Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN STÆRSTU jökulhlaup á jörðinni eftir ísaldarlok urðu á Íslandi. Þetta voru hamfarahlaup í Jökulsá á Fjöllum sem æddu yfir landið, sum kannski fyrir aðeins um 2000 árum. Hlaupin skildu eftir ummerki í landinu í formi rof- og setmyndana, ein- stök á heimsvísu. Verðmæti tröðkuð og slitin Jarðmyndanir segja sögur þeim sem eru læsir á landið. Við hneykslumst á for- mæðrum okkar sem sniðu skó eða upphluti úr gömlum skinn- handritum eða jafnvel átu þau. Þær skildu ekki til fullnustu verð- mætin sem leyndust á skinninu og áttuðu sig ekki á hver þeirra væru dýrmætust þeg- ar til langs tíma væri litið. Fólk fyrri alda var klæðlítið og svangt og við fyr- irgefum þeim þegar við rýnum í slitrurnar og getum í eyðurnar í sögum og bókmennta- verkum. Ætli komandi kynslóðir fyrirgefi okkur græðgina og frekjuna að eyðileggja ummerki hamfarahlaup- anna á stórum kafla og koma þann- ig í veg fyrir að hægt verði að lesa sögu þeirra í heild til fróðleiks, gleði og hughrifa? Vegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í Dettifossveg. Hann á að vera meðfram Jökulsá að vestan, niðri í hamfarahlaupsfarveginum, ofan Dettifoss. Neðan Dettifoss sker hann sig um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum. Þetta á ekki að vera hógvær ferðamannavegur heldur uppbyggður heilsársvegur með 90 km hámarkshraða. Í nýlegri niðurstöðu úrskurðarnefndar skipu- lags- og byggingarmála (ÚSB) er jafnvel sett fram sú hugmynd að þegar þessi vegur verði tilbúinn mætti loka gamla þjóðveginum austan ár fyrir almennri umferð, þ.e. beina allri umferð, hvort heldur sem það eru flutningabílar eða ferðamenn í sumarleyfi, á hrað- brautina í þjóðgarðinum. Var ein- hver að tala um metnaðarfullar hugmyndir um Vatnajökuls- þjóðgarð og fagurt Ísland? „Niðurstaða samráðshóps!“ Samráðshópur um vegamál við Jökulsá er sagður hafa komist að þeirri niðurstöðu í lok árs 2002 að best væri að leggja heilsársveg vestan Jökulsár. Kelduneshreppur og Öxarfjarðarhreppur mótmæltu strax þess- ari niðurstöðu og ítrekuðu mikilvægi vegar austan ár. Sama gerði þjóðgarðsvörður í bréfi til samgöngu- ráðherra og gerði grein fyrir hags- munum nátt- úruverndar og þjóð- garðsgesta. Engu að síður er sífellt klifað á því að algjör samstaða heimamanna og hags- munaaðila hafi verið um málið, m.a. í of- annefndri niðurstöðu ÚSB. Vegur að austan eða vestan Rök fyrir því að hafa heilsárshraðbraut austan ár og hógvær- an en góðan ferðamannaveg um þjóðgarðinn vestan ár eru fjölmörg. Uppbyggðir hraðakstursvegir eiga ekki heima innan þjóðgarða. Ferða- menn á hraðferð, t.d. þeir sem koma til landsins í skemmti- ferðaskipum, vilja fyrst og fremst sjá Dettifoss og Ásbyrgi. Þessa ferðamenn er hægt að þjónusta miklu betur austan ár en vestan og jafnframt geta þeir, sem góðan tíma hafa, fengið að njóta þjóð- garðsins í friði og spekt. Austan ár er hægt að aka tiltölulega nálægt stórfossunum, jafnvel sjá þá af veg- um eða bílastæðum. Þaðan er gott útsýni yfir hrikaleg árgljúfrin og þar er rennandi vatn og salerni við bílastæðin. Vestan ár verður óhjá- kvæmilega alltaf að ganga nokkurn spöl yfir stórgert hraun til að sjá fossana og gljúfrin. Þegar fólk hef- ur lagt á sig það klöngur er oft illt að sjá Dettifoss fyrir fossúðanum sem leggst yfir vesturbakkann vegna þess hvernig fossinn snýr í gljúfrunum. Fólk verður holdvott jafnvel þótt þurrt veður sé. Að- koma að fossinum að vestan er líka mun hættulegri en að austan. Gegnsósa gróðurtorfur hafa þar losnað úr gljúfrabrúnunum og horf- ið niður í gímaldið og á veturna myndast þar fljótt ísing og svell- bunkar. Við bílastæðið á vest- urbakkanum er ekkert rennandi vatn og fólk verður að sætta sig við að nota kamra. Forsmáð fræðsla Í ár eru 35 ár frá því að þjóð- garðurinn í Jökulsárgljúfrum var stofnaður. Frá upphafi lá fyrir ósk um að þar mætti koma upp gesta- stofu. Slíkar gestastofur í þjóðgörð- um eru hlið ferðamanna inn í þá þar sem fólk sækir sér upplýsingar og leiðsögn. Loks á sl. ári var Gljúfrastofa opnuð í Ásbyrgi, nyrst í þjóðgarðinum. Með lagningu hrað- akstursvegar vestan Jökulsár munu flestir ferðamenn koma inn í þjóð- garðinn úr suðri, í raun bakdyra- megin, og fara ýmist hjá Gljúfra- stofu eða koma þar ekki við fyrr en á leið sinni út úr garðinum og hefðu því ekki hálft gagn af þeim upplýs- ingum sem þar eru veittar. Hraðakstur á heimsminjum Þegar sú ákvörðun hafði verið tekin, á hæpnum forsendum, að leggja veg vestan Jökulsár, en ekki austan, deildu menn um hve nálægt hann mætti vera ánni. Skipulags- stofnun og náttúruverndarfólk lögð- ust á eitt með að núverandi slóð að Dettifossi yrði lagfærð og vegurinn lagður fjarri ánni. Enn og aftur varð málsstaður náttúruverndar undir. Vegagerðin auglýsir nú út- boð vegar á versta hugsanlega stað. Upphækkaður hraðakstursvegur verður lagður ofan í hamfara- hlaupsfarveginum, víða aðeins um 200 m frá ánni. Upphækkuð hrað- brautin á að þrengja sér með Jök- ulsá, á milli árinnar og gígarað- arinnar sem kennd er við Sveina, á landi sem vel landlæst fólk telur ómetanlegt til fræðslu, gönguferða og upplifunar og rótgrónar menn- ingarþjóðir væru löngu búnar að friðlýsa sem heimsminjar. Dettifossvegur Sigrún Helgadóttir skrifar um lagningu Dettifossvegar »Enn og aftur varð máls- staður nátt- úruverndar und- ir. Vegagerðin auglýsir nú út- boð vegar á versta hugs- anlega stað. Sigrún Helgadóttir Höfundur er líf- og umhverfisfræð- ingur. MÁLSMETANDI menn spyrja hvort sýnileg fjölgun aldraðra á næstu árum og áratugum kalli á að aldursviðmið verði sett við meðferðarval. Þessi framsetning er hættuleg og til þess fallin að ýta undir fordóma. Það að fleiri lifa lengur kallar á vandaða skoðun á því hvernig viðbótartím- inn er, heilsa og færni, og hvaða fjár- hagslegar afleiðingar það hefur. Spyrja þarf á opinn hátt hvernig við nálgumst þessa framtíð fremur en að slengja fram hugmyndum um aldursviðmið við meðferðarval. Íslenska þjóðin er lánsöm. Ævi- líkur karla við fæðingu, 79,4 ár, eru þær hæstu í heimi og kvenna, 82,9 ár, með þeim hæstu, og hækkandi hjá báðum kynjum. Kynjamunur á ævilíkum, 3,6 ár, er sá minnsti í heimi. Auk þess er þjóðin vel efnuð. Þess vegna ætt- um við að verða fyrirmynd ann- arra þjóða í því hvernig við for- gangsröðum í heilbrigðisþjónustu og hvernig við útfærum þjónustu við aldraða. Það er mikil einföldun að hugsa um fjölgun aldraðra og útgjöld til heilbrigðismála sem línuleg fyr- irbæri sem haldist í hendur og vaxi eins og eineggja tvíburar. Það eru líka sérkennilegar fullyrð- ingar að útgjöld til heilbrigðismála megi ekki vaxa sem hlutfall af þjóðarframleiðslu eða að þar sem aðrar þjóðir fjárfesti minna, þá séum við að offjár- festa í heilbrigð- ismálum. Spyrja þarf um árangur. Fjár- festa þarf í heilbrigði með forvörnum, meta nýjungar gaumgæfi- lega og veita þjónustu á hagkvæman hátt. Þegar val stendur um meðferð skal skoða ábend- ingar fyrir meðferðinni og hvers hún er megnug fyrir þann ein- stakling, óháð aldri. Breytileiki einstaklinganna vex með aldri og gildir það bæði um heilsufarið og viðhorfin. Það liggja fyrir full- komlega nothæfar leiðbeiningar um bestu nálgun þessara mik- ilvægu spurninga. Þessar leiðbein- ingar eru í senn góðar fyrir ein- staklinginn, heilbrigðisstarfsfólk og leiða einnig af sér hagkvæmni. Réttmæt viðhorf til meðferðar aldraðra hafa styrkst gríðarlega á síðustu tveimur áratugum. Við megum ekki hverfa til fortíðar. Blind aldursviðmið eru óviðunandi. Varðandi fjölgun aldraðra og heilbrigðisútgjöld er vert að hafa eftirfarandi staðreyndir í huga. Samkvæmt rannsóknum eru 65 til 75 ára nú á dögum mun frískari en jafnaldrar þeirra voru fyrir 30 árum, svo dæmi sé tekið af einum aldurshópi. Forvörnum í formi lífsstílsbreytinga og meðferð vegna áhættuþátta sjúkdóma, sjúkdómsmeðferð og endurhæf- ingu er svo fyrir að þakka. Fólk lifir ekki aðeins lengur, heldur einnig betur. Margvísleg forvarn- artækifæri til heilsubótar hjá ein- staklingunum sjálfum á öllum aldri og heilbrigðisþjónustunni eru þó enn vannýtt. Bandarísk rannsókn Mantons og félaga sem bar saman spár frá árinu 1982 við rauntölur 1994 um fjölda aldraðra fatlaðra sýndi, yf- irfært á íslenskan mannfjölda, að 1400 færri voru fatlaðir en spáð hafði verið. Með því að draga úr fötlun er dregið úr einum kostn- aðarsamasta þætti heilbrigðisþjón- ustunnar sem er langtíma- umönnun. Meðferð áhættuþátta, vönduð sjúkdómsmeðferð og end- urhæfing skilar áþreifanlegum ábata við margvíslegum sjúkdóm- um, ekki síst hjá öldruðum. Síðasta æviárið í lífi manns er að jafnaði það kostnaðarsamasta. En því eldra sem fólk er við lífs- lok, þeim mun kostnaðarminna reynist það tímabil. Þar fara sam- an ábendingar um meðferð ein- staklingsins og vilji hans. Margir aldraðir halda lengi góðri heilsu. Það væri fáránlegt að refsa öldr- uðum fyrir að hafa ekki tekið fyrr út heilbrigðisþjónustuna þegar slíkar þarfir verða til í lífi ein- staklingsins á efri árum. Það stendur ekki í samtryggingarskil- málum okkar og á ekki að standa þar. Afstaða til þessara mikilvægu spurningar hefur reyndar þegar verið tekin fyrir 11 árum í þver- pólitískri skýrslu um forgangs- röðun á Íslandi. Útgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið sem hlutfall af landsfram- leiðslu á sama tíma og útgjöld til nauðsynlegrar framfærslu hafa lækkað. Með auknum hagvexti er áfram svigrúm fyrir þessa þróun. Hver nýjung, og þar með kostn- aðarauki, þarf að sanna sig í rann- sóknum á notagildi og ábata. Æv- inlega ber okkur að lágmarka sóun sem getur falist í gagnslausri meðferð. Lífeyrissjóðsmyndun, séreignasparnaður og önnur eignamyndun ættu að skapa tæki- færi á því að nýta ábatasamar nýj- ungar þegar til framtíðar er litið, ef núverandi form á fjármögnun í gegnum skatta hrekkur ekki til. Við eigum að fjárfesta í heil- brigði á efri árum og veita góða einstaklingsmiðaða þjónustu á sem hagkvæmastan hátt, mæla þarf- irnar og meta árangurinn. En við þurfum ekki, og megum ekki, tak- marka gagnlega meðferð ein- staklings á aldursviðmiðum. Í þessu samhengi er mikilvægt að rýna í tillögur að nýju háskóla- sjúkrahúsi, það nauðsynlega og verðuga verkefni, og tryggja að fyrirliggjandi tillögur mæti for- dómalaust þörfum vaxandi fjölda aldraðra á næstu 50 árum og leng- ur. (Höfundur bendir á heimildir ef þess er óskað.) Aldraðir, fordómar og forgangsröðun Pálmi V. Jónsson fjallar um aldraða og heilbrigðis- þjónustuna » Blind aldursviðmið eru óviðunandi. Rýna þarf í tillögur að nýju háskólasjúkrahúsi og tryggja að það mæti fordómalaust þörfum vaxandi fjölda aldraðra. Pálmi V. Jónsson Höfundur er lyf- og öldrunarlæknir, sviðsstjóri lækninga á öldrunarsviði Landspítala og dósent við læknadeild Háskóla Íslands. AÐ BREYTA einhverju sem ver- ið hefur við lýði í áratugi getur reynst þrautin þyngri. Enn fyrirfinnast kerfi og stefnur sem fest hafa sig í sessi með þeim hætti að mönn- um hrýs hugur við að hrófla við þeim. Sam- félagsþróun, hagræð- ing og markaðslögmál eru oftar en ekki með- al ástæðna þess að stundum er nauðsyn- legt að taka til hend- inni við breytingar ef ekki á að verða stöðn- un. Styrkjakerfi land- búnaðarins er eitt af þeim kerfum sem kall- ar á gaumgæfilega endurskoðun. Óánægja með fyr- irkomulagið sem nú ríkir varðandi styrki (beingreiðslur) til bænda heyrist mér vera a.m.k. af tvenn- um toga. Annars veg- ar eru styrkir til bænda ekki í miklu samræmi við alþjóða- samninga. Hins vegar miðast niður- greiðslukerfið fyrst og fremst við gömlu búgreinarnar, kjöt og mjólkurframleiðslu, og hef- ur þannig hindrandi áhrif á að eðli- leg framþróun verði í landbún- aðarframleiðslu. Eins og búvörulögin eru nú er loku fyrir skotið að landbúnaðurinn geti aukið fjölbreytni sína því að niðurgreiddar gamlar búgreinar eru í samkeppni við óniðurgreiddar nýbúgreinar. Ekki einungis miðar núverandi styrkjakerfi að því að styrkja eingöngu gömlu búgrein- arnar heldur eru styrkirnir einnig með þeim hæstu sem fyrirfinnast í OECD-löndunum. Meira en helm- ingur tekna bænda eru í formi op- inberra styrkja til landbúnaðarins. Málið er sannarlega viðkvæmt. Bændur vilja eðlilega halda þessu óbreyttu enda kannski ekki að undra. Ef hrófla á við ríkjandi fyr- irkomulagi er viðbúið að þeir mót- mæli. Óskandi væri ef hægt væri að samein- ast um aðgerðir sem væru í sem mestri sátt við bændur, neytendur og landnýtingu. Ef til einhverrar uppstokk- unar kæmi er e.t.v. óraunhæft að ætla að allir hagsmunaaðilar verði jafn-sáttir. Það fyrirkomulag sem nú ríkir í þessum efnum er barn síns tíma. Ekki einungis er gríðarlegum fjár- munum varið í þennan málaflokk heldur eru ríkisafskipti í þessu formi að gera fátt ann- að en að draga úr eðli- legri markaðsþróun á afurðum landbúnaðar- ins. Spurning er hvort ekki sé tímabært að draga eitthvað úr rík- isafskiptum yfirhöfuð. Eins væri eðlilegt að styrkjum almennt séð væri veitt jafnar. Með því að veita þeim jafn- ar, mun frjálsræði aukast sem leiðir til hagkvæmari fram- leiðslu og lækkunar á verði land- búnaðarvara. Uppstokkun í þessa átt er í góðu samræmi við landbúnaðarályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins en þar segir m.a.: „Landbúnaðurinn stendur ávallt frammi fyrir kröfu um aukna hagræðingu og sam- keppni, sem verður að mæta. Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa þau skilyrði, að landbúnaðurinn geti mætt minnkandi tollvernd og lægri framleiðslustyrkjum … og vill stefna að því að almenn markaðs- lögmál gildi í landbúnaði.“ Óttinn við að hrófla við styrkjakerfi landbúnaðarins Kolbrún Baldursdóttir skrifar um landbúnaðarstefnuna » Almennt séð er mikilvægt að draga úr rík- isafskiptum. Eins væri eðli- legt að styrkir væru ekki bundnir aðeins fáeinum til- teknum land- búnaðarafurð- um. Höfundur er sálfræðingur og vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Kolbrún Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.