Morgunblaðið - 29.12.2007, Síða 32

Morgunblaðið - 29.12.2007, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sölvey FriðrikaJósefsdóttir (Eyja) fæddist á Atlastöðum í Fljóta- vík 5. júlí 1918. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði 17. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jósef Hermannsson, bóndi á Atlastöðum, f. 27.3. 1877, d. 25.10. 1955, og Mar- grét Katrín Guðna- dóttir, húsfreyja á Atlastöðum, f. 14.4. 1885, d. 12.4. 1925. Systkini Eyju voru Hermann Vernharð Jósef, f. 1906, d. 1982, Gunnar, f. 1909, d. 1984, Pálína Ásta, f. 1910, d. 1992, Finnbogi Rútur, f. 1913, d. 2004, Guðný Ingibjörg, f. 1914, d. 1997, Karl Lúðvík, f. 1924, d. 1924, og Guð- mundur Þórarinn, f. 1925, d. 1925. Samfeðra var Brynhildur Snædal, f. 1902, d. 1991. Eyja giftist 1.6. 1947 Ólafi Rósinkarssyni frá Snæfjöllum, f. 28.9. 1917, d. 24.3. 1987. For- eldrar hans voru Kolbeinn Rós- inkar Kolbeinsson í Unaðsdal, f. 24.6. 1891, d. 5.11. 1956, og Jak- obína Rósinkara Gísladóttir frá Bæjum í Snæfjallahreppi, f. 31.5. 1975, sonur þeirra er Emil, f. 2003. Dóttir Jakobs og Guðrúnar Ástu Guðjónsdóttur er Jóhanna, f. 1980, í sambúð með Matthíasi Arngrímssyni, þau eiga saman Maríu, f. 2000, og Jakob, f. 2003. Eyja fæddist og ólst upp á Atl- astöðum í Fljótavík til fimmtán ára aldurs. Móðir hennar lést er hún var 6 ára og ólst hún þá upp hjá föður sínum og síðar fóstru og frænku, Magðalenu Brynjólfs- dóttur, sem flutti til þeirra. Eftir fermingu flytur Eyja á hina ýmsu staði við Djúp, í Önundarfjörð og svo Ísafjörð, sem kaupakona. Í kringum 1938 fer hún í vinnu á Álafossi í Mosfellssveit í tæp tvö ár. Eftir það flytur hún aftur til Ísafjarðar og hafði þá kynnst verðandi eiginmanni sínum. Eyja og Óli hófu búskap 1941 að Tún- götu 3. Þau fluttu svo 1950 að Aðalstræti 12 og loks að Sund- stræti 27, 1953, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Óli deyr 1987 en Eyja býr áfram þar, þar til hún veikist 2005 og fer á Fjórð- ungssjúkrahús Ísafjarðar og síðar á Hlíf á Ísafirði. Eyja vann mikið utan heimilis alla sína tíð, m.a. hjá frystihúsinu Ísfirðingi, sláturhús- inu, Rækjuverksmiðju O.N. Olsen og Hraðfrystihúsinu Norður- tanga. Hún starfaði einnig við ým- is félagsmál. Útför Sölveyjar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. 1896, d. 24.4. 1960. Börn Eyju og Óla eru: 1) Bergmann, f. 1947, kvæntur Ardísi Gunnlaugsdóttur, f. 1947, synir þeirra eru: a) Kristján Við- ar, f. 1972, kvæntur Sigrúnu Heiðu Haf- steinsdóttur, synir þeirra eru Heiðar Þór, f. 1997 og Berg- mann Davíð, f. 2000. b) Eyþór Ólafur, f. 1975, kvæntur Huldu Pétursdóttur, f. 1972, sonur þeirra er Ólafur Pét- ur, f. 2003. 2) Guðmundur Karl, f. 1948, kvæntur Stefaníu Eyjólfs- dóttur, f. 1954, dóttir þeirra er Una Kristín, f. 1990. 3) Margrét Björk, f. 1953, gift Eiríki Krist- óferssyni, f. 1948, slitu sambúð, börn þeirra eru: a) Sigrún Jó- hanna, f. 1973, synir hennar eru Ismael Karl, f. 1996 og Emil Eirík- ur, f. 2001. b) Ólafur Sölvi, f. 1976, í sambúð með Agnesi Ósk Þor- steinsdóttur, synir þeirra eru Daníel Ingi, f. 2002 og Sölvi Snær, f. 2006. c) Elín Marta, f. 1982, í sambúð með Tómasi Emil Guð- mundssyni. d) Katrín Elva, f. 1989. 4) Jakob Rósinkar, f. 1960, í sam- búð með Kristínu Bekkholt, f. Elsku tengdamamma. Eftir því sem árin líða fjölgar kveðjustundunum. Ég þakka þér öll góðu fjörutíu árin sem við höfum átt saman. Að fá að kynnast þér voru for- réttindi. Bjartsýni, dugnaður og hjálpsemi var alltaf ríkjandi hjá þér. Brosandi sólbrúnt andlitið fór svo vel við gráhvítt hárið, gott að muna þig þannig. Alltaf barst þú gleðina með þér hvernig sem á stóð, alltaf tókst þér að snúa öllu til betri vegar. Þú vildir öllum vel, fylgdist vel með öllum afkomendum og barst mikla umhyggju fyrir öllum. Brotthvarf ástvina skapar tóma- rúm sem ekki verður fyllt og þann- ig verður það svo sannarlega hjá okkur. Án þín, Eyja mín, er tilveran breytt. Nú er leiðir skilur bið ég Guð að geyma þig og færa þér frið ljóss og kærleika. Ég vona að gleðin sem þú gafst okkur sem næst þér stöndum lifi áfram meðal okkar. Þínum anda fylgdi glens og gleði gamansemin auðnu þinni réði. Því skal halda áfram hinum megin með himnaríkisglens við mjóa veginn. Ég vona að þegar lífi mínu lýkur, ég líka verði engill gæfuríkur. Þá við skoðum skýjabreiður saman og skemmtum okkur, já, það verður gaman. (Lýður Ægisson.) Blessuð sé minning þín. Þín tengdadóttir Ardís (Adda). Mig langar í fáeinum orðum að minnast tengdamóður minnar sem andaðist hinn 17. desember síðast- liðinn. Ég geymdi alltaf viku af sum- arfríi mínu til vetrarins fyrir þig, til að þú gætir komið í heimsókn til okkar suður. Það var oft erfitt að koma þér af stað, en ég frétti alltaf að þú hefðir komið endurnærð heim eftir þessar ferðir. Það tók oft lang- an tíma að fara með þér í Kringluna eða Smáralindina. Þú hittir svo marga á förnum vegi sem þú þekkt- ir og talaðir lengi við. Þú varst aldr- ei af flýta þér. Við höfðum svo gaman að spila tveggja manna vist. Við spiluðum oft mörg spil á dag. „Komdu, ég ætla að taka þig í gegn,“ sögðum við hvor við aðra þegar við vildum spila. Mér er einnig sérstaklega minn- isstætt þegar við fórum í Húsafell með Óla tengdapabba heitnum. Þá saumuðum við hestamynd út sam- an. Við nutum þessarar viku í góðu veðri og ferðuðumst vítt og breitt um sveitina. Eyja og Óli tóku hvorugt bílpróf. Fjölskyldan fór í margar Fljótavík- urferðir, en Eyja var fædd og upp- alin að Atlastöðum í Fljótavík. Að Atlastöðum reisti fjölskyldan og skyldfólk sumarhús. Litla íbúðin þeirra Eyju og Óla í Sundstrætinu var alltaf vinaleg. Þar bjuggu þau með börnin sín fjögur. Eyja var listræn. Hún prjónaði margar útprjónaðar peysur, sem voru hreint út sagt listaverk. Hún hafði einnig yndi af að sauma út, þar á meðal eru fallegar myndir sem hún saumaði út fyrir börnin sín. Hún var búin að prjóna ung- barnaföt fyrir öll barnabörnin áður en hún féll frá, sem hún ætlaði barnabarnabörnum sínum. Hún geymdi fötin í skápnum sínum, sem þau fá núna eftir hennar dag. Að lokum vil ég segja frá ferð sem við tvær fórum í Skorradalinn, ekki alls fyrir löngu. Það var búið að kaupa land undir sumarbústað. Allir voru farnir uppeftir til að vinna í sökklinum, nema við tvær sem fórum í rólegheitum á eftir. Við stoppuðum í Borgarnesi og keypt- um okkur samlokur. Keyrðum síðan norðan megin við Skorradalsvatnið, að Kjarvalslundi og settumst á trjá- bol og borðuðum samlokurnar. Þeg- ar við komum upp í bústað voru buxurnar okkar allar hvítar að aft- an eftir trjákvoðuna úr trjábolnum. Þetta var skemmtileg ferð hjá okk- ur Eyju. Ég hafði á tilfinningunni að þetta yrði síðasta ferðin okkar út í náttúruna, sem reyndist vera. Takk fyrir allt, Eyja mín. Stefanía. Nú hefur þú, Eyja amma, kvatt okkur og komin til Óla afa. Þegar við fengum fréttirnar kom það okk- ur ekki á óvart, það hlaut að koma að leiðarlokum vegna undangeng- inna veikinda. Þegar við hugsum til baka er margt sem kemur upp í huga okk- ar. Dugnaður þinn og ósérhlífni var óbilandi, alltaf hægt að fíflast og ekki leiddist þér að spjalla. Þú tal- aðir ekki undir rós og hafðir bein í nefinu. Alltaf var gott að koma til þín í Sundstrætið, yfirleitt varstu heima og sast við ofninn að prjóna, en ef ekki þá varstu uppi hjá Ellu eða úti á horni hjá Dísu. Ávallt áttir þú eitthvað gott með kaffinu og ófáir „rakkarnir“ spilaðir við eldhúsborð- ið og alltaf sast þú við ofninn. Gaman var að fara með þér „heim“ eins og þú sagðir alltaf ef Fljótavík bar á góma. Hugur þinn var alltaf fyrir norðan og einstakar stundir áttum við með þér þar, þær gleymast aldrei. Okkur er sérstak- lega minnisstætt þegar þú sagðir okkur sögur frá Fljótavík, af hest- inum þínum, daglegum störfum og jólahaldinu á Atlastöðum. Einnig þegar þú fluttir 14 ára gömul frá Fljótavík og fórst að vinna í Álafoss í Mosfellssveit. Nú rifjast upp bíl- ferðin frá Reykjavík á ættarmótið í Borgarfirðinum. Þessi stutta ferð tók sinn tíma því við gáfum okkur góða stund í Mosfellsbæ þar sem þú skoðaðir gömlu heimkynnin og sagðir ítarlega frá dvöl þinni þar, þetta var mjög skemmtileg og eft- irminnileg ferð. Lífið var ekki alltaf dans á rósum en ekki kvartaðir þú. Ekki var slugsað í síldinni, á Álafossi svo við tölum nú ekki um störf þín hjá Rúnari í Norðurtanganum. Flestir ungir menn máttu hafa sig alla við til að halda í við þig í vinnu. Alltaf áttir þú þó tíma fyrir aðra, minnisstætt er þegar í tísku var meðal unglinga að vera í rifnum gallabuxum. Það sem þú vorkennd- ir þessum börnum, að þurfa að ganga í ónýtum fötum. Einn daginn á gangi á Silfurtorgi bauðst þú ung- um stúlkum að koma með þér heim svo þú gætir stoppað fyrir þær í götin á buxunum. Elsku Eyja amma, takk fyrir all- ar þær stundir sem þú gafst okkur með þér. Þeirra mun ævilega vera minnst, þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar. Þínir sonarsynir, Kristján Viðar og Eyþór Ólafur. Þegar við hjónin komum vestur til Ísafjarðar var það alltaf tilhlökk- unarefni að heimsækja hana Eyju. Þegar gengið var inn um dyrnar á Sundstræti 27 mætti okkur alltaf glettnislegt blikið í augum hennar. Maður vissi aldrei hvers var að vænta. Oftast byrjaði hún að gera grín að henni frænku sinni, kallaði hana trippi eða frekjudós og í fram- haldinu dásamaði hún englapung- inn hann bróður hennar en það var hennar aðferð til að tjá væntum- þykju sína. Síðan kom hlýtt faðmlag og boðið var upp á kaffi og með því. Svo fékk hún sér sígarettu, settist niður með okkur og málin voru rædd. Hún hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum, aldrei kom maður að tómum kofunum hjá henni Eyju. Hún var í alla staði ein- staklega skemmtilegur og litríkur persónuleiki. Það gustaði alltaf af henni Eyju og stundum sparaði hún ekki blótsyrðin eða tvíræðnina ef því var að skipta og þá var nú gam- an. Gestrisin var hún með afbrigð- um og oft var búið um gesti í hverju horni, þótt íbúðin væri ekki stór. Eyja var fædd í Fljótavík á Hornströndum þar sem lífsbaráttan gat verið erfið. Hún bar sterkar taugar til æskustöðvanna og lagði sitt af mörkum til þess að börnin hennar og aðrir afkomendur for- eldra hennar gætu notið þess að dvelja þar. Aldrei fórum við fjöl- skyldan til dvalar í Fljótavík án þess að koma við í Sundstrætinu hjá Eyju til þess að taka stöðuna. Hún fylgdist vel með og vissi alltaf hvernig málin stóðu í Fljótavíkinni, hvernig fiskaðist, hverjir væru bún- ir að vera þar og hvort mikið væri af tófu. Síðustu tvö árin dvaldist Eyja á Dvalarheimilinu Hlíf, þrotin að kröftum. Okkur þykir ómetanlegt að hafa hitt hana þar sl. sumar, fengið að taka utan um hana og sjá fallega brosið hennar. Okkur þykir leitt að geta ekki fylgt henni síðasta spölinn. Blessuð sé minning mætrar konu. Ólöf Guðmundsdóttir og Guðmundur Guðjónsson. Enn er höggvið skarð í mannlífs- myndina á Bökkunum nú þegar hún Eyja hefur kvatt þennan heim. Hún hefur verið fastur punktur í lífi mínu og minnar fjölskyldu í meira en hálfa öld. Þær eru ótal minningarnar sem hrannast upp, sem ekki verða rifj- aðar upp hér, heldur aðeins þakkað fyrir allar þær stundir sem hún og amma hafa setið og prjónað á börn- in, síðan barnabörnin og nú síðast langömmubörnin sín, úr stofunni lá leiðin síðan í eldhúsið og málin rædd yfir kaffibolla og oft voru þar fjörugar umræður. Stundum var leiðin ansi löng á milli húsanna, en þá hitti hún bless- unin einhvern á leiðinni og þurfti aðeins að ræða málin. Hún fylgdist vel með mínum börnum og síðar barnabörnum vaxa úr grasi. Vinskapur hennar og tryggð við ömmu var einstakur og er hennar sárt saknað. Við hérna Bakkapúkarnir á núm- er 33 þökkum henni samfylgdina í gegnum tíðina og vottum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Far þú í friði. Kristjana Sigurðar og fjölskylda. Sölvey Jósefsdóttir Ég gleymi aldrei þeim degi þegar ég fékk þær fréttir að Kiddi litli væri farinn frá okkur. Hvernig getur lífið verið svona ósanngjarnt? Hvernig getur Guð tekið svona lítinn engil sem átti allt lífið framundan, frá nokkurri manneskju? Mér finnst ég samt svo heppin að hafa fengið að vera hluti af lífi Kidda í þennan tíma sem við Óskar bjuggum saman. Ég fékk að verða vitni að því þegar hann byrjaði að ganga eða ætti ég að segja hlaupa, segja fyrstu orðin og verða að hraustum grallara. Já, hann Kiddi var sko grallari. Það var ósjaldan sem ég var búin að hamast við að hengja upp þvott og þegar ég sá ekki til þá var litli kútur búinn að stelast til að rífa niður af snúrunni aftur. Eða þegar ég ætlaði að fara að elda og fann ekki áhöldin mín, því það var verið að smíða með þeim inni í stofu. Eða þegar við sátum með Örnu og Kolbrúnu og vorum að perla, þá vildi hann auðvitað fá að perla líka. En honum þótti miklu skemmtilegra að tína af spjaldi stelpnanna, við lít- inn fögnuð þeirra. Þótt Kiddi væri yngstur gaf hann stelpunum ekkert eftir. Þegar þær voru í mömmó átti hann að vera litla barnið en það var ✝ Kristinn VeigarSigurðsson fæddist í Keflavík 30. september 2003. Hann andaðist af slysförum 1. desem- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Keflavíkur- kirkju 11. desem- ber. oftar en ekki hann sem keyrði þær í kerrunni. Við áttum margar æð- islegar stundir saman og þurfti ekki mikið til. Það var nóg að fara saman í göngu, fara á róló, kubba eða bara búa til skutlu og henda á milli. Það sem við gátum hlegið mikið að þessu öllu saman. Ótrúlegt hvað lítil uppátæki geta orðið að dýrmætri minningu. Elsku Kiddi, þú varst alltaf svo glaður, vaknaðir bros- andi og sofnaðir brosandi. Meira að segja ef þú varst óþekkur, þá var varla hægt að skamma þig því þú hlóst bara að manni og bræddir mann með brosinu þínu. Ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið en þess- ar góðu minningar sem ég á um þig munu án efa hjálpa mér í gegnum þetta. Ég veit að við munum hittast aftur og vona að þú hafir það gott á nýja staðnum á meðan. Elsku Óskar, Vilborg, Anna, Biggi og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og vona að guð gefi ykkur styrk til að komast í gegnum þennan erfiða tíma. Linda Kristín Pálsdóttir. Elsku Kiddi minn, litli engillinn. Mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar hann pabbi þinn kom með þig í vinnuna til mín og sýndi mér þig í fyrsta skiptið. Þú varst svo lítill og svo ofboðslega fallegur og hann pabbi þinn var svo montinn. Brosti allan hringinn. Eftir þessi fyrstu kynni okkar kom hann svo með ykk- ur systkinin til okkar í Grafarvoginn í heimsókn. Svo fluttum við í Breið- holtið og stuttu seinna fluttu pabbi þinn og Vilborg þangað líka og þá var sko gaman. Á meðan pabbi þinn og Vilborg græjuðu nýja íbúðina ykkar gistuð þið hér hjá okkur. Það sem ég var búin að reyna að kaupa þig þessa daga með allskonar gotteríi. Þér leiddist það sko ekki neitt, meira að segja fannst þér ég alveg ágæt, alveg þangað til nammið var búið, Þá varstu vinur hans Jóa. Jói var sko vinur þinn. Hann átti nefnilega flutn- ingabíla, meira að segja marga. Enda var það ósjaldan sem hurðinni í Fífu- selinu var hrundið upp og inn kom rauðhærður grallari, reif sig úr úti- fötunum og kallaði hátt og skýrt: „Hæ, er Jói heima? Getur hann leik- ið?“ og ef Jói var á leið í vinnu sagði hann: „Ókey, ég kem með.“ Mikið er- um við oft búin að hlæja að því sem þú sagðir. Þú varst eins og lítill vinnumaður, upprennandi flutninga- bílstjóri. En þeir dagar eru á enda sem þú kemur til okkar í heimsókn, og við hlæjum ekki oftar að öllum gullmolunum sem þú sagðir, nú grát- um við bara. Það er svo ótrúlegt að hugsa til þess hvað sumarið og haust- ið var fljótt að líða en síðan þetta hörmulega slys varð virðist tíminn standa í stað. Það hlýtur að hafa ver- ið mikilvægt verkefni sem beið þín á himnum fyrst þú varst kallaður þangað svo fljótt, en við erum sann- færð um að núna hleypur þú um allt þarna uppi og skemmtir þeim sem þar fyrir eru. Elsku hjartans engill- inn okkar, við kveðjum þig nú í hinsta sinn, kannski einhvern tímann fáum við að vita hvers vegna og hvað það var sem beið þín þarna uppi, en þang- að til geymum við allar dýrmætu minningarnar um þig í hjartanu okk- ar. Elsku Kiddi okkar, megi Guð senda allan sinn styrk til foreldra þinna, systkina, fóstursystkina ömm- um og öfum. Sofðu vært kæri vinur. Þínir vinir, Sigurbjörg og Jóhann. Kristinn Veigar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.