Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Hvert ykkar hefur nú verið að fitla við Aladínlampann?? VEÐUR Í kjölfar vaxandi umræðna umESB-aðild og evru má gera ráð fyrir, að sá vísir að hreyfingum til þess að berjast með og móti aðild, sem til er í landinu vakni af dvala og láti til sín taka.     Til er vísir aðhreyfingu, sem gengur und- ir nafninu Heims- sýn, sem Ragnar Arnalds, fyrrver- andi þingmaður og ráðherra Al- þýðubandalags- ins, er í forsvari fyrir. Líklegt má telja, að þessi hreyfing leitist við að auka um- svif sín á næst- unni. Ragnar er góð- ur talsmaður þessarar hreyf- ingar en hann þarf á að halda öflugum sam- verkamönnum úr Sjálfstæðisflokknum og Framsókn- arflokknum. Ekki er ólíklegt að ein- hverjir slíkir gefi sig fram.     Það er sömuleiðis til vísir að Evr-ópuhreyfingu, sem hefur búið við veika forystu um skeið. Við blas- ir að Jón Baldvin Hannibalsson taki pólitíska forystu fyrir þeirri hreyf- ingu, sem leitt geti til frekari þátt- töku hans á hinum pólitíska vett- vangi.     Samfylkingin hefur sýnt lítinnáhuga á að notfæra sér krafta fyrrverandi formanns Alþýðuflokks- ins nema rétt fyrir síðustu kosn- ingar. Hún getur því ekki kvartað undan því, að hann skapi sér sjálf- stæðan pólitískan vettvang.     Forysta Samfylkingarinnar geturengum öðrum kennt um en sjálfri sér, að baráttan með og móti Evrópusambandinu leiði til klofn- ings í Samfylkingunni. STAKSTEINAR Ragnar Arnalds Tveir pólar Jón Baldvin Hanni- balsson SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                               *(!  + ,- .  & / 0    + -                 !                    " # 12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (   $   % %                              :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?             $                                      *$BC                    !   "# $ %& '       %&  # ( )      *  +   '   #            *! $$ B *! & ' ( " ' "  )  #" * # <2 <! <2 <! <2 & )"(  + !, - #.  C $                  <7  , %  #     -    # . '      $       8   /       0    !'       6 2  /  *   # (         '  (     &    '     *  +   #  '       /0 #11 #"  2#  # + ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Guðrún Þóra Hjaltadóttir | 20. apríl 2008 Eftirlitsmyndavélar Í Hvalfjarðargöngunum er eftirlitsmyndavél og nær í alveg glás af fólki. Eftirlitsmynda- vélar veita aðhald og fólk dregur úr hrað- anum. Það eina sem virðist gagna er að láta þetta koma verulega við pyngjuna. Svo gefur þetta tekjur í Ríkissjóð og ekki veitir þeim af að fá aðstoð til að geta flýtt framkvæmdum á Reykjanes- braut. Meira: gudruntora.blog.is Lára Hanna Einarsdóttir | 20. apríl 2008 Sannleikurinn í gríninu og grínið í veruleikanum Ekki ætla þeir nú samt að vinna í þeim verk- smiðjum sjálfir, heldur flytja inn erlenda far- andverkamenn, borga þeim lúsarlaun og græða á öllu saman. Óspilltri, dýr- mætri náttúru skal fórnað fyrir jeppa, sumarbústaði, utanlandsferðir, mun- að, óhóf og einkaþotur auðmanna. Meira: larahanna.blog.is Anna Pála Sverrisdóttir | 19. apríl 2008 Frelsum Álandseyjar! ...Daginn sem Solla, AKA ráðherra utanrík- ismála, var í bænum og fundaði með Condi Rice vorum við að hugsa um að mæta fyrir utan ráðu- neytið með mótmæla- skilti á íslensku. Á þeim yrði krafan um frjálsar Álandseyjar (the Åland islands - það tók mig áttatíuogfjórar tilraunir að segja þetta með sænskum hreim án þess að skella uppúr). Eða þá ÞOTURNAR HEIM! Meira: annapala.blog.is Sigurður Þór Guðjónsson | 20. apríl 2008 Fordómar fagfólks í garð geðsjúklinga Ég ætla aðallega að beina athyglinni að einni birtingarmynd for- dóma, en birting- armynd sem er mjög afdrifarík fyrir allt þjóð- félagið. Ég vek mönnum þó vara við því að taka því sem segi sem einhverjum óhagganlegum stórasannleika, þvert á móti er ég mjög meðvitaður um að það sem ég vek athygli á er einungis einn hluti af margbrotnu málefni, en eigi að síður hluti sem full ástæða er til að menn átti sig vel á. Fordómar spretta ekki upp í hverj- um og einum manni nema að litlu leyti. Menn sækja þá til umhverfisins. Þeir liggja í loftinu. En það er eitthvað sem skapar þá. Það fólk sem ætti að hafa einna mesta þekkingu á geðsjúkdómum og geðsjúklingum er heilbrigðisstarfs- fólkið. Maður gæti því haldið að meðal þess væru fordómarnir minnstir. Sagt er nefnilega að fordómar eigi upptök sín í fáfræði og þeim verði þá eytt með upplýsingu eða fræðslu. En þetta er bara ekki nema að nokkru leyti rétt. Rannsóknir hafa sýnt að fræðsla hefur einungis áhrif á suma hvað fordóma varðar en ekki aðra. Sumir vilja endilega hafa for- dómana sína í friði. Það eru læknarnir sem skilgreina geðsjúkdómana fyrir hvern sjúkling og ráða einnig ímynd sjúklinganna al- mennt í samfélaginu í nánu sambandi við þjóðfélagið úti fyrir, valdastofn- unina, sem ákvarðar hvaða hegðun og hugsun er talin viðeigandi. Fordómar gegn sjúkdómum eiga sér auðvitað langa sögu en flestir hafa minnkað mikið eftir því sem þekking á þeim hefur fleygt fram. En það er eftirtektarvert að fordómar gegn geðsjúkdómum og geðsjúkl- ingum halda enn miklum velli. Ég held því fram að nútíma- fordómar gegn geðsjúkdómum sæki ekki mesta kraft sinn og seiglu til dægurmenningarinnar, glæpasagna og kvikmynda þó nóg sé af þeim þar, heldur fyrst og fremst til heilbrigð- isstéttanna sjálfra og þá læknanna framar öllu. Og nú ætla ég að fær rök fyrir þess- ari skoðun... Meira: nimbus.blog.is BLOG.IS VINIR Tíbets stóðu fyrir mótmæl- um fyrir utan kínverska sendirráðið um helgina. Þetta er í sjöunda sinn á skömmum tíma sem félagsskapurinn stendur fyrir mótmælum við sendi- ráðið. Í ályktun frá félaginu er lýst furðu á ummælum menntamálaráð- herra. Í frétt frá Vinum Tíbets segir að á þeim eina og hálfa mánuði sem hefur liðið síðan aðgerðir félagsins hófust hafi afstaða íslenskra ráðamanna lít- ið skýrst varðandi afstöðu Íslands til málefna Tíbets. Björgvin G. Sigurðs- son viðskiptaráðherra hafi þó sagt, þegar hann var spurður af frétta- manni hvort það gæti ekki spillt við- skiptahagsmunum milli þjóðanna ef hann talaði um ástandið í Tíbet við kínverska ráðamenn, að hann mæti mannréttindi ofar viðskiptahags- munum. Málefni Tíbets voru rædd í utan- ríkisnefnd og lét Steingrímur J. Sig- fússon bóka nokkur mikilvæg atriði sem gætu stuðlað að mannréttindum í Tíbet. „Þrír þingmenn svöruðu ákalli okkar til þingheims og var því öllum þingmönnum sent annað bréf í gær þar sem ítrekað var mikilvægi þess að gera sjálfa sig meðvitaða um stöð- una í Tíbet og kallað eftir aðgerðum. Viðbrögðin hafa verið mun betri í þetta sinn, um tuttugu hafa svarað og þar á meðal ráðherrar. Það vakti þó furðu okkar að menntamálaráð- herra virðist ekki hafa neinn hug á að ræða málefni Tíbets samkvæmt bréfi hennar til okkar, þegar hún fer til Kína til að taka þátt í Ólympíu- leikunum sem eru víst orðnir alger- lega lausir við alla pólitík. Við fögn- um því en minnumst þess að sama skapi að kínversk yfirvöld hafa snið- gengið Ólympíuleikana alloft í póli- tískum tilgangi. Við viljum líka minna á að hlaup með Ólympíukynd- ilinn á rætur sínar að rekja til annars leiðtoga sem sagði að Ólympíuleik- arnir væru ekki pólitískur gjörning- ur, en sá leiðtogi hét Hitler. Við ætlumst ekki til að íþrótta- menn okkar sleppi því að taka þátt í Ólympíuleikunum en betra væri að ráðamenn okkar sem ætla sér að mæta geri grein fyrir því, hvort þeirra för verði aðeins til skemmt- unar eða hvort þeir ætli að nota hana til að þrýsta á kínversk yfirvöld varðandi mannréttindi,“ segir í ályktun frá félaginu. Mótmæla áfram við kínverska sendirráðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.