Morgunblaðið - 21.04.2008, Síða 39

Morgunblaðið - 21.04.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 39 Ánægðar Sælir fatahönnuðir að lokinni sýningu, þær (f.v.) Inga Björk, Gunnhildur Edda, Tinna, Eva María og Arna Sigrún að lok- inni tískusýningu að Skúlagötu 28. Verk Tinnu Hallbergsdóttur, sundbolur unninn úr forláta kanínu- skinni. Bleikt pils og blár kragi, verk Ingu Bjarkar Andrésdóttur. Krúttið er dautt segir Arna Sigrún Haralds- dóttir og teflir fram hárbeittu ofurkvendi. Verk Evu Maríu Árnadóttur, teygðu sig aftur til 9. ára- tugarins, í það minnsta axlirnar. Blóð, sviti og tár TÍSKUSÝNING útskriftarnem- enda í fatahönnun við Listahá- skóla Íslands var haldin sl. föstudag í húsi sem áður til- heyrði kexverksmiðjunni Frón á Skúlagötu. Fimm nemendur, allt ungar konur, sýndu þar af- rakstur námsins og má með sanni segja að þar hafi sköp- unarkrafturinn verið leystur úr læðingi. Blaðamaður heimsótti nem- endur nokkrum dögum fyrir sýningu og bað þá um að lýsa hönnun sinni í sem stystu máli. „Blóð, sviti og tár,“ var svarað um hæl, enda hluti af fatahönn- un að stinga sig á saumnálum og að vinna baki brotnu. Verk Evu Maríu Árnadóttur, nokk- uð djarft telft að ofan, leðurstunga í buxum og skikkja úr bómull samföst brjóstahaldara. Morgunblaðið/Jón Svavarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.