Morgunblaðið - 04.02.2008, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 04.02.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 31 Krossgáta Lárétt | 1 drekkur, 4 slátra, 7 munnholið, 8 girnd, 9 handlegg, 11 for- ar, 13 hár, 14 rotin, 15 lát- ið af hendi, 17 snæðir, 20 bandvefur, 22 heimshlut- inn, 23 hitt, 24 mæliein- ing, 25 rándýr. Lóðrétt | 1 ná í, 2 laumu- spil, 3 titra, 4 pat, 5 meiða, 6 þátttaka, 10 slæmt hey, 12 kvíði, 13 liðamót, 15 óþokka, 16 leyfir, 18 ámu, 19 rugla, 20 stúlka, 21 snaga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 átroðning, 8 forað, 9 gerði, 11 afl, 11 skarn, 13 arðan, 15 svöng, 18 ókind, 21 jór, 22 meiða, 23 asnar, 24 fallvatns. Lóðrétt: 2 tyrta, 3 orðan, 4 negla, 5 nýrað, 6 afls, 7 kinn, 12 Rán, 14 rík, 15 sumt, 16 örina, 17 gjall, 18 óraga, 19 iðnin, 20 durt. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert tilbúinn að axla mikla ábyrgð, því það sannar ekki bara að þú sért sterkur heldur gerir það þig sterkan. Verkefnavalið sýnir þinn innri mann. (20. apríl - 20. maí)  Naut Rætur þínar vekja mikinn áhuga hjá þér þegar þú fæst við hliðar á þér sem þú hefur erft. Þú verður að viðurkenna að þær eru flestar góðar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Himnarnir vilja að þú einfaldir hlutina – eigur þínar, skyldur og dagskrá. Þessi leið gæti virkað: Það sem fellur ekki eins og flís við rass má fara. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert í ótrúlega miklu jafnvægi núna. Þú nærir einstaklinga án þess að þeir verði háðir þér. Í gegnum kennslu gefur þú öðrum nægjusemi. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það sem áður virtist ósköp auðvelt er nú óvinnandi verk. Viðurkenningin kemur en hún tekur sinn tíma. Haltu áfram. Trúin flytur fjöll. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Já, þú sækist eftir fullkomnun. Ekki eyða orku í smáhluti sem enginn tekur eftir nema þú. Breyttu því sem þú getur þegar þú hefur samþykkt það sem er. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Hvað er að? Þarfnast þú umhyggju? Hjálpar? Ástar? Varnarleysi þitt er af- skaplega aðlaðandi. Góðar sálir dragast að þér í von um að þú þarfnist þeirra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú einbeitir þér að þínu að vanda. En samt tekst þér að standa upp úr. Áhugi þinn vekur athygli, ekki síst hjá þeim sem vilja meiri spennu í lífið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Eins og sönnu eftirlæti Júpi- ters sæmir óttast þú ekki gnægð. Þú þarfnast þess ekki að henda út til að rýma fyrir nýju. Þú ert að vaxa og þú ræður við það. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert alltaf til í áskorun og gleðst því þegar þú fréttir að nánasta framtíð ber í skauti sér flækjur og öfgar. Gott, því annars myndi þér leiðast hrylli- lega. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú vilt hjálpa til. Þú getur hjálpað öðrum án þess að vanrækja sjálf- an þig. Settu þig bara fremst í forgangs- röðina. Það er öllum til góða. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ástand hlutanna segir til um hvernig þú hefur hugsað undanfarið. Endurskrifaðu niðurdrepandi sögu sem þú hefur verið að segja þér og hafðu end- inn góðan. stjörnuspá Holiday Mathis Staðan kom upp á sterku lokuðu al- þjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Reggio Emilia á Ítalíu. Kínverski stórmeistarinn Ni Hua (2.641)hafði hvítt gegn rúmenskum kollega sínum Mihail Marin (2.551). 22. Hxg6! Dxg6 23. Hf3+ Df6 24. Hxf6+ Kxf6 25. Dh4+ Ke5 26. De7+ Kf5 27. Dd7+ Kg6 28. Bxd4 Bxd4 29. Dg4+ Kh7 30. Dxd4 hvítur hefur nú drottningu og riddara gegn tveimur hrókum svarts. Þennan liðs- mun nýtti hvítur sér til sigurs: 30. … Hf6 31. Rd1 a6 32. Re3 He8 33. Rg4 Hfe6 34. Dd3+ Kh8 35. Dxa6 c5 36. Dd3 c4 37. Dh3+ Kg8 38. Re3 c6 39. Dg4 Hf6 40. Dd7 He4 41. Rf5 Hf7 42. Dd8+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Hugarsmíð Ottliks. Norður ♠ÁG9843 ♥KD ♦ÁD104 ♣3 Vestur Austur ♠K1075 ♠-- ♥Á1092 ♥643 ♦52 ♦G8763 ♣KG10 ♣98752 Suður ♠D62 ♥G875 ♦K9 ♣ÁD64 Suður spilar 6G. Þetta spil er hugarsmíð ungverska bridshöfundarins Géza Ottliks. Vestur tekur á ♥Á og spilar meira hjarta. Slemmuna má vinna á opnu borði – en hvernig? Sagnhafi þarf að komast þrisvar heim til að svína í spaða, en hann á bara tvær öruggar innkomur, á tíg- ulkóng og laufás. Tígulnían er þó hugs- anleg innkoma og til að byrja með spil- ar sagnhafi ♦4 úr borði með þeirri áætlun að svína níunni. En austur ger- ir þau áform að engu með því að stinga upp gosa! Suður drepur og spilar spaðadrottn- ingu – kóngur og ás. Nú tekur sagnhafi þrjá slagi á ÁD10 í tígli og hendir tveimur laufum heima. Vestur má missa eitt lauf, en lendir í vanda í næsta slag. Hendi hann öðru laufi, kemur lauf á ás og síðan þvingar drottningin vestur aftur í hálitunum. Dæmigerður Ottlik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Bolludagurinn er vertíð bakara. Hver er formaðurLandssambands bakarameistara? 2 Í febrúar verður gefin út 25 ára afmælisútgáfa plöt-unnar Thriller. Hver er lagasmiðurinn? 3 Veitingastaðurinn Gullfoss hefur verið opnaður íPósthússtræti. Hver er eigandi staðarins? 4Hver var söluhæsti bíllinn í Evrópu í fyrra? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Sviptingar á fjár- málamarkaði hafa sett svip sinn á rekstur Exista. Hver er stjórnarformaður fyrirtækisins? Svar: Lýður Guðmundsson. 2. Ís- lensku bókmenntaverð- launin voru afhent með viðhöfn. Hverjir hlutu þau að þessu sinni? Svar: Þorsteinn Þorsteinsson og Sigurður Páls- son. 3. Heimildarmynd verður gerð um hljómsveitina Sálin hans Jóns míns. Hver gerir myndina? Svar: Jón Egill Bergþórsson. 4. Ný Bónuverslun hefur verið opnuð í Vesturbænum. Hvar stendur hún? Svar: Við Fiskislóð. Spurter… ritstjorn@mbl.is Árvakur/Árni Sæberg dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR ALÞJÓÐLEG ráðstefna um snjó- flóðavarnir verður haldin á Egils- stöðum 11.-14. mars nk. Að ráðstefnunni standa Verkfræð- ingafélag Íslands og Tæknifræðinga- félag Íslands, í samstarfi við um- hverfisráðuneytið, Vegagerð ríkisins, Veðurstofu Íslands, Skipu- lagsstofnun, Landsnet og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fjalla á um snjóflóðavarnir, mann- virkjagerð, umhverfi og samfélag og hafa skipuleggjendur ráðstefnunnar fengið til liðs við sig Norges Geo- tekniske Institutt (NGI) í Ósló og Wildbach und Lawinen Verbauung í Innsbruck (WLV). Þessir tveir aðilar hafa tekið þátt í mörgum snjóflóða- verkefnum hér á landi á undanförn- um árum. Þá er International Glacio- logial Society (IGS) á Englandi sérstakur stuðningsaðili ráðstefn- unnar, en þau félagasamtök eru mjög virt á þessu sviði. Snjóflóðin ’95 hleyptu krafti í rannsóknir og þróun varna Árni Jónsson, eigandi Orion ráð- gjafar ehf. og formaður undirbún- ingsnefndar ráðstefnunnar, segir að frá því mannskæðar snjóflóðahrinur gengu yfir landið árið 1995 hafi áhersla verið lögð á rannsóknir og þróun á sviði snjóflóðamála og mark- vissar aðgerðir til að draga úr snjó- flóðahættu. Aðgerðirnar hafa að sögn Árna falist í hættumati, upp- byggingu varnarvirkja og flutningi byggðar af ákveðnum hættusvæðum þar sem erfitt er að koma við vörn- um. Eftir þessu hafi verið tekið víða um lönd. Snjóflóðavarnir, þá sérstaklega þau umfangsmiklu mannvirki sem byggð hafa verið, hafi verið mikið í umræðunni en minna borið á umfjöll- un um umhverfi, skipulag og sam- félagslega þætti sem þessi mannvirki hafa áhrif á. Mat á umhverfisáhrifum taki á sumum þessara þátta en ekki hafi farið fram þverfagleg umræða um málefnið þar sem ólík sjónarhorn séu kynnt eða krufin til mergjar. Markmið ráðstefnunnar í mars sé því að vera vettvangur skoðanaskipta vísindamanna, ráðgjafa og annarra sem starfa að þessum málum. Nánari upplýsingar um ráðstefn- una má finna á vefnum www.orion.is/ snow2008. Snjóflóðavarnir í víðu samhengi Árvakur/Steinunn Ásmundsdóttir Haustið 2005 Nýir snjóflóðavarnargarðar vígðir í Bjólfinum ofan við Seyðisfjörð. Þeir eru í um 620 m hæð og reistir á svokallaðri Brún. Áhersla hefur verið á snjóflóðavarnir en minna borið á umfjöllun um umhverfi, skipulag og samfélagslega þætti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.