Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND LISTAHÁTÍÐ ungs fólks í Kan- ada og á Íslandi, núna (now), fékk fljúgandi byrjun í Winnipeg í fyrra og fjöldi íslenskra listamanna tek- ur þátt í henni í ár. Að þessu sinni er hátíðin tvískipt. Í listasafninu Trucks í Calgary stendur nú yfir sýningin Sundogs þar sem Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Erling T.V. Klingenberg, Hekla Dögg Jónsdóttir, Páll Banine, Ragnar Kjartansson og Sirra Sig- rún Sigurðardóttir sýna verk sín til 11. maí. Sýningin er hluti af há- tíðinni núna (now), sem verður í Winnipeg 6. til 11. maí. Á meðal listamanna á listahátíð- inni í Winnipeg verða hljómsveitin Sprengjuhöllin, sópransöngkonan Þóra Einarsdóttir, tónlistarmaður- inn Jóhann Jóhannsson, dansarinn Erna Ómarsdóttir, skáldkonan Kristín Ómarsdóttir og listmál- arinn Gunnhildur Hauksdóttir. Auk þess taka margir kanadískir listamenn af íslenskum ættum þátt í hátíðinni. Sýningin í Calgary hefur hlotið mikla athygli og hafa aldrei mætt eins margir á opnun í 25 ára sögu Trucks-safnsins. Caelum Vatnsdal, ritstjóri blaðsins Lögbergs Heims- kringlu, segir að íslensku lista- mennirnir hafi svo sannarlega slegið í gegn. Atli Ásmundsson, aðalræðis- maður Íslands í Winnipeg, kom listahátíðinni á koppinn og heldur um þræðina í stjórnarnefnd The Canada Iceland Arts Festival Inc., en ungt listafólk í Manitoba er í listráði og sér um framkvæmdina. Ljósmynd/Caelum Vatnsdal Húsfyllir Fullt var út úr dyrum í listasafninu Truck í Calgary þegar Sun- dogs, sýning sex íslenskra listamanna, var opnuð. Íslensk list í sviðs- ljósinu vestra Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÞÓ nokkuð er síðan farið var að ræða það að gefa út bók um Þjóðræknis- félag Íslendinga í Norður-Ameríku (INL of NA) og nú hillir loks undir útgáfu. „Það vantar í raun ekkert nema peninga til að gefa bókina út,“ segir Garry Oddleifson, forseti INL, og bætir við að um erfiðan hjalla sé að ræða. Kostnaður 25.000 dollarar Ársþing INL fer að þessu sinni fram í Calgary í Albertafylki og stendur yfir dagana 24. til 27. apríl. INL var stofnað 1918 og fór fyrsta þingið fram í Winnipeg 1919. 24 félög í Kanada og Bandaríkjunum eru í INL og er helsta markmið þeirra að viðhalda og efla íslenska arfleifð í Vesturheimi. Saga INL og saga hinna ýmsu fé- laga er í raun saga fólks af íslenskum ættum í Vesturheimi í hnotskurn. Margir hafa lagt hönd á plóg til að koma efninu í útgáfuform og er hug- myndin að prenta 3.000 eintök. Garry Oddleifson segir að til að lang- ur draumur verði að veruleika þurfi að safna 25.000 dollurum og það sé mál málanna um þessar mundir. Þing INL hafa verið fjölsótt und- anfarin ár eða frá þinginu í Minnea- polis 2002 og er það mikil breyting frá því sem áður var. 11 ár eru síðan það var haldið í Calgary og segir Gwen Mann, einn af skipuleggjend- um þingsins, að allt gangi samkvæmt áætlun. Fjölbreytt dagskrá Yfirskrift þingsins í Calgary 1997 var Víkingar í vestri en að þessu sinni er hún Framtíðin okkar: Nútíð og þátíð. Jónas Þór sagnfræðingur fjallar um vesturferðir Íslendinga og áhrif þeirra í Kanada og Bandaríkj- unum. Dr. Roger Gibbins ræðir um aðstæðurnar í nútímanum með áherslu á efnahagsmál, umhverfis- mál, heilbrigðismál og innflytjenda- mál. Þinggestir velta sér síðan upp úr framtíðinni. Boðið verður upp á ýmsa fræðslu. Meðal annars leiðbeinir Nelson Gerrard gestum um skráningu ætt- fræði. Margrét Geppert sýnir hand- tökin við prjónaskap. Karen Gummo bendir fólki á ýmislegt gagnlegt í sambandi við sagnalist og að halda áheyrendum við efnið. Guðrún Jör- undsdóttir og Margrét Björgvins- dóttir fara yfir íslenskt mál. Í tengslum við þingið gefst gestum kostur á að fara í stuttar ferðir um nágrennið með leiðsögumönnum og meðal annars býður Landsbankinn gestum til Markerville þar sem hús Stephans G. Stephanssonar verður skoðað. Forseti INL er kjörinn til tveggja ára og lætur Garry Oddleifson nú af störfum og má gera ráð fyrir að Gerri McDonald varaforseti, í Van- couver, taki við. Gefa út bók um sögu Þjóðræknisfélagsins Morgunblaðið/Steinþór Á útleið Garry Oddleifson, formaður Þjóðræknisfélagsins, setur þingið í fyrra. Serena Goebel og Susan Hjalmarson sáu þá um skipulagninguna. 89. þing félagsins í Calgary í Kanada síðar í vikunni ÚR VESTURHEIMI Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is BANDARÍSKI körfuknattleiksmað- urinn Darryl Dawkins er vel þekktur hjá þeim sem fylgdust með gangi mála í NBA-deildinni á árunum 1975- 1989. Dawkins fór beint úr fram- haldsskóla inn í NBA-deildina og lék hann stórt hlutverk með Philadelphia 76‘ers og síðar New Jersey Nets. Dawkins vakti hvað mesta athygli þegar hann tók upp á því að brjóta glerspjöldin í NBA-leikjum enda þótti honum fátt skemmtilegra en að troða boltanum af krafti í körfuna. Darryl braut nokkur spjöld á ferl- inum, þrátt fyrir að forráðamenn NBA-deildarinnari hafi reynt að beita háum sektargreiðslum fyrir slíkt. Darryl er staddur hér á landi þessa dagana en hann er einn af 5 þjálf- urum hjá bandarísku úrvalsliði í körfubolta, AAU Sports University, sem kom hingað til lands á laugardag. Liðið er skipað 14-15 ára drengjum úr skólaliðum á Jersey-svæðinu og leikur liðið nokkra æfingaleiki gegn íslenskum liðum hér á landi. Þegar Morgunblaðið leit við í íþróttahúsinu í Borgarnesi í gær var úrvalsliðið í mesta basli með sprækt lið Tindastóls frá Sauðárkróki. Vara- menn bandaríska liðsins fengu tæki- færi til þess að spreyta sig og þegar allt útlit var fyrir að Tindastóll myndi hafa betur sendi þjálfarinn sterkustu leikmennina inn á og það rétt dugði til sigurs. Það var greinilegt að for- eldrar drengjanna í bandaríska liðinu tóku leikinn alvarlega og aðalþjálfari bandaríska liðsins lét sína menn heyra það ef ekki var farið eftir fyr- irmælum. Dawkins virtist hins vegar vera meira upptekinn af því að að- stoða hinn reynda dómara, Eið Sig- urðsson, við dómgæsluna og beið sá sem þetta skrifar eftir því að Eiður myndi dæma tæknivíti á Dawkins og vísa honum út úr húsinu. Þá væri fyr- irsögnin á þessari grein allt önnur. Eiður sá hins vegar að sér enda Dawkins mikið ljúfmenni. Þegar Dawkins var spurður að því af hverju hann gæfi sér tíma til þess að þvælast til Íslands sem aðstoðarmaður úr- valsliðsins var hann ekki lengi að svara. „Ég elska körfubolta og það er ekkert sem gefur mér meira en að fá að taka þátt í svona viðburðum. Það var því lítið mál fyrir mig þegar Ed Bright, forsvarsmaður liðsins, óskaði eftir því að ég kæmi með liðinu hans til Íslands. Mér finnst það vera mitt hlutverk að miðla þeirri reynslu sem ég bý yfir til þeirra sem yngri eru,“ sagði Dawkins en hann lék m.a. þrisv- ar sinnum með Philadelphia í úrslit- um NBA-deildarinnar og þar voru samherjar hans leikmenn á borð við Julius Erving. Dawkins er ekki mjög „hreyfanlegur“ þessa dagana. Lík- amsþyngdin er töluvert meiri en þau 120 kg sem var hans þyngd á meðan hann lék í NBA-deildinni. En hann ætlar sér að halda áfram að ferðast um heiminn á næstu árum og kynna körfuboltann fyrir sem flestum. Æfingar og mikill agi „Ég ferðast í 200 daga á ári vegna körfuboltans. Ég vinn mikið fyrir NBA-deildina sem „sendiherra“ og ég hef fengið tækifæri til þess að fara til ótal landa á undanförnum árum. Það er alltaf jafnskemmtilegt að koma í nýtt land. Upplifa nýja menn- ingu og kynnast nýju fólki sem á það sameiginlegt að elska körfubolta. Hér í Borgarnesi höfum við fengið frá- bærar móttökur og það er allt gert til þess að okkur liði vel. Þetta lítill bær en vinalegur. Ég kann vel við mig í Borgarnesi.“ Darryl vakti strax athygli sem leik- maður þegar hann var unglingur og árið 1975 var hann valinn í nýliðaval- inu af Philadelphia 76‘ers án þess að hafa leikið með háskólaliði. Darryl var sá fyrsti sem kom inn í NBA- deildina með þessum hætti og segir hann á þeim tíma ekkert annað hafa komið til greina. „Ég var 2,11 metrar á hæð og 120 kg. Ég vildi ekki taka áhættuna á að fara í háskóla og meið- ast áður en ég færi í atvinnumennsk- una. Þetta var rétt ákvörðun á þeim tíma. Ég gat stutt við bakið á nánustu fjölskyldu minni og það var það sem skipti mig mestu máli á þeim tíma“. Hann lítur yfir leikmenn úrvals- liðsins þar sem þeir ganga til bún- ingsklefans eftir leikinn. Og hann hef- ur greinilega náð að fanga athygli margra þeirra sem leika í liðinu. „Það sem einkennir þessa stráka er að þeir vilja allir ná langt. Þeir gera sér ekki allir grein fyrir þeirri vinnu sem þarf til þess að verða atvinnumaður. Sum- ir þeirra vilja frekar bæta getu sína í tölvuleiknum í stað þess að fara út á völl og æfa sig meira þar. Það eru þau skilaboð sem ég er að reyna koma inn í kollinn á þeim. Að ekkert nema æf- ing og agi kemur mönnum þangað sem þá dreymir um að komast,“ sagði Darryl Dawkins. Einstaklingshyggjan ræður ferðinni vestanhafs Ed Bright er „eigandi“ úrvals- liðsins en hann hefur náð langt í við- skiptum í heimalandi sínu. „Ég gat notað það sem ég lærði í körfubolt- anum í mínu lífi. Það er aðeins brot af þeim sem fara í gegnum háskólanám sem fá atvinnusamning. Ég vildi leggja mitt af mörkum til þess að að- stoða efnilega stráka á New Jersey- svæðinu. Við erum nokkrir sem stöndum að þessu og það sem ein- kennir okkar lið er að leikmenn liðs- ins þurfa að standa sig í námi og haga sér í takt við þær kröfur sem sam- félagið setur okkur. Þeir, sem standa sig ekki, fá ekki að vera með. Við er- um að reyna að bæta úr þeirri ein- staklingshyggju sem einkennir bandarískt íþróttalíf. Ef einn af þess- um 20 strákum kemst í atvinnu- mennsku, þá verðum við stoltir. Við verðum líka jafnstoltir ef enginn af þeim kemst í atvinnumennsku en þeir ná að nýta sér það sem við erum að kenna þeim í hinu daglega lífi. Það er markmiðið með þessu öllu. Að búa til betri einstaklinga sem geta unnið saman sem liðsheild,“ sagði Ed Bright. „Það er ekkert sem gefur mér meira “ Ljósmynd/Sigurður Elvar Góðir Darryl Dawkins og Ed Bright kunnu vel við sig í heimsókn þeirra í Borgarnesi um helgina en þeir eru þjálfarar bandaríska úrvalsliðsins. Darryl Dawkins braut ekki körfu- boltaspjöldin í Borgarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.