Morgunblaðið - 03.03.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.03.2008, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is HAFÍS hefur valdið starfsmönnum Ístaks sem vinna að virkjunarfram- kvæmdum við Sisimiut á vest- urströnd Grænlands erfiðleikum að undanförnu. Hafísinn gerði erfitt fyrir um aðdrætti og voru þeir orðn- ir olíulitlir fyrir vikið fyrir skömmu. Í vikunni rættist þó úr því þeir fengu 700 tonna skuttogara til að ryðja sér leið í gegnum ísinn 22 kílómetra leið frá Sisimiut inn í fjarðarbotninn þar sem virkjuninni er fyrirhugaður staður. „Við erum nýbúnir að brjóta okk- ur leið í gegnum ísinn og fá allt fyllt upp af olíu, þannig að við erum ansi brattir í dag. Ef þú hefðir talað við mig fyrir rúmri viku síðan hefði ég verið heldur svartsýnni,“ sagði Guð- mundur Þórðarson byggingartækni- fræðingu, sem stýrir framkvæmd- unum fyrir Ístak á Grænlandi í samtali við Morgunblaðið. Virkjuninni er ætlaður staður innst í þröngum firði sem heitir „Annar fjörður“ upp á grænlensku. Sjóleiðin er helsti samgöngumátinn við þéttbýlið í Sisimiut, en virkj- uninni er ætlað að leysa af hólmi dís- ilrafstöðvar á svæðinu sem séð hafa bænum og nágrenni fyrir orku. Sjóleiðin opin til áramóta Guðmundur sagði að þeir hefðu getað haldið sjóleiðinni opinni allt til áramóta með því að sigla daglega á milli, þó þeir hafi þurft að hafa mjög mikið fyrir því í desember. „Við höf- um verið óheppnir með veðurlag á þessu svæði í vetur miðað við síðustu 10–15 ár. Til dæmis hefur rekísinn hér fyrir utan vesturströndina ekki náð jafnmikilli útbreiðslu til suðurs í 15 ár, auk þess sem lofthitinn í jan- úar og febrúar hefur verið heldur lægri að meðaltali en undanfarin 10 ár.“ Guðmundur sagði að þeir hefðu vitað þegar þeir tóku að sér verk á þessum stað að það gæti verið dálítið áhættusamt að halda úti fram- kvæmdum árið um kring og að til þess gæti komið að þeir þyrftu jafn- vel að lúta náttúrulögmálunum og leggja niður störf yfir háveturinn, en til þess hefði ekki komið enn og ekki myndi koma til þess í vetur því þeir væru komnir með olíubirgðir sem dygðu þeim fram í maí. Boruðu og sprengdu „Það var lán í óláni að 700 tonna togari sem hér er komst ekki á miðin vegna íss og útgerðarmaður skipsins bauð okkur að láta skipið brjóta sér leið í gegnum ísinn inn í fjarðarbotn fyrir ákveðna upphæð, þar sem hann hefði hvort eð er ekkert annað að gera og gæti ekki farið að veiða. Við samþykktum það og það tók skipið sex sólarhringa að brjóta sér leið í gegnum ísinn með alls konar æfing- um. Við boruðum og sprengdum vakir fyrir framan skipið þar sem erfiðast var að brjóta ísinn,“ sagði Guðmundur einnig. Hann sagði að síðan hefðu þeir að- fararnótt þriðjudagsins síðastliðins fengið olíu með strandferðaskipinu á svæðinu sem sæi um að dreifa olíu til byggða meðfram ströndinni. Þeir hefðu því næga olíu fram í maí. Á FJÓRÐA hundrað jarðskjálftar mældust á svæðinu í nágrenni Upptyppinga norðan Vatnajökuls á sunnudag, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Ekki var hætta á ferðum en flestir skjálft- arnir voru þrír á Richter eða minni. Margar skjálftahrinur hafa verið við Upptyppinga frá því í lok febr- úar 2007 og einkenni þeirra er hversu upptök skjálftanna standa djúpt, en flestir eru á 15 km dýpi miðað við 8-9 km dýpi ef um jarð- skjálfta á flekaskilum er að ræða. Dýptin og önnur atriði benda til þess að skjálftahrinurnar tengist kvikuhreyfingum í neðri hluta jarðskorpunnar. Um 320 skjálftar við Upptyppinga                                                     Tengist kviku- hreyfingum í jarðskorpunni VIRKJUNIN sem Ístak byggir í „Öðrum firði“ er 15 megavött að stærð og á að sjá þéttbýlinu í Sisimiut og nágrenni fyrir orku. Framkvæmdir hófust í júní síðast- liðnum og verkinu á að vera lokið í maí 2010. Ístak hefur reist um 80 manna þorp á svæðinu og þar starfa að staðaldri um 15 Íslend- ingar sem fyrst og fremst eru í stjórnunar- og þjónustustörfum. Ís- tak sér um alla þætti framkvæmd- arinnar og þ. á m. byggingu stöðv- arhúss, borun jarðganga og byggingu háspennulínu. Uppistöðu- lón virkjunarinnar er náttúrulegt stöðuvatn sem er í 80 metra hæð yf- ir sjó. Um fimm kílómetra löng jarðgöng eru boruð frá vatninu og til stöðvarhússins sem stendur við fjarðarbotninn og er um 27 kíló- metra frá Sisimiut sem er bæj- arfélag sem telur um 5.300 íbúa og um 1.100 til viðbótar búa á land- svæðinu í kring, m.a. 5-600 í Syðri- Straumfirði, þar sem alþjóða- flugvöllur er staðsettur. 15 MW virkj- un innst í „Öðrum firði“ Hafís veldur starfsmönnum Ístaks erfiðleikum við vesturströnd Grænlands þar sem þeir byggja virkjun Voru sex sólarhringa að brjóta sér 22 km leið í gegnum ísinn Ljósmynd/Kiddi Einars Sprengingar Starfsmenn Ístaks sprengdu vakir í ísinn þar sem hann var þykkastur til þess að auðvelda togar- anum að brjóta sér leið í gegnum ísinn, en það tók sex sólarhringa að brjóta sér leið inn í fjarðarbotninn. Olía Strandferðaskip þeirra Grænlendinga komið inn í fjarðarbotninn með olíubirgðir sem duga fram á vor.             !        ! " Eftir Örn Þórarinsson ÞAÐ óhapp varð við bæinn Langhús í Fljótum sl. laugardag að mjólkurbifreið frá Mjólkursamlagi Skagfirðinga fór út af heimreiðinni og á hliðina. Ökumað- urinn slapp án teljandi meiðsla. Skilyrði til aksturs voru slæm þegar óhappið varð. Mikið hafði snjóað í logni um nótt- ina og því mjög blindað. Um fjögur þús- und lítrar af mjólk voru í bílnum þegar óhappið varð. Talið er að um helmingur hafi helst niður en fenginn var annar mjólkurbíll frá Sauðákrók til að sækja það sem hélst í bílnum. Síðar um daginn var fengin öflug grafa frá Sauðárkrók til að reisa bílinn við og veghefill til að draga hann upp á veginn. Á staðnum virtust skemmdir aðallega vera á húsi bílsins en þær voru ótrúlega litlar. Virð- ist sem snjór sem þarna var talsvert mikill og nýfallinn hafi orðið til þess hlífa við frekari skemmdum. Mjólkurbíll fór á hliðina Morgunblaðið/Örn Þórinsson Óhapp Öflug grafa frá Sauðárkróki var fengin til að reisa bílinn við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.