Morgunblaðið - 02.01.2008, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR jólasveinarnir eru allir komnir til byggða tekur tími álfanna við.
Þessir fjörlegu álfar gáfu sér tíma til að leika við mannabörn í önnum sín-
um en eins og kunnugt er flytjast álfarnir búferlum á nýársnótt.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kátir álfar á nýársnótt
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER
KOMINN
HEIM
SAKNAÐIR
ÞÚ MÍN?
JÁ. OG MÉR
FANNST ÞAÐ
ALVEG FRÁBÆRT
GJÖRÐU
SVO VEL!
!
EKKI
SLÆMT
!!
ÞÚ FÆRÐ SÉRSTAKLEGA
MIKINN KVÖLDMAT ÞVÍ ÞAÐ
ER ALÞJÓÐLEG HUNDAVIKA
ÉG VONA AÐ ÞEIR BREYTI
ÞESSU Í ALÞJÓÐLEGAN
HUNDAMÁNUÐ!
HOBBES,
LÍFIÐ ER BÚIÐ...
ÉG HELD AÐ FORELDRAR ÞÍNIR
HAFI EKKI BÚIST VIÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ
MUNDIR SKEMMA BÍLINN FYRR
EN ÞÚ YRÐIR SAUTJÁN ÁRA
NÚNA ÆTLUM VIÐ AÐ SVERJA
ÞESS EIÐ AÐ DEYJA FREKAR EN
AÐ HLJÓTA ÓSIGUR!
EDDI, AF HVERJU
RÉTTIR ÞÚ EKKI UPP
HÖNDINA?
MÁ ÉG FYRST FÁ AÐ VITA HVERJAR
LÍKURNAR ERU Á ÞVÍ AÐ VIÐ SIGRUM
EN SÚ
TILVILJUN...
ÉG ER EINMITT
HAUSAVEIÐARI
FYRIR
MICROSOFT
RAJIV, VAR AÐ SEGJA MÉR
HVERNIG VIÐ FÁUM FRÍA
HELGARGISTINGU Á HÓTELI
NÚ,
HVERNIG?
VIÐ ÞURFUM
BARA AÐ HLUSTA
Á 90 MÍNÚTNA
FYRIRLESTUR HJÁ
FASTEIGNASALA
FORELDRAR
MÍNIR FÓRU
EINU SINNI
Á SVONA
ÞAU ERU
FÓLK SEM
SEGIR EKKI
NEI VIÐ
ÓKEYPIS FRÍI
JÁ... EN ÞAU
KEYPTU HLUTA Í
FASTEIGN
FYRIR TVÆR
MILLJÓNIR
H
JÁ
LP
!!
H
VA
R
ER
TU
,
PE
TE
R,
ÞE
GA
R
ÉG
ÞA
RF
Á
ÞÉ
R
A
Ð
H
A
LD
A
?
dagbók|velvakandi
Er útrásin bara fyrir suma?
Í DÚNGREININNI tína um 380
æðarbændur samtals 2,5 tonn dúns
hvert vor en fimm hreinsistöðvar
vinna og sex heildsalar flytja út.
Greinin veltir yfir 200 milljónum kr.
í meðalári. Íslendingar ráða 90%
heimsmarkaðar. Mikill sparnaður
næðist ef dúnn fengist fluttur út vél-
unninn. Allan dún tíndan að vori
mætti vélvinna fyrir ágúst og þar
með opna á uppboð, gera heild-
sölustig óþarft. Handvinnslan er
flöskuháls svo nú verða Íslendingar
að vinna dún allt árið og flytja út
jafnóðum. Fjaðratínsla 1 kg æð-
ardúns tekur verkamann frá 4 tím-
um upp í dagsverk og kostnaðurinn
hér skiptir þúsundum króna á kíló.
Erlendir kaupendur eru tilbúnir að
greiða sama verð fyrir vöruna ein-
ungis vélunna enda ráða þeir yfir
láglaunavinnuafli.
Lög um gæðamat á æðardúni frá
2005 girða þó fyrir útvistun þessa
verkþáttar með kröfu um fullvinnslu
(handvinnslu) fyrir útflutning. Gæði
verða aldrei lögskipuð heldur þróast
á frjálsum markaði enda t.d. rík-
ismat sjávarafurða löngu aflagt.
Lögin koma í veg fyrir hagræðingu í
dúngreininni.
Umboðsmaður Alþingis komst að
því 2004 við athugun á fyrri dún-
matslögunum frá 1970 og reglugerð
þeim tengdri, að krafa um að ein-
ungis væri fluttur út 1. flokks dúnn
væri óeðlileg, væri kaupandi fyrir
hendi að annars flokks vöru ættu
viðskipti að mega fara fram. Nýju
lögin gefa heldur ekki kost á flokkun
og hundsa því álit umboðsmanns. Nú
er einnig krafist mats á dúni á innan-
landsmarkaði en ástæða breyting-
arinnar er að Eftirlitsstofnun EFTA
(ESA) lagði 2004 fram álit eftir
skoðun laganna þar sem bent var á
að misræmi væri milli innanlands-
og Evrópumarkaðar. Gömlu lögin
kröfðust einungis mats á útfluttum
dúni. ESA rakti dæmi um frönsk úr
sem franska ríkið hafði gert fram-
leiðendum skylt að afla vottunar fyr-
ir við útflutning en þessa var ekki
krafist við sölu innan Frakklands.
Evrópudómstóllinn dæmdi þetta
brot á reglunni um frjálst flæði vöru
innan Evrópusambandsins og
franska ríkið afnam lögin. Íslenska
ríkið taldi sig uppfylla jafnræði milli
markaða með því að láta matsskyld-
una gilda líka innanlands, ekki með
því að afnema hana. ESA hafði tekið
fram að tollflokkur æðardúns væri
það almennt skilgreindur að vinnslu-
stig skipti ekki máli, jafnvel alveg
óhreinsaður myndi hann teljast vara
í skilningi EES-samningsins og því
gilti grundvallarreglan um frjálst
flæði vöru. Út frá þessu áliti ESA
má því ætla að þar sem æðardúnn
fellur ekki undir þá vöruflokka sem
sérstaklega var samið um takmark-
anir fyrir við gerð EES, s.s. land-
búnaðarvörur, heldur er almenn
vara í skilningi samningsins, brjóti
dúnmatslögin eftir sem áður gegn
nefndri grundvallarreglu EES.
Þá brjóta dúnmatslögin gegn
stjórnsýslulögum sem ætlað er að
tryggja jafnræði þegar hið opinbera
leggur kvaðir á borgarana. Það felst
misrétti í því að meina heilli starfs-
grein útvistun kostnaðarsamrar en
einfaldrar handvinnslu á sama tíma
og aðrar iðngreinar nýta sér þetta til
hagræðis. Í Austur-Evrópu smíðar
BYKO glugga, 66°N saumar peysur
en okkur æðarbændum að bannað
að láta fjaðratína dún ytra.
Jón Sveinsson,
Heiðargerði 51, Reykjavík.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
FRÉTTIR
16. JANÚAR næstkomandi hefst
nýtt framhaldsnám í stjórnun innan
heilbrigðisþjónustunnar við Háskól-
ann á Akureyri. Námið er sam-
vinnuverkefni heilbrigðisdeildar og
viðskipta- og raunvísindadeildar.
Skipulag námsins er með þeim
hætti að boðið er upp á þrjú nám-
skeið í stjórnun og rekstri sem
mynda 15 eininga diplómanám. Þau
námskeið eru Stjórnun, rekstur og
ígrundun; Alþjóðleg mannauðs- og
þekkingarstjórnun og Forysta og
árangur. Fólk getur ennfremur tek-
ið 30 eininga diplómanám eða 60
eininga meistaranám í stjórnun inn-
an heilbrigðisþjónustunnar, allt eft-
ir því sem hentar því. Frekari lýs-
ingu á náminu er að finna í handbók
á heimasíðu Háskólans á Akureyri
(www.unak.is).
Umsóknarfrestur rennur út í dag,
2. janúar, og skráningargjald fyrir
vormisseri er 22.500 kr.
Nýtt nám í
stjórnun í
heilbrigðis-
þjónustuHEIMILISIÐNAÐARFÉLAG Ís-lands hefur sl. ár staðið fyrir vin-
sælu prjónakaffi 1. fimmtudag í
hverjum mánuði. Fyrsta prjóna-
kaffi á nýju ári verður fimmtudag-
inn 3. janúar 2008, frá kl. 20.00, að
því er segir í tilkynningu.
Það verður haldið á kaffihúsinu
Amokka, Hlíðarsmára 3, Kópavogi.
Fimmtudaginn 3. janúar mun
Bjargey Ingólfsdóttir kynna vörur
sínar, sem nefnast bara123. Allt
áhugafólk er velkomið með prjón-
ana sína eða aðra handavinnu til að
njóta samverunnar með öðrum
gestum.
Hlíðarsmári er í nágrenni Smára-
lindar en helstu kennileiti eru hús
Hjartaverndar og Air Atlanta.
Fyrsta
prjónakaffi
ársins
Fréttir á SMS