Morgunblaðið - 02.01.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 15
Hér fer á eftir predikun Karls Sig-
urbjörnssonar biskups sem flutt var
í Dómkirkjunni í Reykjavík á nýárs-
dag. Fyrirsagnir eru Morgunblaðs-
ins.
Gleðilegt nýtt ár í Jesú nafni! Vel-
komið, herrans ár 2008, sælt og bless-
að veri það og allt sem það færir að
höndum. Drottins Jesú ljós og andi
leiði og blessi land og lýð og okkur
hvert og eitt.
Í ljóðabók sinni, „Fyrir kvölddyr-
um“, lýsir Hannes Pétursson skáld
einkar vel tilfinningu manns við ára-
mót og dregur upp sterka mynd:
„Sá friður sem við þráum
festir ekki rætur í heiminum.
Sviði úrræðaleysis smýgur
inn í smæstu bein okkar, því að
enn fossa tímarnir
fram af hvassri brún:
flyksur blóðs og vopna.“
Á áramótum er sem við nemum
staðar andartak og störum í straum-
fall tímanna sem fossa fram og hrífa
allt með sér. En við megum líta það í
birtu helgra jóla, við eilífðarlagið og
gleðisönginn. Sú birta og þau boð
sem jólin bera heiminum öllum, eru
birta og boðskapur vonarinnar, and-
spænis fossaföllum tímanna og sviða
úrræðaleysisins.
* * *
Í jólapökkum margra um þessi jól
var Biblían, hin nýja og fagra útgáfa
bókarinnar helgu, Biblíu 21. aldar.
Hin nýja útgáfa hefur vakið umtal og
gagnrýni. Er það vel, Biblían á það
skilið, og allt orkar tvímælis þegar
leitast er við að umorða fornhelga
texta. Biblían þolir líka að hún sé
brotin til mergjar, já, og sett undir
smásjá vísindanna. Þeim er reyndar
ætlað að efast um allt og leita svara
út frá sínum forsendum. Fræði-
mennska sem ekki er gagnrýnin er
gagnslaus, best er þó þegar hún er
gagnrýnin á eigin árangur og for-
sendur. Raunvísindin eru mesta and-
lega afrek Vesturlanda, ásamt lýð-
ræðinu. Boðskapur Biblíunnar, von
og trú, guðsmynd, mannskilningur og
samfélagssýn, við birtu jólanna og
ljóma páskanna og sólglit hvítasunn-
unnar, hann hefur verið sú deigla og
áhrifahvati sem gerði þau afrek yf-
irhöfuð möguleg. Biblían er lifandi
orð á mannamáli í umhverfi mann-
legrar reynslu og sögu. Mestu varðar
að hlusta eftir röddinni sem býr að
baki orðum og frásögnum Biblíunnar.
Sú rödd er einatt lágmælt og mild í
skarkala heimsins. Varnarlaus eins
og lítið barn. Biblían er eins og jatan,
sem Jesúbarnið var lagt í. Við komum
ekki þar að til að skrúfa jötuna sund-
ur, skoða efniviðinn, samsetninguna,
fóðurgildi töðunnar og hálmsins sem í
jötunni er, – þótt það geti út af fyrir
sig verið áhugavert – heldur til að sjá
barnið og lúta því, barninu sem þar
hvílir og brosir við okkur og biður
okkur að gefa sér skjól. Þannig er
Biblían. Jesús Kristur er orðið sem
varð hold, hið eilífa orð holdi klætt,
mannlífi, mannamáli, mannlegri
reynslu. Allur boðskapur Biblíunnar
bendir fram til hans. Í ljósi hans meg-
um við lesa og túlka og leita leiðsagn-
ar um líf og breytni, og sjá í honum, í
jötunni hans lágu og krossinum á
Golgata, og gröfinni tómu, mynstur
og merkingu lífs og heims. Og hann
helgar lífið allt, mannlíf, sköpun, nátt-
úru, allt. Og við erum hvött til að leit-
ast við að láta orðið verða hold í okk-
ur, birtast í okkar lífi, gildismati,
draumum og vonum, viðmóti og
breytni. Í niðurlagi jólaguðspjallsins
er sagt um Maríu, Guðs móður; „hún
geymdi allt þetta og hugleiddi það“.
Gerðu eins og María, leggðu orðið
þér á hjarta, hugleið það í kærleika,
leitastu við að lifa eftir innsæi þínu,
trú og skynsemi, von og kærleika. Þá
er Biblían þér gluggi inn í himin
Guðs. Og hann heldur styrkri hendi
um heiminn, fossaföll tímanna, og tár
og sviða sinna barna.
Í einni af mestu skáldsögum 20.
aldar, Dr. Sívagó eftir Boris Paster-
nak, segir hann: „Allt sem okkur er
mikilvægast er okkur gefið í guð-
spjöllunum … Fyrst, náungakærleik-
urinn – æðsta form lífsaflsins. Jafn-
skjótt sem það fyllir hjarta manns
hlýtur það að fljóta yfir og gefa af sér
til góðs. Og í öðru lagi, þau tvö hugtök
sem eru meginþættir í mannskilningi
nútímamannsins, – og án þeirra væri
hann óskiljanlegur – það er hug-
myndin um frelsi einstaklingsins, og
um lífið sem fórn.“ Hann er að tala
um kristið siðgæði. Kristið siðgæði.
Söguna skrifaði Pasternak mitt í
martröð Stalínismans. Enn og aftur
snýr söguhetjan aftur til sjónsviðs
hinnar kristnu lífssýnar, sem veitir
honum þrek og þrótt til að standa
gegn áþján alræðisins. Hin kristna
frásögn var uppspretta undrunar,
vonar og kjarks. Með fæðingu frels-
arans urðu vatnaskil, segir Paster-
nak: „Eitthvað hafði breyst í veröld-
inni … Saga manns varð saga Guðs
og fyllti alheiminn.“ Engin stefnu-
mörkun hefur reynst mannkyni betur
en sú sem hann setti fram, meist-
arinn, sem fæddist í Betlehem, Krist-
ur Jesús. Hann setur ekki aðeins
fram boð og viðmið, heldur lækning
miskunnseminnar, umhyggjunnar og
fyrirgefningarinnar sem er grund-
völlur frelsis og friðar.
Herstöð ummyndast
í háskólasamfélag
Í Gamla testamentinu eru fögur og
áleitin fyrirheit og framtíðarsýn um
það sem verður þegar áhrif barnsins
frá Betlehem, friðarhöfðingjans, ná
yfirhöndinni: „Drottinn mun dæma
meðal lýðanna og skera úr málum
margra þjóða. Og þær munu smíða
plógjárn úr sverðum sínum og sniðla
úr spjótum sínum. Engin þjóð skal
sverð reiða að annarri þjóð og ekki
skulu þær temja sér hernað framar.“
Þessi orð Jesaja spámanns eru letruð
á vegg aðalstöðva Sameinuðu þjóð-
anna í New York. Nú finnst manni
sem það sé að rætast hér suður á
Keflavíkurflugvelli þar sem herstöð
er að ummyndast í háskólasamfélag.
Það gefur vonir fyrir íslenskt sam-
félag, og er tákn og áminning til
heimsins alls, þar sem hermdarverk
og illvirki ráða allt of víða ferðinni,
friðurinn er á flótta, og „flyksur blóðs
og vopna“ lita fossaföll tímanna. En
það er þó von. Hér og þar má sjá vott
þess. Mér varð hugsað til þess er ég
las nýverið frásögn af því hvernig eld-
flaugabyrgjum var breytt í kirkjur.
Það var um það bil er Sovétríkin liðu
undir lok að söfnuður kristinna
manna í borg einni í Hvíta-Rússlandi
fékk eftir margra ára þrautagöngu
um kerfið leyfi yfirvalda til að reisa
sér kirkju. Vegna skorts á bygging-
arefni sýndu yfirvöld óvænt örlæti.
Þau buðu söfnuðinum að rífa her-
búðir og eldflaugabyrgi í héraðinu og
nýta múrsteinana til kirkjubygging-
arinnar. Þegar hafist var handa upp-
götvuðu menn sprengjuhylki í einum
veggnum. Því hafði verið komið
þarna fyrir þegar þessi mannvirki
óttans og ógnarinnar voru reist hálfri
öld fyrr. Í hylkinu var svohljóðandi
bréf: „Þessir múrsteinar koma úr
kaþólskum og orþódox helgidómum
sem voru brotnir niður. Verði her-
stöðin nokkurn tíma rifin biðjum við
þess að múrsteinarnir verði aftur not-
aðir til að reisa kirkjur.“ Kirkjurnar
sem nefndar voru höfðu verið rifnar
undir ógnarstjórn Stalíns. Þá skyldi
endanlega gengið milli bols og höfuðs
á trú og kirkju í nafni sögulegrar
nauðsynjar, nútímaþekkingar og vís-
indalegrar efnishyggju, sem nú
skyldi móta þjóðfélagið allt. Í and-
rúmslofti þeirra tíma var slík ósk sem
sett var fram í bréfinu fráleit, hlægi-
leg og barnaleg, já og refsiverð. En
eins og sagt er þá malar kvörn Guðs
hægt en örugglega, og hann nær
fram markmiðum sínum um frið á
jörðu og í hjörtum mannanna. Kristin
trú stendur djúpum rótum í íslenskri
þjóðarsál og samfélagi. Enn lítur fólk
til kirkjunnar á stórum stundum lífs
síns. Enn býr Guð sér helgidóm í
hjörtum þeirra sem ljúka upp fyrir
ljósi hans og anda og leggja fagnaðar-
erindi hans sér að hjarta.
* * *
Sameinuðu þjóðirnar hafa nefnt
árið 2008 alþjóðaár tungumálsins, til
að stuðla að auknum skilningi milli
þjóða og styðja við tungumál sem eru
í útrýmingarhættu. Mikilvægt um-
hugsunarefni okkur Íslendingum,
sem megum vera svo stoltir af tungu
okkar og samhengi hennar. Í því
sambandi skal minnt á að á þessu ári
eru liðnar átta aldir frá dauða Kol-
beins Tumasonar, en hann lést hinn
8. september 1208 af sárum þeim er
hann hlaut í Víðinesbardaga. Sálmur
hans, „Heyr, himna smiður“, er eitt-
hvert fegursta trúarljóð bókmennt-
anna, og verður sunginn hér á eftir.
Það er elsti sálmur á Norðurlöndum,
og einhver yndislegasti og vinsælasti
sálmur íslensku kirkjunnar, sunginn í
guðsþjónustum, við útfarir, og hvers-
kyns helgihald hér á landi árið um
kring. Er það ekki ótrúlegt, og und-
ursamlegt, að við skulum syngja átta
hundruð ára gamlan sálm okkur til
gleði og uppbyggingar? Það er efa-
laust elsti sálmur sem sunginn er
með óbreyttum texta á lifandi tungu-
máli í heiminum! Öll, ung sem og
gömul, getum við sagt, og beðið með
Kolbeini þótt átta aldir skilji að:
Gæt, mildingur, mín,
mest þurfum þín
helst hverja stund á hölda grund.
Set, meyjar mögur,
máls efni fögur,
öll er hjálp af þér,
í hjarta mér.
Þvílíkur fjársjóður er það sem við
eigum í íslenskri tungu! Enga orku-
lind eigum við öflugri, enga auðs-
uppsprettu dýrmætari. Og hvílík
ábyrgð sem á okkur hvílir að sjá til
þess að þessi arfur glatist ekki heldur
ávaxtist með uppvaxandi kynslóð í
landinu. Sjáum til þess að börnin læri
ljóðin, og sálmana, sögurnar og
söngvana sem leggja þeim orð á
tungu og hjörtu, orðin sem tjá ís-
lenska hugsun og íslenska reynslu og
íslenska von og trú. Og gætum að af
hvaða rótum þetta er nú sprottið.
Viljum byggja á umburðarlyndi,
jafnrétti, umhyggju og lýðræði
Hvaða grunngildum viljum við
byggja á og greiða veg í menningu og
samfélagi? Sú mikilvæga spurning
hefur góðu heilli verið talsvert rædd
undanfarið. Mér virðist sem við séum
flest sammála um að vilja byggja á
umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræði,
umhyggju og virðingu fyrir mann-
gildi, eins og sett er fram í mark-
miðsgrein frumvarps til nýrra laga
um skólana. Þetta eru góð og eft-
irsóknarverð verðmæti sem við vilj-
um lifa eftir og láta móta samfélag
okkar, uppeldi, menntun og menn-
ingu. En þau eru ekki sjálfsprottin af
einhverri sögulegri nauðsyn eða þró-
un. Þau spretta úr jarðvegi trúar og
siðar. Þeim hefur hingað til verið
miðlað með hinum þjóðlega, kristna,
húmaníska menningararfi sem hér
hefur ávaxtast kynslóð eftir kynslóð
og kristin kirkja hefur nært og
frjóvgað. Siðurinn, sem tengir kyn-
slóðir, einstaklinga, fjölskyldur og
gefur lífi þeirra andlega merkingu,
vitund fyrir samhengi sem er æðra og
stærra, sem tók við okkur þegar við
litum dagsins ljós og mun bera okkur
út þegar lífsleið lýkur. PISA-
könnunin sýnir fram á að lesskilningi
sé ábótavant hjá íslenskum grunn-
skólabörnum. Það er alvarlegt ef
börnin okkar rofna úr tengslum við
þjóðararfinn, bókmenntir okkar og
ljóð. Því skal ítreka hve háskasamt
það er ef kynslóðir vaxa úr grasi
skilningsvana og ólæsar á þann
grundvallarþátt menningar og sam-
félags sem trúin er og siðurinn. Það
er brýnt að stórefla þátt kristinfræði í
skólunum, jafnframt aukinni fræðslu
í almennum trúarbragðafræðum.
Nú munu flestir orðnir sammála
um að gróðurhúsaáhrifin og hlýnun
andrúmsloftsins ógni lífi og framtíð,
ragnarök af mannavöldum. Biblíu-
sögurnar um syndafallið, Nóaflóðið
og dómsdag fá athygliverða sam-
svörun í orðræðu vísindamanna og
stjórnmálamanna dagsins. Hverju
eigum við að trúa, hvernig eigum við
að breyta og hvað megum við vona?
Það er eins og við séum öll meira og
minna háð túlkunarkerfum óttans og
tortryggninnar í samtíðinni. Sviði úr-
ræðaleysisins smýgur inn í smæstu
bein okkar. Eflaust vildum við öll
gera allt sem í okkar valdi stendur til
að bjarga jörðinni, – nema þá að
breyta lífsháttum okkar. Það er nú
meinið. Hvað fær okkur líka til þess
ef ekkert viðmið er æðra og meira en
það sem hentar mér, sem ég get
hagnast á eða sloppið billegast frá?
Ef ekki er um að ræða neina siðferð-
islega ábyrgð gagnvart því samhengi
sem er manni æðra? Það er alveg
áreiðanlegt að ef mælikvarði þess
hvað er gott, satt, rétt og heilt er að-
eins fólginn í niðurstöðum skoð-
anakannana eða samsinni við þann
sem hæst lætur og best borgar, þá
tekur uppblásturinn við, þá er fram-
tíð lífsins fyrst í voða, þá er fokið í
skjólin fyrir hið varnalausa og
snauða.
Tökum eftir því að hinar fornu sög-
ur og túlkunarlyklar Biblíunnar boða
VON, vegna þess að framtíðin, lausn-
in, hjálpræðið er í hendi Guðs, hins
góða Guðs, sem er að verki til að
bjarga, frelsa líf og heim og kallar á
þig og mig til fylgdar. „Í hendi Guðs
er hver ein tíð, í hendi hans er allt
vort stríð, hið minnsta happ, hið
mesta fár, hið mikla djúp, hið litla
tár“ syngjum við á áramótum, og
biðjum „… í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn, svo allri
synd ég hafni.“ Svona tekur móðir
okkar kirkjan sér við hönd, leggur
okkur orð á tungu sem beina hugar-
og sálarsjónum til birtu vonar og lífs-
þróttar.
Hinn óþægilegi sannleikur sem við
blasir heiminum öllum er að við þurf-
um öll að gera iðrun, snúa við af
óheillabraut. Við þurfum öll að leggja
okkar af mörkum til varnar lífinu, og
taka höndum saman um að rækta og
móta viðhorf og menningu hófsemi,
virðingar, vonar og trausts til að frið-
urinn sem við þráum festi rætur í
heiminum.
Barnið í jötunni, frelsarinn kross-
festi og upprisni, réttir okkur hönd
sína að morgni ársins nýja. „Himinn
og jörð munu líða undir lok en orð
mín munu aldrei undir lok líða,“ segir
hann. Trúum á hann, treystum hon-
um. Leyfum orðinu hans að festa
rætur í hjörtum okkar og bera ávöxt í
lífi okkar og endurskapa þennan
heim. Það er hans þrá og von. Megi
hún rætast á okkur.
Nýárspredikun Karls Sigurbjörnssonar biskups
„Allt orkar tvímælis þegar leitast
er við að umorða fornhelga texta“
Morgunblaðið/Golli