Morgunblaðið - 03.03.2008, Blaðsíða 32
Salernisaðstaðan ber
þá nafnið Brúdalur og
stigagangurinn gengur undir
nafninu Pedalir… 36
»
reykjavíkreykjavík
■ Fim. 6. mars kl. 19.30
Gamalt og nýtt
Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika hinn magnaða
fiðlukonsert Albans Berg. Auk hans eru á efnisskránni verk meist-
aranna Brahms og Bach í meistaralegum hljómsveitarbúningi
Schönbergs og Weberns. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á
Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir.
■ Fim. 13. mars kl. 19.30
Páskatónleikar
Söngsveitin Fílharmónía og evrópskir einsöngvarar í fremstu röð
taka þátt í flutningi Þýskrar sálumessu eftir, Brahms, eins mesta
snilldarverks kórbókmenntanna.
■ Lau. 15. mars kl. 17.00
Kristallinn – kammertónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu
Kvartett fyrir endalok tímans eftir Messiaen er eitt áhrifaríkasta
snilldarverk tuttugustu aldarinnar.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Flugan frétti á reglubundnu eftirlits-flugi sínu um lendur menningar oglista um helgina að spennandi tón-leikaröð væri í gangi undir heitinu:
Helvítis! túr um Reykjavík. Forvitnin rak
hana því inn á búlluna Amsterdam á föstu-
dagskvöldið til að kíkja á böndin Skelkur í
bringu, The Fist Fokkers og UM Technoband-
ið Stefán. Þar slógu eftirminnilega í gegn
bandið Baunirnar sem var í hlutverki upphit-
unartríós og samanstendur af þremur mið-
aldra mönnum með blásturshljóðfæri í virðu-
legum búningum. Þótt upphitun þeirra hafi
aðeins staðið yfir í nokkrar mínútur nægði
performansinn til þess að ungu tónlistarmenn-
irnir sem næstir áttu sviðið urðu sjóðheitir í
sinni og ráku gömlu blástursbrýnin með þjósti
af sviðinu. Baunirnar eru Sigurður Ingólfsson,
Einar Hrafnsson og Mímir Völundarson.
Næst var staldrað við á tónleikastaðnum Org-
an þar sem fram fóru styrktartónleikar (fyrir
saxófónleikarann Andrew d’Angelo) og ýmsir
stigu á stokk, til að leggja góðu málefni lið og
gleðja áhugasamt músíkfólk. Þeirra á meðal
var Ólöf Arnalds sem sat á stól á sviðinu í hvít-
um kjól og í hvítum sokkabuxum og söng eins
og engill. Bassaleikarinn Skúli Sverrisson var
mættur af þessu tilefni frá New York og kynn-
irinn var Ragnar Ísleifur Bragason (Krist-
jónssonar bóksala). Hann var í brilliant há-
rauðum jakka, sem við nánari athugun
reyndist vera frá herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar á Laugaveginum. Ragnar Ísleifur
er einmitt maður Ólafar Arnalds.
Flugustelpa vaknaði snemma á sunnudags-
morguninn, fékk sér sterkt kaffi meðan hún
las Moggann sinn og græjaði sig upp fyrir
hressandi morgunrölt í bænum. En hún var
hins vegar ekki fögur ásýndin borgarinnar
sem mætti augum árisulla heldur var það
skömmustuleg Reykjavík sem leit undan eftir
skuggalegar skemmtanir aðals og alþýðu nótt-
ina á undan. Furðu lostnir bakpokaferða-
langar störðu á dreggjar djammsins á göt-
unum; hálfétna Hlöllabáta og Nonnabita eins
og hráviði í Austurstræti og allt flæðandi í
hálffullum vínglösum og bjórdósir fuku með
glamri eftir götum.
Það verður að koma fram af meiri virðingu
við hana fröken Reykjavík – hún á þetta ekki
skilið.
Morgunblaðið/Golli
Kristinn Már Pálmason og Guleik Lövskar.
Ragnheiður Jónsdóttir og
Sigurveig Kristjánsdóttir með Flóka.
Sigrún Hrólfsdóttir, Jóní Jónsdóttir
og Sara Björnsdóttir.
Erling Klingenberg, Katrín Guðmunds Sig-
rúnardóttir og Sirra Sigrún Sigurðardóttir.
Ilmur Stefánsdóttir, Grettir Valsson,
Margrét Lísa Steingrímsdóttir og
Helgi Þorgils Friðjónsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mr. Lordi sjálfur mætti á frumsýninguna og
gaf aðdáendum eiginhandaráritanir.
Hólmfríður og Aníta voru kátar í Kringlubíói.
Ari, Margrét María og Einar Már.
Flugan
… Bauna-bandið skýt-
ur Skelk í bringu …
… Skömmustuleg borg
í morgunsárið …
Guðjón Hilmarsson og Arnþór Jónsson.
Kristín Lárusdóttir og Ragnhildur Zoega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólveig Eggerts og Sædís Hlöðversdóttir.
»Hryllingsmynd um finnskuskrýmslahljómsveitina
Lordi var frumsýnd á föstu-
daginn.
» Sara Björnsdóttir opnaðisýninguna Vímu/Intox-
ication í Galleríi Ágúst á laug-
ardaginn.
» Leikfélag Menntaskólansvið Hamrahlíð frumsýndi
leikritið E1NTAK í skólanum á
föstudagskvöldið að viðstöddu
fjölmenni.