Morgunblaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNÍNA KRISTÍN VILHJÁLMSDÓTTIR,
Deildarási 1,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn
25. desember.
Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtu-
daginn 3. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vilhjálmur Örn Halldórsson, Svanfríður Ásgeirsdóttir,
Þröstur Sveinsson, Guðrún J. Eiríksdóttir,
Óla Laufey Sveinsdóttir,
Þorsteinn Sveinsson, Keelie Walker,
Jóna Denny Sveinsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR,
Hrísalundi 4 c,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
4. janúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heima-
hlynningu Akureyri.
Björn J. Jónsson, Halldóra Steindórsdóttir,
Sævar Ingi Jónsson, Elín Jóhanna Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Rósa Friðriksdóttir, Ólafur Halldórsson,
Atli Örn Jónsson, Arnfríður Eva Jónsdóttir,
Jón Már Jónsson, Unnur Elín Guðmundsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
Niculaj Sofus Berthelsen,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn
21. desember verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.00.
Sesselja P. Berthelsen,
Elísa Vilborg Berthelsen,
Björn Birgir Berthelsen,
Ástráður Berthelsen, Sigrún Oddgeirsdóttir,
Grímur Berthelsen, Birna Bjarnadóttir,
Sofus Berthelsen, Helga Halldórsdóttir,
Rannveig Berthelsen, Finnbogi Andersen,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ÓLAFÍA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Súlunesi 22,
Garðabæ,
sem lést föstudaginn 21. desember, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn
4. janúar kl. 11.00.
Sigurbjörg Þorvarðardóttir, Sólmundur Þ. Maríusson,
Sigurgeir Friðriksson, Kristín Anna Þorsteinsdóttir,
Ásta Friðriksdóttir, Sturla Geirsson,
Ólafur Þór Gunnarsson, Elínborg Bárðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON
frá Kollafjarðarnesi,
sem andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir þann 20.
desember s.l. verður jarðsunginn frá Fella- og
Hólakirkju fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.00.
Ágústa Eiríksdóttir,
Ragnheiður Magnúsdóttir, Sverrir Þórðarson,
Guðný Margrét Magnúsdóttir, Pétur R. Siguroddsson,
Ingibjörg Magnúsdóttir, Einar Pétursson,
Jón Gunnar Magnússon, Carmen Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Ég á margar góðar
minningar um Önnu
frænku. Ein sú
fyrsta er þegar hún
kom vestur á Flat-
eyri til að passa okk-
ur systkinin á meðan systir henn-
ar, móðir mín, fór á
fæðingardeildina. Hún gætti þess
ávallt að við hefðum nóg fyrir
stafni og gerði óvenjulega hluti
með okkur eins og til dæmis að slá
upp veislu þegar við krakkarnir
höfðum veitt kola við bryggjuna.
Anna Hatlemark
✝ Anna Hatle-mark fæddist í
Reykjavík 15. októ-
ber 1935. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 2. nóvember síð-
astliðinn og var
jarðsungin frá Nes-
kirkju 8. nóvember.
Seinna gisti ég oft
sem strákur hjá
Önnu og Ragnari í
Hraunbænum og
tuskaðist við strák-
ana þeirra, án þess
að Anna skipti skapi í
látunum. Hún hafði
þó ríka réttlætis-
kennd fyrir hönd
okkar krakkanna og
eitt sinn þegar við
vorum í góðu veðri að
leika okkur niður við
Elliðaárnar og lax-
veiðimenn vildu reka
okkur frá ánni, sagðist Anna bara
skyldu „pissa í ána“ ef þeir leyfðu
okkur ekki að leika í friði.
Ég dáðist ávallt að hugrekki
hennar og ákveðni ef gengið var á
hlut okkar og alltaf taldi hún í
okkur kjark og hvatti okkur
krakkana áfram.
Í minningunni var Anna alltaf
með myndavélina á lofti og stærst-
ur hluti ljósmynda úr minni æsku
er tekinn af Önnu frænku. Þegar
við Kristín giftum okkur krafðist
Anna þess að fá að taka brúð-
armyndirnar og gerði það vel eins
og henni einni var lagið. Auðvitað
var ekki við það komandi að fá að
greiða neitt fyrir frekar en venju-
lega hjá Önnu.
Eftir að við Kristín komum frá
námi og eignuðust börn, skruppum
við oft til Önnu og Ragnars á Nes-
inu og fengum ávallt kaffi og
skemmtilegar samræður um heima
og geima. Oft hittum við á þau í
bústaðnum við Selvatn en þangað
var yndislegt að koma og leyfa
krökkunum að veltast um í nátt-
úrunni. Anna tók alltaf vel á móti
okkur þó við kæmum óboðin og
fagnaði okkur eins og sínum eigin.
Ég samhryggist Ragnari og
frændsystkinum mínum og tek
þátt í söknuði þeirra af heilum
hug.
Hörður.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku amma, þessa bæn og fjölda
annarra bæna, kenndir þú okkur
systrunum, þegar við sem börn
gistum hjá þér afa í Vogunum, við
Guðríður Þórðardóttir
✝ Guðríður Þórð-ardóttir fæddist
í Sviðugörðum í
Gaulverjabæjar-
hreppi í Árnessýslu
15. maí 1923. Hún
lést á heimili sínu í
Vogum á Vatns-
leysuströnd þriðju-
daginn 18. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Kálfatjarn-
arkirkju á Vatns-
leysuströnd 27. des-
ember.
eigum þér okkar
barnatrú að þakka.
Þú sagðir okkur
sögur um álfa og tröll,
söngst fyrir okkur
vísur og last fyrir
okkur ævintýri.
Það var svo nota-
legt að vakna þar upp
á morgnana, þegar
stóra stofuklukkan
sló, við renndum okk-
ur niður handriðið og
hlupum inn í stofu. Þú
varst auðvitað löngu
vöknuð og sast þar og
prjónaðir. Á stofuborðinu lá púslu-
spil með 1000 bitum. Það var svo
spennandi að leita af tölunum í
púslið en þú varst búin að merkja
það allt með tölustöfum.
Síðan sagðir þú okkur að skokka
út í búð með rauðu budduna og við
máttum velja okkur morgunkorn.
Alltaf var komið með Trix til baka,
en það var munaður sem við feng-
um bara hjá Gauju ömmu.
Æska okkar er full af ljúfum og
skemmtilegum minningum um þig.
Það voru ófáir bíltúrarnir og úti-
legurnar sem við fórum í með ykk-
ur afa og þú þekktir hverja þúfu
með nafni. Einnig fórum við með
ykkur í berjamó og kartöflugarðinn
og þá tókst þú heitt kakó og nesti
með.
Frá því við munum eftir okkur
sem börn var farið í sunnudagskaffi
til ykkar í Vogana þar sem ættingj-
arnir komu saman.
Þú varst ótrúlega orkumikil, dug-
leg og ósérhlífin kona og barðist
hetjulega allt þar til yfir lauk.
Elsku besta amma, við kveðjum
þig frá þessu lífi með sárum sökn-
uði en þú munt lifa í hugum okkar
og hjörtum. Við efumst ekki eitt
andartak um að nú hefur þú hitt
Sigga frænda.
Við biðjum Guð um að vera með
honum afa og veita honum styrk og
huggun í sorg sinni og söknuði.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft-
ur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran)
Hafdís og Sigrún Hill.
Nú andar næturblær um
bláa voga.
Við bleikan himin daprar
stjörnur loga.
Og þar sem forðum vor í sefi söng
nú svífur vetrarnóttin dimm og löng.
Svo undarlega allir hlutir breytast.
Hve árin skipta svip og hjörtun þreytast.
Hve snemma daprast vorsins vígða bál.
Hve vínið dofnar ört á tímans skál.
Svo skamma stundu æskan okkur treindist.
Svo illa vorum draumum lífið reyndist.
Árni Hilmar Holm
✝ Árni HilmarHolm fæddist á
Akureyri 22. nóv-
ember 1930. Hann
andaðist á heimi
sínu á Selfossi 4.
desember síðastlið-
inn og var útför
hans gerð frá Sel-
fosskirkju 14. des-
ember.
Senn göngum við sem gestir
um þá slóð,
sem geymir bernsku vorrar
draumaljóð.
Og innan skamms við
yfirgefum leikinn.
Ný æska gengur sigurdjörf
og hreykin,
af sömu blekking blind, í
okkar spor.
Og brátt er gleymt við áttum
líka vor.
Og þannig skal um eilíf
áfram haldið,
unz einhverntíma fellur
hinzta tjaldið.
(Tómas
Guðmundsson.)
Elsku Árni „pabbi“, langar að
kveðja þig með þessu kvæði eftir
Tómas Guðmundsson. Guð geymi
þig.
Þín
Sigurlaug.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minningar-
greinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningargreinar