Morgunblaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 9
FRÉTTIR
Enskuskóli Erlu Ara
Auglýsir enskunám í Hafnarfirði
• 10 getustig með áherslu á tal
• Styrkt af starfsmenntasjóðum
Skráning stendur yfir í síma 891 7576 og erlaara@simnet.is
Sumarið 2008 eru fyrirhugaðar námsferðir til Englands
Sjá nánar um starfsemi skólans á www.enskafyriralla.is
Útsala
Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00
laugardaga kl. 11.00-16.00 – LOKAÐ gamlársdag
www.friendtex.is Faxafen 10 sími 568 2870
2 fyrir 1
af öllum
Blazer jökkum
fyrir áramót
Komið og gerið
frábær kaup
Lokað
í dag
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerkjum hinnar
íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum á nýársdag.
Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri hlaut stór-
riddarakross fyrir störf í opinbera þágu, aðrir
hlutu riddarakross.
Þeir sem orðuna hlutu eru: Bjarni Ásgeir Frið-
riksson, íþróttamaður og ólympíuverðlaunahafi,
fyrir íþróttaafrek og framlag til íþróttafræðslu.
Björgvin Magnússon, fyrrv. skólastjóri, fyrir störf
í þágu skátahreyfingar og æskulýðs. Erlingur
Gíslason leikari fyrir framlag til íslenskrar leik-
listar og menningar. Inga Lára Baldvinsdóttir
sagnfræðingur fyrir framlag til íslenskrar ljós-
myndasögu og varðveislu menningararfleifðar.
Ingibjörg Þorbergs tónskáld fyrir framlag til ís-
lenskrar tónlistar. Margrét Eybjörg Margeirs-
dóttir félagsráðgjafi fyrir störf að félags- og vel-
ferðarmálum.Ólafur Elíasson myndlistarmaður
fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar mynd-
listar. Sigríður Pétursdóttir bóndi fyrir störf að
ræktun íslenska fjárhundsins. Sigrún Eldjárn, rit-
höfundur og myndlistarmaður, fyrir framlag til
íslenskrar barnamenningar. Þórir Stephensen,
fyrrv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey,
fyrir störf í þágu kirkju, sögu og samfélags.
Morgunblaðið/Kristinn
Forseti Íslands sæmdi ellefu heiðursmerkjum
TÖLUVERÐUR eldur kom upp í
hálfkláruðu húsnæði í Vallahverfi í
Hafnarfirði á öðrum tímanum í gær
og eru skemmdir töluverðar. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu
voru tveir ungir piltar að fikta með
flugelda inni í húsinu sem leiddi til
eldsvoðans. Slökkvistarf gekk greið-
lega.
Á annan tug útkalla bárust
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á
nýársnótt. Flest voru útköllin vegna
íkveikja í blaðagámum og ruslaföt-
um en einnig var eldur borinn að
stæðu af vörubrettum fyrir utan iðn-
aðarhúsnæði í Garðabæ og myndað-
ist þar mikill eldur. Þá varð talsvert
tjón á bifreiðum og tjaldvögnum sök-
um eldsvoða í geymslu inni af bíla-
geymslu í Álakvísl í Reykjavík á
fimmta tímanum. Skemmdirnar
urðu vegna sóts og reyks. Ekki ligg-
ur fyrir hvernig eldurinn kviknaði og
er málið í rannsókn.
Ljósmynd/Jón Þrastarson
Vörubretti brunnu Eldur var borinn að vörubrettum sem stóðu utan við iðnaðarhúsnæði í Garðabæ. Töluvert bál
myndaðist en greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Fikt leiddi
til eldsvoða
HJÁLPARSVEIT skáta í Kópavogi
var kölluð út um miðjan dag í gær
vegna vélarvana smábáts úti fyrir
Kársnesi, um þrjú hundruð metra
NV af Kársnesi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Landsbjörg bilaði gír í
bátnum með fyrrgreindum afleið-
ingum. Einn maður var um borð.
Hjálparsveitin fór á björg-
unarbátnum Stefni og gekk vel að
draga hinn bilaða bát aftur til hafn-
ar.
Drógu bát
til hafnar