Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 18
neytendur
18 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Um þessar mundir er fólkað taka dótið frá í fyrraút úr geymslunum, hvortsem það er trampólínið,
reiðhjólið, línuskautarnir, hlaupa-
hjólið eða hjólaskórnir,“ segir Her-
dís Storgaard, forstöðumaður Sjó-
vár Forvarnahússins. „Þá er
nauðsynlegt að fara vel yfir bún-
aðinn til að kanna hvort allt sé í lagi
og hvort börnunum geti nokkuð
stafað hætta af honum.“
Hún tekur trampólínin sem
dæmi. „Á mörgum stöðum hafa þau
staðið úti í allan vetur og eru jafnvel
orðin ónýt eða ryðguð. Það þarf að
fara vel yfir þau og huga vel að því
að ramminn sé traustur og fæturnir
beinir. Ef fæturnir hafa skekkst við
notkun eða þegar trampólínið hefur
fokið má alls ekki nota það því
þannig er hætta á að það gefi sig. Á
þeim trampólínum sem hægt er að
leggja saman er mikilvægt að fest-
ingar séu ekki ryðgaðar fastar og
eins að gormar séu ekki farnir að
ryðga í sundur. Oft eru gormarnir
varðir með svampkanti sem er með
plasti yfir og sé það rifið og tætt er
ekki óhætt að nota það. Loks er gíf-
urlega mikilvægt að fara mjög vel
yfir dúkinn sjálfan því jafnvel
minnsta gat í honum getur valdið
slysum. Hoppi einhver nákvæmlega
þar sem gatið er getur hann farið
niður úr trampólíninu. Fólk hefur
fótbrotnað mjög illa við slík slys.“
Algengustu slysin við
að börn rekist saman
Hvort sem trampólínið er notað
eða nýtt, þarf að tryggja að gott
pláss sé í kring um það. „Það þarf
að vera á sléttu undirlagi og best er
að hafa það á grasi. Eins þarf að
vera autt svæði í 1,5 metra fjarlægð
frá brún þess því slysahættan er
margföld ef barnið dettur út af
trampólíninu og lendir á einhverri
fyrirstöðu. Af sömu ástæðu mega
börnin alls ekki reka sig upp undir,
t.d. þakskegg þegar þau hoppa
hátt.“
Hún segir alls ekki mega grafa
trampólínin niður til að draga úr
falli ef börnin detta af, því slíkt hafi
áhrif á trampólínið og geti valdið
slysum. „Reyndar eru til trampólín
sem má setja niður í jörð en þau eru
miklu dýrari en þessi venjulegu
trampólín og eru yfirleitt aðeins
sett upp á leiksvæðum við skóla.“
Herdís bendir fólki einnig á að
kanna fyrir hvaða aldur nýtt tram-
pólín sé ætlað, þegar það er keypt.
„Almennt eru trampólínin ekki fyrir
yngstu börnin, heldur oftast frá sex
eða átta ára aldri en að auki er gefin
upp hámarksþyngd þess sem hopp-
ar. Net eru nauðsynleg en þó er fall
af trampólíni ekki algengasta orsök
slysa heldur að börnin eru mörg að
hoppa í einu og rekast saman. Þess
vegna þarf að brýna fyrir börnunum
að skiptast á í stað þess að hoppa
saman.“
Hún segir þó mikilvægt að undir-
strika að trampólín séu frábær tæki
til að fá börnin til að hreyfa sig, sé
fyllsta öryggis gætt.
Hjólið vex með barninu
Það gildi líka um önnur sumartól
sem skríða fram úr bílskúrum og
kompum um þessar mundir, s.s.
reiðhjólin, sem nú fjölgar ört á stíg-
um og leiksvæðum barnanna. „Eftir
veturinn þarf að athuga hvort hjólið
sé ennþá í réttri stærð fyrir barnið,
hvort það sé stillt í réttri hæð og
hvort gírabúnaður og bremsur virki
eins og það á að gera. Þegar nýtt
hjól er keypt á ekki að kaupa hjól
sem barnið getur vaxið upp í heldur
það sem getur vaxið með barninu.
Við kaupin er best að barnið rétt nái
niður með tánum þegar það situr á
hnakknum í lægstu stillingu. Svo
má hækka sætið eftir því sem barn-
ið vex. Fyrir litlu börnin er best að
kaupa hjól með fótbremsum og
kannski ekki allt of mikið af gírum.“
Þá leggur Herdís áherslu á að
börnin hjóli ekki á umferðargötum
fyrr en þau eru orðin tólf ára og að
brýnt sé fyrir þeim að fara eftir um-
ferðarreglum. „Þau eiga ekki að
hjóla þvers og kruss heldur þannig
að öðrum stafi ekki hætta af akst-
urslagi þeirra. Síðasta sumar urðu
mjög alvarlegir kviðarholsáverkar á
börnum við það að þau duttu illa og
fengu stýrið á hjólinu í magann. Oft
gerðist þetta þegar þau voru að
hoppa með hjólunum og gera ýmsar
kúnstir á hjólabrettapöllum. Þess
vegna er mikilvægt að ræða við
krakkana um að hefðbundin, venju-
leg reiðhjól séu ekki gerð fyrir slík-
ar kúnstir heldur þurfi að hafa
sérbúin hjól í það og sérstaka æf-
ingu.“ Loks má ekki gleyma að
kanna hvort hjálmurinn sé heill og
ósprunginn og sé hann nýr þarf að
tryggja að hann sé rétt stilltur frá
byrjun.
Kannað hvort hjólin snúist
Líkt og með reiðhjólin þarf að
endurstilla hlaupahjólin eftir vetrar-
vöxt barnsins. Herdís segir best að
stýrið á hlaupahjólinu sé í olnboga-
hæð standi barnið með annan fótinn
á jörðinni en hinn á brettinu. Aukin
hætta sé á slysum í andliti við fall sé
stýrið of hátt og á kvið sé það of
lágt.
„Hvað línuskautana og hjóla-
skóna varðar þarf að kanna hvort
börnin passi ennþá í þá og hvort
hjólin séu nokkuð niðurslitin og
snúist eðlilega,“ heldur Herdís
áfram. „Í suma hjólaskó má fá
aukahjól sem hægt er að smella
undir þá en aðrir einfaldlega ganga
sér til húðar. Séu krakkarnir á línu-
skautum er gífurlega mikilvægt að
þeir séu með góðar olnbogahlífar,
hnjáhlífar og úlnliðshlífar auk
hjálmsins.“
ben@mbl.is
Morgunblaðið/SverrirHopp og skopp Fleirum en tvífætlingum finnst gaman að trampólínunum en þó er betra að hoppa bara einn í einu svo að ákafir skopparar rekist ekki saman
Morgunblaðið/Kristján
Reiðhjólin Eftir veturinn þarf að athuga hvort hjólið sé stillt í rétta hæð
fyrir barnið og hvort gírabúnaður og bremsur virki eins og það á að gera.
Morgunblaðið/Eyþór
Hjólaskór Í suma hjólaskó má fá
aukahjól þegar gömlu eru slitin.
Sumardótið lagað eftir veturinn
Líkt og hjá kálfum að
vori færist fjör í leik
barnanna okkar um
þessar mundir. Ærsl
og skemmtun með full-
tingi útileikfanga hefur
í för með sér frábæra
hreyfingu en um leið
þarf að huga að því að
græjurnar séu eins
öruggar og kostur er.
Bergþóra Njála Guð-
mundsdóttir heyrði í
sérfræðingi um hvernig
huga beri að sumarleik-
föngunum að vori.
Fall af trampólíni er
ekki algengasta orsök
slysa, heldur að börnin
eru mörg að hoppa í
einu og rekast saman.
www.forvarnahusid.is
Á trampólínum þarf að yfirfara
rammann, fætur, festingar, plast-
kant við gorma og að ekki sé gat á
dúknum.
Slétt undirlag þarf fyrir trampól-
ín og frá brún þess á að vera
a.m.k. 1,5 metra frítt svæði. Ekki
grafa venjuleg trampólín niður.
Kannið fyrir hvaða aldur og
þyngd trampólínið er ætlað.
Notið öryggisnet og passið vel að
aðeins einn hoppi í einu.
Endurstillið reiðhjól eftir vet-
urinn og yfirfarið bremsur og
gíra.
Ekki kaupa of stórt hjól – barnið á
að ná tánum niður þegar það situr
á hnakknum í lægstu stillingu.
Brýnið fyrir börnunum að nota
hjálm og fara eftir umferðarregl-
um á hjólinu. Alls ekki má hoppa
eða gera hjólakúnstir á bretta-
pöllum á venjulegum reiðhjólum.
Stýrið á hlaupahjólinu á að vera í
olnbogahæð barnsins.
Yfirfarið hjól á hjólaskóm og línu-
skautum. Góðar olnboga-, hnjá-
og úlnliðshlífar eru mikilvægar á
línuskautunum.
Í STUTTU MÁLI