Morgunblaðið - 02.01.2008, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
ÁKVÆÐI laga um breytingu á lögum
um Stjórnarráð Íslands, sem sam-
þykkt voru á sumarþingi í fyrra og
var fyrsta þingmál
nýrrar ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar, komu
til framkvæmda í
gær. Með lögunum
fækkar ráðuneytun-
um úr 14 í 12, þar
sem sjávarútvegs-
og landbúnaðarmál
heyra nú undir eitt og
sama ráðuneytið og
Hagstofa Íslands hefur verið lögð nið-
ur sem ráðuneyti og gerð að sjálf-
stæðri stofnun. Þá voru tryggingamál
færð frá heilbrigðisráðuneytinu til
ráðuneytis félagsmála sem nú ber
heitið félags- og tryggingamálaráðu-
neyti.
Nýr ráðuneytisstjóri
í nýju ráðuneyti
Spánnýtt ráðuneyti sjávarútvegs-
og landbúnaðarmála tók til starfa í
gær og hafa eigin starfsheiti og lög-
bundið starfssvið landbúnaðarráðu-
neytis og sjávarútvegsráðuneytis ver-
ið lögð niður. Aðsetur hins nýja
ráðuneytis er að Skúlagötu 4, þar sem
sjávarútvegsráðuneytið var áður til
húsa.
Ráðuneytisstjóri hins nýja ráðu-
neytis er dr. Sigurgeir Þorgeirsson,
fyrrum framkvæmdastjóri Bænda-
samtaka Íslands. „Það eru mjög
spennandi viðfangsefni fram undan í
hinu nýja ráðuneyti og á þess vegum,“
segir Sigurgeir. Hann segir að næstu
mánuðum muni hann verja í að læra
betur á gang mála í þeim ráðuneytum
sem renna saman í eitt og svo þurfi að
ganga frá öllum lausum endum að því
er varðar sameininguna, en það verði
ekki gert á einni nóttu.
Af öðrum stórum verkefnum sem
standa fyrir dyrum í ráðuneytinu
nefnir Sigurgeir stofnun Matvæla-
stofnunar sem unnið verði að í ár og á
næsta ári. Hin nýja stofnun er reist á
grunni Landbúnaðarstofnunar ann-
ars vegar og hins vegar matvælasvið-
um Umhverfisstofnunar og Fiski-
stofu. „Á þessu sviði blasa við mikil
verkefni við innleiðingu og upptöku á
matvæla- og dýraheilbrigðislöggjöf
Evrópusambandsins á næstu misser-
um,“ segir hinn nýbakaði ráðuneyt-
isstjóri
Ráðuneytum fækkar um tvö
Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál í eina sæng Hagstofa gerð að sjálf-
stæðri stofnun Tryggingamál færð yfir til félagsmálaráðuneytisins
Sigurgeir
Þorgeirsson
ÚRKOMUMET virðast hafa verið
slegin í Reykjavík, bæði í desem-
bermánuði einum sem og á ársvísu,
en ársúrkoman í Reykjavík hefur
ekki verið meiri síðan 1921. Þetta
kemur fram á Veðurvaktinni, blogg-
vef Einars Sveinbjörnssonar veður-
fræðings.
Í bráðabirgðatíðarfarsyfirliti frá
Veðurstofu Íslands, sem Trausti
Jónsson veðurfræðingur tók saman,
kemur fram að árið 2007 hafi verið
mjög hlýtt, það 10. hlýjasta frá upp-
hafi mælinga á velflestum stöðum
um sunnan- og vestanvert landið og
það 14.-15. hlýjasta norðaustan-
lands. Óvenjuúrkomusamt var á
árinu, en úrkomutíð hefur staðið
samfellt á Suður- og Vesturlandi frá
því í ágúst. Þurrt var hins vegar
langt fram eftir sumri á mestöllu
landinu. Norðaustanlands var úr-
koma hins vegar nærri meðallagi
þegar litið er á árið í heild.
Snjólétt það sem af er vetri
Janúar var umhleypingasamur
mánuður og snjór meiri suðvestan-
lands en verið hefur í nokkur ár. Tíð
var víðast mjög hagstæð í febrúar,
mjög snjólétt um mikinn hluta lands-
ins og færð með besta móti. Í mars
var tíðarfar fremur órólegt en al-
mennt hagstætt í apríl, en hans verð-
ur einkum minnst fyrir tvær óvenju-
legar hitabylgjur.
Mjög hlýtt var einnig fyrstu dag-
ana í maí, en annars var mánuðurinn
kaldur og snjóaði víða. Júní- og júlí-
mánuður voru hlýir og þurrir víðast
hvar á landinu. Í ágúst skipti hins
vegar rækilega um veðurlag og hafa
mánuðirnir september til desember
verið óvenjuúrkomusamir um sunn-
an- og vestanvert landið en nyrðra
þornaði eftir því sem á haustið leið.
Mjög snjólétt hefur verið það sem af
er vetri.
Nýliðið ár
óvenjuhlýtt
og blautt
Skýfall Óvenju úrkomusamt var á
árinu sem er að líða og met slegin.
„VIÐ vorum búin undir það að nú
yrði verulegur samdráttur í sölu
okkar, vegna veðursins. Þetta leit
ekki vel út að morgni gamlársdags,
og dagurinn áður var líka slakur, en
við seldum álíka mikið og í fyrra áð-
ur en lauk,“ segir Kristinn Ólafsson,
formaður Landsbjargar, en þjóðin
svaraði kalli Landsbjargar um styrk
til áframhaldandi björgunarstarfs á
komandi ári. Líklega seldust um 500
tonn af flugeldum hjá Landsbjörg
þetta árið. Sölunni er þó ekki lokið
enda nóg til af vörum fyrir þrett-
ándann. „Við munum halda okkar
striki þetta árið og geta staðið við
allar okkar skuldbindingar. Þetta er
bara alveg frábært,“ segir Kristinn.
100 þúsund króna kaup algeng
Tertur seldust langmest að þessu
sinni, enda var fólki ráðlagt að
kaupa þær. Þegar veður er slæmt
og vindur mikill eru terturnar mun
öruggari í notkun. Stórkaupendur
voru margir og segir Kristinn 100-
150 þúsund króna kaup algeng.
„Það var meira um að fjölskyldur
tækju sig saman í innkaupunum en
áður.“
Björgunar-
sveitirnar
seldu vel
Umfram væntingar
miðað við veðurspá
HUNDRUÐ kvenna og karla tóku þátt í árlegu Gaml-
árshlaupi ÍR á síðasta degi ársins 2007, en þetta er í 32.
skipti sem hlaupið er haldið. Rásmarkið var í Kirkju-
stræti við Alþingishúsið og kom flugeldur í stað hefð-
bundinnar rásbyssu. Sumir þátttakendur voru í keppn-
isskapi en aðrir skrýddust höttum og furðufatnaði í
tilefni dagsins.
Almennt var góð stemning í hlaupinu þrátt fyrir að
veður væri ekki með besta móti.
Að sögn hlaupara, sem tal náðist af, var mótvindur
gífurlega mikill þegar farið var eftir Ægisíðu og upp
Suðurgötu í lok hlaupsins. Hægði þetta talsvert á
mörgum keppendum. Fæstir létu það þó á sig fá og
kláruðu hlaupið með sómasamlegum hætti enda kalla
íslenskir hlaupagikkir ekki allt ömmu sína. Einungis
var boðið upp á eina vegalengd, tíu kílómetra, enda
feikinóg í kulda og roki. Keppt var í 14 flokkum, þ.e.
sjö aldursflokkum og kynjaskiptum flokkum.
Morgunblaðið/Kristinn
Gamlárshlaupið ræst með flugeldi
„ÁSTANDIÐ í borginni er í augna-
blikinu alveg þokkalegt á yfirborðinu
en greinileg spenna í loftinu. Fólk er
mjög áhyggjufullt og óttaslegið. Um-
ferð í borginni er nánast engin og
flestar verslanir lokaðar,“ segir Ómar
Valdimarsson, forstöðumaður upp-
lýsingadeildar Rauða hálfmánans
(IFRC) fyrir Austur-Afríku, en hann
býr og starfar í Naíróbí, höfuðborg
Kenía.
„Menn telja að yfirborðskyrrðin í
dag [þriðjudag] geti verið lognið á
undan storminum,“ segir Ómar og
bendir á að Raila
Odinga, forseta-
frambjóðandinn
sem keppti við
Mwai Kibaki for-
seta, hafi boðað til
útifundar í mið-
borg Naíróbí á
morgun, fimmtu-
dag. „Hann segist
reikna með allt að
milljón manns á
þann fund. Það ætti ekki að koma á
óvart þótt einhverjar róstur yrðu í
kjölfar þess fundar, enda er hiti í
mönnum sem telja að þeir hafi verið
sviknir um kosningasigur og sé enn
ýtt til hliðar við stjórnun landsins.“
Að sögn Ómars hefur verið mikið
um ofbeldisverk í Eldoret og annars
staðar í vesturhluta Kenía frá því að
lýst var yfir á sunnudag að Mwai Ki-
baki, forseti landsins, hefði verið end-
urkjörinn. Segir hann fréttir herma
að yfir tvö hundruð manns hafi látið
lífið í óeirðunum undanfarna daga.
„Keníski Rauði krossinn telur að ná-
lægt 15 þúsund manns hafi misst
heimili sín og hefur aðstoðað við að
útvega fólki skjól og mat.“
Aðspurður segir Ómar her lands-
ins hafa verið í viðbragðsstöðu síð-
ustu daga sem og lögregluna. Einnig
hafa yfirvöld landsins brugðist við
ástandinu með því að reyna að hindra
frjálsan fréttaflutning.
„Upplýsingastreymið innanlands
hefur nánast verið stöðvað, útvarpi og
sjónvarpi er óheimilt að flytja beinar
fréttir af ástandinu, sem aftur verður
til að auka á óöryggið og óvissuna
sem fólk býr við.“
Yfirborðskyrrðin gæti verið
lognið á undan storminum
Yfir 200 manns hafa látið lífið í óeirðum og 15 þúsund manns misst heimili sín
Ómar
Valdimarsson
FORMLEGA var gengið frá upp-
sögn Brynjólfs Árnasonar, sveitar-
stjóra Grímseyjarhrepps, á fundi
hreppsnefndar á gamlársdag. Kæra
vegna meintra fjársvika og skjalafals
sveitarstjórans verður að öllum lík-
indum send lögreglu á næstu dögum.
Í lok nóvember sl. var skrifstofa
Grímseyjarhrepps innsigluð vegna
gruns um að misfellur væri að finna í
bókhaldi hreppsins. Var sveitar-
stjórinn grunaður um fjárdrátt og
bókhaldssvik og stóð rannsókn yfir
lungann úr desember. Sveitarstjórn-
armenn vilja lítið tjá sig efnislega um
málið en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins leikur grunur á að
um verulegar fjárhæðir sé að ræða.
Sveitarstjórinn var í nóvember
dæmdur fyrir að hafa tekið 12.900
lítra af olíu ófrjálsri hendi, en hann
var umboðsmaður Olíudreifingar.
Formlega
sagt upp
♦♦♦