Morgunblaðið - 02.01.2008, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
www.utflutningsrad.is www.utn.stjr.is
Sendiherrar Íslands
í Berlín og Peking
verða til viðtals í janúar sem hér segir:
Berlín – Ólafur Davíðsson, sendiherra,
fimmtudaginn 3. janúar.
Auk Þýskalands er umdæmi sendiráðsins Búlgaría, Króatía og Pólland.
Peking – Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra,
fimmtudaginn 10. janúar.
Auk Kína er umdæmi sendiráðsins Ástralía, Kambódía, Laos, Mongólía,
Norður-Kórea, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Víetnam.
Fundirnir eru ætlaðir fyrir tækjum sem vilja ræða viðskiptamöguleika,
menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmum
sendiráðanna, þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Þau fyrir tæki sem hafa hug á að bóka viðtöl eru hvött til að gera það
sem fyrst, í síma 511 4000 eða hjá utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs, Borgartúni 35.
Nánari upplýsingar veita:
Svanhvít Aðalsteinsdóttir, svanhvit@utflutningsrad.is
og Andri Marteinsson, andri@utflutningsrad.is.
P
IPA
R
• S
ÍA
• 7259
0
ÞETTA HELST ...
● SÍÐUSTU hindruninni fyrir sam-
runa norrænu kauphallarinnar
OMX og Nasdaq, sem m.a. rekur
samnefnda kauphöll í Bandaríkj-
unum, hefur verið hrint úr vegi. CI-
FUS, nefnd sem samþykkja þarf
vissar erlendar fjárfestingar í
Bandaríkjunum, hefur lagt blessun
sína yfir samrunann að sögn Blo-
omberg News.
Ástæða þess að CIFUS þurfti að
taka samrunann til skoðunar er sú
að Borse Dubai, eignarhaldsfélag í
eigu emírsins í Dubai, verður í kjöl-
farið stór hluthafi í Nasdaq.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu gerði Nasdaq yf-
irtökutilboð í OMX á fyrri hluta síð-
asta árs og skömmu síðar gerði
Borse Dubai samkeppnistilboð í
norrænu kauphöllina. Aðilarnir
náðu síðan samkomulagi um að
Borse Dubai kaupi OMX og leggi
félagið síðan inn í Nasdaq sem
greiðir fyrir með 20% hlut í sjálfu
sér.
Í kjölfar þess að CIFUS hefur
gefið grænt ljós dregur Nasdaq til-
boð sitt í OMX formlega til baka.
Síðasta ljónið
úr veginum
● TÉKKNESKT dótturfyrirtæki Cre-
didinfo Group, Creditinfo Solutions,
hefur gert samning um sölu á hug-
búnaði og ráðgjöf til Íran. Kaupandi
er Iran Credit Scoring, ICS, en það er
fyrirtæki í sameiginlegri eigu sextán
helstu banka landsins. Samkvæmt
tilkynningu er um að ræða hugbúnað
og þekkingu til að halda utan um fjár-
hagsupplýsingar einstaklinga og
fyrirtækja. Creditinfo hefur innleitt
svipuð kerfi í löndum þar sem félagið
er sjálft með starfsemi, auk þess að
hafa í nokkrum tilfellum selt hug-
búnað án þess að taka þátt í viðkom-
andi starfsemi með eignaraðild.
Hvað varðar Íran segir í tilkynning-
unni að með hliðsjón af því um hve
áhættusaman markað sé að ræða
hafi sú leið verið valin að selja þekk-
ingu Creditinfo án þess að koma að
rekstri ICS á annan hátt.
Íranska fyrirtækið stefnir að því að
hleypa af stokkunum alhliða lána-
upplýsingaþjónustu á síðari hluta
næsta árs, með upplýsingum um
bæði fyrirtæki og einstaklinga.
Creditinfo Group rekur Lánstraust
og Fjölmiðlavaktina hér á landi.
Creditinfo gerir
samning í Íran
EIMSKIP hefur nú losað sig end-
anlega út úr flugtengdum rekstri
eftir að félagið seldi 49% hlut sinn í
Northern Lights Leasins, sem á
flugflota flugfélagsins Air Atlanta –
sem telur 13 breiðþotur. Kaupandi
er félagið AAI Holding ehf. sem er í
eigu Hannesar Hilmarsson, for-
stjóra Air Atlanta, og Geirs Vals
Ágústssonar, fjármálastjóra Air Atl-
anta, og er söluverðið 22 milljónir
evra, jafngildi um tveggja milljarða
króna.
Í fréttatilkynningu frá Eimskip
segir að í kjölfar sölunnar muni
stjórnendur félagsins „einbeita sér
að meginstarfsemi félagsins sem eru
flutningar og rekstur á kæli- og
frystigeymslum. Eimskip hefur vax-
ið mjög hratt og hefur tífaldað um-
svif sín á þremur árum. Félagið hef-
ur nú 13% markaðshlutdeild á
heimsvísu á þessu sviði.“
Haft er eftir Baldri Guðnasyni,
forstjóra Eimskips, að salan sé stór
áfangi.
Morgunblaðið/Ásdís
Selt Air Atlanta er ekki lengur hluti af Eimskip.
Eimskip losar sig
við flugrekstur
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
BANDARÍKIN gætu vel verið á
leið inn í efnahagslega niður-
sveiflu. Þetta segir Robert Shiller,
prófessor í hagfræði við Yale-há-
skólann. Enska blaðið Times hefur
eftir Shiller að tapið vegna krepp-
unnar á bandarískum fasteigna-
markaði gæti þrefaldast á næstu
árum og er það helsta ógnin við
hagvöxt í Bandaríkjunum.
Eins og staðan er nú er ekki úti-
lokað, það er meira að segja vel
mögulegt, að Bandaríkin lendi í
niðursveiflu af þeirri tegund sem
hrjáð hefur japanska hagkerfið allt
síðan um miðjan 10. áratug síðustu
aldar.
Sú niðursveifla hefur einkennst
af almennri verðhjöðnun, ekki síst
hjöðnun á fasteignaverði, sem síð-
an hefur dregið máttinn úr öðrum
hagvaxtardrífandi þáttum.
Verðlagt inn
í framvirka samninga
„Verðmæti fasteigna í Banda-
ríkjunum hefur þegar rýrnað um
nær 1.000 milljarða dala. Það get-
ur auðveldlega þrefaldast á næstu
árum. Þetta er mun meira mál en
þær hremmingar sem orðið hafa
vegna ótryggra veðlána. Við erum
að tala um mörg þúsund milljarða
dala tap,“ segir Shiller, sem er af-
ar virtur meðal hagfræðinga og er
einn höfunda S&P Case/Shiller-
fasteignaverðsvísitölunnar. Sú vísi-
tala hefur einmitt gefið til kynna
að fasteignaverð vestanhafs muni
lækka um 14% á næstunni; til
skamms tíma hefur markaðurinn
þegar verðlagt það inn í framvirka
samninga.
„Framvirkir samningar benda
til 35% lækkunar á næstu fimm ár-
um á sumum svæðum, svo sem
Flórída, Kaliforníu og Las Vegas.
Það er vel hugsanlegt að þessi
fasteignaniðursveifla muni halda
áfram í nokkur ár,“ segir Shiller
og bætir því við að þess séu greini-
leg merki að bóla sé að springa.
„Fyrir nokkrum árum hækkaði
fasteignaverð mikið vegna vænt-
inga fjárfesta. Bandaríkjamenn
hafa ýtt undir goðsögnina um að
verð muni aldrei falla, að það geti
bara farið upp. Fólk trúði sögunni
og nú er töluverð hætta á djúpri
niðursveiflu,“ segir Shiller og
bendir á að í upphafi síðasta árs
hafi verið teikn á lofti um að í ein-
hverjum fylkja Bandaríkjanna
væri verð á uppleið á nýju, en það
hafi verið tálvonir.
Áhrifanna gætir víða
Eins og fram hefur komið á und-
anförnum vikum og mánuðum hef-
ur ástandið á bandarískum hús-
næðismarkaði, þá sér í lagi því
húsnæði sem fjármagnað hefur
verið með ótryggum veðlánum,
smitað af sér í aðra hluta fjár-
málakerfisins og ekki einangrast
við Bandaríkin.
Mikið fall á öllum helstu hluta-
bréfavísitölum heimsins á síðari
hluta ársins sem um leið má rekja
til lánakreppunnar svokölluðu
enda hefur aðgangur að lánsfé ver-
ið mjög heftur og fjármálastofn-
anir gengið hart fram í svoköll-
uðum veðköllum víða um heim.
Ísland er þar engin undantekning.
Hér lækkaði úrvalsvísitalan um-
talsvert á síðari hluta ársins og
hugtakið veðkall komst á allra var-
ir.
Bandaríkin á leið inn í
efnahagslega niðursveiflu
Prófessor við Yale segir tapið á fasteignamarkaði geta þrefaldast
Verð lækkað Eins og sjá má á þessu skilti í Portland í Oregon-fylki Bandaríkjanna hefur fasteignasalinn gripið til
þess ráðs að reyna að lækka verð á húsinu sem er til sölu. Fasteignasala þar í landi hefur gengið treglega.
Reuters
Í HNOTSKURN
»Verðhjöðnun getur komiðsér mjög illa fyrir efnahags-
lífið.
»Verðbólga er hvati til neysluen verðhjöðnun letur til
neyslu.
»Neytendur bíða þess einfald-lega að verð lækki og draga
þannig úr virkni í hagkerfinu.
Þetta hefur hrjáð Japan.
»Bandaríkin eru enn mik-ilvægasta hagkerfi heimsins
og því gæti verðhjöðnunarskeið
þar í landi haft mjög neikvæð
áhrif á heimshagkerfið.
AGNAR Hansson hefur verið ráðinn
nýr bankastjóri Icebank, sem eitt
sinn hét Sparisjóðabanki Íslands, í
kjölfar þess að samkomulag náðist
um starfslok Finns Sveinbjörns-
sonar. Skv.
fréttatilkynningu
frá Icebank hefur
Finnur gegnt
starfinu frá árinu
2002 og leitt
bankann í gegn-
um mikið um-
breytingarferli.
„Umsvif bankans
hafa vaxið veru-
lega undir stjórn Finns. Í árslok
2001 námu heildareignir hans 54
milljörðum króna en í árslok 2007 er
áætlað að heildareignir verði liðlega
200 milljarðar króna. Ennfremur
hefur hlutverk bankans sem þjón-
ustubanka sparisjóðanna verið út-
víkkað, honum fengin ný verkefni
m.a. á sviði fjárfestingarbanka-
starfsemi og fyrirtækjaráðgjafar,“
segir í tilkynningunni.
Þar segir jafnframt að hinn ný-
ráðni bankastjóri hafi undanfarin
tvö ár starfað sem framkvæmda-
stjóri fjárstýringar bankans auk
þess að hafa meira en áratugar
reynslu af störfum innan fjár-
málageirans.
Mannabreyt-
ingar í brúnni
hjá Icebank
Agnar Hansson