Morgunblaðið - 02.01.2008, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 2008 47
Nicotinell er sólahringsplástur, þú getur því valið hvort þú notar plásturinn í 24 klst. eða skemur.
Hægt er að taka plásturinn af eftir skemmri tíma, t.d. 16 klst., ef ekki er þörf fyrir fullan
sólahringsskammt.
Ef þú notar Nicotinell plásturinn allan sólarhringinn, hefur þú nóg nikótín í blóðinu á morgnanna
til að mæta áskorunum dagsins allt frá fótaferð. Þetta er mikilvægt ef þú byrjar daginn á því að
fá þér sígrettu.
PLÁSTRAR
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með
lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, en þeir mega þó aldrei vera stærri en 25 stykki á dag. Leita skal til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er
á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu
eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan
fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
NÝJAR
PAKKNINGAR
BETRA
VERÐ
BANDARÍSKU leikstjórarnir
Quentin Tarantino og Eli Roth
skemmtu sér gríðarlega vel á gaml-
árskvöld og -nótt, að sögn góðvinar
þeirra og fararstjóra, Eyþórs Guð-
jónssonar, sem bauð þeim í kvöld-
mat heim til sín í Kópavoginn á
gamlárskvöld.
Roth og Tarantino eru miklir
aðdáendur flugeldaskotæðis Íslend-
inga um áramót og skemmtu sér hið
besta við að skjóta upp söguhetjum
úr Íslendingasögunum, Gretti
sterka og félögum.
Að lokinni skothríð var svo haldið
á Rex og djammað langt fram á nótt.
Engir skandalar urðu þar, að sögn
Eyþórs, allt fór vel fram og enginn
að abbast upp á þá félaga þótt frægir
séu.
Í gærkvöldi snæddu svo þremenn-
ingarnir á Hótel Loftleiðum þar sem
nýársdansleikur fór fram. Sálin hans
Jóns míns lék fyrir dansi og Eyjólfur
Kristjánsson tróð upp með Stefáni
Hilmarssyni.
Tarantino heldur af landi brott á
morgun en Roth fjórum dögum síð-
ar. Kvikmyndaáhugamenn vilja ólm-
ir vita hvort Tarantino hafi áhuga á
því að taka upp kvikmynd á Íslandi
eða hvort hann hafi nú þegar slíkt á
prjónunum.
Engar slíkar fréttir hafa enn bor-
ist frá leikstjóranum en hver veit
hvað framtíðin ber í skauti sér.
Tarantino og Roth
í rosa flugeldastuði
Morgunblaðið/Kristinn
Þremenningarnir Eli Roth, Quentin Tarantino og Eyþór Guðjónsson í miklu stuði í Reykjavík árið 2005.
FRIÐRIK Sturluson er þekktastur
sem bassaleikari Sálarinnar hans
Jóns míns, en honum er auk þess
margt til lista lagt. Hann er lunkinn
textasmiður, fær hljóðupptökumaður
og núna höfundur að barnaplötu sem
hann vinnur með Guðmundi Ólafs-
syni, leikara og rithöfundi. Hugmynd
sögunnar fæddist
hjá Friðriki og
hann samdi lögin en
Guðmundur útbjó
handrit sögunnar
og samdi söngtexta.
Sagan fjallar í
stuttu máli um strák, Bjössa, sem vill
ekki fara að sofa – vandamál sem allir
foreldrar kannast við. Vökull Velvak-
andason lóðsar hann eitt kvöldið inn í
Vökuland þar sem enginn fer að sofa
og hægt er að leika sér dag sem
dimma nátt. Bjössi lendir þar í ýms-
um ævintýrum en snemma fara að
renna á hann tvær grímur, draum-
urinn um eilífa andvöku snýst fljót-
lega upp í martröð og hann og fleiri
taka til við að skipuleggja flótta.
Sagan gengur vel upp og skila-
boðin eru skýr og skynsamleg, án
þess að vera einhver siðferðis-
predikun. Platan byggist upp á lög-
um, frásögn sögumanns og leiknum
atriðum og kemur fjölskipað stór-
skotalið að þeim þáttum öllum. Eins
og margir kannast við vinnur Friðrik
við hljóðsetningu barnaefnis og þar
rennur í gegn stríður straumur af
leikurum og söngvurum sem Friðrik
hefur lóðsað inn í Vökulandið rétt
eins og Vökull gerði. Það er því valinn
maður í hverju rúmi, og er það til
marks um að Friðrik hlýtur að vera
ágætlega þokkaður í starfi. Laddi,
Örn Árna, Siggi Sigurjóns, Regína
Ósk, Björgvin Franz, Pétur Jesús,
Selma Björns, Guðrún Ásmunds,
Samúel J. Samúelsson, Sigga Bein-
teins … listinn er endalaus.
Framvinda sögunnar er spennandi
og skemmtileg og karakterar eins og
Vökulöggurnar, Kveldúlfur og Geisp-
ar gæða hana lífi og litum. Lögin
þykja mér hins vegar upp og ofan;
það er eins og barnakryddið vanti í
sum þeirra sem standa þá einfaldlega
sem meðalgóð popplög. Þá er um-
slagið og fígúrurnar sem það prýða
fremur kauðalegar og útlit hinna
mörgu barnaplatna í dag er oft keim-
líkt og „sterílt“. Lokadómurinn –
hinn raunverulegi dómur – verður
svo felldur af markhópnum, þ.e.
börnunum sjálfum sem ráða á end-
anum hvort platan lifir eða ekki.
Þumlar upp þýðir að hún fær að snú-
ast í mörg þúsund hringi í spilaranum
um ókomin ár en þumlar niður þýðir
að hún á ekki einu sinni möguleika á
að kíkja þar við stöku sinnum. Börnin
eira engu í sínu hreinskiptna, ómeng-
aða áliti og satt að segja er hann bara
býsna harður, þessi barnaplötu-
bransi. Megi Friðriki og félögum
reiða vel af í baráttunni.
Flóttinn frá
Vökulandi
TÓNLIST
Geisladiskur
Friðrik Sturluson/Guðmundur Ólafsson –
Vökuland–Ævintýri fyrir börnbbbnn
Arnar Eggert Thoroddsen