Morgunblaðið - 29.12.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 37
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Almanak Þjóðvinafélagsins 2008
Höfundar: Þorsteinn Sæmundsson og
Heimir Þorleifsson. Í Almanakinu er
m.a. að finna upplýsingar um gang
himintungla, messur kirkjuársins og
sjávarföll. Í Árbókinni er t.d. fjallað
um árferði, atvinnuvegi, stjórnmál,
kosningaúrslit og verklegar fram-
kvæmdir. Fjöldi mynda er í ritinu.
Fæst í bókaverslunum um land
allt.
Ferðalög
Starfsmannafélög og klúbbar
Skipuleggjum sérferðir til Bandaríkj-
anna, Barcelona, Bayern í golf eða á
Októberfest, Ítalíu, London, í Rínardal
með göngutúrum, hjólreiðum og vín-
smökkun, til Skandinavíu, Skotlands,
Slóveníu, Svartaskógar og á skíði í
Utah. Ennfremur kastalagistingar um
allt Þýskaland, Austurríki og Ung-
verjaland. Góð þjónusta!
Nánar á www.isafoldtravel.is
Ferðaskrifstofan Ísafold,
sími 544 8866.
Heilsa
Lr - kúrinn er tær snilld.
Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuð-
um. Stuðningur, vigtun og gönguhóp-
ur hefst 3.1. 2008. www.dietkur.is
Dóra, sími 869-2024.
Lr- kúrinn er tær snilld
Léttist um 22 kg á 6 mán. Þú kemst í
jafnvægi, sefur betur, aukin orka og
grennist í leiðinni.
www.dietkur.is/Dóra 869-2024
Húsgögn
Gott rúm til sölu !
Rúm til sölu - íslensk smíði. Hvítt með
höfuðgafli og fótagafli, ásamt tveim-
ur náttborðum. 50 þús. kr. Sverrir -
sími 863 1972.
Húsnæði í boði
Snyrtileg 3ja hrb íbúð til leigu
Skemmtileg 75 fm 3ja herb. íbúð til
leigu á 1. hæð í fjölb. Leigist frá
3.1.08 - 31.7.08. 110 þús. á mán.
Uppl. og myndir hjá gatari@simnet.is
2 herb. íbúð í 101 Reykjavík Mjög
góð 2 herb., 64 fm. íbúð til leigu á
besta stað í 101 Rvk. Leiga 120
þúsund á mánuði, tveir mánuðir fyrir-
fram. Uppl. í síma 864 4827.
Sumarhús
Til sölu sumahús
Falleg sumarhús til sölu. Upplýsingar
í síma 899 9667.
Sumarhús - orlofshús .
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
PMC silfurleir
Búið til módelskartgripi úr silfri - Til-
valin jólagjöf, falleg gjafakort í öskju.
Skráning hafin fyrir janúar og febrúar.
Uppl. í síma 695 0495.
www.listnam.is
Til sölu
19
87 - 2007
M
bl
93
34
76
Pipar og salt
20 ára
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
M
bl
94
80
01
Mauviel
koparpottar
síðan 1830
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Tapað: Íþróttataska og borvél
Svört Nike íþróttataska (innihélt m.a.
vinnufatnað og myndavél) og batt-
erís-borvél í grænni tösku töpuðust
snemma morguns 27. desember.
Líklega á milli Skaftahlíðar og Kirkju-
sands. Sárt saknað. Upplýsingar
veitir Íris í síma: 869 2733.
Ýmislegt
SANDBLÁSTUR
Góð áferð eftir granít-og glersand
Sandblástur og pólýhúðun á felgum
Sérhæfing í bílhlutum og stærri ein.
Glerblástur á ryðfríu stáli o.fl., o.fl.
HK-Sandblástur - Helluhrauni 6
Hafnarfirði Sími 555-6005
Mjög vel fylltur og flottur í ABC
skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr.
1.250,-
Flott snið í BCD skálum á kr. 2.350,-
buxur í stíl á kr. 1.250,-
Mjúkur, samt haldgóður og fer
vel í CDEF skálum á kr. 2.350,- buxur
í stíl á kr. 1.250,-”
VMisty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Bílar
Til sölu Toy Hilux 3L sjálfsk., árg.
03/07, ekinn 20 þ. Klæðning í palli,
krókur, húdd og gluggahlífar.
Klassabíll, verð 3.250 þús. Uppl. í s.
894 6562, Gunnar.
Subaru Legacy Sport Sedan "07
Til sölu árg. ‘07, ekinn 10.000 km. Lit-
að gler. Verð 2550 þús. Perluhvítur.
Uppl. í síma 893 1367.
Nissan árg. '03, ek. 98 þús. km
Einn góður fyrir veturinn. Bíll í topp-
standi. Upplýsingar í síma 693 8085.
Ford F350 7,3 dísel. Árgerð 1998,
ekinn 165 þús., beinskiptur, á tvö-
földu að aftan. Gott verð. Upplýsingar
í síma 892 8380.
Einn snotrasti skutbíll landsins
er til sölu. Dodge Magnum RT, nýskr.
júní 2006, ekinn 14þkm. Vél 5.7l
Hemi, 365 hestöfl. Vetrar og sumar-
dekk á 18" felgum ásamt 22" sumar-
blingurum. Mikið breyttur bíll,
myndir og nánari upplýsingar má
finna á vefnum: http://maria.blog.is
/album/magnum og http://maria.
blog.is/ blog/maria/entry/302467.
Verð: 4.5 milljónir. Nánari upplýsingar
veitir Ólafur í síma 864-4943.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Kristófer Kristófersson
BMW.
861 3790.
FRÉTTIR
SLYSAVARNARÁÐ hefur samþykkt og sent
frá sér umsögn um frumvarp til laga um
breytingu ýmissa lagaákvæða sem varða sölu
áfengis og tóbaks. Þar er lýst áhyggjum sín-
um vegna líklegra áhrifa á tíðni slysa og of-
beldis verði frumvarp til breytinga á áfeng-
islögum samþykkt.
Í umsögninni segir: „Rannsóknir sýna að
aðgengi að áfengi hefur mikil áhrif á heild-
arneyslu áfengis. Þar sem áfengisneysla er
áhrifaþáttur margra slysa, líkamslegs, kyn-
ferðislegs og andlegs ofbeldis í íslensku sam-
félagi, eins og erlendis, þykir ljóst að aukið að-
gengi að áfengi verði til þess fallið að auka
tíðni slysa og ofbeldis.
Um alvarleika málsins má m.a. lesa í árs-
skýrslum rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Árið 2006 voru 9 banaslys í umferðinni þar
sem áfengisneysla var orsakaþáttur. Ölvunar-
akstur skaðar ekki eingöngu þá sem taka
ákvörðun um að keyra ökutæki undir áhrifum
áfengis heldur eru saklausir vegfarendur einn-
ig í verulegri hættu. Áfengisneysla er því ekki
aðeins vandamál þeirra sem neyta áfengis
heldur samfélagsins alls.
Árið 2005 komu 1500 manns á bráðamót-
töku Landspítala vegna ofbeldisáverka. Árið
2006 fjölgaði komum á bráðamóttöku vegna
ofbeldis í 1660. Þótt ekki séu til tölur hér á
landi um það hversu margir hljóta áverka
vegna ofbeldis þar sem áfengisneysla er or-
sakaþáttur, þá benda erlendar rannsóknir og
reynsla lögreglu og starfsfólks á bráðamót-
töku heilbrigðisstofnana til að áfengisneysla sé
mjög oft orsakaþáttur í ofbeldisverkum.
Áfengistengt ofbeldi bitnar ekki aðeins á þeim
sem drekka áfengi heldur einnig á almennum
borgurum, heilbrigðisstarfsfólki og löggæslu-
fólki.
Fjölmörg félagasamtök, fyrirtæki og stofn-
anir vinna ötullega að slysavörnum á Íslandi
þar sem markvisst er hugað að bættum að-
stæðum fólks í leik, starfi og samgöngum með
það að markmiði að fækka slysum. Hætt er
við að árangur þessarar góðu vinnu verði
minni ef aðgengi að áfengi eykst verulega með
sölu áfengis í matvöruverslunum.
Kostnaður einstaklinga og samfélagins í
heild vegna slysa og ofbeldis er nú þegar
verulegur. Meiri áfengisneysla, sem líkleg er í
kjölfar aukins aðgengis að áfengi, mun auka
þennan kostnað verulega (sem er aðeins að
hluta metinn til fjár). Víða í Evrópu kallar
heilbrigðisstarfsfólk eftir aðgerðum stjórn-
valda til að draga úr bráðaskaða (slys og of-
beldi) og langtímaskaða (afleiðingar slysa og
fjölmargir sjúkdómar) sem áfengisneysla or-
sakar. Það er því mikilvægt að Íslendingar
læri af reynslu annarra þjóða þegar hugað er
að breytingum í áfengismálum.“
Áhyggjur vegna líklegra
áhrifa á tíðni slysa og ofbeldis
Slysavarnaráð sendir frá sér umsögn
um frumvarp til breytinga á áfengislögum
AÐ VANDA er Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík með árlega flugeldasölu sína í
B&L-húsinu við Grjótháls 1.
Flugeldasalan stendur dagana 28. til 31.
desember og er opin frá kl. 10 til 22 alla
daga og til kl. 16 á gamlársdag. Þetta er
sjötta árið í röð sem Flugbjörgunarsveitin
fær aðstöðu í B&L-húsinu endurgjaldslaust,
en allur ágóði af flugeldasölunni rennur til
reksturs sveitanna.
Meðlimir Flugbjörgunarsveitarinnar
hvetja fólk til að muna eftir hlífðargleraug-
unum, en þau geta skipt sköpum ef slys
verða við meðhöndlun flugelda. Gleraugun
fást á flugeldamörkuðunum og þar er einn-
ig hægt að fá leiðbeiningar um örugga
notkun flugelda.
Flugbjörgunar-
sveitin með
flugeldasölu í
B&L-húsinu
ORKUVEITA Reykjavíkur hefur að vanda
verulegan viðbúnað til þess að tryggja
góða þjónustu við viðskiptavini um ára-
mót, segir í frétt frá OR. Vakt er á varð-
stofu Orkuveitunnar allan sólarhringinn,
alla daga ársins en um hátíðarnar er
fjölgað á vöktunum og fleiri í viðbragðs-
töðu.
Á gamlárskvöld og fram á nýársnótt
verður vakt í kerfisstjórn Orkuveitunnar
og sjö viðbragðsteymi úti í hverfum tilbú-
in að grípa inn í ef eitthvað kemur upp á.
Teymin verða á Kjalarnesi og í Mos-
fellsbæ, í Árbæjarhverfi, í Kópavogi og
Garðabæ, í Breiðholtshverfi, í Grafarvogi,
í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi og í
Sunda- og Vogahverfi.
Sími á bilanavakt Orkuveitu Reykjavík-
ur er 516 6200.
Margir starfs-
menn OR á vakt
um áramót
STOFNFUNDUR Taugavísindafélags Ís-
lands var haldinn föstudaginn 28. desem-
ber síðastliðinn. Í fréttatilkynningu segir
að markmið félagsins verði að stuðla að
framgangi taugavísinda á Íslandi og
hyggst félagið ná markmiðum með eft-
irfarandi:
– Stuðla að faglegri umræðu, sam-
starfi og samheldni á meðal þeirra sem
stunda taugavísindi og skyldar greinar
á Íslandi.
– Stuðla að fræðslu um taugavísindi
og gildi þeirra í samfélaginu.
– Félagið mun berjast fyrir auknum
fjárframlögum til rannsókna í taugavís-
indum.
– Félagið mun beita sér fyrir sam-
vinnu stofnana, fyrirtækja, og háskóla
sem starfa á sviði taugavísinda.
Taugavísindafélag
Íslands stofnað