Morgunblaðið - 03.03.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 03.03.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 21 Niðurstaða samkeppni umskipulag Vatnsmýr-arinnar nú á dögunumkallar á frekari umræðu um Reykjavíkurflugvöll, flugvöll allra landsmanna sem ýmsir vilja leggja niður. Ýmsar fullyrðingar í þessari umræðu hafa einkennst af vanþekkingu á flugmálum og er það miður þar sem óábyrgar yfirlýs- ingar hafa brenglað staðreyndir í málinu. Það er von mín með eft- irfarandi grein að málsaðilar fræðist og skilji betur sjónarmið okkar sem vinnum við flugið og eig- um þá ósk heitasta að sjá það vaxa og dafna landsmönnum öllum til góðs. Hólmsheiði Stuðningur við grasrótina í fluginu er mikilvægur svo hægt sé að þjálfa næstu kynslóðir atvinnuflug- manna. Veðurfar á Hólmsheiði myndi draga verulega mikið úr fjölda flugdaga fyr- ir flugnema sem vilja læra á Íslandi og þeirra flugkennara sem hafa lifibrauð sitt af flugkennslu. Það er reyndar með ólíkindum að Hólms- heiði, eða reyndar hvaða heiði sem er í nágrenni Reykjavíkur, skuli vera talin álit- legur kostur. Við búum á Íslandi og okkar mis- jafna veðurfar hefur mikil áhrif á flugrekstur í landinu. Flugmenn og flugrekendur vita að því hærra sem flugvöllur er frá sjávarmáli því verra er að stunda flugrekstur það- an. Ef grannt er skoðað má sjá að langflestir flugvellir eru á láglendi ef þess er nokkur kostur. Hólms- heiði er í um 405 feta hæð, eða 135 metra hæð eða 360 fetum, 120 metrum hærri en Reykjavík- urflugvöllur. Til að setja þetta í betra samhengi er munurinn hæð einnar Hallgrímskirkju og 45 metr- ar til viðbótar sem er töluvert. Les- endum finnst þetta kannski ekki mikið en þeir sem reka flugvélar frá Reykjavíkurflugvelli geta sagt frá því að oft er hægt að taka á loft og lenda í Reykjavík en algjörlega ófært í sjónflugi í austurátt vegna lágra skýja yfir hækkandi lands- lagi. Flugvélar afkasta einnig mun verr í þynnra lofti uppi á heiðum en þéttara lofti niður við sjávarmál. Þumalputtaregla varðandi lækk- andi hitastig með hæð er sú að hiti falli um 2°C fyrir hver 1000 fet. Það þýðir að hitamunur milli flugvallar í Reykjavík og á Hólmsheiði væri því um 1°C. Ein gráða á Celsíus getur skipt miklu máli í flugi að vetrarlagi á Íslandi. Skafrenningur á heiðum er sömuleiðis ekki vænlegur til að auka bremsuskilyrði á flug- brautum. Við hvert flugtak er farið í nákvæmar töflur til að finna út hvað flugvélin getur gert við ríkjandi aðstæður. Vindar, hitastig, loftþrýstingur, bremsuskilyrði, hindranir við aðflug og brottflug eins og t.d. fjöll og fjallgarðar hafa ráðandi áhrif á afköst flugvélanna svo fyllsta öryggis sé gætt. Á Hólmsheiði er ókyrrð af fjöllum töluverð í ákveðnum vindáttum. Þessi sömu fjöll gera það illfram- kvæmanlegt að koma fyrir blind- lendingarkerfi að vellinum úr næst- um öllum áttum. Esjan, Hengillinn, Vífilfellið og Bláfjöllin hamla því. Athugið að við þessa útreikninga er í öryggisskyni alltaf gert ráð fyrir því að annar hreyfillinn á tveggja hreyfla vél bili á þó nokkrum hraða í flugtaki og þannig verði öruggt að taka á loft og fljúga vélinni með ein- ungis einn hreyfil virkan. Ég fullyrði að allir þeir neikvæðu þættir sem tínast til við Hólmsheiði munu gera flugrekendum erfiðara fyrir og arðhleðsla vélanna minnka töluvert, þ.e.a.s. getan til að bera meira miðað við aðstæður á vell- inum og umhverfis hann. Í stuttu máli mun það þýða verri afkomu og hærri fargjöld og líklegt má teljast að flugrekendur fari frekar til Keflavíkur eða hætti rekstri. Auðvitað vilj- um við öll tryggja sem mest flugöryggi. Því miður er það mat und- irritaðs að það sé ekki tryggt með flugvelli á Hólmsheiði og að slík- ur völlur jafngildi því að stíga 50 ár aftur í tímann. Löngusker Miðað við þær teikningar sem hing- að til hafa verið sýnd- ar þá eru svæðin sam- síða brautunum sýnd allt of mjó til að verj- ast megi ágangi sjávar og seltu á fullnægjandi hátt. Til að setja þetta í betra samhengi þá bjó ég í íbúð stutt frá Eiðistorgi og skv. Borg- arvefsjá eru 85 metrar frá fjörunni að gluggunum á þeirri hlið og þeir eru salthúðaðir allt árið. En það er kannski ekki það merkilegasta heldur sú staðreynd að ég bjó á þriðju hæð! Það sem mestu máli skiptir fyrir flugvélarnar fyrir utan almennt veðurfar á Lönguskerjum er að hafa brautirnar auðar og hreinar eins og kostur er svo bremsuskilyrði séu eins og best verður á kosið. Þessi einföldu atriði má nota til að færa rök fyrir því að svæðin báð- um megin flugbrauta og reyndar allt athafnasvæðið þurfa að vera mjög breið. Slík uppfylling myndi kosta gífurlegar upphæðir og nokk- ur ár í framkvæmd ef stórar sem smáar farþegaflugvélar, kennslu- og einkaflugvélar, þyrlur og önnur flygildi á vellinum eiga ekki að verða fyrir skemmdum. Ekki gleyma þeirri staðreynd að af þeim 152 flugvélum (árið 2005) sem eru á Reykjavíkurflugvelli þá eru vélar innanlandsflugfélaganna innan við 20 og 152 flugvélar þurfa mikið rými. Það er mikilvægt að hafa þær vélar á sama stað vegna hag- kvæmni í rekstri flugvallarins. Það yrði mjög erfitt og kostn- aðarsamt að halda flugbrautunum hreinum þegar komið er niður fyrir frostmark því þrátt fyrir saltið myndi særokið leggjast yfir líkt og íshella og það myndi hækka allan kostnað við rekstur vallarins og flugvéla fram úr hófi og mengun vegna afísingarefna aukast tölu- vert. Höfum við ekki öll séð myndir af fiskiskipum í klakabrynju? Eins og flugrekendur vita líka þá myndi mögulegum flugtímum fækka hressilega og allt hækka; rekstr- arkostnaður, viðhaldskostnaður og fargjöld. Það má líka rökræða það hvort hagsmunir flugöryggis séu hafðir að leiðarljósi þar sem mjög strangar kröfur eru gerðar um af- köst flugvéla, bæði við flugtak og lendingu og bremsuskilyrði eru þar mjög mikilvægur þáttur. Löngusker eru ekki besti stað- urinn fyrir flugrekstur nema tugir milljarða komi til svo uppfyllingin verði nægilega stór til að verjast ágangi sjávar og seltu og að öllum flugvélum verði tryggt öruggt hús- næði. Því miður, og eðlilega kannski, skilja margir ef til vill ekki nógu vel hversu viðkvæmar flug- vélar eru fyrir salti sem er mjög tærandi. Takið líka eftir því að flestar teikningar af flugvelli á Lönguskerjum sýna ekki rétt þann fjölda flugskýla og bygginga og það landflæmi sem til þarf. Er það gert viljandi til að láta líta út fyrir að þessi framkvæmd sé „létt verk og löðurmannlegt“ eða af hreinni van- þekkingu? Þá hef ég ekki nefnt bílaumferðina, bílastæði og teng- ingu við völlinn. Hvernig á að leysa það og hvað kostar það til viðbótar? Afköst flugvéla og varaflugvellir Veður er skoðað sérstaklega fyr- ir brottför til að athuga hvort ekki sé örugglega fært á áfangastað og einnig yfir á varaflugvöll ef veður hamlar kannski lendingu á upphaf- legum áfangastað. En athugið að flugvélar og arðhleðsla þeirra eru eins og áður sagði takmarkaðar af ýmsum utanaðkomandi þáttum sem eru breytilegir eftir flugvöllum og veðri. Ef Hólmsheiði verður ófær á leið okkar frá Egilsstöðum og Keflavíkurflugvöllur ófær sömu- leiðis vandast málið allverulega. Ef enginn völlur kæmi í stað Reykja- víkurflugvallar og Keflavík- urflugvöllur yrði eini völlurinn á SV-horninu þyrftu flugvélar í inn- anlandsflugi að bera töluvert auka- eldsneyti til að komast á vara- flugvöll sem kæmi niður á arðhleðslu þeirra. Vegna veðurað- stæðna og landslags er það alveg borðleggjandi að nýtingarhlutfall flugvallar á Hólmsheiði yrði tölu- vert verra en nýtingarhlutfall Reykjavíkurflugvallar er nú. Einhverjir kunna að spyrja sig hvers vegna umræddri vél er þá ekki snúið til baka til Egilsstaða. Það væri ef til vill hægt en vegna reglna um lágmarksskilyrði til blindaðflugs og skyggnis til lend- ingar þá getur verið skynsamlegt að gera ráð fyrir því að upphafs- flugvöllur sé ekki tiltækur sem varaflugvöllur og það kemur fyrir að veðurskilyrði duga til flugtaks en ekki til lendingar. Gefum okkur að Reykjavík- urflugvöllur, Löngusker eða Hólmsheiði séu ekki til staðar og Keflavíkurflugvöllur valinn sem áfangastaður. Akstur þaðan er a.m.k. 45 mínútur með rútu til BSÍ í Reykjavík. Ef hann reynist ófær gætum við þurft að nota Færeyjar eða Glasgow í Skotlandi sem vara- völl ef veður hamlar lendingu ann- ars staðar á landinu. Af þessu má sjá að með því að búa til flugvöll sem er að einhverju leyti verri en núverandi flugvöllur í Reykjavík eða fækka flugvöllum á SV-horninu mun það gera flugrekendum veru- lega erfitt fyrir og leggja á þá óbærilegan kostnað sem hlýtur að velta sjálfkrafa út í fargjöldin. Þessar tölur eru svo enn ýktari í millilandafluginu. Alvarlegust af öllu eru þó slæm áhrif á sjúkraflugið við þessar að- stæður, t.d. ef slasaður borg- arfulltrúi er um borð eins og gerðist fyrir nokkrum vikum. Sá borg- arfulltrúi sem styður brotthvarf Reykjavíkurflugvallar hefur ekki þurft að komast til Reykjavíkur í sjúkraflugi og vona ég að enginn þeirra þurfi á því að halda. Há- tæknisjúkrahús eru þó líka til í Glasgow þó það taki u.þ.b. 3 klst. að fljúga þangað. Þann 24. des. sl. var augljóst að árið 2007 yrði enn eitt metárið í þessum efnum, en þá voru sjúkraflugin orðin 481 talsins með 521 sjúkling. Sífelld aukning sjúkraflugs ýtir enn frekar undir mikilvægi veru Reykjavík- urflugvallar þar sem hann er. Mikilvægi Reykjavíkurflugvallar fyrir millilandaflugið er sömuleiðis ótvírætt og við höfum mýmörg dæmi um það þegar vélar hafa orð- ið að lenda í Reykjavík vegna slæmra veðurskilyrða í Keflavík. Við búum á eyju sem hefur einungis fjóra flugvelli sem nýtast okkur sem flugvellir í millilandaflugi á stærri þotum. Hver einasti flug- völlur skiptir máli fyrir flugöryggið. Ef Reykjavíkurflugvöllur yrði lagð- ur niður hlyti það að verða krafa að byggja upp t.d. Sauðárkrók eða Bakkaflugvöll sem mögulega vara- flugvelli. Hvaða krafa er gerð til flugvalla höfuðborga? Hver sem niðurstaðan verður á endanum þá hlýtur það að vera lág- markskrafa höfuðborgarinnar og íbúa hennar, landsmanna allra, sjúkraflugs, Landhelgisgæslu, al- mannavarna, farþega, flugrekenda, flugmanna og flugnema að nýting- arhlutfall flugvallar höfuðborg- arinnar verði alls ekki minna en nú er. Hvernig ætla borgaryfirvöld að tryggja það samhliða því að gæta þess að flugöryggi minnki ekki? Miðað við síðustu fréttir af skipu- lagsmálum borgarinnar eru málin farin að líta þannig út að ann- aðhvort fái völlurinn að vera þar sem hann er, ef til vill í breyttri mynd til að liðka fyrir, eða að hann verður eyðilagður án þess að nokk- uð komi í staðinn. Það má ekki ger- ast. Ef hann verður eyðilagður þá verður ekki snúið til baka. Hvaða höfuðborg hefur ekki flugvöll? Ekki Löngusker eða Hólmsheiði Eftir Matthías Arngrímsson » Auðvitað viljum við öll tryggja sem mest flugöryggi. Því miður er það mat und- irritaðs að það sé ekki tryggt með flugvelli á Hólmsheiði og að slík- ur völlur jafngildi því að stíga 50 ár aftur í tímann. Höfundur er atvinnuflugmaður, flug- kennari og einka/sportflugmaður. Matthías Arngrímsson Ragnar rifjaði það upp að í fyrra hafi komið hingað kínversk sendi- nefnd til að kanna hvort hægt væri að gera langtímasamning við ís- lenska bændur um matarkaup. „Það er vísbending um að aðrar þjóðir kunna innan tíðar að bjóða hærra verð en neytendum í Reykjavík og byggðum landsins finnst við hæfi. Og hvað gera bændur þá?“ Ólafur Ragnar sagði að Íslend- ingar yrðu fyrr eða síðar að búa sig undir breytta tíma þótt hún muni vissulega njóta þess að vera fá- menn þjóð í gjöfulu landi. Straum- þunginn í þróun heimsins muni líka móta aðstæður hér. Taldi hann brýnt að hefja víðtækar umræður um hlutverk landbúnaðarins í þessu efni og hefja þær yfir hefð- bundna togstreitu um verðlag og skipulag framleiðslunnar. „Kjarn- inn í boðskap mínum til Búnaðar- þings og þjóðarinnar er að við þurfum að hefjast handa við að móta sáttmála sem tryggir í fram- tíðinni fæðuöryggi Íslendinga,“ sagði forsetinn. Tók hann fram að ekki væri átt við samningagerð á hefðbundinn hátt heldur samræðu um sáttmála sem tæki mið af grundvallarhagsmunum þjóðarinn- ar, sáttmála sem fæli í sér að fæðu- öryggi hennar væri tryggt þótt þróunin í veröldinni yrði óhagstæð. Slíkur sáttmáli gæti svo orðið grundvöllur að skipulagi fram- leiðslunnar, nýjum reglum um nýt- ingu lands og skapað markaðsþró- un raunhæfan farveg. rvara til i þjóðar- gin þjóð, við líka kar þjóð, gnar mat- Haraldur. gi Íslend- ð í þeirri slenskum nna til að ann á það hægt að hægt að rkuðum. ? gi Íslend- tíðarræðu r, forseta Búnaðar- æðuöryggi omið ofar r og rætt varnir á Nú hefur askiptum. ars sú að ð að móta æðuöryggi yggir að- um mat á ði Ólafur tu ástæð- n mann- og bæja, í fjarlæg- rðar með áhrif á r. Ólafur Morgunblaðið/Árni Sæberg n 2008. Ábúendur Þórisholts eru lengst til í Reykhólasveit, Þórður Jónsson og Ása Björg megin við Einar Kristin Guðfinnsson landbún- na Snæþórsdóttir og Vernharður Vilhjálmsson. i um dinga araldur Benediktsson, formaður Bænda- nds, sagði frá breyttum starfsskilyrðum bænda ningarræðu á Búnaðarþingi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.