Morgunblaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 19
ERLENT
Naíróbí. AFP, AP. | Að minnsta kosti
þrjátíu brunnu inni þegar eldur var
borinn að kirkju í Eldoret í Vestur-
Kenía í gær. Á fjórða hundrað
manna hafa týnt lífi síðan forseta- og
þingkosningar voru haldnar í land-
inu á fimmtudag, en erlendir eft-
irlitsaðilar hafa lýst yfir áhyggjum
af því að ekki hafi verið rétt staðið að
atkvæðagreiðslunni.
Yfirkosningaráð Kenía úrskurðaði
á sunnudag að Mwai Kibaki hefði
borið sigurorð af Raila Odinga í for-
setakjörinu. Stuðningsmenn þess
síðarnefnda mótmæltu þeirri nið-
urstöðu kröftuglega á götum úti.
Styrjaldarástand hefur ríkt í ýms-
um borgum landsins, gripdeildir og
skemmdarverk verið tíð og fram-
gangur fylkinga forsetaframbjóð-
endanna tveggja einkennst af mikilli
grimmd og hörku.
Versta ofbeldið í aldarfjórðung
Ólgan í landinu er sú blóðugasta
síðan allt logaði í kjölfar misheppn-
aðrar valdaránstilraunar árið 1982
og hafa meðlimir Kikuyu-ættbálks-
ins, sem er á bandi Kibakis, farið
ránshendi um verslanir í fátækra-
hverfum höfuðborgarinnar Nairobi
og skilið eftir sig sviðna jörð í versl-
unum. Þá hefur fjöldi manna úr
næststærsta ættbálki landins, Luo,
sem Odinga tilheyrir, staðið fyrir of-
beldisverkum í landinu.
Rauði krossinn í Kenía áætlar að
um 70.000 manns hafi þurft að yfir-
gefa heimili sín vegna átakanna.
Er fjöldi fólks af Kikuyu-ætt-
bálknum sagður hafa flúið yfir
landamærin til Úganda.
Forsetaframbjóðandinn Odinga
hefur skorað á landsmenn sína að
láta af ofbeldinu, á sama tíma og
hann boðar fjöldamótmæli í Nairobi
á morgun, þar sem hann hyggst láta
krýna sig „forseta fólksins“.
Kibaki var endurkjörinn til fimm
ára og telja kosningaeftirlitsmenn
Evrópusambandsins að ekki hafi allt
verið með felldu við framkvæmdina.
Bretar hafa heitið því að beita sér
fyrir því að friður komist á í landinu,
sem hefur verið nefnt „afrískur tíg-
ur“ sökum góðs uppgangs þar.
Hafa stjórnvöld í Úganda hvatt til
eldsneytissparnaðar af ótta við skort
í nágrannaríkinu Kenía, sem það
reiðir sig á um olíuinnflutning.
Reuters
Ólga og ofbeldi Andstæðingar Kibakis safnast saman í Mombasa til að mótmæla úrskurði kosningaráðsins.
Blóðbað og gripdeildir í Kenía
Á fjórða hundrað hefur týnt lífi í árásum eftir umdeildar kosningar Minnst
þrjátíu kirkjugestir brunnu inni í bænum Eldoret Þúsundir flýja heimili sín
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÖLLUM brögðum er nú beitt fyrir
forkosningarnar í Iowa á morgun og
ef marka má kannanir er mjög erfitt
að spá um hvaða frambjóðendur
demókrata og repúblikana ná mestri
hylli kjósenda. Kjörið er einkar tví-
sýnt, Barack Obama og Hillary Clin-
ton hafa mest fylgi eftir því hvaða
könnun er valin, og á hinum vængn-
um er alls óvíst hvort Mitt Romney
fer með sigur af hólmi í Iowa.
Gríðarlegur áhugi er á kjörinu og
munu hátt á þriðja þúsund blaða-
menn saman komnir í Iowa.
Hjá demókrötum bendir flest til
einvígis Obama og Clinton sem bæði
hafa safnað 100 milljónum dala í
kosningasjóði. Kannanir um fylgi
þeirra í Iowa eru misvísandi.
Í könnun CNN er Clinton með
33%, Obama 31% og Johnathan
Edwards 22%. Skekkjumörk eru
sögð 4,5% og forskot Clinton er því
vart marktækt. Clinton er einnig
með forskot í könnun Zogby, þar
sem hún mælist með 30% fylgi, en
Obama með 26%.
Keating Holland, sem fer fyrir
könnun CNN, segir þetta benda til
að Edwards sé nú úr leik um fyrsta
sætið og að demókratar séu nú á
hallast á þá sveif að Clinton sé þeirra
frambjóðenda líklegust til afreka í
forsetakosningunum í ár.
Obama með örugga forystu?
Öðru máli gegnir í könnun dag-
blaðsins The Des Moines Register.
Þar er Obama sagður með örugga
forystu í Iowa með 32% fylgi, langt á
undan Clinton sem er með 25%, og
Edwards er með 24%. Nýir kjósend-
ur og áður óháðir eru sagðir skýra
fylgi Obama en í ljósi þess hversu
jafnt er á metunum segir Los Angel-
es Times frambjóðendurna leggja
allt kapp á að verða annar valkostur
kjósenda sem skipti um skoðun þeg-
ar fyrsti valkosturinn eigi ekki leng-
ur raunhæfa möguleika á sigri.
Byggist könnunin, sem var fram-
kvæmd 27. til 30. desember, á svör-
um um 800 stuðningsmanna líklegra
frambjóðenda úr röðum beggja
flokka og skekkjumörkin eru sögð
3,5%.
Að sögn AFP-fréttastofunnar er
mikið mark tekið á könnun blaðsins í
ríki þar sem einkar erfitt er að fram-
kvæma nákvæmar kannanir. Ráð-
gjafar Clinton gefa hins vegar lítið
fyrir könnunina og segja hana gera
of mikið úr vægi áður óháðra.
Tónninn orðinn neikvæður
Neikvæðar auglýsingaherferðir,
eitt aðalsmerki pólitískrar háspennu
í bandarískum stjórnmálum síðustu
ár, hafa skotið upp kollinum og þótti
repúblikaninn Mike Huckabee
skjóta yfir markið þegar hann sýndi
blaðamönnum auglýsingu um and-
stæðing sinn Romney, eftir að hafa
ákveðið að kippa henni úr umferð.
Leggja flokksbræðurnir, Hucka-
bee og Romney, mesta áherslu á for-
kosningarnar í Iowa og New Hamps-
hire af frambjóðendum repúblikana,
aðrir leggja áherslu á önnur ríki.
Dularfull símaskilaboð með nei-
kvæðum upplýsingum um þrjá
helstu frambjóðendur demókrata,
Obama, Clinton og Edwards, gefa
forsmekkinn af harðvítugri baráttu.
„Við megum ekki við stjórnmálum
óttans, sem leiða stjórnmálamenn að
þeirri niðurstöðu að eina leiðin til að
sýnast ákveðnir í öryggismálum sé
að kjósa, hegða sér og tala eins og
George W. Bush,“ sagði Obama og
beindi orðum sínum að Clinton.
Aukin harka þykir hafa færst í
ræður Obama, ekki síst eftir skeyti,
sem rakin eru til fylgismanna Clin-
ton, þar sem ýjað er að því að helsti
andstæðingur hennar eigi að baki
feril sem kókaínsali og kunni undir
niðri að vera róttækur íslamisti.
Samkvæmt þremur könnunum
hefur Romney náð forystunni á ný í
Iowa og eru efnaðir repúblikanar og
konur sagðar hafa snúist til Rom-
neys, sem hefur reynt að höfða til
síðarnefnda hópsins með áherslu á
samheldni fjölskyldu sinnar.
Á hinn bóginn mælist Huckabee
með 32% í Iowa í könnun The Des
Moines Register, Romney er með
26% og McCain með 13%
Huckabee kann því að vera með
pálmann í höndunum í Iowa.
Fylgið við Romney og McCain
mælist því sem næst jafnt í New
Hampshire þar sem kosið verður á
þriðjudaginn, eftir að sá síðarnefndi
hefur klifrað í könnunum.
Ekkert má því fara úrskeiðis hjá
Romney, sem hefur blásið til sóknar.
Í New Hampshire er dreift aug-
lýsingum þar sem skotið er á Mc-
Cain fyrir að hafa kosið gegn skatta-
lækkunum Bush. Í Michigan fór lið
Romneys fyrr af stað með sjónvarps-
auglýsingu en ráðgert var í varnar-
aðgerð ef allt skyldi fara úrskeiðis í
New Hampshire og Iowa. Í Iowa
miðla ráðgjafar Romneys óspart nei-
kvæðum fréttum um feril Hucka-
bees sem ríkisstjóra í Arkansas.
Minna ber á repúblikanum Rudy
Giuliani sem er sagður horfa til góðr-
ar útkomu í forkosningunum í Flór-
ída 29. janúar nk., áður en kosið
verður í mikilvægum ríkjum á borð
við Flórída og New York 5. febrúar.
McCain ku stóla á lokasprettinn í
Iowa fyrir kjörið á þriðjudaginn.
Taugar frambjóðenda þandar
fyrir forkosningarnar í Iowa
Obama og Clinton bæði með forskot í könnunum Romney blæs til sóknar
Í HNOTSKURN
»Helmingur líklegra kjósendarepúblikana í Iowa hefur enn
ekki gert upp hug sinn.
»Hjá demókrötum á um fjórðihver líklegur kjósandi eftir
að ákveða sig.
»Samkvæmt AP-fréttastof-unni hefur enginn frambjóð-
andi demókrata unnið bæði í
Iowa og New Hampshire í alvöru
forkosningum síðan 1976.
Hillary Clinton John EdwardsBarack Obama Mitt Romney Mike Huckabee John McCain
PAKISTANSKA innanríkisráðu-
neytið fullyrti í gær að ekkert væri
hæft í fréttum þess efnis að starfs-
fólk þess hefði dregið til baka þá
skýringu á dauða Benazir Bhutto
að hún hefði látist vegna höfuð-
höggs, eins og stjórnvöld hafa hald-
ið fram.
Tilkynnt verður í dag hvenær í
febrúarmánuði verður gengið til
kosninga í landinu. Áttu þær að
fara fram 8. janúar en var frestað
vegna morðsins á Bhutto og þeirrar
ólgu sem skapaðist í landinu á eftir.
Kosið í Pak-
istan í febrúar
ERINDREKI Bandaríkjastjórnar
særðist til ólífis í skotárás í Kharto-
um, Súdan, í gær. Ökumaður hans
lést einnig en ekki er vitað hver eða
hverjir stóðu að baki ódæðinu, en
þeir voru á leið frá fundi.
Tilræði í Súdan
MINNST 30 týndu lífi þegar sjálfs-
morðsárásarmaður sprengdi sig í
loft upp við jarðarför í Bagdad í
gær. Talið er að 32 hafi særst í
árásinni sem var gerð við útför her-
mannsins Nabil Hussein Jassim.
Árás í Bagdad
ÖKUMENN í Berlín, Köln og Hann-
over þurftu frá og með deginum í
gær að setja miða á bíla sína, rauða,
gula eða græna, eftir því hversu
mikið þeir menga. Í miðkjörnum
borganna þriggja verður ekki leyft
að aka farartækjum sem menga
umfram rauða litinn, en talið er að
bannið muni ná til um 1,7 milljóna
dísilbíla. Sama kerfi verður tekið
upp í 20 þýskum borgum síðar í ár,
þ.m.t. í Stuttgart og München.
Talið er að loftmengun eigi þátt í
dauða 75.000 Þjóðverja ár hvert.
Reykspúandi
bílum úthýst
SVO getur farið að Bretar verði
krafðir um að breyta lífsstíl sínum,
léttast eða hætta að reykja eigi þeir
að eiga rétt á læknismeðferð, skv.
nýrri sýn í heilbrigðismálum.
Þetta mátti lesa úr bréfi Gordons
Browns forsætisráðherra til bresku
heilbrigðisþjónustunnar, þar sem
áherslum fyrirrennara hans, Tonys
Blairs, í átt til einstaklingsmiðaðrar
læknisþjónustu er fylgt eftir.
Þegar hafa verið stigin skref í þá
átt í bresku heilbrigðisþjónustunni
að gera kröfu til sjúklinga um að
þeir hætti að reykja, eigi þeir að
komast á biðlista eftir aðgerðum.
Þá hafa ýmsir læknar fært rök
fyrir því, að neita megi of feitum
konum um tæknifrjóvgun.
Enn á eftir að skýrast hvernig
hugmyndirnar munu móta stefnuna
og hefur talsmaður sjúklinga lýst
yfir áhyggjum sínum af þróuninni.
AP
Á útleið Reykingar eru umdeildar.
Heilbrigt líf-
erni skilyrði?
STUTT