Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 29
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-
16.30, boccia kl. 10, félagsvist kl.
13.30-15.30.
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16,
opin handavinnu- og smíðastofa kl. 9-
16, söngstund kl. 10.30, félagsvist kl.
13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndbandssýn-
ing um Vestmannaeyjar og Siglufjörð
í umsjón Guðbjargar Sigurjónsd. kl.
13. Almenn handavinna, lífsorku-
leikfimi, morgunkaffi/dagblöð, fóta-
aðgerð, hádegisverður, bútasaumur,
kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-12, leiðb/Halldóra,
leikfimi kl. 10, leiðb/Guðný Helgadótt-
ir. Myndlistarnámskeið kl. 13-16, leiðb/
Hafdís og brids kl. 14.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 10-
11.30. Sími 554-1226. Félagsvist í
Gullsmára kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línu-
danskennsla kl. 18, samkvæmisdans,
byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinna, gler- og postulínsmálun og
boccia fyrir hádegi, lomber og ca-
nasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17 og
skapandi skrif kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 11.40, hádeg-
isverður, brids og handavinna kl. 13,
félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45 og 10.30, karlaleikfimi kl.
9.30, boccia kl. 10.30, gönguhópur kl.
11.
Hraunbær 105 | Handavinna og út-
skurður kl. 9, bænastund kl. 10, há-
degismatur, myndlist kl. 12, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga
og handmennt-gler kl. 10, Gaflarakór-
inn kl. 10.30, handmennt-gler kl. 13,
félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16 hjá Sigrúnu, kortagerð,
handstúkuprjón o.fl. Jóga kl. 9-11, Sól-
ey Erla. Spilað kl. 13-16.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan; út-
skurður, bútasaumur, glerlist, postu-
lín, frjáls verkefni. Ókeypis tölvu-
kennsla á miðvikud. og fimmtud.
Línudans, Bör Börsson, söngur, þegar
amma var ung og afi líka, brids, skap-
andi skrif, félagsvist, hláturklúbbur,
framsögn. Leikfimitilboð á þriðjud. kl.
9.15. Uppl. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús-
inu kl. 9.30-11.30. Uppl. í síma 554-
2780.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl.
9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg-
unkaffi og spjall kl. 9.30, sam-
verustund með Kristínu frá Háteigs-
kirkju kl. 10.30, handverks- og
bókastofa opin kl. 11.30, kaffiveitingar
kl. 14.30, söng- og samverustund kl.
15.
Norðurbrún 1 | Smíðastofa og vinnu-
stofa í handmennt opnar kl. 9-16,
boccia kl. 10. Sími 411-2760. Hár-
greiðslustofa Erlu Sandholt, sími:
588-1288.
Sjálfsbjörg | Brids kl. 19 í félagsheim-
ili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæð-
inu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16,
handavinna kl. 9.15-15.30, boccia kl.
11, leikfimi kl 11.45, hádegisverður, kór-
æfing kl. 14.30, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, bókband, morgunstund kl. 9.30,
boccia kl. 10, upplestur kl. 12.30,
handavinnustofan opin, söngur kl.
10.30, spilað kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn kl.
13, leikfimi kl. 13.15, boccia kl. 15, kaffi-
veitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með
bænastund/morgunsöng á Dalbraut
27 kl. 9.30.
Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára
kl. 17-18 í Grafarvogskirkju og Húsa-
skóla. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í
8.-10. bekk kl. 20 í Grafarvogskirkju.
dagbók
Í dag er mánudagur 21. apríl, 112. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Vakið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Heilbrigðisdeild Háskólansá Akureyri heldur mál-stofu næstkomandi mið-vikudag, kl. 12.10 í stofu
L101 á Sólborg.
Þar mun Guðrún Pálmadóttir iðju-
þjálfi og brautarstjóri iðjuþjálf-
unarbrautar við HA flytja erindið
Endurhæfing frá ýmsum sjón-
arhornum
„Ég byrja erindið á að fjalla al-
mennt um endurhæfingu, hvernig
hún er skilgreind, og rekja í stuttu
máli hugmyndafræðilega sögu henn-
ar,“ segir Guðrún. „Umfjöllunin tek-
ur meðal annars mið af leiðbeiningum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar sem skilgreint hefur endurhæf-
ingu og sett fram kerfi til að flokka og
skýra hugtök sem hafa með end-
urhæfingu og fötlun að gera.“
Líkan WHO leiðbeinandi
Líkan Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar hefur nýverið verið
endurskoðað og gefið heitið Al-
þjóðlega flokkunarkerfið um færni,
fötlun og heilsu, eða ICF í daglegu
tali. „Líkanið er leiðbeinandi kerfi um
þá hugsun og aðferðir sem hafðar eru
að leiðarljósi við endurhæfingu,“ seg-
ir Guðrún. „Líkanið hefur breyst frá
því að einskorðast eingöngu við fötlun
sem skerðingu á getu og afleiðingu
sjúkdóma, yfir í að líta til þess hvern-
ig bregðast má við og bæta samspil
einstaklings og umhverfis, til að auka
þátttöku fatlaðra í samfélaginu.“
Fá tækifæri til þátttöku
Með þessu nýja sjónarhorni segir
Guðrún að þróist nýir möguleikar og
kröfur í endurhæfingu: „Skerðing á
getu þarf ekki endilega að leiða til ör-
orku, og ef umhverfið kemur til móts
við þann fatlaða má hjálpa honum að
lifa eðlilegu lífi,“ segir hún. „Þessi
hugsun endurspeglast mikið í um-
ræðunni í dag, þar sem raddir þeirra
sem þurfa á aðstoð að halda eru orðn-
ar sterkari, og hljóða oft á þá leið að
fólk vill ekki vera í hlutverki þiggj-
enda, heldur fá tækifærin og stuðn-
inginn sem það þarf til að taka ráðin í
sínar hendur.“
Fyrirlesturinn á miðvikudag er öll-
um opinn og aðgangur ókeypis.
Finna má nánari upplýsingar á
heimasíðu Háskólans á Akureyri,
www.unak.is.
Heilsa | Fyrirlestur við HA á miðvikudag um breytingar í endurhæfingu
Ný hugsun í endurhæfingu
Guðrún
Pálmadóttir
fæddist í Húna-
vatnssýslu 1951.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá
MA 1970, iðju-
þjálfaprófi frá
Háskólanum í
Árósum 1974,
og meistaraprófi í þroska- og fjöl-
skyldufræðum frá Colorado State
University 1984. Guðrún hefur
starfað sem iðjuþjálfi frá 1974, og
frá 1997 verið lektor og braut-
arstjóri iðjuþjálfunarbrautar við
Háskólann á Akureyri. Eiginmaður
Guðrúnar er Andrés Arnalds fag-
málastjóri, og eiga þau fjögur börn
og eitt barnabarn.
HNEFALEIKADÓMARINN Joe Cortez sést hér draga
velska hnefaleikakappann Joe Calzaghe af Bandaríkja-
manninum Bernard Hopkins. Þeir Calzaghe og Hopk-
ins öttu kappi í Las Vegas í léttþungavigtarflokki og
fór sá fyrrnefndi með sigur af hólmi. Eins og sjá má af
myndinni var Hopkins nokkuð skemmt yfir inngripi
dómarans en eins og máltakið segir hlær sá best sem
síðast hlær, þ.e.a.s. Calzaghe.
Sá hlær best sem síðast hlær
Reuters
FRÉTTIR
KÓPAVOGSBÆR býður leik-
skólastjórum og aðstoðarleik-
skólastjórum í leikskólum í rekstri
bæjarins upp á stjórnendaþjálfun
þeim að kostnaðarlausu. Markmiðið
með stjórnendaþjálfuninni er að efla
fjárhagslegt og faglegt sjálfstæði
leikskólastjóra í daglegum rekstri.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
Kópavogsbær leggur áherslu á að
hlúa vel að íbúum bæjarins og bjóða
þeim upp á þjónustu í takt við þarfir
þeirra. Í ört vaxandi bæjarfélagi er
mikilvægt að starfsmenn leikskól-
anna vinni saman sem heild að sam-
eiginlegum markmiðum bæjarins.
Stjórnendaþjálfunin verður á veg-
um Þekkingarmiðlunar sem hefur
skipulagt fyrir Kópavogsbæ faglegt
og metnaðarfullt nám sem spannar
tvö misseri. Með verkefni af þessu
tagi vill Kópavogsbær skipa sér á
bekk meðal fremstu bæjarfélaga
landsins á sviði þróunar, menntunar
og fræðslumála.
Síðastliðinn fimmtudag, 17. apríl,
fór fram kynning í Gerðarsafni á
stjórnendaþjálfuninni fyrir leik-
skólastjóra og aðstoðarleik-
skólastjóra í Kópavogi.
Faglegt nám Eyþór Eðvarðsson, leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun og
hópur leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra.
Stjórnendaþjálfun í þágu
leikskóla Kópavogsbæjar
FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar ohf.
undirritaði á dögunum styrktar- og
samstarfssamning við Björg-
unarsveitina Suðurnes. Markmið
samningsins er að styrkja og efla
björgunarsveitina og það mik-
ilvæga starf sem þar er unnið.
Björgunarsveitin mun sjá starfs-
mönnum Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar ohf. og Fríhafnarinnar ehf.
fyrir skyndihjálparkennslu og end-
urmenntun eftir þörfum. Samning-
urinn er liður í að efla rekstur
björgunarsveitarinnar og styrkja
starfsemi hennar, segir í frétta-
tilkynningu.
Innsiglið Sóley Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. og Sigurður Baldur Magnússon, for-
maður Björgunarsveitarinnar Suðurness.
Styrktar- og samstarfs-
samningur við Suðurnes
STARFSFÓLK og nemendur
frumgreinasviðs HR efna til
frumgreinadags í húsakynn-
um skólans að Höfðabakka 9
þriðjudaginn 22. apríl, húsið
opnar kl. 15.30. Nám á frum-
greinasviði hefur í 40 ár verið
leiðin fyrir fólk með iðn- og
starfsmenntun og aðra úr at-
vinnulífinu til undirbúnings
námi á háskólastigi, einkum í
tæknifræði og verkfræði.
Margt verður á dag-
skránni. Það gefst tækifæri til
að hitta nemendur og kennara að
störfum í kennslustofum og jafn-
framt verður kynning á náminu á
frumgreinasviði.
Kl. 16.45 hefst dagskrá með eldri
nemendum deildarinnar. Lára Óm-
arsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, Vikt-
or Arnar Ingólfsson, rithöfundur og
útgáfustjóri hjá Vegagerðinni, Krist-
ín Erla Einarsdóttir, rafmagnsverk-
fræðingur hjá verkfræðistofunni
Mannvit, og Jón Ágúst Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Marorku, verða
með stuttar kynningar.
Allir eru velkomnir. Sjá nánar á
heimasíðu skólans: www.hr.is
Kynning á elsta frum-
greinanámi landsins
Húsakynni skólans á Höfðabakka.