Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT armenn hans hefðu verið á hótelinu. „Ég get staðfest að norski utanrík- isráðherrann var ekki aðalskotmark- ið,“ sagði talsmaðurinn, Salah Adin al-Ayoupi. Hann bætti við að erlendar sendinefndir gistu oft á hótelinu og árásin hefði beinst að öllum sem tengdust Atlantshafsbandalaginu. Íslendingarnir voru í bækistöðvum NATO Anna Jóhannsdóttir, forstöðumað- ur íslensku friðargæslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að þrettán starfsmenn friðargæsl- unnar hefðu verið staddir í Kabúl þegar árásin var gerð. Enginn Íslend- inganna hefði verið nálægt hótelinu. Þrír Íslendinganna voru í höfuð- stöðvum Atlantshafsbandalagsins og tíu í bækistöðvum bandalagsins á flugvellinum í Kabúl. „Þau eru öll inn- an verndarsvæðis NATO og varinna bækistöðva bandalagsins, en ekki á stöðum sem diplómatar nota,“ sagði Anna. Aðspurð kvaðst hún ekki telja ástæðu til að óttast um öryggi Íslend- inganna „umfram það sem venjulegt er“ í Afganistan. Fréttastofan AP sagði að svo virtist sem árásin hefði aðallega beinst að heilsu- og líkamsræktarstöð hótels- ins. Støre var að hefja fund með tals- manni afganskra mannréttindasam- taka þegar árásin var gerð og fór ásamt öðrum gestum í sprengjuheld- an sal í kjallara hótelsins. Auk norska blaðamannsins beið einn Bandaríkjamaður bana en ekki var skýrt frá þjóðerni annarra sem létu lífið í árásinni. Árás á hótel í Kabúl kostaði sex lífið Norskur blaðamaður á meðal þeirra sem biðu bana. Utanrík- isráðherra Noregs var staddur á hótelinu en særðist ekki Í HNOTSKURN » Talibanar gerðu yfir 140sprengjuárásir í Afganistan á liðnu ári og þær kostuðu að minnsta kosti 200 óbreytta borg- ara lífið. Árásin í gær var sú fyrsta sem gerð hefur verið inni á hóteli í Kabúl frá árinu 2001. » Norðmenn hafa sent um 500hermenn til Afganistans. Jens Stoltenberg, forsætisráð- herra Noregs, sagði að árásin í gær sýndi að Norðmenn og aðrar NATO-þjóðir þyrftu að halda áfram friðargæslu í landinu. AP Blóðsúthellingar Bandarískir hermenn ganga í áttina að Serena-hótelinu í Kabúl eftir árás talibana sem kostaði a.m.k. sex manns lífið í gær. Hótelið var opnað í nóvember 2005 og þykir glæsilegasta hótel borgarinnar. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is AÐ MINNSTA kosti sex manns lágu í valnum eftir árás liðsmanna taliban- hreyfingarinnar á glæsihótel í Kabúl í gær. Á meðal þeirra sem biðu bana var norskur blaðamaður sem lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gær- kvöldi. Jonas Gahr Støre, utanríkisráð- herra Noregs, var staddur á hótelinu þegar árásin var gerð en særðist ekki. Starfsmaður norska utanríkisráðu- neytisins var á meðal sex manna sem særðust alvarlega þegar talibanarnir réðust inn í hótelið vopnaðir sprengjubelti, handsprengjum og rifflum. Fréttastofan AP hafði eftir Ban Ki- moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann teldi að tilræðis- mennirnir hefðu ætlað að ráða norska utanríkisráðherrann af dögum. Norskir embættismenn sögðu hins vegar ekkert benda til þess að svo væri. Norski netmiðillinn Nettavisen hafði eftir talsmanni talibana að þeir hefðu ekki vitað að Støre og fylgd- EF Bandaríkjamenn draga herafla sinn of fljótt frá Írak mun það valda nýjum og hrottalegum átökum milli fylkinga í landinu, að sögn Sheikh Ahmed Abu Reesha, leiðtoga sam- taka súnnítahópa í Anbar-héraði, er berjast nú gegn al-Qaeda. Hér- aðið var áður helsta vígi uppreisn- armanna sem börðust gegn Banda- ríkjamönnum og stjórninni í Bagdad. George W. Bush Bandaríkja- forseti sagði á laugardag að stefnt væri að því að kalla heim frá Írak allt að 30.000 manna lið fyrir júní- lok. Sheikh Ahmed sagði íraska herinn ekki færan um það enn þá að tryggja öryggi landsmanna. „Ríkisstjórnin og þjóðin hafa ekki efni á því að vera án aðstoðar Bandaríkjamanna,“ sagði hann. Sheikh Ahmed tók við leiðtoga- embættinu í september eftir að þjóðkunnur bróðir hans, Sheikh Abdul Sattar Abu Reesha, var myrtur. Samtökin sem hinn fallni leiðtogi stofnaði, Anbar vaknar, er þakkað að ofbeldi í héraðinu hefur minnkað mjög og ekki síst í borg- inni Ramadi sem var að miklu leyti lögð í rúst þegar bandarískir her- menn börðust þar við íraska þjóð- ernissinna og al-Qaeda liða. Má nefna að fjöldi vegsprengjuárása hefur minnkað um 90% á einu ári, að sögn Bandaríkjamanna. Reuters Við öllu búinn Íraskur herlögreglumaður á verði við helgistaði sjía- múslíma í borginni Kerbala um helgina, hópur pílagríma í baksýn. Súnnítaleiðtogi vill að Banda- ríkjamenn fari ekki of fljótt LEIÐTOGAR Þjóðarflokks Pakist- ans, flokks stjórnarandstæðingsins Benazir Bhutto, sem myrt var í des- ember, gefa nú í skyn að þeir geti hugsanlega starfað með Pervez Musharraf forseta eftir þingkosn- ingarnar 18. febrúar. „Allt kemur til greina,“ sagði talsmaður flokks- ins er hann var spurður um slíkt samstarf. Eiginmaður Bhutto, Asif Ali Zar- dari, er nú í reynd leiðtogi flokksins og hefur hann tjáð sig með svip- uðum hætti um samvinnu við for- setann. Sumir Þjóðarflokksmenn sökuðu fyrst eftir morðið Mushar- raf og stjórn hans um að hafa ekki veitt Bhutto nægilega vernd og gengu svo langt að segja leyniþjón- ustuna hafa átt aðild að tilræðinu. Kröfur um afsögn Musharrafs hafa farið vaxandi og hefur Þjóð- arflokkurinn tekið eindregið undir þær. Búist er við að Þjóðarflokk- urinn vinni góðan sigur í þingkosn- ingunum en jafnframt að enginn flokkur hreppi meirihluta. Reuters Leiðtogi Zardari á blaðamanna- fundi, mynd af Bhutto á veggnum. Samstarf við Musharraf? UPPREISNARMENN úr röðum múslíma felldu átta taílenska her- menn í suðurhluta landsins í gær. Sprengju hafði verið komið fyrir á vegi sem þeir óku um. Átta féllu VÍTALÍ Kalojev hefur verið gerður að aðstoðarráðherra N-Ossetíu. Kalojev myrti á sínum tíma dansk- an flugumferðarstjóra sem hann kenndi um flugslys árið 2002. Nýr ráðamaður FORSETI herráðs Bandaríkjanna, Michael Mullen, segir að loka ætti Guantanamo-búðunum vegna þess álitshnekkis sem þær valdi þjóðinni en ekki séu neinar áætlanir fyrir hendi um slíkar aðgerðir. Vill loka búðunum ÖFLUG samtök ítalskra bænda sögðu í gær að neysla á mjólk og kjöti klónaðra dýra myndi vera allt of áhættusöm fyrir fólk þótt ESB virðist nú ætla að leyfa afurðirnar. Gegn klónavörum Einrækt Fyrsta klónaða kindin, Dolly. SPRENGJUTILRÆÐI var gert rétt við fundarstað 50 þúsund manna úr ýmsum flokkum í Katmandu í Nep- al í gær og særðust fimm manns. Þingkosningar verða 10. apríl. Tilræði í Nepal STUTT HELLUBÚAR! Frá Hellu er ekki bara hægt að fara á Njáluslóðir heldur einnig vinningshafaslóðir. 84 vinningshafar í Happdrætti Háskólans á síðasta ári bera þess vitni. – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. TIL HAMINGJU EFTIR að Nicolas og Cecilia Sar- kozy skildu fyrir þremur mánuðum fór hann út með hverri konunni á fætur annarri, duflaði á nætur- klúbbum og söng í karaoke til klukkan fjögur á morgnana þegar stéttarfélög höfðu hafið hrinu verk- falla til að mótmæla áformum hans um breytingar á lífeyriskerfinu. Þetta og fleiri ásakanir eru hafð- ar eftir forsetafrúnni fyrrverandi í ævisögunni „Cec- ilia“ sem blaða- konan Anna Bitt- on, fyrrverandi vinkona hennar, skrifaði. Cecilia reyndi að koma í veg fyrir útgáfu bók- arinnar en dóm- stóll í París synj- aði beiðni hennar um lögbann á föstudaginn var. Lögfræðingar hennar neituðu því ekki að hún hefði viðhaft ummælin um forsetann en lögðu áherslu á að hún hefði sagt þetta í trúnaði. Í bókinni er meðal annars haft eftir Ceciliu Ciganer, eins og hún er nú nefnd, að Sarkozy sé „flagari“ og „nirfill“ sem elski „engan, ekki einu sinni börnin sín“. „Hann er ekki eins og forseti, hann á við hegð- unarvanda að stríða,“ er haft eftir forsetafrúnni fyrrverandi. Tvær aðrar bækur eftir blaða- menn hafa verið gefnar út um hjónaband forsetans og Ceciliu Cig- aner sem er sögð hafa haft mikil áhrif á stjórnmálaferil forsetans og ákvarðanir hans. „Eins og James Bond-stúlka“ Í annarri bókanna segja blaða- mennirnir Michael Darmon og Yves Derai að þegar þau voru að skilja í október hafi Cecilia afhent forset- anum lista yfir það sem hann ætti að gera og hvað hann ætti að forð- ast til að ná árangri í forsetaemb- ættinu. „Sagt er að hún hafi líka minnst á nöfn manna sem hann ætti aldrei að treysta en líka þeirra dyggu stuðningsmanna sem hann gæti treyst.“ Blaðamennirnir fjalla einnig um þátt Ceciliu í því að fá yfirvöld í Líbýu til að leysa sex búlgarska hjúkrunarfræðinga úr haldi í fyrra. Forsetaembættið hefur gert lítið úr þætti hennar í málinu en blaða- mennirnir segja að hún hafi stjórn- að „aðgerðinni eins og James Bond- stúlka“. Sarkozy lýst sem flagara og sjálfselskum nirfli í nýrri bók Cecilia Ciganer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.