Morgunblaðið - 11.03.2008, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KJARASAMNINGAR Starfsgreinasambandsins
og Flóabandalagsins við Samtök atvinnulífsins
voru samþykktir með afgerandi hætti í öllum að-
ildarfélögum, en talningu atkvæða lauk í gær.
Rétt til að greiða atkvæði um samninginn höfðu
alls 31.859 félagsmenn SGS, þar af 18.374 innan
Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar, VSFK og Boð-
ans.
Af þeim sem greiddu atkvæði samþykktu 84%
félagsmanna landsbyggðarfélaga SGS samning-
inn og 85% félagsmanna Flóafélaganna. Þátttaka
var 20,5%, nokkuð meiri á landsbyggðinni eða
24,5% en tæp 18% hjá Flóafélögunum.
73% samþykk í Trésmiðafélagi Rvk.
Hjá aðildarfélögum Samiðnar fór talning at-
kvæða fram í gærkvöldi og mun ljúka í dag. Í gær
lágu niðurstöður fyrir um samninga Samiðnar
fyrir hönd Trésmiðafélags Reykjavíkur við SA
annars vegar og Samiðnar við Meistarasamband
byggingamanna. Voru samningarnir samþykktir í
allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu. 73% þeirra
sem greiddu atkvæði sögðu já, en 27% greiddu at-
kvæði gegn samningunum. Nálega fimmtungur
félagsmanna tók þátt.
13,9% kosningaþátttaka hjá VM
Talningu atkvæða í póstatkvæðagreiðslu um
kjarasamning Félags vélstjóra og málmtækni-
manna (VM) við Samtök atvinnulífsins lauk kl. 16 í
gær. Á kjörskrá voru 2.029 félagsmenn og tóku
283, þ.e. 13,9%, þeirra þátt í kosningunni. Auðir
seðlar voru 2 og 28 ógildir. Já sögðu 184 eða
72,2%.
Bókagerðarmenn samþykktu
Félagar í Félagi bókagerðarmanna hafa einnig
samþykkt kjarasamning við Samtök atvinnulífs-
ins en talningu atkvæða lauk í gær. Á kjörskrá
voru 1.091. 356 kusu eða 32,6%. 271 samþykkti
samninginn eða 76,1%, 78 voru andvígir samn-
ingnum eða 21,1% og auðir og ógildir voru 7 eða
2%.
Þá hefur kjarasamningur MATVÍS og SA verið
samþykktur af aðildarfélögum félagsins. Samtals
voru greidd 152 atkvæði og voru 143 af þeim gild.
Já sögðu 122 eða 80,3%, nei sögðu 21 eða 13,8%.
Auðir og ógildir seðlar voru 9 eða 5,9%.
Sigurður Bessason, formaður Eflingar stétt-
arfélags, er þeirrar skoðunar að úrslit atkvæða-
greiðslunnar innan félagsins í gær sýni að almenn
ánægja sé með niðurstöður kjarasamninganna,
„þó maður hefði vissulega viljað sjá meiri þátt-
töku,“ segir Sigurður. Hann telur þó ekki að túlka
megi takmarkaða þátttöku í atkvæðagreiðslunni
sem óánægju með samningana heldur bendi
margt til þess að almennt séu félagsmenn ánægð-
ir. Ætla megi að margir hafi sleppt því að kjósa í
trausti þess að aðrir sjái um að afgreiða þá.
Í ljós kom mikil þátttaka erlendra starfsmanna
í atkvæðagreiðslum hjá einstökum stéttarfé-
lögum. Hjá Verkalýðsfélagi Húsavíkur og ná-
grennis kom t.d. á daginn að 98 erlendir starfs-
menn greiddu atkvæði eða 70% þeirra sem höfðu
atkvæðisrétt. Til samanburðar höfðu 517 íslenskir
starfsmenn atkvæðisrétt, þar af greiddu 183 at-
kvæði eða 35% þeirra sem voru á kjörskrá. „Sam-
kvæmt þessari niðurstöðu var þátttaka erlendra
starfsmanna í könnuninni mun betri en íslenskra
starfsmanna sem eiga það sameiginlegt að vera
félagsmenn í Verkalýðsfélagi Húsvíkur og ná-
grennis,“ segir í frétt á vef félagsins.
Samningarnir samþykktir
með yfirgnæfandi meirihluta
Kjarasamningarnir á almenna
vinnumarkaðinum voru sam-
þykktir með miklum meirihluta
í öllum stéttarfélögum sem hafa
lokið atkvæðagreiðslu um samn-
ingana og birt niðurstöðurnar.
Morgunblaðið/Golli
Talning Atkvæðagreiðslu um kjarasamningana lauk hjá Eflingu og öðrum Flóafélögum kl. 12 í gær og
hófst þá talning atkvæða í húsnæði Eflingar sem gekk hratt og vel fyrir sig. Úrslit lágu fyrir síðdegis.
ÞRIGGJA daga
opinber heimsókn
forsetahjónanna,
Ólafs Ragnars
Grímssonar og
Dorritar Moussa-
ieff, til Mexíkó
hefst í dag með
því að forseti Ís-
lands leggur
blómsveig frá ís-
lensku þjóðinni að
minnisvarða um frelsishetjur Mexíkó.
Þá tekur við hátíðleg móttökuathöfn
við Þjóðarhöllina í Mexíkóborg þar
sem forsetar beggja landa flytja
ávarp. Í kjölfarið fer fram viðræðu-
fundur forseta Mexíkó og Íslands
ásamt ráðherrum og sendinefndum
beggja landa.
Um hádegisbil að staðartíma munu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og ráðherrar úr
ríkisstjórn Mexíkó að viðstöddum for-
setum beggja landa staðfesta samn-
ing um afnám tvísköttunar milli land-
anna og samkomulag um rannsóknir
og aðra samvinnu á vettvangi jarð-
hita. Í kvöld flytur forseti Íslands fyr-
irlestur og tekur þátt í samræðum um
loftslagsbreytingar og nýjar leiðir í
orkubúskap veraldar á fundi Alþjóða-
málaráðs Mexíkó.
Heimsókn
til Mexíkó
Ólafur Ragnar
Grímsson
Samningur um
afnám tvísköttunar
GEIR H. Haarde
forsætisráðherra
greinir frá stöðu
íslenskra efna-
hagsmála í New
York á fimmtu-
dag og situr síðan
fyrir svörum
fréttamanna.
Hann verður
jafnframt á meðal
fyrirlesara á ársfundi íslensk-amer-
íska viðskiptaráðsins á fimmtudag.
Forsætisráðherra býður frétta-
mönnum upp á einkaviðtöl á
fimmtudag og föstudag eftir ráð-
stefnuna, en auk hans fjalla Lárus
Welding, forstjóri Glitnis, Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings, Sigurjón Árnason, annar
bankastjóra Landsbankans, og
Gregory Miller, prófessor við Har-
vard-háskóla, um íslensku bankana
og efnahagsmálin.
Geir fer til
New York
Geir H. Haarde
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra fer í opinbera heim-
sókn til Danmerkur í dag. Hún geng-
ur á fund
Margrétar Þór-
hildar Dana-
drottningar og
hittir Per Stig
Møller, utanríkis-
ráðherra Dana.
Þau munu meðal
annars ræða mál-
efni Norður-Ís-
hafsins, alþjóða-
mál, svo sem
Afganistan, Mið-Austurlönd og lofts-
lagsmál, Evrópumál og framboð Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Þá á ráðherra fundi með
utanríkismálanefnd danska þingsins
og formanni danskra jafnaðar-
manna.
Viðskiptaráð Íslands stendur í dag
fyrir ráðstefnu í Kaupmannahöfn um
íslensk efnahagsmál í ljósi alþjóða-
væðingar og flytur Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir framsöguerindi. Aðrir
ræðumenn verða dr. Richard Portes,
Sigurður Einarsson, stjórnarfor-
maður Kaupþings, og Sigurjón Sig-
hvatsson kvikmyndagerðarmaður.
Efnahags-
málin rædd
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
♦♦♦
♦♦♦
„ÞETTA er mjög afgerandi stuðningur við
samningana,“ segir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamn-
inga sem SA undirrituðu við meginþorra stétt-
arfélaga innan ASÍ þann 17. febrúar fór fram í
vikunni 3.-7 mars meðal aðildarfyrirtækja SA.
Samningarnir voru samþykktir með 88%
greiddra atkvæða, 9,7% atkvæða voru greidd
gegn samningunum en 2,3% tóku ekki afstöðu.
Kosningaþátttaka var 38,2%.
Atkvæðagreiðslan gildir um kjarasamninga
sem gerðir hafa verið við eftirfarandi sambönd
og félög: Starfsgreinasambandið, Flóabanda-
lagið, Verslunarmenn (VR/LÍV), Rafiðnaðar-
samband Íslands, Samiðn, Félag bókagerðar-
manna (FBM), Félag vélstjóra- og málmtækni-
manna (VM) og Matvís.
„Okkur finnst mjög gott að finna þennan
stuðning og þetta traust sem er á kjarasamning-
unum í atvinnulífinu,“ segir Vilhjálmur. ,,Þetta
er í fyrsta sinn í sögu Samtaka atvinnulífsins sem
fram fer svona heildaratkvæðagreiðsla um
kjarasamninga,“ segir Vilhjálmur.
88% í SA samþykktu samningana
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
ÍSLENSKIR bændur bíða ekki í
röðum eftir að geta hafið lífrænan
búskap. Ekki er nægur fjárhagsleg-
ur hvati til að fara út í slíkt hér á
landi miðað við núgildandi reglur.
Ekki stendur þó á faglegri þjónustu
Bændasamtakanna, segir formað-
urinn, Haraldur Benediktsson, sem
segir óraunhæft að ætla sér að ná því
markmiði sem sett hefur verið fram í
þingsályktunartillögu, að 15% fram-
leiðslunnar verði vottuð lífræn að 12
árum liðnum. Í dag er hlutfallið inn-
an við 1%, líkt og fram kom í máli
Ólafs Dýrmundssonar landnýtingar-
ráðunautar í Morgunblaðinu í gær.
„Menn eiga ekki að vera að binda
sig við prósentutölur,“ segir Harald-
ur. „Það er vissulega þörf á því að
setja markmið og eðlilegt að við snú-
um okkur að því að ýta undir áhuga á
lífrænni ræktun.“
En hvers vegna er áhuginn ekki
meiri en raun ber vitni?
„Vandamálið hefur verið það að
menn hafa ekki verið að hafa það út
úr lífrænni framleiðslu sem þeir
verða að fá til að
geta staðið í
þessu,“ segir
Haraldur. Hann
segir áhuga á
slíkri ræktun ekki
virðast vera mik-
inn og játar að
ekki hafi nóg ver-
ið gert til að ýta
undir hann. „En
það hefur hins
vegar ekkert staðið í vegi fyrir að
menn fari út í slíkan búskap,“ segir
hann. „Ég get ímyndað mér að fólki
finnist of lítið vera í pottinum fyrir
þá bændur sem vilja fara í nauðsyn-
legt aðlögunarferli. En við höfum
einfaldlega ekki haft meiri peninga.
Ég er algjörlega samfærður um að
við eigum að reyna að lyfta undir
þennan búskap. Mín tilfinning er sú
að markaðurinn kalli eftir því.“
Samtökin tilbúin að hafa
frumkvæði að stöðumati
Haraldur segir brýnt að gera
stöðumat á því hverjir séu tilbúnir að
fara út í lífræna ræktun og hvað
þurfi að gera til að ýta slíkum búskap
úr vör. Hann segir Bændasamtökin
tilbúin að hafa frumkvæði að því.
„Þau meðöl sem við höfum haft hing-
að til eru greinilega ekki að duga og
þá eigum við að vera óhrædd við að
velta við öllum steinum, hvort sem
það varðar menn, málefni eða fjár-
muni.“
Hann segir þegar búið að marka
ákveðna stefnu í málaflokknum, t.d. í
samningi við hið opinbera um fag-
starfsemi þar sem viðurkennt sé að
lífrænn búskapur sé mikilvægur. Þá
sé í fyrsta sinn fjallað um lífræna
framleiðslu í nýjum sauðfjársamn-
ingi.
Haraldur segir staðreynd að bú-
skaparaðstæður hér séu öllu lakari
en í flestum nágrannalöndunum. Það
geti haft áhrif á umfang lífræns bú-
skapar.
„Það breytist ekkert þó við förum í
lífræna framleiðslu,“ segir hann.
„En hvort sem við erum að tala um
lífræna framleiðslu eða hefðbundinn
búskap liggur okkar sérstaða í gras-
nytjum og fóðurframleiðslu úr grasi.
Samkeppnisstaða okkar er því að
styrkjast nú þegar kornverð er
hátt.“
Vantar peninga til að ýta
undir lífrænan búskap
Haraldur
Benediktsson
Utanríkis-
ráðherra hefur
skipað Grétu
Gunnarsdóttur,
sviðsstjóra al-
þjóða- og örygg-
issviðs, Þóri Ib-
sen, skrifstofu-
stjóra varnar-
málaskrifstofu,
og Sigríði Önnu
Þórðardóttur, fyrrverandi ráðherra,
sendiherra í utanríkisþjónustunni.
Skipun Grétu og Þóris miðast við 15.
þessa mánaðar og skipun Sigríðar
Önnu miðast við 1. júlí nk. Ekki
kemur fram hvar þau koma til með
að starfa. Einn sendiherra mun láta
af embætti á þessu ári og á næsta ári
munu fimm til sjö sendiherrar til
viðbótar láta af embættum.
Þrír nýir
sendiherrar
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Gréta
Gunnarsdóttir
Þórir Ibsen