Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 1
Gísli Súrsson >> 33 Allir í leikhús Leikhúsin í landinu STOFNAÐ 1913 108. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is VARÚÐ! SUMAR! VORIÐ ER KOMIÐ OG SUMARDÓTIÐ DREGIÐ FRAM. ÞÁ ER BETRA AÐ ÞAÐ SÉ Í LAGI >> 18 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8- 00 80 NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is FRÉTTASKÝRING Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is FLATARMÁL íslenskra jökla hefur rýrnað um 0,2-0,3% árlega undanfar- ið. Jöklar þekja nú 11 þúsund km2 af landinu, um 11% þess. Eftir 1995 hafa jöklar rýrnað verulega og örar en nokkru sinni fyrr, svo langt sem sög- ur ná. Sl. áratugur hefur einkum verið áfallasamur fyrir jöklana og því valda fyrst og fremst hlýrri sumur. Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur hjá Orkustofnun, Vatnamælingum, segir jökla landsins hafa rýrnað um 5–10% á 20. öldinni. Þeir verði að mestu horfnir eftir tvær aldir. „Spáð hefur verið að hlýna muni á landinu um eina eða fleiri gráður á þessari öld,“ segir Oddur. „Ef gert er ráð fyr- ir að hlýni um tvær gráður á þessari og jafnmikið á næstu öld, yrði landið skv. útreikningum á Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands orðið að langmestu leyti jökullaust að þeim tíma liðnum. Eftir yrðu þó fjalla- jöklar á Öræfajökli, í Kverkfjöllum, á Bárðarbungu og Hofsjökli.“ Ofgnótt vatns á næstu öldum Oddur segir Íslendinga seint þurfa að hafa áhyggjur af vatnsbúskap. Meðan jöklarnir hörfi verði ofgnótt af vatni í landinu þegar þeir skila birgð- um úrkomu frá fyrri öldum. Að því loknu hafi menn ærna úrkomu upp á að hlaupa. Um leið og jöklar hverfi muni ám fækka því þær safnist saman í farvegi. Land hækki í kringum Vatnajökul og aðstæður breytist í Hornafjarðarósi og við Jökulsá á Breiðamerkursandi. Landbreytingar verði verulegar og séu nú þegar vel mælanlegar. Suðurskautsjökullinn er 91% af öll- um ferskvatnsís jarðar og Græn- landsjökull tæp 9%. Þó íslenskir jökl- ar hafi því lítið að segja í heildar- myndinni, gefa þeir vísbendingar um þróun bráðnunar, enda mun óhægara um vik að spanna risana tvo. „Íslensk- ir jöklar eru nærtækari og segja okk- ur söguna í stórum dráttum. Engir jöklar í veröldinni eru jafnaðgengileg- ir. Þeir hafa á sögulegum tíma verið mjög nærgöngulir við mannabyggð og lagt heilar sveitir undir sig,“ segir Oddur. Hann kveður íslenskar jökla- rannsóknir vekja æ meiri athygli er- lendis og nefnir í því sambandi m.a. rannsóknir á breytingum á jökul- sporðum sem víða hefur verið getið. Morgunblaðið/RAX Hræringar Jöklar landsins rýrna. Jöklar rýrna æ hraðar Íslenskir jöklar eru rannsóknarlíkan Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÖRÐ andstaða er innan Sambands íslenskra sveitarfélaga við svo- nefnda landsskipulagsáætlun sem boðuð er í nýju frumvarpi umhverf- isráðherra til skipulagslaga. For- maður sambandsins segist telja að óbreytt frumvarp stríði gegn sjálf- stjórnarrétti sveitarfélaganna. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga ályktaði í upphafi mán- aðar gegn frumvarpinu og í nýlegri umsögn leggst sambandið alfarið gegn því að frumvarpið verði sam- þykkt, nema að undangegnum breytingum. Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, bendir m.a. á að í skipulags- og byggingarlögum komi fram að öll sveitarfélög skuli hafa lokið vinnu við aðalskipulag fyr- ir árslok 2008. Mörg sveitarfélög eru að vinna þá vinnu um þessar mundir. „Það er verið að leggja í þetta of- boðslega vinnu og örugglega tugi milljóna króna. Svo kemur þessi áætlun og segir kannski eitthvað allt annað. Okkur þykir þetta svolítið harkalegt,“ segir Halldór og tekur fram að niðurstaðan sé þverpólitísk. Einnig þykir óvissa ríkja um skipulag miðhálendisins en Sam- vinnunefnd um miðhálendið verður lögð niður verði frumvarpið að lög- um. Halldór segir menn velta fyrir sér hvort hægt sé með landsskipu- lagsáætlun að taka fram fyrir hend- ur sveitarstjórnar og t.d. heimila nýja virkjun í landi hennar, á for- sendum almannahagsmuna. Sjálfstjórn- unarréttur- inn í hættu Í HNOTSKURN »Ráðherra mælti fyrir frum-varpi til skipulagslaga í febr- úar, og verði það samþykkt taka lögin gildi um næstu áramót. »Helstu nýmælin eru svonefndlandsskipulagsáætlun sem ríkinu er skylt að leggja fram. Andstaða er við landsskipulagsáætlun  Óvissa skapar | 4 ÞESSI fallegi foss er talinn vera yfir 15 m hár og allt að 80 m breiður og rennur í nýrri jökulkvísl undan Brúarjökli, sem hopar nú hratt. Undan jökl- inum kemur hrikafagurt landslag sem rannsakað er af kappi. | Miðopna Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson Forgengileg náttúruperla Nýtt landslag kemur undan jökli YFIRLÝSINGAR liggja fyrir um það að ríkið muni standa straum af færslu Reykjanesbrautar í landi Hafnarfjarðar. Ekkert hefur breyst í þeim efnum að sögn Lúðvíks Geirs- sonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Hann segir það jafnframt skýrt af hálfu Hafnarfjarðarbæjar að sá hluti Reykjanesbrautar sem um ræðir verði færður enda sé gert ráð fyrir því í aðalskipulagi bæjarins. Engu breyti þótt tillaga um stækkun ál- versins í Straumsvík hafi verið felld í íbúakosningu fyrir um ári. „Við er- um þegar búin að úthluta stórum lóðum undir atvinnusvæði í sam- ræmi við aðalskipulagið,“ segir Lúð- vík sem leggur áherslu á að færsla vegarhlutans verði forgangsverkefni hjá Vegagerðinni. | 2 Ekkert hefur breyst varðandi brautina KOMIÐ hafa í ljós 160 óþekkt þorp á afskekktu regnfrumskógasvæði sem nú er verið að kortleggja í Lýðveldinu Kongó, áður Zaire. Bresk hjálpar- samtök annast verkið með aðstoð fólks á svæðinu. Markmiðið er að afla upplýsinga vegna þess að til stendur að úthluta vinnsluleyfum handa stór- fyrirtækjum sem ætla að nýta viðinn og stunda námugröft. Bretarnir nota GPS-staðsetningartæki en áður hafði verið notast við loftmyndir við kort- lagninguna og sáust þorpin ekki. Talið var að þarna væru aðeins um 30 þorp. Unnið er að endurreisn efnahags Kongó eftir fimm ára borgarastríð sem lauk að mestu 2003. Talið er að allt að fjórar milljónir manna hafi látið lífið beint og óbeint af völdum þessara átaka. Geysileg náttúruauðæfi eru í landinu auk skóganna, málmar og ýmis sjaldgæf jarðefni. Barátta um aðgang að þessum auðæfum ýtti undir átök- in. En milljónir Kongómanna lifa á gæðum regnskóganna og óttast menn að ef fyrirtækin hefji vinnslu á umræddu svæði verði lífsgrundvelli íbú- anna ógnað. Fundu 160 óþekkt þorp í frumskógum Kongó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.