Morgunblaðið - 03.03.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.03.2008, Blaðsíða 4
Heimsferðir bjóða frábært verð á flugsætum til Alicante um páskana. Flogið er í beinu morgunflugi. Njóttu vorsólarinnar við Alicante um páskana. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti - takmarkaður fjöldi sæta í boði á þessu verði. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Alicante um páskana 16.-29. mars frá kr. 39.990 Frábært verð á flugsætum í páskaferð! Verð kr. 39.990 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is MARGIR ungir og efnilegir erlendir skákmenn taka þátt í 23. Alþjóðlega Reykjavíkurmótinu í skák sem verð- ur sett í skákhöllinni við Faxafen í dag. Kínverjarnir Wang Yue, sem er 20 ára, og Wang Hao, sem er 18 ára eru stigahæstu menn mótsins með 2.698 og 2.665 Eló-stig og báðir í hópi 50 sterkustu skákmanna heims en sá sem mun sennilega vekja einna mesta athygli er aðeins 11 ára alþjóð- legur meistari frá Úkraínu. Illya Nyzhnyk komst í heimsfrétt- irnar þegar hann sigraði í mjög sterkum lokuðum flokki á Opna Moskvumótinu, aðeins 10 ára gamall. Hann byrjaði að tefla fjögurra ára gamall og var Bobby Fischer helsta fyrirmyndin. Systir hans segir að hann hafi ekki haft neinar fyr- irmyndir heima, því enginn í fjöl- skyldunni tefli, en hins vegar sé mik- ill skákáhugi í Vinnytsya, þar sem þau búi, og þaðan sé til dæmis stór- meistarinn Sergey Fedozchuk og al- þjóðlegi meistarinn Nikolay Bodnar. Æfir sex tíma á dag Hugsanlega verður Illya Nyzhnyk yngsti stórmeistari sögunnar. Hann er með 2.406 Elóstig og á góðri leið með að verða alþjóðlegur meistari. Hann æfir skák sex tíma á dag og er með frjálsa mætingu í skólanum síð- an í haust. Mætir þó nokkuð reglu- lega í tíma á milli skákmóta en segist fyrst og fremst sakna stærðfræð- innar, því hún sé svo mikilvæg fyrir skákina. Illya segir einkum þrennt hafa ýtt undir þátttöku sína á Alþjóðlega Reykjavíkurmótinu. Í fyrsta lagi sé um heimsþekktan viðburð að ræða og mjög sterkt skákmót. Í öðru lagi hafi þetta verið fyrsta persónulega boðið sem hann hafi fengið og í þriðja lagi hafi sig langað til að hitta Bobby Fischer, en því miður hafi hann kom- ið of seint til þess. Hann segist ekki vera hingað kominn til þess að verða meistari heldur fyrst og fremst til þess að tefla eins vel og hann geti og öðlast reynslu. Þegar Illya Nyzhnyk vakti heims- athygli tefldi hann með bangsa í fanginu. Hann segir að sá tími sé lið- inn. „Ég er ekki lengur smábarn heldur fullorðinn skákmaður og hef ekki teflt með bangsann í eitt og hálft ár.“ Þrjú frá Indlandi Þrír indverskir meistarar keppa á mótinu. Tania Sachdev er með 2.421 Elostig og Indlandsmeistari kvenna í skák. Srinath Narayanan er 13 ára og með 2.210 stig en Sahaj Grover, 12 ára, er með 2.242 stig. Þeir hafa báðir orðið heimsmeistarar barna hvor í sínum aldursflokki. Tania Sachdev er 21 árs og hefur teflt í 14 ár, þar af á alþjóðlegum mót- um í Evrópu í átta ár. Hún segir að hún hafi verið frekar óstýrilát sem krakki og aldrei getað setið kyrr. „Það teflir enginn í fjölskyldunni en mamma fann út að eina leiðin til að halda mér rólegri var að láta mig tefla svo hún setti mig í skákskóla og þannig hófst ævintýrið í raun fyrir til- viljun,“ segir hún. Síðastliðið haust lauk Tania há- skólanámi í enskum bókmenntum. Hún segist vilja halda áfram námi en hafi ekki gert upp við sig hvað hún eigi að taka fyrir og tefli því á meðan. Sahaj Grover og Srinath Naray- anan byrjuðu að tefla rúmlega fjög- urra ára gamlir og í báðum tilfellum komu bræður þeirra þeim á sporið. Þeir segjast ætla að leggja sig vel fram á mótinu og hafa þegar sett stefnuna á stórmeistaratitil í framtíð- inni. Sá elsti 86 ára Bjarni Magnússon er aldursforseti mótsins, 86 ára. Hann lærði að tefla 10 ára og tefldi fyrst opinberlega í Hafnarfirði 1937. Bjarni er með 1.913 stig og varð meistari á skákþingi 1947 til 1949. „Ég kann alltaf best við mig í skák- sal,“ segir Bjarni og er ánægður með fyrirkomulag Reykjavíkurskákmóts- ins, þar sem allir séu í sama potti. „Ég er bjartsýnn á að ég fái tvo vinn- inga,“ segir hann. Um 100 keppendur Reykjavíkurskákmótið verður sett klukkan 17 í dag og næstu daga hefst keppni klukkan 17 en klukkan 14 um helgina. Um 100 keppendur eru skráðir til leiks og þar af um 65 er- lendir skákmenn. Keppni hefst í skákhúsinu, Faxafeni 14, og flyst í Ráðhús Reykjavíkur í lokin. Ég er ekki smábarn lengur heldur fullorðinn skákmaður Morgunblaðið/Golli Snillingar Systkinin Kateryna og Illya Nyzhnyk frá Úkraínu hlusta á forseta Skáksambandsins í Skákhöllinni. Margir efnilegir erlendir skákmenn á Alþjóðlega Reykjavíkurmótinu í skák ALÞJÓÐLEGA Reykjavíkurskákmótið var fyrst haldið 1964 og síðan hafa margir af bestu skákmönnum heims lagt nafn sitt við mótið. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, segir að nú sé lögð áhersla á að hafa eins fjölbreyttan keppendalista og mögulegt sé, keppendur með ólíkan bakgrunn frá mörgum löndum. Sérstök áhersla sé lögð á að fá upp- rennandi skákstjörnur meðal annars frá Kína, Indlandi, Úkraínu og Bandaríkjunum. Í því sambandi nefnir hún til dæmis bandaríska snillinginn Ray Robson, sem sé 13 ára og margir telji líklegan arftaka Bobby Fishers. „Hann er talinn vera eitt mesta efni Bandaríkjanna sem sést hefur um árabil,“ segir hún. Fjölbreyttur keppendalisti og upprennandi skákstjörnur 4 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞAÐ VAR tekin ákvörðun af hálfu framkvæmdastjórnar Lands- virkjunar um að fyrirtækið verði kolefnishlutlaust á næstu árum. Við erum að fara í gegnum alla losun okkar vegna bruna jarðefna- eldsneytis frá samgöngum, flugi og bílum, þar með talið bílaleigu- bílum,“ segir Ragnheiður Ólafs- dóttir, umhverfisstjóri Landsvirkj- unar, um hina nýju stefnu. „Við erum einnig að skoða land- græðslu Landsvirkjunar á undan- förnum 40 árum og sú binding kol- efnis sem þar er í gróðri kemur til jöfnunar. Við ætlum hins vegar ekki að nota þá bindingu til að slá af markmiðum okkar heldur verð- ur áherslan á að draga úr kolefn- islosun á öllum sviðum.“ Ragnheiður bætir því svo við að verið sé að skoða kolefnislosun frá uppistöðulónum, metan losni frá lónunum þegar land fari undir vatn og þá losun þurfi að taka með í reikninginn. Fjarfundarbúnaður notaður til að draga úr umferð Spurð um samgönguhlutann segir Ragnheiður Landsvirkjun nú vera að setja upp fjarfundabúnað á öllum starfsstöðvum, sem hjálpi verulega til að draga úr ferðum. Þá hafi fyrirtækið átt í samstarfi við Íslenska NýOrku um notkun visthæfra ökutækja. Hins vegar þurfi að gera betur og gefa meiri gaum að vetnisbílum og öðrum farartækjum sem mengi lítið eða ekkert. Áherslan sé á að breyta sam- setningu bílaflota fyrirtækisins og innleiða þá stefnu að kaupa bíla sem uppfylli evrópska umhverfis- staðla (EURO 4 og 5) um lágmörk- un mengunar. Ennfremur verði starfsmönnum Landsvirkjunar boðið á námskeið um visthæfan akstur. Landsvirkjun verði kolefnishlutlaus Morgunblaðið/Golli Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÁRIÐ 2000 tók Orkuveita Reykja- víkur þátt í tilraunum með hreyf- ilhitara í Reykjavík, sem tengdir voru við innstungur við fjölbýlishús í Árbænum. Tilraunirnar leiddu ekki af sér útbreidda notkun bún- aðarins, en með hliðsjón af him- inháu olíuverði má ætla að sá elds- neytissparnaður sem notkun hans felur í sér verði til að auka áhugann á nýjan leik. Þetta er mat Ásdísar Kristins- dóttur, vélaverkfræðings hjá Orku- veitunni, en hún segir stóran hluta af 166 ökutækjum framkvæmda- sviðs OR þegar búinn hreyfilhitara. Hún vísar jafnframt til vefsíðu um verkefnið í Árbænum, þar sem fram kemur að hreyfilhitarar séu álitnir góð fjárfesting, sem dragi úr bensíneyðslu, mengun og vélarsliti. Tekið skal fram að tölurnar á um- ræddri vefsíðu – sem er á vefsvæði Landverndar – eru nokkurra ára gamlar, en þar segir að samkvæmt tölum frá OR megi ætla að dagleg meðalnotkun hreyfilhitara og hita- blásara krefjist um 360 kílówatt- stunda af orku og að orkukostn- aðurinn sé því alls um 2.700 krónur á ári. Heildarkostnaður með ísetn- ingu var þá metinn á nokkra tugi þúsunda. Ásdís segir aðspurð OR ekki úti- loka að fyrirtækið muni greiða fyrir notkun hreyfilhitara með því að taka þátt í uppsetningu nauðsyn- legra tengla fyrir búnaðinn. Vilji sé af hálfu OR til að skoða málið. Ókeypis hleðsla fyrir rafbíla OR hefur sett sér það markmið að 55% af ökutækjum á vegum fyr- irtækisins verði skilgreind sem vist- hæf árið 2013 og stendur til að fjölga metanbifreiðum úr níu í 24 á þessu ári, ásamt því sem nokkrar vetnis- og rafmagnsbifreiðar eru nú í tilraunaakstri hjá fyrirtækinu. Ásdís segir það metnað fyrirtæk- isins að auka áhuga almennings á visthæfum samgöngum. Ýmislegt sé í gangi og nefna megi að senn verði eigendum rafmagnsbifreiða boðið upp á ókeypis hleðslu í nokkrum af- mörkuðum stæðum við Kringluna, Smáralind og í Bankastræti. Eigendur rafmagns- bíla fái ókeypis hleðslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.