Morgunblaðið - 04.02.2008, Síða 34
34 MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
SÝND Í REGNBOGANUM
NÚ VERÐUR ALLT
VITLAUST!
ÓTTINN
BREYTIR
ÖLLU!
“... trúlega besta Stephen King
mynd í tæpan áratug.”
T.V. - Kvikmyndir.is
MISTRIÐSÝND Í REGNBOGANUM
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
STÆRSTA
JANÚAROPNUN
SÖGUNNAR
Í BANDARÍKJUNUM!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
eeee
- B.S., FBL
eee
- S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Nú mætast þau aftur!
Tvö hættulegustu skrímsli
kvikmyndasögunnar
í tvöfalt betri mynd!
Missið ekki af einum
flottasta spennutrylli ársins!!
- HJJ, Mbl
eeee - MMJ, Kvikmyndir.comeeee
FERÐIN TIL DARJEELING
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
- H.J. , MBL
eeeeeFYRST RAY, SÍÐAN WALK THE LINE...NÚ ER KOMIÐ AÐ DEWEY COX !!
FRÁ GAURNUM SEM FÆRÐI ÞÉR
KNOCKED UP, SUPERBAD OG TALLADEGA NIGHTS
SÝND Í SMÁRABÍÓI
- Kauptu bíómiðann á netinu -
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Aliens vs. Predator 2 kl. 8 - 10:10 B.i.16 ára
Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 4 - 6
Walk hard kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
The Darjeeling Limited kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
The Golden Compass kl. 5:30 - 8 B.i. 10 ára
The Mist kl. 10:30 B.i. 16 ára
Walk hard kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.14 ára
Cloverfield kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.14 ára
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 462 3500 Sími 564 0000
Sími 551 9000
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eee
DÓRI DNA, DV
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
eee
- S.V, MBL
Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
Atonement kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Cloverfield kl. 6 - 10 B.i. 14 ára
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
ÞAÐ er árið 1959. Þrír
gamlir franskir upp-
gjafahermenn, lemstraðir
af fyrri heimsstyrjöldinni,
þeir Hinrik, Gústaf og
Ferdinand, hafa hertekið
veröndina á bak við elli-
heimilið þar sem þeir
dvelja: Þar drepa þeir tím-
ann ásamt styttu af hundi
og skjóta hver á annan,
ljúga, láta sig dreyma. Á
veröndinni haggast ekki
hár á höfði en á hæðinni
andspænis standa aspir og
bærast í vindi. Hugmynd
um að losna úr logni ver-
andarinnar og komast
þangað sem vindurinn blæs
fæðist.
Franskir höfundar virð-
ast um þessar mundir
hvorki vera uppteknir af
stórum málum né flókinni
uppbyggingu. Þessi einfaldi
gamanleikur, reyndar ann-
ar í röðinni á nýja sviðinu í
vetur um bið ellinnar eftir
hinu óumflýjanlega, byggist
á hnyttnum tilsvörum.
Hann er til allrar hamingju
ákaflega vel þýddur af
Pétri Gunnarssyni og
áhöfnin reynir sjaldnast að
þenja það einfalda, smáa
eða blása það upp með
gauragangi.
Einfaldur er hallandi
pallurinn mót áhorfendum
og lyftist upp af gólfi án
nokkurra bakmynda; lyftir
leikurunum upp. Við horf-
um þá eins og utan úr
geimnum – á yfirborði jarð-
ar, sundurskornu af skot-
gröfum. Skotgrafirnar, út-
gangarnir, samt
einkennilega lítið nýttar.
Einföld, áreynslulaus er
líka leikstjórn Hafliða Arn-
grímssonar. Það mætti
kannski orða það svo að
mjúkt og kærleiksríkt sé
handbragð hans og þannig
að maður nenni ekki að
velta sér upp úr hnökr-
unum, nenni til dæmis ekki
að ræða hvort ekki hefði
mátt færa hörmungar
stríða örlítið skýrar nær
okkur. Tímasetningar eru
góðar, hver einasti brandari
virðist skila sér, og menn
brosa og hlæja allt í gegn,
án þess að taka bakföll eða
arga.
Einfaldir eru drættirnir í
persónu halta Hinriks sem
Guðmundur Ólafsson túlkar
af hófstillingu sem varkár-
an mann er af svolítilli
þvermóðsku reynir að sjá
gleði í því smáa og halda
friðinn á þessari stundum
róstusömu verönd. Theódór
Júlíusson leikur Ferdinand
sem er með sprengjubrot í
höfði og fær reglulega
flogaköst sem afleiðingar af
því. Honum og leikstjór-
anum tekst hvorki að miðla
nógu vel óttanum við dauð-
ann sem Ferdinand ætti að
breiða yfir sviðið né þrá-
hyggju hans, og allur verð-
ur hann nokkuð barnslegur
og klunnalegur en þó elsku
verður. Það er Sigurður
Skúlason sem ber uppi sýn-
inguna sem orðhákurinn
Gústaf og kemur enn einu
sinni gleðilega á óvart.
Meistaralega og af mikilli
nákvæmni dregur hann upp
mynd af manni sem felur
ofurviðkvæmni bak við
samanherptan hroka og
árásargirni; og hvernig
hann í kjölfar smásigurs á
sjálfum sér ofmetnast og
ætlar að taka á flug en
hörfar aftur með klókindum
inn í skelina.
Ljúf var þessi kvöld-
stund.
Einfalt en ljúft
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Höfundur: Gerard Sibleyras.
Þýðandi: Pétur Gunnarsson.
Leikstjóri: Hafliði Arngrímsson.
Leikmynd og búningar: Jürgen
Höth og Brit Daldrop. Lýsing:
Kári Gíslason. Hljóð: Ólafur Örn
Thoroddsen. Leikarar: Guð-
mundur Ólafsson, Sigurður
Skúlason og Theódór Júlíusson.
Hetjur
María Kristjánsdóttir
Árvakur/Ómar
Hetjur „Þrír gamlir, franskir uppgjafahermenn lemstraðir af fyrri heimsstyrjöldinni hafa
hertekið veröndina á bak við elliheimilið þarsem þeir dvelja: Þar drepa þeir tímann ásamt
styttu af hundi og skjóta hver á annan, ljúga, láta sig dreyma,“ segir m.a í dómnum.
SÖNG- og leikkonan Katharine
McPhee giftist framleiðandanum
Nick Cokas á laugardaginn í Beverly
Hills.
Hin 23 ára McPhee er líklega
þekktust fyrir að hafa lent í öðru sæti
í fimmtu þáttaröð American Idol.
Hún segir Cokas, 42 ára, vera sína
einu sönnu ást.
Við brúðkaupið klæddist McPhee
hlýralausum Manuel Mota-kjól og
bar Neil Lane-skartgripi. Cokas var í
Armani-smóking.
Keppinautar McPhee úr Idol-
þáttunum, Kellie Pickler og Mandisa,
voru á meðal þeirra 305 gesta sem
boðið var til veislunnar.
McPhee og Cokas hittust árið 2005
þegar þau léku saman á sviði í The
Ghost and Mrs. Muir í Los Angeles.
Samband þeirra hófst sem vinskapur
en breyttist í ást þegar McPhee tók
þátt í American Idol seinna það ár.
Þau trúlofuðu sig í fyrra.
McPhee lauk nýverið við leik í
gamanmynd Önnu Faris I Know
What Boys Like.
Reuters
Hamingjusöm Katharine McPhee
er nú gift kona.
Í hnapp-
helduna