Morgunblaðið - 21.04.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 35
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
- H.J., MBL
eeee
Sýnd kl. 6
-bara lúxus
Sími 553 2075
- S.V., MBL
eee
Tropa de Elite enskur texti kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára
King of Kong íslenskur texti kl. 8 Leyfð
The Band’s Visit enskur texti kl. 6 - 10:20 Leyfð
Caramel enskur texti kl. 8 Leyfð
Beufort enskur texti kl. 8 B.i. 14 ára
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
endurgreitt
í Regnboganum
Sýnd kl. 5:45. 8 og 10:15
Ver
ð aðeins
550 kr.
Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
Sýnd kl. 8 og 10
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS
ALLAR UPPLÝSINGAR
Á GRAENALJOSID.IS
FALLEG
Sala á 12 mynda pössum hafin á Miði.is
og í Regnboganum.
BÍÓDAGARREGNBOGINN11.-30. APRÍL
GRÆNA LJÓSSINS
- A.S., MBL
- S.V., MBL
- H.J., MBL
- V.J.V.,
TOPP5.IS/FBL
“tryllingslegt hnefahögg
í andlitið!”
- S.V., MBL
- K.H.G., DV
CARAMEL
- S.V., MBL
- A.S., MBL
Bella enskur texti kl. 10 Leyfð
The Age og Ignorance enskur texti kl. 10 Leyfð
Surfwise sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 6 Leyfð
Lake of Fire sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 10:15 B.i. 14 ára
War/Dance sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 6 B.i. 7 ára
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Sýnd kl. 8 og 10:15
- L.I.B.,
TOPP5.IS/FBL
- H.J., MBL - L.I.B. TOPP5.IS, FBL
TÖLVULEIKIR
PS3
Condemned 2: Bloodshot
bbbbn
Sega
ÞAÐ MÁ með sanni segja að þessi
leikur sé ekki fyrir viðkvæma eða
börn. Condemned 2: Bloodshot ger-
ist í drungalegum og þunglynd-
islegum heimi þar sem allt hefur far-
ið til fjandans, fólk fremur hryllileg
ofbeldisverk upp úr þurru og stór
hluti borgarinnar er þakinn svörtu
slími sem tryllir lýðinn og þeir sem
lenda í því breytast í einhvers konar
slímskrímsli sem vilja engum gott.
Lögreglan er ráðþrota gegn þessu
vandamáli og verður að stóla á einn
mann, mann sem var rekinn úr lögg-
unni en er sá eini sem getur tekið á
málunum, eins og sannri hetju er
líkt. Ethan Thomas er sú hetja, of-
beldisfullur alkóhólisti sem leysir
málin með hnefunum og viskíglasi.
Hver segir svo að við eigum engar
fyrirmyndir lengur?
Condemned 2 er fyrstu persónu
slagsmálaleikur þar sem handalög-
mál eru í fyrirrúmi en það fer mun
minna fyrir skotbardögum. Sem Et-
han Thomas þarf maður að rannsaka
staði þar sem glæpir hafa verið
framdir og senda upplýsingar til
höfuðstöðvanna. Þannig sér maður
sjálfur um framvindu sögunnar og
leysir fjölmargar gátur meðan á leik
stendur. En meginhluti leiksins
snýst um að vafra um dimma ganga
og götur og slást við snarklikkaða
glæpamenn og ganga frá þeim með
hrottalegum hætti. Leikurinn er svo
yfirfullur af drunga og hryllingi að
undirritaður hefur sjaldan lent í
öðru eins, ekki frá því hann lék Resi-
dent Evil þar sem stressið náði álíka
hæðum, leikurinn nýtir hljóð og
mynd til hins ýtrasta og skelfir
mann verulega með látum og hrotta-
skap. Þó rennur hann
ljúflega í gegn að
mestu leyti og mælir sá
sem hér skrifar með því að menn
spili hann að kvöldi til með ljósin
slökkt og heyrnartól á höfði.
Grafíkin er vel nýtt í þessum leik.
Hann gerist allur að næturlagi eða í
dimmum skúmaskotum og hönn-
uðum tekst vel að koma til skila nið-
urníðslu og subbu-
skap þó svo flest sé
falið í skuggum.
Leikmaðurinn hefur
úr úrvali vopna að velja
en þau liggja á víð og
dreif um borð leiksins;
hækjur, spýtur, rör og fleira og
óvinurinn getur einnig notað
þessi tæki og tól til þess að
murka úr þér lífið.
Þetta gerir leikinn nokkuð erf-
iðan og bardagakerfið er eitthvað
sem maður verður að venjast fljótt
því í fyrstupersónuleikjum er maður
vanari því að nota skotvopn en hnef-
ana til að verja sig. Það getur verið
nokkuð erfitt að ná tökum á bar-
dagakerfinu en þegar það tekst er
barið hrottalega á óvinunum. Þessi
dimma grafík gerir það reyndar
einnig að verkum að maður hleypur
stundum um eins og hauslaus hæna í
leit að því sem maður á að gera næst
því lítið sést í myrkrinu.
Hljóðvinnsla er með eindæmum
góð, umhverfishljóð eru mikið not-
uð og þögnin á einnig stóran þátt í
því að gera leikinn drungalegan.
Leiklestur er í ýktari kantinum og
allir tala eins og þeir séu í töff-
arakeppni.
Þetta er ofbeldisfyllsti leikur
sem ég hef séð í háa herrans tíð og
því er hann alls ekki fyrir börn
eða viðkvæma. En hann get-
ur fryst í manni blóðið á
köflum, er virkilega drunga-
legur og því er hægt að
mæla með honum fyrir aðdá-
endur Resident Evil og Silent Hill-
leikjanna.
Leikurinn er fáanlegur á Playsta-
tion 3 og Xbox 360.
Ómar Örn Hauksson
Spilun bbbnn
Grafík bbbbn
Hljóð bbbbn
Ekki fyrir
viðkvæma
TÖLVULEIKIR
Dark Sector
PS3
bbbbn
Digital Extremes
DARK SECTOR minnir, líkt og Con-
demned, svolítið á Resident Evil leik-
ina, bæði í útliti og söguþræði, en ein-
blínir þó meira á hasarinn en hrylling.
Hayden Tenno er meðlimur sér-
sveitar einnar sem er sendur til Aust-
ur-Evrópu að stöðva hryðjuverka-
menn. Hann særist í átökum við þá
og smitast af vírus sem er að gera allt
vitlaust á svæðinu. Með þessum vírus
breytist Hayden í hálfgerða ofur-
hetju, kastvopn vex út úr hendinni á
honum sem virkar eins og bjúg-
verpill. Eftir þessa breytingu þarf
Hayden að berjast við hermenn,
óvætti og tryllitæki til þess að komast
að sögunni á bak við vírusinn óg-
urlega.
Leikurinn minnir að vissu leyti á
Gears of War, Resident Evil og
Uncharted: Drakes fortune sem er
alls ekki slæm blanda. Hins vegar
verður hann einhæfur á köflum og
bardagakerfið er ekki nógu traust
þegar maður þarf að nota kastvopnið
ógurlega í nánum félagsskap. Kast-
vopnið er hins vegar frábært þegar
maður situr í skjóli og kastar því að
óvinum sínum því á ákveðnum stund-
um í leiknum getur maður stjórnað
því á flugi: fyrir horn og undir hindr-
anir sem verða á vegi þess og maður
getur aflimað óvininn í „slow motion“
sem er afskaplega hressandi. Kast-
vopninu er bæði hægt að stjórna með
„sixaxis“ hreyfitækninni og hægri
stýripinnanum, og mæli ég með þeim
hægri í þeim tilgangi.
Maður skiptist á því að beita skot-
vopnum og kastvopninu eftir að-
stæðum og menn ættu fljótlega að
komast upp á lagið með það.
Leikurinn er ekkert sérstaklega
eftirminnilegur en býður upp á mögu-
leika sem hægt væri að fínstilla í
væntanlegum framhaldsleik.
Grafíkin í leiknum er vel úr garði
gerð, útlitshönnun er fín og nær að
framkalla fína stemningu. Þó voru
uppvakningarnir frekar óspennandi í
útliti og hönnun. Hljóðvinnslan er
einnig hin fínasta, umhverfishljóð vel
gerð og tónlistin virkilega vel samin
og nýtt. Leiklestur er fínn og alls ekki
ýktur.
Þetta er leikur sem getur stytt
manni stundir en skilur lítið eftir sig.
Hann minnir kannski of mikið á aðra
betri leiki sem hafa komið út en nýtir
þá eiginleika ágætlega samt sem áð-
ur.
Ómar Örn Hauksson
Ofurhetja með bjúgverpil
Spilun bbbnn
Grafík bbbnn
Hljóð bbbbn