Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 8
KVENFÉLAGIÐ Seltjörn og Skólaskrifstofa Seltjarn-
arness stóðu í gær fyrir fjölskyldudegi í Fræðasetrinu í
Gróttu. Komu þar margir til að njóta náttúrufegurð-
arinnar og rannsaka lífríkið í fjörunni en fuglalíf er þar
ákaflega fjölbreytt. Sumir létu sér nægja að njóta út-
sýnisins úr Gróttuvita en þessi körsku krakkar skoð-
uðu sig um í fjörunni – kannski skeljar og kuðunga af
ýmsum tegundum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fjölskyldudagur í Gróttu
8 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„FÓLK lætur sig garðinn greinilega
miklu skipta enda var þetta fyrsti al-
menningsgarður höfuðborgarinnar
og auðkenni borgarinnar,“ segir Álf-
heiður Ingadóttir, íbúi við Hall-
argarðinn, sem var í undirbúnings-
hópi fyrir stofnfund Hollvina-
samtaka Hallargarðsins sem fram
fór í gær.
Að sögn Álfheiðar var gríðargóð
mæting á fundinn, en alls mættu um
150 manns á öllum aldri. Meðal
fundargesta var Jón H. Björnsson
sem hannaði garðinn árið 1953 og
Nikulás Úlfar Másson, formaður
Húsafriðunarnefndar.
Fundargestum gafst kostur á að
undirrita áskorun þar sem skorað er
á borgarstjórn Reykjavíkur að af-
sala sér ekki forræði yfir Hall-
argarðinum eða gerðinu bak við Frí-
kirkjuveg 11. Er þar vísað til hesta-
réttar Thors Jensens. „Hestaréttin
verður 100 ára á þessu ári og það
þýðir að hún nýtur fornleifaverndar
samkvæmt lögum. Það má ekki ger-
ast að notaðar séu síðustu vikurnar
áður en hún nær 100 ára aldri til
þess að brjóta hana niður og breyta í
bílastæði.“
Fundargestir mótmæltu því einn-
ig harðlega að borgarstjórn gerði
samninga sem skertu garðinn eða
aðgengi almennings að honum. Að
sögn Álfheiðar hefur garðurinn frá
upphafi verið vinsæll og mikið not-
aður enda er hann ásamt styttugarði
Einars Jónssonar eina útivist-
arsvæðið í Þingholtunum.
Húsi Thors Jensens
var bjargað 1968
Að sögn Álfheiðar verður undir-
skriftum safnað, m.a. rafrænt á net-
inu, næstu daga og þær afhentar
borgarstjóra fyrir næsta borg-
arstjórnarfund hinn 29. apríl þar
sem afgreiða á málefni Hallargarðs-
ins. „Viðmiðið er undirskriftasöfn-
unin árið 1968 en þá söfnuðust 3.905
undirskriftir til þess að bjarga húsi
Thors Jensens frá niðurrifi þegar
hugmyndir voru uppi um að byggja
Seðlabankann í Hallargarðinum. Við
ætlum að safna að minnsta kosti
jafnmörgum undirskriftum núna og
freista þess að það dugi til að bjarga
Hallargarðinum,“ segir Álfheiður.
Fjölmenni á stofnfundi
Safna undirskrift-
um til að bjarga
Hallargarðinum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Vinir Um 150 manns mættu á stofnfund Hollvinasamtaka Hallargarðsins.
AÐALMEÐFERÐ í máli ríkissak-
sóknara gegn stofnanda samtakanna
Björgum Íslandi (e. Saving Iceland),
sem ákærður var fyrir eignaspjöll,
fer fram fyrir Héraðsdómi Austur-
lands í dag – dómþingið er þó háð í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Fram
kemur í tilkynningu frá samtökun-
um að maðurinn, sem er á fimmtugs-
aldri, sé ákærður fyrir að hafa valdið
skemmdum á lögreglubifreið við
mótmælabúðir við Snæfell í júlílok
árið 2006.
Í tilkynningu samtakanna segir að
um sé að ræða farsakennd lögreglu-
réttarhöld. Maðurinn hafi ekki vald-
ið skemmdunum, en bílnum hafi ver-
ið ekið á hann, skyndilega og án
nokkurrar viðvörunar. „Allir sem á
horfðu undruðust að hann skyldi
sleppa frá árásinni tiltölulega
óskaddaður.“
Maðurinn kærði lögregluþjóninn
sem ók bílnum, en ekki þótti ástæða
til rannsóknar. Í kjölfarið var mað-
urinn kærður fyrir eignaspjöll.
Aðgerð-
arsinni
fyrir dóm
Talinn hafa valdið
skemmdum á bifreið
STANGVEIÐI
EINS og svo oft áður hefur vor-
veiðin verið afar góð í Tungulæk í
Landbroti. Að sögn Þórarins Krist-
inssonar hafa 320 sjóbirtingar
veiðst í mánuðinum en lækurinn er
engu að síður ætíð hvíldur í nokkra
daga í hverri viku. Vel hefur veiðst
í skilunum við Skaftá.
Nokkru sunnar í sveitinni hafa
Steinsmýrarvötn heldur betur lifn-
að við. Hafa veiðimenn fengið að
allt að 30 birtinga og staðbundna
urriða á stangirnar fjórar á dag. Þá
veiddist sjaldséð tröll þar um dag-
inn, hrygna sem var hátt í 90 cm.
Sjóbirtingsveiðin í Grímsá í
Borgarfirði fór rólega af stað, enda
var ís yfir neðstu veiðistöðunum
þar sem birtingurinn veiðist gjarn-
an. Eftir að hlýnaði tók veiðin kipp
og í fyrradag lönduðu tveir félagar
þar 15 fiskum og misstu annað eins.
Vötnin eru
að lifna við
Veiði Þórarinn Kristinsson, eigandi
Tungulækjar, með laglega morg-
unveiði fyrr í vikunni.
ENGAN sakaði þegar sprenging
varð í íbúð í Heiðarhverfi í Reykja-
nesbæ á ellefta tímanum á laug-
ardagskvöld. Talið er að eldur frá
sprittkerti hafi náð að læsa sig í
úðabrúsa með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Við sprenginguna, sem átti sér
stað í baðherbergi íbúðarinnar,
losnaði bæði hurð og hurðar-
karmur. Minni háttar eldur kom
upp en húsráðendur slökktu hann.
Brunavarnir Suðurnesja sáu svo
um reykræstingu.
Hurð losnaði
í sprengingu
Sigríður G. Schiöth
organisti andaðist 18.
apríl sl. að dvalarheim-
ilinu Hlíð á Akureyri 94
ára að aldri.
Sigríður fæddist 3.
febrúar 1914 að Lóma-
tjörn í Grýtubakka-
hreppi. Hún var næst-
yngst í ellefu systkina
hópi, en foreldrar
hennar voru Valgerður
Jóhannesdóttir, ættuð
utan úr Fjörðum og af
Kussungsstaðaætt, og
Guðmundur Sæmunds-
son af Stórhamarsætt í
Eyjafirði.
Árið 1941 giftist Sigríður Helga
Schiöth. Þau bjuggu á Akureyri til
1948, en þá fluttu þau fram í Hólshús
í Eyjafirði þar sem þau stunduðu bú-
skap. Sigríður tók skömmu síðar við
organistastöðu í kirkjunum að
Grund, Saurbæ og Möðruvöllum.
Jafnframt kenndi Sigríður söng í
skólum og æfði bæði karlakóra og
blandaða kóra. Árið
1976 fluttu þau hjónin
til Húsavíkur þar sem
Sigríður gerðist organ-
isti við Húsavíkur-
kirkju til 1983. Þá
fluttu þau til Akureyr-
ar þar sem Sigríður tók
við starfi organista við
Grundarkirkju og
sinnti því til ársins
1994.
Sigríður stofnaði
Kór aldraðra á Akur-
eyri á níunda áratugn-
um og stjórnaði honum
meðan heilsan leyfði.
Hún starfaði einnig með Leikfélagi
Akureyrar. Síðustu æviár sín bjó
Sigríður á dvalarheimilinu Hlíð og
þar hélt hún uppi sönglífi og las upp-
hátt fyrir íbúa. Sigríður fékk Fálka-
orðuna árið 1991 fyrir störf sín að
söngmálum. Helgi lést 18. apríl 1998.
Þau Sigríður og Helgi eignuðust
þrjú börn og eru afkomendur þeirra
komnir vel á þriðja tuginn.
Andlát
Sigríður G. Schiöth
„ÞAÐ er mikill
misskilningur að
Novator hafi
áhuga á því að
takmarka að-
gengi almennings
að Hallargarð-
inum,“ segir Ás-
geir Friðgeirsson,
talsmaður Nova-
tors. Bendir hann
á að ekki sé á döfinni að girða hús
Thors Jensen við Fríkirkjuveg 11 af
með neinum hætti, heldur snúist
málið einfaldlega um nauðsynlegt
aðgengi að húsinu. Að sögn Ásgeirs
var í útboði Reykjavíkurborgar á
húsinu ekki gert ráð fyrir aðgengi
að húsinu um akstursleið frá ein-
hverjum nærliggjandi gatna. Hins
vegar sé nauðsynlegt að tryggja
slíkt aðgengi að húsinu enda sé ráð-
gert að starfrækja safn um Thor
Jensen í kjallara þess.
Vilja ekki
takmarka
aðgengi
Ásgeir
Friðgeirsson
TVEIR menn voru fluttir á slysa-
deild til aðhlynningar eftir vél-
hjólaslys á Húsavík skömmu eftir
hádegi í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Húsavík
sluppu mennirnir – ökumaður og
farþegi bifhjólsins – vel miðað við
aðstæður.
Talið er að ökumaður bifhjólsins
hafi misst vald á hjólinu með þeim
afleiðingum að mennirnir féllu í
jörðina. Meiðsli þeirra eru talin
minniháttar.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
leikur grunur á að ökumaður bif-
hjólsins hafi verið ölvaður.
Olli vélhjólaslysi ölvaður
Slys Aðkoman að vélhjólaslysinu á Húsavík var slæm.
Morgunblaðið/Hafþór