Morgunblaðið - 15.01.2008, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Reyðarfjörður | Eimskipafélagið er
nú með reglubundnar áætlunarsigl-
ingar til Reyðarfjarðar. Skipakoma
er vikulega í Mjóeyrarhöfn við ál-
verið. Fyrsta skipið á hinni nýju
áætlun var Lómur, sem kom frá
Reykjavík með almenna innflutn-
ingsvöru fyrir álverið. Skipið sigldi
svo til Færeyja og Englands með
ferskan og frosinn fisk. Lómur og
systurskip hans Blikur munu sigla
til skiptis til Reyðarfjarðar.
Fleiri skip eru að taka upp áætl-
unarsiglingar til Austurlands, en
Smyril Blue Water, frakthluti Nor-
rönu, ætlar að setja flutningaskip á
sömu áætlun og Norrænu því ferjan
annar ekki þeim vöruflutningum
sem henni standa til boða. Flutn-
ingaskipið siglir á áætlun 19. jan-
úar og kemur til Seyðisfjarðar viku
síðar. Ferjan kemur á þriðjudögum
og fer á miðvikudögum.
Eimskip á áætlun/
Smyril Blue Water
bætir við skipi
LANDIÐ
Seyðisfjörður | Ekki er úti um allar
bíósýningar í Austurlandsfjórð-
ungi, þrátt fyrir að Fjarðabíó á
Reyðarfirði hafi sl. haust lagt upp
laupana.
Seyðfirðingar hafa nú ákveðið að
endurreisa starfsemi Herðubreið-
arbíós, en fáar sýningar hafa verið
þar undanfarið þar sem tækjakost-
ur var orðinn tæknilega úreltur.
Bæjarráð ákvað í byrjun árs að
verja þremur milljónum króna til
kaupa á öllum búnaði bíósins á
Reyðarfirði utan sýningarvéla og
er nú unnið að uppsetningu bún-
aðarins.
Vonast Seyðfirðingar til að bíóið
komist í gang í næsta mánuði.
Bíófúsir á Austur-
landi geta brátt
tekið gleði sína
VEGAGERÐIN hefur auglýst
drög að tillögu að matsáætlun
vegna fyrirhugaðra framkvæmda
á Axarvegi í Fljótsdalshéraði og
Djúpavogshreppi. Er áætlað að
byggja 18 km langan nýjan veg
yfir Öxi, milli hringvegar í Skrið-
dal og hringvegar í Berufirði.
Um er að ræða uppbyggðan heils-
ársveg, tiltölulega brattalítinn
þar sem mesti halli verður á
bilinu 7-9 gráður (álíka brattur
og um Fagradal), en er nú allt að
16 gráður þar sem brattast er.
Vegstæðið verður á svipuðum
slóðum og nú er. Verklok eru
áætluð 2011.
Endurbætur á Öxi munu stytta
veginn um 2-3 km en hann verð-
ur væntanlega einnig fljótfarnari
en nú er. Leiðin um Öxi frá
Djúpavogi til Egilsstaða er rúm-
um 60 km styttri en ef farið er
um Breiðdalsheiði og rúmlega 70
km styttri en leiðin um Fáskrúðs-
fjarðargöng. Þá líst Reyðfirð-
ingum sumum vel á að komast
Þórudalsheiðina yfir á Öxi og
þannig suður um.
Unnt er að skoða tillöguna á
vefnum www.vegagerdin.is og
getur almenningur gert at-
hugasemdir við hana fram til 25.
janúar nk.
Grafík/Árvakur
Vegbætur Betri vegur um Öxi er talinn hafa mikla þýðingu fyrir sjáv-
arbyggðir á sunnanverðum Austfjörðum og vera mikilvæg samgöngubót.
<L.
!,
B
.
! (
I !
( ) *
Matsáætlun um
Axarveg kynnt
Egilsstaðir | Opinn íbúafundur um
menntun var haldinn á Egilsstöðum
sl. föstudag. Markar fundurinn upp-
haf vinnu er miðar að mótun heild-
stæðrar menntastefnu fyrir Fljóts-
dalshérað. Með henni áformar
sveitarfélagið að horfa til alls skóla-
og menntastarfs í sveitarfélaginu,
hvort sem það er á ábyrgð sveitarfé-
lagsins eða annarra. Á fundinum var
m.a. unnið í hópum með hugmyndir
um hvað efla megi menntun á svæð-
inu. Valinn hefur verið hópur fólks til
að stýra vinnu við mótun mennta-
stefnunnar og leiðir Hrönn Péturs-
dóttir á Reyðarfirði þá vinnu.
Þá var um helgina haldið þing á
Hallormsstað um sérstöðu og fram-
tíðarþróun á Fljótsdalshéraði á veg-
um sveitarfélagsins. Vinna hópa sem
þar störfuðu verður nýtt í aðalskipu-
lagsvinnu. M.a. veltu þinggestir fyrir
sér hvernig ná mætti jafnvægi milli
matvælaframleiðslu, skógræktar og
frístundabyggðar innan Fljótsdals-
héraðs.
Árvakur/Steinunn Ásmundsdóttir
Framtíð Borgarafundur um menntastefnu Fljótsdalshéraðs. Jónína Rós
Guðmundsdóttir og Eiríkur Bj. Björgvinsson voru meðal framsögumanna.
Metnaður framtíðar
Egilsstaðir | Í dag eru þingfest í
Héraðsdómi Austurlands mál vatns-
réttarhafa vegna Kárahnjúkavirkj-
unar á hendur Landsvirkjun.
Jón Jónsson og Hilmar Gunn-
laugsson, lögmenn hjá Regula lög-
mannsstofu, sækja 40 stök mál fyrir
hönd rúmlega 60 vatnsréttarhafa við
Jökulsá á Dal. Matsnefnd um virði
vatnsréttindanna úrskurðaði þau um
1,6 milljarð króna alls. Allir landeig-
endur við Jökulsá í Fljótsdal utan
einn, þrír við Kelduá og þrír við Jök-
ulsá á Dal ákváðu að una úrskurð-
inum.
Lögð verða í dag fram gögn máls-
ins, sem eru tugþúsundir blaðsíðna.
Jón Jónsson lögmaður segist eiga
von á að vikur og mánuðir geti liðið
uns málið verði tekið fyrir. Eitthvað
þurfi að vinna af matsgerðum og það
taki allt sinn tíma.
40 dómsmál vegna
vatnsréttar þingfest í dag
MIKIÐ var um dýrðir þegar haldið
var upp á 80 ára afmæli Knatt-
spyrnufélags Akureyrar í KA-
heimilinu á laugardagskvöldið. Fjöl-
margir voru heiðraðir af félaginu,
Íþrótta- og ólympíusambandinu og
átta fyrrverandi formenn KA voru
gerðir að heiðursfélögum.
Heiðursfélagarnir nýju eru Guð-
mundur Heiðreksson, Gunnlaugur
Björnsson, Helga Steinunn Guð-
mundsdóttir, Jón Arnþórsson,
Magnús Björnsson, Marteinn Frið-
riksson, Sigmundur Þórisson og
Stefán Gunnlaugsson.
Árni Jóhannsson, núverandi for-
maður KA, og Magnús Magnússon,
sem lengi var í stjórn félagsins,
fengu gullmerki Íþrótta- og ólymp-
íusambands Íslands og þau Hrefna
Torfadóttir og Siguróli Sigurðsson
voru sæmd gullmerki KA.
Blaksamband Íslands sæmdi Sig-
urð Arnar Ólafsson gullmerki og
fimm KA-menn fengu gullmerki
Handknattleikssambandsins, þeir
Erlingur Kristjánsson, Hermann
Haraldsson, Jóhannes G. Bjarnason,
Sigmundur Þórisson og Stefán Arn-
aldsson og Júdósamband Íslands
veitti eitt gullmerki – það hlaut Jón
Óðinn Óðinsson.
Þá sæmdi Knattspyrnusamband
Íslands fjóra KA-menn gullmerki,
en það hlutu Gunnar Gunnarsson,
Magnús Sigurólason og landsliðs-
kempurnar fyrrverandi Kári Árna-
son og Skúli Ágústsson.
Fjölmargir voru sæmdir silfur- og
bronsmerki Knattspyrnufélags Ak-
ureyrar og silfur- og bronsmerki frá
sérsamböndunum.
ÍSÍ Helga Steinunn Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í ÍSÍ, Árni Jóhannsson
og Magnús Magnússon, sem fengu gull og Gunnar Jónsson, silfurmerki.
Átta nýir heiðursfélagar KA
HSÍ Kjartan Steinbach frá HSÍ og Sigmundur Þórisson, Stefán Arnaldsson,
Hermann Haraldsson, Jóhannes Bjarnason og Erlingur Kristjánsson.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Heiðursfélagar Átta fyrrverandi formenn KA voru gerðir að heiðursfélögum. Frá vinstri: Guðmundur Heiðreks-
son, Gunnlaugur Björnsson, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Jón Arnþórsson, Magnús Björnsson, Stefán Gunn-
laugsson, Árni Jóhannsson núverandi formaður, Þórir Sigmundsson og Hermann Sigtryggsson. Sá síðastnefndi er
reyndar löngu orðinn heiðursfélagi en tók við viðurkenningu Marteins Friðrikssonar sem ekki átti heimangengt.
BOÐAÐ hefur verið til borgarafund-
ar í Ketilhúsinu á Akureyri í kvöld
þar sem ræða á um hátíðahöld í bæn-
um. Akureyrarstofa, sem komið var
á laggirnar í fyrra, boðar til fund-
arins en hún hefur m.a. það verkefni
með höndum að annast skipulagn-
ingu viðburða í bæjarfélaginu.
„Það kom ágætlega í ljós um og
eftir verslunarmannahelgina í fyrra
að við þurfum að taka umræðuna
með íbúunum varðandi bæjarhátíðir
almennt og þessi fundur er liður í því
að kalla þá til samráðs. Ég er spennt
fyrir þessum fundi og hlakka til að
heyra hljóðið í fundargestum – um-
ræðurnar munu vonandi hjálpa okk-
ur í undirbúningi fyrir þær fjöl-
mörgu hátíðir sem hér eru yfir
sumarmánuðina, að þær verði vel
heppnaðar í alla staði og að halda í
orðspor Akureyrar sem vinsælasta
ferðamannastaðar landsins,“ sagði
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjar-
stjóri við Morgunblaðið.
Fundurinn hefst kl. 20.
Hvað vilja
bæjarbúar?
LINDA Björk Guðrúnardóttir flytur
í dag á Lögfræðitorgi Háskólans á
Akureyri erindi um lagalega réttar-
stöðu fólks sem tekið var til fanga í
Írak frá því innrásin var gerð árið
2003 og réttlætingu Bandaríkja-
stjórnar á „mannúðlegum“ pynting-
um á föngum í Írak. Erindið verður
flutt á ensku og hefst kl. 12.00 í stofu
L201 á Sólborg. Allir eru velkomnir.
Linda hlaut meistaragráðu í al-
þjóðalögfræði með áherslu á deilu-
lausnir og samningatækni frá Frið-
arháskóla Sameinuðu þjóðanna í
Kosta Ríka nú í janúar.
Réttarstaða
fanga í Írak
♦♦♦