttamenn.
Hann var krýndur „matreiðslumaður
aldarinnar“ af Gault-Millau og meðal
þekktra lærlinga hans má nefna
Gordon Ramsey. Það var því stór-
frétt er hann tilkynnti öllum að óvör-
um fyrir um einum og hálfum áratug
að hann hygðist setjast í helgan stein
og lá við að þjóðarsorg yrði lýst yfir í
landinu. Veitingastað hans í sextánda
hverfi Parísar, sem talinn var sá besti
í borginni, var hins vegar ekki lokað
heldur fékk hann „ungan og upprenn-
andi“ matreiðslumann að nafni Alain
Ducasse til að taka við kyndlinum.
Það liðu hins vegar ekki mörg ár
þar til að Robuchon fór á stjá á ný og
opnaði veitingastað í Roppongi í Tók-
ýó undir nafninu L’Atelier du Joel
Robuchon. Þeir staðir eru nú orðnir
átta og má finna í París, London,
New York, Mónakó, Hong Kong,
Macao og Las Vegas. En þótt um
veitingahúsakeðju sé að ræða skyldi
það engan blekkja. Robuchon stend-
ur undir nafni og meira en það. Á
L’Atelier de Joel Robuchon er bland-
að saman stílhreinni japanskri hönn-
un og frönskum klassa. Yfirbragðið
verður spennandi, afslappað og mat-
urinn hreinasta unun. Í London mæli
ég með La Cuisine de Joel Robuchon
sem er á hæðinni fyrir ofan L’Atelier
í Covent Garden. La Cuisine er ögn
formlegri (þar sitja menn til borðs en
ekki á kollum í kringum barborð) og
réttirnir eru fleiri og boðið upp á stór-
an smökkunarmatseðil.
La Cuisine de Joel Robuchon
West Street 13-15
Sími: 0044 207 0108600
www.joel-robuchon.com
Senderens
Annar af virtustu kokkum Parísar
síðustu áratugi er Alain Senderens
sem í tæpa þrjá áratugi réð ríkjum á
þriggja stjörnu staðnum Lucas Car-
ton við Madeleine-torgið. Á síðasta
ári lýsti hann því hins vegar yfir að
hann væri búinn að fá nóg. Hann
nennti ekki að eltast lengur við þær
gríðarlegu kröfur sem gerðar eru til
staða er vilja halda þremur stjörnum.
Þess í stað ákvað hann að umbreyta
staðnum og gera hann einfaldari í alla
staði. Markmiðið var að viðskipta-
vinir ættu að geta komið á nýja stað-
inn – sem einfaldlega fékk nafnið
Senderens – og fengið máltíð með
öllu fyrir innan við 100 evrur. Lucas
Carton var þungur og klassískur
staður en Senderens er mun léttari
og nútímalegri þó enn glitti í hinar
frægu Art Noveau viðarinnréttingar
Louis Majorelle. Breytingar á staðn-
um eru smekklegar og bræða saman
gamla glæsileikann og nútímalegan
léttleika, áherslan á birtu, mýkt og
bogadregnar línur. Matseðilinn er
einfaldur og stuttur en hver réttur
allt að því fullkominn – og það sem
meira er, alls ekkert dýr. Ég dreg í
efa að hægt sé að fá betri mat á jafn-
lágu verði í París og þótt víðar væri
leitað. Það væri þá hjá Robuchon.
Senderens
Place de la Madeleine
Sími: 00331 42 65 22 90
www.lucascarton.com
Nokkrir spennandi áningarstaðir
Café Gray Klassísk matargerð en
um leið nýstárleg og kemur á óvart.
Bagatelle Státar af tveimur Michelin-stjörnum. Senderens Léttur og nútímalegur.
Kæru landar
Óskum ykkur gleðilegra jóla
og farsæls nýs árs.
Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.
Helga Þóra Eder og fjölskylda.
m
bl
.9
53
79
9
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Föstudaginn 4. janúar kl. 8:30 hefjast bókanir á orlofshúsum og tjaldvög-
num VR 36 vikur fram í tímann. Miklar breytingar hafa verið gerðar á
leigufyrirkomulagi orlofshúsa, nú þarf ekki lengur að fylla út umsóknar-
eyðublöð og engin bið er eftir úthlutun. Hver og einn getur bókað og
gengið frá greiðslu fyrir orlofshús á www.vr.is, í síma 510 1700 eða á
skrifstofunni og gildir þá reglan fyrstur bókar, fyrstur fær.
Nánar á www.vr.is.
Orlofshús VR