Morgunblaðið - 02.01.2008, Page 37
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 37
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, leik-
fimi, postulínsmálning, göngu-
hópur.
Félagsheimilið Gjábakki |
Handavinna kl. 10, leiðbeinandi
verður við til kl. 17. Félagsvist kl.
13. Viðtalstími FEBK kl. 15-16.
Bobb kl. 16.30. Kynning á fyr-
irhugaðri starfsemi í Gjábakka til
vors verður á morgun, 3. jan., kl.
14. Allir velkomnir.
Félagsstarf Gerðubergs | Í dag
fellur starfsemi niður. Leiðsögn í
vinnustofum hefst mánudaginn
7. janúar.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu. Jóga
kl. 9-12, Sóley Erla. Sam-
verustund kl. 10.30, lestur og
spjall. Böðun fyrir hádegi. Hár-
snyrting.
Kirkjustarf
Dómkirkjan |
Bænastundir
alla miðviku-
daga kl. 12.10-
12.30. Léttur
hádegisverður á
kirkjuloftinu á
eftir. Bæn-
arefnum má koma á framfæri í
síma 5209700 eða með tölvu-
pósti til domkirkjan@domkirkj-
an.is.
Íslenska Kristskirkjan | Bæna-
og lofgjörðarsamkoma kl. 20.
Allir eru velkomnir.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Sigurður Árni
Þórðarson. Beðið er fyrir sjúkum
og hverjum þeim sem þurfa á
fyrirbæn að halda.
Í dag er miðvikudagur 2. janúar, 2. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
Margir strengja þess heitum áramót að komakroppnum í form. Í Graf-arvogi er starfræktur líf-
legur skokkhópur sem getur hentað
mörgum til að standa við gefin heit.
Erla Gunnarsdóttir íþróttafræð-
ingur fer fyrir Skokkhópi Fjölnis:
„Hópurinn varð til fyrir fimmtán árum
og var fyrst skipaður kennurum og
foreldrum við Hamraskóla. Smám
saman hefur bæst í hópinn fólk úr
ýmsum áttum, og teljum við nú hátt í
70 manns á öllum getustigum,“ segir
Erla.
Æfingar skokkhópsins eru á mánu-
dögum, miðvikudögum og fimmtudög-
um: „Hópurinn hittist kl. 17.30 við
Hamraskóla, og byrjum við hvern tíma
með upphitun. Síðan gef ég upp
hlaupaleiðir og tímalengd og þátttak-
endur hlaupa á eigin hraða styttri eða
lengri vegalengdir. Við endum loks á
styrkjandi æfingum og teygjum,“ seg-
ir Erla og bætir við að hálftíma skokk
í lok vinnudags hafi ótrúleg áhrif á lík-
ama sál. „Tekið er vel á móti byrj-
endum, og útbúin handa þeim æfinga-
dagskrá. Miðað er við að þegar fólk
kemur til okkar hafi það þann grunn
að geta gengið rösklega í 30 mínútur
hvíldarlaust, og á þeim grunni byrjum
við að skokka og ganga til skiptis, og
smám saman lengja skokktímann en
stytta göngutímann. Á tíundu viku
eiga flestir að geta skokkað sleitulaust
í 30 mínútur, og margir sem komið
hafa í hópinn með lítið þrek og styrk
hafa byggt sig upp að því marki að
þeir hafa hlaupið heil maraþon.“
Erla leggur á það áherslu að hver
og einn ráði markmiðum sínum með
þjálfuninni: „Skokk er góð hreyfing,
sem bæði styrkir stoðkerfið og hjarta-
og æðakerfið og eykur úthald. Með
auknu þoli aukast afköst okkar í leik
og starfi, auk þess að regluleg skokk-
iðkun eykur brennslu og hjálpar fólki
að halda kjörþyngd,“ segir Erla.
„Íþróttin er aðgengileg, og ódýr enda
þarf ekki nema góða hlaupaskó og
fatnað við hæfi. Skokk hentar bæði
börnum og fullorðnum, og hafa börn
gaman af að hjóla með skokkandi for-
eldrum sínum. Þeir sem vilja geta æft
til keppni, og sett sér markmið eftir
eigin getu og vilja. Ekki hvað síst get-
ur skokk veitt góðan félagsskap.“
Heimasíða skokkhópsins er á slóð-
inni www.skokk.com.
Heilsa | Skokk styrkir stoðkerfið, eykur úthald og afköst í leik og starfi
Skokkað um Grafarvoginn
Erla Gunn-
arsdóttir fæddist á
Selfossi 1962. Hún
lauk stúdentsprófi
frá ML 1982, lauk
kennaraprófi frá
Íþróttakenn-
arskóla Íslands á
Laugarvatni 1984
og framhaldsnámi
sem íþróttafræðingur frá KHÍ 2003.
Erla var íþróttakennari í Seljaskóla
1984-1989 og hefur síðan kennt við
Hamraskóla. Hún hefur stýrt Skokk-
hópi Fjölnis frá 1992. Eiginmaður
Erlu er Stefán Stefánsson dúkalagn-
ingameistari og eiga þau tvö börn.
Fyrirlestrar og fundir
Krabbameinsfélagið | Stuðnings-
hópur um krabbamein í blöðruháls-
kirtli verður með mánaðarlegan rabb-
fund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíð 8, í dag miðvikudag 2.
janúar, kl. 17. Fundurinn er einkum ætl-
aður þeim sem greinst hafa með
krabbamein í blöðruhálskirtli og að-
standendum þeirra.
staðurstund
ÞEGAR viðburður er skráður í Stað og stund birtist tilkynningin á
netinu um leið og ýtt hefur verið á hnappinn „staðfesta“. Skrásetj-
ari getur nýtt sér leiðréttingaforritið Púkann til að fara yfir text-
ann og gera nauðsynlegar breytingar sé þeirra þörf. Hver tilkynn-
ing er aðeins birt einu sinni í Morgunblaðinu. Bent er á að hægt er
að skrá atburði í liðina félagsstarf og kirkjustarf tvo mánuði fram í
tímann.
Allur texti sem birtist í Morgunblaðinu er prófarkalesinn.
Skráning í Stað og stund
Áramóta-
kossar
Á ÁRAMÓTUM verða menn oft meirir, líta yfir farinn veg og strengja þess
heit að bæta sig með einum eða öðrum hætti. Þessar myndir voru teknar
víða um heim og sýna að allt sem þarf er ást, líkt og Bítlarnir boðuðu svo
eftirminnilega. Það er ekki að sjá að munur sé á kossum eftir löndum, þeir
sem hér sjást eru rússneskir, franskir, enskir, bandarískir, ítalskir og
skoskir. Sá franski er e.t.v. alræmdastur, en hann sker sig ekki úr að þessu
sinni þó svo hundskossinn virðist nokkuð franskur að sjá.