Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 19 LANDIÐ Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | Hjónin Svala Jóns- dóttir og Agnar Jónasson hafa keypt fyrirtækið Helluskeifur ehf. og hafið starfsemi í Stykkishólmi. Fyrirtækið er keypt frá Hellu og höfðu fyrri eig- endur rekið Helluskeifur frá árinu 1989. Þau hjón eru þegar farin að búa til skeifurnar og hefur gengið vel að koma starfseminni af stað aft- ur. Agnar Jónasson segir að þau framleiði átta stærðir af skeifum. Í hverri stærð er hægt að fá skeif- urnar pottaðar eða hafa þær gat- aðar. En hvað eru pottaðar skeifur? Því svarar Agnar: „Þá er soðið á þær framan á tána. Einnig er ég með þrjár þykktir af skeifum, 6 mm, 8 mm og 10 mm. Það eru því margar gerðir af skeifum sem ég þarf að framleiða fyrir hestamennina,“ segir Agnar. Þjóna þörfum hestamanna Vélbúnaðurinn getur afkastað um 300 skeifum á klukkustund. Agnar segist renna dálítið blint í sjóinn með markaðinn. „Fyrri eigendur fram- leiddu allt að 20.000 ganga. Einhvers staðar las í ég það að á Íslandi væru um 25.000 hross á járnum og ef það eru réttar tölur er markaður fyrir á milli 30 og 40 þúsund ganga,“ segir Agnar. Hann segir ennfremur að hesta- menn séu farnir að nota mikið upp- sláttarskeifur og þær séu fluttar til landsins. „Við erum að leita erlendis að vél til að framleiða þannig skeifur. Við vorum að kaupa vél til að búa til skafla sem við byrjum á að framleiða í haust. Það er markmið okkar hjóna að geta séð íslenskum hestamönnum fyrir öllum þeim skeifum sem þeir þurfa á að halda. Skeifurnar sem við framleiðum þykja góðar og eru mun sterkari en innfluttar skeifur. Okkar skeifur duga hvað best á hestaferð- um um hálendið. Við viljum komast í gott samband við hestamenn því hvernig til tekst með fyrirtækið er undir þeim komið,“ segir Agnar. Agnar er búinn að koma sér upp heimasíðu, helluskeifur.is, og þar er hægt að skoða framleiðsluna og panta. Hann segist senda frítt til kaupenda á höfuðborgarsvæðinu ef pantaðar eru 10 gangar eða fleiri. En það er fleira sem Agnar Jón- asson fæst við. Eitt af því tengist líka útivist að sumri til. Hann hefur rekið tjaldvagnaleigu frá árinu 2000. Sú starfsemi hefur gengið vel. Hann verður með 14 tjaldvagna til útleigu í sumar og eitt hjólhýsi. Nú þegar er farið að hringja til Agnars og panta fyrir sumarið. Þá smíðar Agnar rúlluheyskera. Þær smíðar hefur hann stundað í nokkur ár og salan gengur vel. Hann selur rúlluheyskerana út um allt land og er að framleiða um 70 til 100 skera á ári hverju. Þau hjónin hafa því ým- islegt á prjónunum og segist Agnar vera kátastur þegar hann hefur nóg að gera. Þessu til viðbótar finnst hon- um það ekki mikið mál þótt hann annist næturgæslu í hjá Vökustaur ehf. aðra hverja viku. Fyrirtækið er undir hestamönnum komið Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Glóandi járn Járnið er hitað við mikinn hita og mótað á eftir. Margar teg- undir af skeifum eru framleiddar hjá Helluskeifum ehf. Vor í nánd Hjónin Svala Jónsdóttir og Agnar Jónasson eru farin að smíða skeifur. Þau keyptu fyrirtæki frá Hellu og eru að færa út kvíarnar. Agnar Jónasson býr til skeifur, rúlluheyskera og leigir út tjaldvagna Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Töluvert á annað hundrað manns hóf píslargönguna sem að venju hófst við Hótel Reynihlíð að morgni föstudagsins langa. Það var nýtt að þessu sinni fyrir upphaf göngunnar, að fólki gafst kostur á að ganga út í Reykjahlíðarkirkju og hlýða á fornan íslenskan tíðasöng í flutningi séra Þorgríms G. Daníelssonar á Grenjaðarstað. Þegar kemur í Skútustaði gefst kostur á að ganga til kirkj- unnar og hlýða um stund á sr. Örnólf J. Ólafsson flytja passíusálma. Veðrið hélst áfram ákaflega notalegt gönguveður, smá sólskinsglampar en annars skýjað og stillt. Flestir skiluðu sér til baka milli kl. 14 og 17 og þá var aðeins eftir að fara í Jarðböðin og gefa sér góðan tíma þar til að láta þreytuna líða úr líkama og sál. Píslarganga í blíðviðri við Mývatn Morgunblaðið/BFH Áfangi Það er létt yfir göngufólkinu þegar komið er í Hlíðarkamb og aðeins síðasti kílómetrinn eftir. Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði Líf og störf í dreifðum byggðum Hólaskóla - Háskólanum á Hólum 28.-29. Mars 2008 Föstudagur 28. mars 13:00-13:15 Skráning 13:15-13:50 Setning ráðstefnunnar Málfríður Finnbogadóttir, ráðstefnustjóri Inngangsfyrirlestur Þorbjörn Broddason, Háskóla Íslands Segir ein mynd meira en þúsund orð? 14:00-14:50 Málstofa I - Fjölmiðlar Ragnar Karlsson - Hagstofu Íslands Af lággróðrinum í íslenskum fjölmiðlum: Fátt eitt um aðstæður héraðs- og staðarfjölmiðla Birgir Guðmundsson - Háskólanum á Akureyri Geltir varðhundur almannahagsmuna síður í smáum samfélögum? 14:00-14:50 Málstofa II - Afbrot Margrét Valdimarsdóttir - Háskóla Íslands og Lýðheilsustöð Félagsgerð hverfasamfélagsins og afbrot ungmenna Helgi Gunnlaugsson - Háskóla Íslands Afbrot á Íslandi 15:20-17:15 Málstofa III - Menntun /menning Bragi Guðmundsson - Háskólanum á Akureyri Ástkæra fósturmold - öndvegi íslenskra dala Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir - Verkmennta- skólanum á Akureyri Að taka þátt í starfi bekkjarins Kristín Aðalsteinsdóttir og Guðmundur Engilbertsson - Háskólanum á Akureyri og Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir - Verkmenntaskólanum á Akureyri Fjölmenningarleg kennsla Finnur Friðriksson - Háskólanum á Akureyri Góðkunningjar málfarslöggunnar: Svæðisbundin staða og viðhorf 15:20-17:15 Málstofa IV - Ferðaþjónusta Edward H. Huijbens - Ferðamálasetri Íslands Græna græðgin Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir - Hólaskóla - Háskólanum á Hólum Nám í hestaferðaþjónustu Ingibjörg Sigurðardóttir - Hólaskóla - Háskólanum á Hólum Framleiðni í afþreyingarfyrirtækjum: hvað stýrir henni? Kjartan Ólafsson - Háskólanum á Akureyri Áningarstaðir milli Akureyrar og Reykjavíkur Laugardagur 29. mars 09:00-09:30 Páll Björnsson - Háskólanum á Akureyri Byggðamynstur, efnahagsskipan og hugmyndafræði 19. aldar 09:30-10:30 Málstofa V - Byggðaþróun I Hjalti Jóhannesson - Háskólanum á Akureyri Eyjaeinkenni: ,,Ég hef aldrei fengið vinnu öðruvísi en að hafa þurft að bera mig eftir henni" Þóroddur Bjarnason - Háskólanum á Akureyri Ertu á förum, elsku vinur? Fyrirætlanir íslenskra unglinga um búferlaflutninga af landi brott Atli Hafþórsson - Háskólanum á Akureyri Aldrei fór ég suður 9:30-10:30 Málstofa VI - Heilbrigði Hermann Óskarsson - Háskólanum á Akureyri Félagsleg breyting heilbrigði kynjanna Jón Gunnar Bernburg - Háskóla Íslands Fátækt og sjálfsvígshegðun ungmenna Gunnar Már Gunnarsson - Háskólanum á Akureyri Þetta er okkar land, af hverju eigum við að breyta okkur? 10:45-11:45 Málstofa VII - Byggðaþróun II Kolfinna Jóhannesdóttir - Háskólanum á Bifröst Aukin spurn íbúa úr þéttbýli eftir landi - áhrif á byggð og bú Vífill Karlsson - Háskólanum á Bifröst Þróun atvinnulífs og landfræðilegs breytileika fasteignaverðs Hilmar Þór Hilmarsson - Háskólanum á Akureyri Þátttaka íslands í aljóðlegri þróunarsamvinnu. Hefur landsbyggðin hlutverki að gegna? 11:45-12:00 Ráðstefnuslit Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum Ráðstefnan er styrkt af menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti Að ráðstefnunni standa: Háskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Ísafirði, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Framhaldsskólinn á Laugum, Framhaldsskólinn á Húsavík, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Verkmenntaskóli Austurlands og Hólaskóli - Háskólinn á Hólum Upplýsingar: malfridur@holar.is / s. 4556334 / 8996303

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.