Morgunblaðið - 29.12.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.12.2007, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MESSUR/KIRKJUSTARF Breiðholtskirkja FJÓRÐA Tómasarmessan á þessu hausti verður sunnudagskvöldið 30. desember kl. 20. Er þetta í fyrsta sinn sem slík messa er haldin í desember og má því segja að hér sé um fyrstu „jóla“ Tómasarmess- una að ræða. Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breið- holtskirkja, Kristilega skólahreyf- ingin, Félag guðfræðinema og hóp- ur presta og djákna. Tómasarmessan einkennist af söng og tónlist, áhersla er lögð á fyr- irbænarþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Laugarneskirkja Í STAÐ guðsþjónustuhalds sunnu- daginn 30. desember verða haldnir sálmatónleikar kl. 20 þar sem söng- konan Erna Blöndal flytur sína eft- irlætissálma um huggun og von. Erna kemur fram ásamt hljómsveit sem skipuð verður Jóni Rafnssyni sem leikur á bassa, Gunnari Gunn- arssyni á píanó og Erni Arnarsyni á gítar. Tónleikarnir bera yf- irskriftina Sorgin og lífið, því Erna velur til flutnings þá sálma sem orðið hafa henni sjálfri til hugg- unar og hreysti í sorg. Aðgangur er ókeypis en fólki mun gefast kostur á að taka þátt í kostnaði við útgöngu. Áramótaguðsþjónusta kirkjustarfs eldri borg- ara í Langholtskirkju KIRKJUSTARF eldri borgara efnir til áramótaguðsþjónustu í Lang- holtskirkju fimmtudaginn 3. janúar kl. 14. Prestur er sr. Jón Helgi Þór- arinsson. Kór félagstarfs eldri borgara á Vesturgötu, Söngfuglar, syngur og leiðir almennan söng. Kórstjóri er Margrét Sigurðardóttir og org- anisti Jón Stefánsson. Eftir guðs- þjónustuna eru kaffiveitingar í boði sóknarnefndar Langholtskirkju. Allir eru velkomnir og takið með ykkur gesti. Guðsþjónustan er sam- starfsverkefni Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma og Langholtssóknar. Ensk jólamessa og áramótin í Hallgrímskirkju ENSK jólamessa verður á morgun, 30. desember, kl. 14. Prestur verð- ur sr. Bjarni Þór Bjarnason. Org- AKRANESKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan- söngur kl. 18. Einleikur á trompet: Hólm- steinn Valdimarsson. Nýársdagur. Hátíð- arguðsþjónusta kl. 14. Sr. Björn Jónsson messar. ÁRBÆJARKIRKJA | Gamlársdagur. Guð- þjónusta kl. 18, sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukórinn leiðir hátíðarsöng undir stjórn Krisztinar Kalló Szklenar organista. Martial Nardeau leik- ur á flautu. Nýársdagur. Guðsþjónusta kl. 14, sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyr- ir altari og prédikar. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn Krisztinar Kalló Szklenar organista. Guðmundur Hafsteinsson leikur á trompet. ÁSKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson, Hallveig Rúnars- dóttir syngur einsöng. ÁSTJARNARKIRKJA | Gamlársdagur. Aft- ansöngur kl. 16. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Prestur sr. Bára Friðriks- dóttir, tónlistarstjóri Helga Þórdís Guð- mundsdóttir. Einsöng flytur Áslaug Fjóla Magnúsdóttir. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 17. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagur. Tóm- asarmessa kl. 20. Orð Guðs, fyrirbæn, máltíð Drottins, fjölbreytt tónlist. Gaml- ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Gísli Jónasson. Félagar úr söngsveitinni Fílharmóníu syngja. Organisti Julian Isa- acs. Nýársdagur. Hátíðarmessa með alt- arisgöngu kl. 14. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Félagar úr söngsveitinni Fílharmóníu syngja. Organisti Julian Isa- acs. BESSASTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Hátíðarguðþjónusta kl. 17. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar fyrir altari. Álftaneskórinn leiðir lofgjörðina undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagur. Guðs- þjónusta kl. 14. Einsöng syngur Anna Jónsdóttir við undirleik Sigríðar Freyju Ingimarsdóttur. Vígður verður bæna- ljósastjaki eftir Gunnstein Gíslason sem gefinn er í minningu Almut Alfonsson. Organisti og kórstjóri: Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matthíasson. Gaml- ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Einsöngur Gréta Hergils og Guðmundur Haf- steinsson leikur á trompet. Organisti og kórstjóri: Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matthíasson. Nýársdagur. Hátíðarguðs- þjónusta kl. 14. Ræðumaður: Ólafur Stephensen ritstjóri. Einsöngvari: Valdi- mar Hilmarsson. Organisti og kórstjóri: Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matthías- son. DIGRANESKIRKJA | Gamlárskvöld. Aft- ansöngur kl. 18. Prestur sr. Gunnar Sig- urjónsson. Organisti Kjartan Sig- urjónsson. Kór Digraneskirkju. Einsöngvari Þórunn Freyja Stefánsdóttir. www digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Sunnudagur. Kl. 11 messa, sr. Hjálmar Jónsson prédikar, dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Friðriksson. Gamlársdagur. Kl. 18 aftan- söngur, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir pré- dikar, sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Friðriksson. Nýársdagur. Kl. 11 Hátíðarmessa. Biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson prédikar, sr. Hjálmar Jónsson og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur, org- anisti er Marteinn Friðriksson. EGILSSTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Lára G. Oddsdóttir, organisti Torvald Gjerde. EYRARBAKKAKIRKJA | Nýársdagur. Há- tíðarguðsþjónusta kl. 14. FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Gaml- ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson, kór Fella- og Hólakirkju syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Einsöngvarar María Guð- jónsdóttir og Elfa Stefánsdóttir. Nýárs- dagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Svavar Stefánsson, kór Fella- og Hólakirkju syngur undir stjórn Guð- nýjar Einarsdóttur kantors kirkjunnar. Einsöngvari er Svafa Þórhallsdóttir. FÍLADELFÍA | Sunday: Bible study 12.30 in english. Almenn samkoma kl. 16.30. Nýársfagnaður verður 31. des. kl. 13, í umsjá Kirkju unga fólksins. 1. janúar kl. 16.30 verður nýárssamkoma, ræðum Vörður Leví Traustason. FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði | Gaml- ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Kór Frí- kirkjunnar syngur undir stjórn Arnar Arn- arsonar. Prestur: Sigríður Kristín Helgadóttir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Gamlársdagur. Aftansöngur í kirkjunni kl. 18 í umsjá sr. Ásu Bjarkar Ólafsdóttur. Að venju sjá Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller um tónlistina. Sérstakir gestir verða alt- söngkonan Jóhanna Halldórsdóttir ásamt teorboleikara. Nanda María les ritningarlestrana og stendur vaktina í dyrunum. Kl. 14 er guðsþjónusta á Grund, dvalar- og hjúkrunarheimilinu, í umsjá sr. Hjartar Magna Jóhannssonar. Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller. Næsta guðsþjónusta í Frí- kirkjunni verður sunnudaginn 13. janúar kl. 14. GLERÁRKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan- söngur kl. 18. Sr. Haukur Ágústsson pré- dikar og sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Gler- árkirkju syngja, organisti Valmar Välja- ots. Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni þjóna. Fé- lagar úr Kór Glerárkirkju syngja, organisti Hjörtur Steinbergsson. GRAFARHOLTSSÓKN | Sunnudagur. Messa í Þórðarsveig 3 kl. 11. Prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir, Þorgeir Arason guðfræðinemi prédikar, organisti Hrönn Helgadóttir. Beðið fyrir nýju ári. Kirkjukór Grafarholtssóknar syngur. Gaml- ársdagur. Stutt helgistund í Þórðarsveig 3 kl. 18, beðið fyrir nýju ári. Prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudagur. Jazz-messa kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyj- ólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kvartett Björns Thoroddsen leikur. Gaml- ársdagur. Beðið eftir áramótunum, barnastund kl. 15. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarnason. Gunnar Einar Steingrímsson æskulýðsfulltrúi leikur á gítar. Aftan- söngur kl. 18. Prestar sr. Vigfús Þór Árnason, sr. Lena Rós Matthíasdóttir og sr. Guðrún Karlsdóttir sem prédikar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Einsöngur: Mar- grét Kristín Blöndal (Magga Stína). Org- anisti: Hörður Bragason. Básúna: Einar Jónsson. Fiðla: Hjörleifur Valsson. Gítar: Kristinn H. Árnason. Kontrabassi: Birgir Bragason. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjón- usta kl. 14. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarna- Orð dagsins: Símeon og Anna. (Lúk. 2) ✝ Sigþór Sig-urðsson fædd- ist í Baldurshaga í Vestmannaeyjum 8. nóvember 1924. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja 19. desember síðast- liðinn. Hann var sonur Sigurðar Jónssonar, f. 18.11. 1901, d. 25.4. 1924, og Sveinbjargar Sveinsdóttur, f. 11.10. 1882, d. 24.1. 1976. Syst- ir Sigþórs er Fanný, f. 24. jan- úar 1913. Sigþór kvæntist 6. nóvember 1949 Valgerði Kristínu Krist- jánsdóttur, f. 9. júní 1930. For- eldrar hennar voru Kristján Einarsson, f. 20.11. 1893, d. 8.10. 1961, og Anna Jónsdóttir, f. 14.4. 1907, d. 28.4. 1995. Börn Sigþórs og Valgerðar eru: 1) Erla Fanný, gift Ynga Geir Skarphéðinssyni, þau eiga fjög- ur börn. 2) Anna Kristín, gift fluttu þau að Sólhlíð 19. Sigþór fór níu ára gamall í sveit að Hólakoti, Austur- Eyjafjöllum. Þar dvaldi hann til fjórtán ára aldurs, en þá flutti hann að Múlakoti í Fljótshlíð til systur sinnar og bjó þar til 1950. Á þessum árum vann hann m.a. hjá Vegagerðinni og Landssímanum, en fór á vetr- arvertíðir til Vestmannaeyja. Eftir 1950 fór Sigþór á sjóinn og stundaði hann í rúm fimmtíu ár. Veturinn 1957-1958 tók hann 200 tonna skipstjórn- arréttindi . Sama ár og rétt- indin voru í höfn keypti hann sinn fyrsta og eina bát, Sævar VE-19, ásamt þeim Sigfúsi Guð- mundssyni og Áskeli Bjarna- syni. Sigþór seldi Sævar VE ár- ið 1980 og hafði þá átt bátinn einn í nokkur ár. Eftir þetta var Sigþór stýrimaður hjá öðr- um, lengst af á Baldri VE. Sig- þór átti langa starfsævi og vann til sjötíu og þriggja ára aldurs, síðustu ár starfsævi sinnar vann hann hjá Fiskiðj- unni hf. Útför Sigþórs fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Einari Sigfússyni, þau eiga einn son. 3) Sigurbjörg (Didda), hún á tvö börn með fyrrver- andi eiginmanni sínum, Guðjóni Erni Vopnfjörð Að- alsteinssyni. 4) Sveinn Valþór, kvæntur Baldvinu Sverrisdóttur, þau eiga fjögur börn. 5) Einar, hann á fjög- ur börn með fyrr- verandi eiginkonu sinni, Lóu Ósk Sigurðardóttur. 6) Eyrún Ingibjörg, gift Tryggva Ársælssyni, þau eiga fjögur börn. Þá eiga Sigþór og Valgerður tuttugu barna- barnabörn. Samtals eru því af- komendur þeirra orðnir fjöru- tíu og fimm. Sigþór og Valgerður hófu sinn búskap í Vestmannaeyjum í byrjun árs 1950 og bjuggu þar alla tíð síðan, fyrst á Reynifelli við Vesturveg 15b, síðan á Fjólugötu 3 til ársins 1998, þá „Sæl elskan,“ þannig heilsaði pabbi mér alltaf þegar ég hringdi heim til Eyja til þess að heyra í pabba og mömmu. Við systkinin gerðum oft góðlátlegt grín að því að pabba væri hálfilla við síma því yfirleitt sagði hann „hún mamma þín er hérna, bless elskan, blessi þig,“ þar með var hann farinn úr símanum. Það er óneitanlega skrýtin tilfinning að eiga ekki eft- ir að heyra rödd hans aftur. Pabbi minn var ekki maður margra orða, ég minnist hans sem duglegs og iðins manns. Hann var alltaf eitthvað að starfa, dytta að innan húss sem utan því það mátti ekki á nokkrum hlut sjá. Þá var hann með eindæmum nýtinn og engu mátti henda. Mér er minnisstætt þegar mamma fékk það loks í gegn að sett yrði park- et á stofuna heima. Pabba fannst þetta frekar mikill óþarfi þar sem rauða, rósótta teppið var nær óslitið. En mamma fékk sitt fram og teppið fékk nýtt hlutverk í bíl- skúrnum hans pabba. Pabbi hafði óskaplega gaman af því að setjast undir stýri á bíl okkar, setja tjald í skottið og fara í stutt sumarfrí upp á land. Þá lá leiðin alltaf á sömu slóðir, undir Eyjafjöllin og upp í Fljótshlíð. Farið var í sund í Seljavallalaug, komið við að Skógum, Múlakoti og þeginn kaffisopi á bæjum þar sem foreldrar mínir þekktu til. Ósköp fannst lítilli stúlku þessar heimsóknir langar. Fanný systir pabba býr á Selfossi og þar var alltaf stoppað og þegnar góð- gjörðir, enda alltaf verið mjög kært á milli þeirra systkina og okkur tekið fagnandi. Pabbi var sjómaður alla tíð og stoltur af sínu starfi, það var því honum og fjölskyldunni mikill heiður þegar hann var heiðraður fyrir ævistarfið á Sjómannadag- inn 2004. Ég minnist eldgossins og sjóferðarinnar upp á land í ör- yggið, fjölskyldan fór með Sævari VE og pabbi stóð við stýrið. Ein- hvern veginn var ég örugg, vit- andi af honum í brúnni, þrátt fyr- ir skelfilegt sjólag og mikla sjóveiki. Vestmannaeyjar áttu hug pabba allan og hvergi annars staðar vildi hann vera og eftir gosið kom aldrei til greina annað en að fara aftur heim með fyrstu skipum og koma hjólum lífsins í Eyjum aftur í gang. Það var gott að koma heim þrátt fyrir haust- myrkur og svarta jörð. Pabbi var ekki að flíka tilfinn- ingum sýnum né færa þær í orð, en ég skynjaði ávallt djúpa og mikla væntumþykju. Því langar mig að draga fram eina minningu, fyrsta unglingaástin. Það stóð fyrir dyrum brúðkaup eldri bróð- ur míns, húsið var fullt af fólki og nóg að gera. Enginn veitti því at- hygli þótt örverpið á heimilinu væri eitthvað niðurdregið, nema þýðuflokksmaður sem hafði skýr- ar skoðanir á mönnum og mál- efnum og mikill fylgismaður Gylfa Þ. og síðar þeirra Jóns Baldvins og Jóhönnu og þá sér- staklega hennar. Með árunum breyttist Sigþór og virtist eiga auðveldara með að blanda geði og held ég að það hafi létt honum lund. Fljótlega upp úr 1990 fóru þau hjónin að koma reglubundið í Sælukot, sumarbú- stað okkar Önnu austur við Laug- arvatn þar sem hann undi sér vel og þau bæði. Í áratugi rak hann eigin útgerð í félagi við vin sinn Sigfús og gekk sá rekstur lengst- um vel. Sigþór hafði yndi af harmonikumúsík og spilaði reynd- ar sjálfur dável. Önnu er það í æskuminni er foreldrar hennar Sigþór og Valgerður spiluðu og sungu í litla eldhúsinu á Reyni- felli, hann á nikku en hún á gítar og allir sungu. Það var þröngt um fjölskylduna í þessu litla húsi en það breyttist mjög þegar flutt var í nýja húsið á Fjólugötu. Það var stórt og gott, samkvæmt því besta á þeim tíma. Öll árin sem ég hef þekkt þau hjón hef ég fundið hversu sterkar taugar þau báru til æskustöðva Sigþórs og þeirra slóða þar sem þau hittust og felldu hugi saman. Fljótshlíðin, Múlakot, Markar- fljótsbrú og svæðið allt að Mýrdal áttu ætíð sterkan sess í hugum þeirra. Ekki hef ég kynnst meiri og einlægari Vestmannaeyingi, þar sló hjarta hans. Aldrei heyri ég Eyjalagið góða „Heima“ án þess að hugsa til þessara mætu hjóna. Með Sigþóri er gengin mikill sómamaður. Valgerður mín, þér votta ég mína dýpstu samúð og bið góðan Guð að styrkja þig í sorginni. Fannýju systur hans votta ég mína dýpstu samúð, þau voru náin. Börnum Sigþórs flyt ég innilegar samúð- arkveðjur svo og öðrum ættingj- um. Blessuð veri minning Sigþórs Sigurðssonar. Einar Sigfússon. Elsku afi. Á þessu ári náði ég að kynnast þér meira þegar ég var hjá þér og ömmu í sumar. Ég man þegar þú sast alltaf í stóln- um þínum og horfðir á fótboltann á Sýn og hlóst þegar það var eitt- hvað fyndið. Svo líka þegar þú lást í rúminu þínu og hlustaðir á útvarpið og hlóst þegar eitthvað fyndið var sagt. Þú elskaðir að keyra um í bílnum þínum og skoða hestana og fuglana í daln- um. Ég man þegar ég var lítil og þú spilaðir á harmonikuna þína og ég og Hafrún dönsuðum. Það var alltaf til ís þegar við komum í heimsókn, þú sást alltaf um það. Afi, ég mun ávallt hugsa um þig á hverjum degi. Helga Kristín. Sigþór Sigurðsson pabbi. Hann tók mig afsíðis og vildi vita hvað væri að, eftir að hafa létt á mér, þá var pabbi hugsi en sagði svo „Eyrún mín, ef þessi piltur sér ekki hvað í þér býr, þá er hann nú ekki þess virði að þú fellir tár hans vegna.“ Þar með var það afgreitt. Það er skrítið að koma heim og fá ekki hlýtt faðmlag frá pabba og sting undan skeggi á kinn. Elsku mamma, guð gefi þér styrk í sorg þinni. Pabbi minn, þakka þér samfylgdina, ég kveð þig með orðunum sem þú kvaddir mig ávallt með, Guð blessi þig. Eyrún Ingibjörg. Nú er hann genginn Vest- mannaeyingurinn tryggi, Sigþór Sigurðsson, 83 ára að aldri. Sig- þór hitti ég fyrst á árunum 1967- 68. Aðdragandi þess var sá að ég sem ungur maður fór á Mennta- skólann á Laugarvatni og hitti þar fyrir næstelstu dóttur Sig- þórs, Önnu, sem var mætt til náms. Ekki er að orðlengja það frekar að við felldum hugi saman og hefur það samband haldið vel allt til þessa dags. Það var í fram- haldi af þessu sem ég hélt til Eyja haustið 1968 til fundar við Sigþór og Valgerði enda ekki seinna vænna, þar sem Anna var komin á steypirinn og einkasonur okkar, Sigþór, væntanlegur í heiminn. Sem vænta mátti tók Valgerður mér vel. Sigþór hitti ég um kvöldið þegar hann kom af sjónum. Það verður að segjast eins og er að fámáll var hann og lítt upprifinn yfir þessum pilti sem mættur var til Eyja ofan frá Selfossi og bar ábyrgð á óléttu dóttur hans. Sveinbjörg móðir Sigþórs, sem bjó á heimili þeirra hjóna, tók mér hins vegar vel og vissi á mér deili frá Selfossi þar sem Fanný dóttir hennar bjó. En tíminn leið og þegar Sigþóri varð ljóst að mér var full alvara með samband mitt við Önnu breyttist viðmót hans. En við kynni mín af Sigþóri varð mér fljótlega ljóst að hann var ekki allra og oft erfitt að nálgast hann í samræðum og var á stundum eins og hann vildi helst vera einn. Þegar Sigþór hafði bragðað vín opnuðust ýmsar dyr og þá kom í ljós maður með sterkar pólitískar skoðanir, Al- Að leiðarlokum vil ég, pabbi minn, fá að kveðja þig hinstu kveðju. Það geri ég með ást og virðingu og með þakklæti fyrir allar þær yndislegu stundir og minningar sem ég á frá mínum æskuárum. Guð blessi þig um alla tíð. Þín dóttir Anna. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.