Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● ENGLANDSBANKI mun í dag kynna áætlun sína til að koma bönk- unum og breskum íbúðareigendum til hjálpar. Alistair Darling, fjár- málaráðherra Breta, upplýsti þetta í sjónvarpsviðtali á BBC í gær. Hyggst bankinn skipta út veðtryggðum verð- bréfum fyrir ríkisskuldabréf til handa bönkunum. Reiknað er með Eng- landsbanki skipti út allt að 50 millj- örðum punda. Sagði Darling þetta nauðsynlegt skref til að koma á meira jafnvægi á breska fast- eignamarkaðnum og gefa lánveit- endum meira svigrúm. Verð á fast- eignum hefur verið að lækka í Bretlandi og því spáð að versta staða á markaðnum í 30 ár sé fram- undan. Lækkaði verðið um 2,5% í mars sem er mesta lækkun í 15 ár. Englandsbanki kynnir nýjar aðgerðir í dag ● HALLDÓR J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbankans, hefur verið kjörinn formaður Samtaka fjármálafyr- irtækja, SFF. Halldór tekur þar við for- mennsku af Lárusi Welding, forstjóra Glitnis. Varamað- ur Halldórs var kjörinn Sigurður Við- arsson, forstjóri Tryggingamiðstöðv- arinnar. Á nýlegum aðalfundi samtakanna var kjörin ný stjórn til næstu tveggja ára. Hana skipa for- svarsmenn SPRON, Landsbankans, Sjóvár, Kaupþings, Glitnis, VÍS, Tryggingamiðstöðvarinnar, MP Fjár- festingarbanka og Straums. SFF eru heildarsamtök fjármálafyrirtækja á Íslandi, aðildarfélög þeirra eru 39 að tölu. Halldór kjörinn for- maður í stað Lárusar ● SAMÞYKKT var á aðalfundi Ice- landic Group á föstudag að veita stjórn félagsins heimild til að óska afskráningar úr kauphöllinni. Einnig var samþykkt heimild til að taka víkj- andi lán í íslenskum krónum sem samsvarar allt að 41 milljón evra á lántökudegi, jafnvirði um 4,8 millj- arða króna, með möguleika á að breyta láninu í hlutafé. Á aðalfundi Icelandic sagði fráfarandi stjórnar- formaður, Magnús Þorsteinsson, að ef fyrirtækið ætti að lifa, þyrfti að skera burtu þær einingar sem ekki skili nægilegri framlegð og einbeita sér að þeim sem gefi vel af sér. Sagði Magnús þetta hafa legið lengi fyrir en framkvæmdin hefði ekki gengið nógu hratt fyrir sig. Þá sagði hann að þau fyrirtæki sem Icelandic hefði keypt í upphafi aldarinnar hefðu engan veginn staðið undir þeim væntingum sem til þeirra kaupa voru gerðar. Samþykkt að óska af- skráningar Icelandic ● EIN breyting verður á bankaráði Landsbankans á aðalfundi hans næstkomandi miðvikudag, en til- kynnt hefur verið um framboð í ráðið til kauphallarinnar. Andri Sveinsson viðskiptafræðingur kemur inn í stað Þórs Kristjánssonar viðskiptafræð- ings en Andri var áður varamaður. Áfram verða í bankaráðinu Björg- ólfur Guðmundsson, formaður, Kjart- an Gunnarsson, lögfræðingur, Svafa Grönfeldt, rektor HR, og Þorgeir Bald- ursson, forstjóri Kvosar. Í stað Andra sem varamaður verður Sigþór Sig- marsson verkfræðingur, en áfram verða Helga Theodórsdóttir við- skiptafræðingur, Gunnar Felixson framkvæmdastjóri, Helga Jónsdóttir bankafulltrúi, og Þorsteinn Sveins- son skógarbóndi, varamenn í ráðinu. Ein breyting á banka- ráði Landsbankans LIBOR-vextir, vextir á millibanka- markaði í London, hækkuðu óvænt á fimmtudag og föstudag. Ástæðan er sú að samtök breskra fjármálafyrir- tækja (BBA), sem reikna vextina, til- kynntu á miðvikudag að þau væru að kanna tilkynningar banka um þá vexti sem bönkunum bjóðast á lán- um. Áhyggjur af fölsunum Margir bankamenn hafa að sögn Wall Street Journal lýst áhyggjum yfir því að keppinautar sínir fölsuðu tilkynningar um lánakostnað vegna ótta um að gefa markaðnum til kynna hversu fjárþurfi þeir væru orðnir. Libor-vextirnir eru almennt taldir einn mikilvægasti mælikvarðinn á fjármálamarkaði enda eru þeir not- aðir sem grunnur við vaxtaákvarð- anir víða um heim. Reynist grunsemdir BBA á rökum reistar munu samtökin leiðrétta vextina og er það talið geta hækkað vaxtakostnað á breytilegum lánum mikils fjölda fyrirtækja og heimila um heim allan. Margir lánveitendur reikna útlánavexti sína sem álag of- an á Libor og hækki grunnurinn mun vaxtabyrði margra lánþega hækka um leið. Taka ber fram að þetta á þó aðeins við þegar vaxtaend- urskoðunarákvæði eru í lánasamn- ingum. Verða Libor-vextir endurreiknaðir? GUNNAR Sigurðsson, forstjóri Baugs, segir við Morgunblaðið að stjórnendur MK One hafi væntan- lega vegna fyrirhugaðrar sölu á tískuverslanakeðjunni ákveðið að stöðva greiðslur tímabundið til birgja, samkvæmt samningum um greiðslufrest. Hvorki Baugur né aðr- ir hluthafar hafi gefið einhverjar fyr- irskipanir. Í breskum blöðum um helgina var fjallað um óánægju birgja vegna vanskila MK One við þá. Voru þeir sagðir ætla í inn- heimtuaðgerðir og í frétt Times On- line er haft eftir heimildarmanni að ávísanir hafi ekki fengist innleystar í bönkum. Telur Gunnar birgjana nota sér athygli fjölmiðla í Bretlandi til að beita fyrirtækið þrýstingi. Gunnar segir félagið ekki skipta sér af daglegum rekstri MK One, en Baugur á þar 60% hlut og ákvað ný- lega að setja keðjuna í sölumeðferð. Hefur rekstur hennar ekki gengið vel en í frétt Telehgraph segir að Baugur hafi tapað 30-40 milljónum punda á þessari fjárfestingu. Keypti Baugur hlutinn í MK One árið 2004 fyrir 55 milljónir punda, um 8 millj- arða króna. Segir Gunnar sölumeðferðina ganga vel og á annan tug aðila hafi sýnt MK One áhuga. Tilboða megi vænta á næstu vikum. Greiðslur til birgja stöðvaðar Tískuverslanir MK One eru að 60% hluta í eigu Baugs en alls eru reknar um 170 verslanir í Bretlandi. Tap síðasta árs var um 2,5 milljarðar króna. Forstjóri Baugs segir stjórnendur MK One hafa ákveðið þetta vegna sölunnar RBS afskrifar hundruð millj- arða króna vegna ólgunnar BÚIST er við því að breski bankinn Royal Bank of Scotland muni í vikunni tilkynna að hann hafi tap- að 4 milljörðum punda, jafngildi um 604,5 millj- arða króna, vegna ólgunnar á lánsfjármörkuðum að sögn Financial Times. Reyndar virðast tölurn- ar vera á reiki því að sögn Sunday Times er búist við að bankinn muni tilkynna að hann hafi þurft að afskrifa 5-7 milljarða punda vegna lánaólgunnar en hvorugt blaðið vísar þó til nokkurra heimilda. Hvað sem því líður er ljóst að afskriftirnar verða umtalsverðar en bæði blöðin greina jafnframt frá því að RBS muni væntanlega tilkynna útgáfu nýs hlutafjár fyrir að minnsta kosti 10 milljarða punda að markaðsvirði. Væntingar um útgáfu hlutafjárins munu hafa verið helsta ástæða þess að gengi bréfa RBS hækkaði um nær 5% í kauphöllinni í London á föstudag en talið var að stjórn bankans myndi koma saman í gær og taka ákvörðun um útgáfuna. Hún er, að sögn FT, talin til marks um að evr- ópskir bankar hafi áttað sig á þörfinni á því að styrkja efnahagsreikninga sína. Bæði Sir Fred Goodwin, forstjóri RBS, og Sir Tom McKillop, stjórnarformaður bankans, hafa á undanförnum vikum þvertekið fyrir að bankinn þyrfti á nýju fjármagni að halda en nú virðist sem þeir hafi skipt um skoðun. Lítið eigið fé bankans Að sögn Bloomberg mun ástæðan vera sú að eigið fé bankans var orðið lægra en lög gera ráð fyrir. Eiginfjárhlutfall A (e. Tier 1 capital) hjá RBS er, að mati greinenda svissneska bankans UBS sem Bloomberg vitnar í, 4,5% en til sam- anburðar má geta þess að um áramót var sams konar eiginfjárhlutfall íslensku bankanna á bilinu 8,1-10,1%. forráðamenn Sparisjóðsins og Cre- ditinfo, bæjarstjóri Fjallabyggðar og fleiri gestir, auk nokkurs fjölda af skíðakrökkum frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar sem fengu að nýta ferðina og skíða niður þessa 984 metra. Við athöfnina lýsti Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri Fjallabyggð- ar, yfir mikilli ánægju með samn- inginn og störfin sem honum fylgdu. Fyrirtækið Creditinfo Ísland varð til í byrjun árs 2008 þegar Lánstraust og Fjölmiðlavaktin sam- einuðust. Fyrirtækið sérhæfir sig m.a. í vanskilaupplýsingum, upplýs- ingum um fyrirtæki, innheimtu og vaktkerfum, s.s. fjölmiðlavaktinni. CREDITINFO Ísland og Sparisjóð- ur Ólafsfjarðar, SPÓL, hafa gert með sér samning um að sparisjóð- urinn taki að sér vinnslu verkefna fyrir fyrirtækið. Var samningurinn undirritaður á föstudag uppi á Múlakollu í Ólafsfirði, í 984 metra hæð yfir sjávarmáli. Áætlað er að þessi verkefni skapi allt að fjögur ný störf í Sparisjóði Ólafsfjarðar, en reiknað er með að þeim geti fjölgað í framtíðinni. Til greina kemur að sparisjóðurinn taki að sér vinnslu verkefna fyrir fyrirtæki Creditinfo Group erlend- is, segir í tilkynningu. Farið var upp á fjallið á snjótroð- ara og snjósleðum. Með í för voru Creditinfo Ísland samdi við SPÓL Ljósmynd/Jón Hrói Finnsson Fjallasamningur Hákon Stefánsson, stjórnarformaður Creditinfo, og Jónas Björnsson, sparisjóðsstjóri SPÓL, gerðu samning í 984 m hæð. KAUPFÉLAG Skagfirðinga, KS, og dótturfélög þess högnuðust um rúma tvo milljarða króna af rekstri síðasta árs, að því er kom fram í ræðu Þór- ólfs Gíslasonar kaupfélagsstjóra á aðalfundi félagsins um helgina. Alls námu greiðslur KS til bænda fyrir kjöt og mjólkurafurðir 1.226 milljónum króna á síðasta ári, sem eru hæstu afurðagreiðslur í 119 ára sögu þessa rótgróna kaupfélags. Veltufé samstæðunnar frá rekstri á árinu voru 1.867 milljónir króna. Bókfært eigið fé KS í árslok var 12 milljarðar og hækkaði um tvo millj- arða milli ára. Kaupfélagið og dótturfélög þess er langstærsti vinnuveitandinn í Skagafirði og því burðarásinn þar. Hæstu greiðslur í sögu Kaupfélags Skagfirðinga Morgunblaðið/Örn Þórarinsson KS Þórólfur Gíslason og Stefán Guðmundsson stjórnarformaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.